Helgarblaðið - 13.03.1992, Side 9

Helgarblaðið - 13.03.1992, Side 9
Helgar 9 blaðið Ve&u r I dag verður norðlæg átt, allhvöss eða hvöss norðaustanlanas en kaldi eða stinningskaldi sunnanlands og vestan. Um norðan- og austanvert landið verður snjókoma eða éljagangur en úrkomulaust og víðast bjart veður s.unnanlands og vestan. A morgun er gert ráð fyrir minnkandi norðanátt oa éljagangi norðanlands en í öðrum landshlutum verður hægviðri og I jltskýjað. Frost á bilinu 10 til 20 stig. A sunnudag verður vaxandi suðaustanált og þá dregur úr frosti, fyrst vestanlands. Dálítil snjókoma sunnanlands en lengst af bjart veður norðaustantil. Mín útivist Birair Þorgilsson ferðamálastjóri Ég er nú alinn upp í sveit og útivist hefur alltaf verið hluti af tilverunni, bæði við leik og störf. Mér finnst nauðsynlegt, þegar maður vinnur við skrifborð liðlangan daginn, að komast út í náttúruna og mín útivist felst aðallega í hestamennsku og golfi. A vetuma er ég með hesta í bænum og fer eins mikið og ég get á hestbak en daglegar gegningar em auðvitað líka mikil útivera. Það er í raun ekki hægt að lýsa því hve nálægð við lifandi skepnur, sérstaklega hesta, gefúr manni mikið. Eg fer mest í styttri útreiðartúra en þó kemur fyrir að maður fer í lengri ferðir, t.d. upp í Borgarfjörð eða jafnvel þvert yfir landið. Auk þess að vera með hesta hef ég stundað talsvert golf á sumrin. Það passar oflast þegar sumarið gengur í garð, að þá sendir maður hrossin burt og tekur fram golfkylfúmar. Það er líka mjög hressandi og í raun meiri líkams- hreyfmg en margur heldur því maður gengur mjög mikið við golfið. Reyndar má nú segja að í mínu starfi felist ekki bara skrifborðsvinna því auð- vitað er maður í tengslum við ferða- þjónustuna þannig að útivistin tengist bæði starfi og ffítíma, rétt eins og í sveitinni forðum. Hott, hott í Reiðhöllinni „Hér er vísir að reiðkennslu og óhætt að segja að undir- tektímar hafi verið góðar. Boðið er uppá tíma bæði fyrir byrjendur og þá sem em lengra komnir í hesta- mennskunni. Á hverjum virkum degi koma hingað 80-90 nemendur," sagði Laugar- dagsganga Hana nú Gönguklúbburinn Hana nú í Kópavogi verður með sína viku- legu laugardagsgöngu á morgun og verður safnast saman við Fannborg 4 klukkan hálftíu. Þeir sem áhuga hafa á klukkutíma göngu um götur bæjarins stilla vekjaraklukkuna og velja fatnað eftir veðri. Skoöunar- ferö um Sandgerði Náttúruvemdarfélag Suðvestur- Iands fer í sína þriðju ferð í ferða- röðinni „Framtíðarsýnin okkar“ á morgun, laugardag. Að þessu sinni verður farið í skoðunarferð um Sandgerði. Lagt verður af stað frá grunn- skólanum í Sandgerði kl. 10.30 og gengið umhverfis þéttbýlið og rætt um framtíðarsýn þess sem heildar. Gert er ráð fýrir að gangan standi yfir í tvo og hálfan tíma. í fór verða ffóðir menn og eru allir vel- komnir. Ekkert þátttökugjald. Fjölbreyttar sunnudags- feröir Áhugafólki um útivist standa til boða fjölbreyttar göngu- og skíðagönguferðir með Ferðafélagi íslands sunnudaginn 15. mars. Um morguninn kl. 10.30 verð- ur gengið á skíðum milli hrauns og hlíða við Hrómundartind og er þátttökugjald krónur 1100. Eftir hádegið kl. 13 verður farið í Kjal- amesgönguna. Gengið verður með undirhlíðum Esju þar sem er að finna skemmtileg náttúrufyrir- bæri, svo sem gilið við Mógilsá og sérkennilegar klettamyndir. Á sama tíma er boðið upp á skíða- göngu um Hellisheiði-Hverahlíð og er reiknað með að gengið verði í tvo og hálfan til þijá tíma. Að lokum býður Ferðafélagið uppá fjallgöngu og verður gengið á Stóra- og Litlameitil. Brottför er að venju ffá Um- ferðarmiðstöðinni austanmegin og verður stansað við Mörkina 6. _________________________I Jón Albert Sigurbjömsson hjá Reiðskólanum í Víðidal. Reiðskólinn hf. í Viðidal er hlutafélag sem sett var á fót fyrir þremur árum þegar Reiðhöllin fór i þrot. Stærstu hluthafar eru hesta- mannafélögin á Stór- Reykjavíkur- svæðinu, Félag hrossabænda, Landssamband hestamanna og Hestaíþróttasamband íslands. Skól- inn leigir aðstöðuna af Búnaðar- bankanum. I fyrra var gerður samningur inilli Reiðskólans og íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur sem tók höllina á leigu yfir sumarið. 