Helgarblaðið