1 haust var svo gerður annar leigu- samningur milli þessara aðila og hefur íþrótta- og tómstundaráð höllina á leigu í vetur ffá kl. 10-18 á daginn. Þar er boðið uppá reið- kennslu fyrir nemendur í 5., 6. og 7. bekk grunnskólans. Iþrótta- og tómstundaráð sér alfarið um kennsluna en aftur á móti sér Reið- skólinn um að útvega hross til kennslunnar og ennfremur er kennslan tekin upp á myndband. Þannig geta nemendumir séð sjálfa sig á hestbaki og hvað þeir gerðu rétt eða rangt eftir atvikum. Þa& skemmtilegasta Jón Albert segir að tómstundir á hestum séu töluvert frábrugðnar öðru tómstundagamni því að verið væri að fást við lifandi dýr en ekki dauða hluti. „Skíðin getur þú lagt til hliðar að lokinni notkun en það er ekki hægt þegar hestar em ann- ars vegar.“ Það er ekki aðeins að gmnn- skólanemendur hafi mikinn áhuga á hestum og reiðmennsku heldur hafa einnig fóstmr komið þangað með leikskólakrakka. Ennfremur hefur Reiðskólinn boðið uppá reiðnám- skeið fyrir fatlaða. Meðal annars kom þangað hópur blindra og var ekki að sjá að það væri neitt vanda- mál fyrir þá að fara á hestbak. Það sem nemendum er kennt í skólanum er m.a. að beisla, leggja á hnakk og kemba hrossunum. Jón Albert segir að byrjendum sé yftr- leitt ekki kennt á gangtegundir ís- lenska hestsins en þær em tölt, brokk, stökk, skeið og fetgangur. Þess í stað er meira farið út í það að útlista fyrir krökkunum ásetu og stjómun og að nota líkamann rétt á hestbaki. Helstu mistökin sem byrj- endur á hestbaki gera er að þeir hækka taumhaldið, færa þyngdar- punktinn upp og em fyrir vikið mun valtari í hnakknum, beita hest- inum vitlaust, stíf í baki og öxlum sem getur orðið til þess að þau detta af baki. Þegar Helgarblaðið lagði leið sína í Reiðhöllina fyrr í vikunni var þar hópur nemenda úr Selásskóla. Sólrún Steinsdóttir 11 ára var þama að stíga sín fyrstu spor í reið- Sólrúnu Steinsdóttur, 11 óra nemanda í Selós- Sigurói Júliussyni, 10 óra nemanda i Selósskóla, skóla, rinnst skemmtilegast áb vera ó hestbaki. finnst skemmtilegast aó lóta hestinn hlaupa. mennskunni og var í sínum þriðja tíma. Þrátt fyrir það sagðist hún ekki vera með öllu ókunnug hestum því frændi hennar og frænka ættu hesta. Hún sagði hestamenns'kuna vera það skemmtilegasta af öllu og hún sæi svo sannarlega ekki eftir því að hafa farið á reiðnámskeið. Sigurður Júlíusson 10 ára sagði að hesturinn væri besti vinur sinn og það væri ofsalega gaman að fara á hestbak og lát’ann hlaupa. Sig- urður sagðist sjálfur eiga hest, eins og raunar öll fjölskyldan, og því væri hann síður en svo ókunnugur hrossum. Hann þvertók heldur ekki fyrir þann möguleika að hann yrði hestamaður þegar hann yrði stór. AUGLÝSING 15-24 ára 25-34 ára 35-44 ára 45-54 ára 55-69 ára Kolaportið er einn vinsælasti samkomustaður borgarinnar. Súluritið sýnir hlutfall höfuðborgarbúa sem þangað hafa komið. / Ibúar höfuðborgarsvœðisins markaðsglaðir: 75% hafa komið í Kolaportið Kolaportið hcfur verið ábcrandi vinsæll liður í hclgarlífi Reykvíkinga en niðurstöður skoðana- könnunar scm íslenskar markaðsrannsóknir 'gcröu nýlcga koma samt mjög á óvart því þar kemur fram að hvorki meira né minna cn 75% íbúa höfuðborgarsvæðisins hafa komið í Kolaportið og 62% allrar þjóðarinnar. Það kcmur einnig í ljós í könnuninni að flestir segjast gestirnir hafa komið oft í Kolaportið og 4% þjóðarinnttr hefur komið þangað 23 sinnum cða oftar. Ekki er að finna marktækan mun á gestum eftir kyni eða tekjum. Að meðaltali korna um tíu þúsund manns í Kolaportið hvern markaðsdag þar sem yfir 100 seljendur bjóða upp á nánast allt milli himins og jarðar. Nokkrir scljcndur hafa þar fasta söluaðstöðu en flestir eru nýir um hverja helgi, eins og t.d. fjöldi félagasamtaka og einstaklinga sem eru að afla sér fjár með margvíslegum hælti. Kolaportið er þannig síbreytilegt og mannlífið fjölskrúðugt en þar er alltaf gott veður og hciðskírt cnda allir f sólskinsskapi. Kolaportið er opið á laugardögum kl. 10-16 og sunnudögum kl. 11-17. Myndir: Kristinn.

x

Helgarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.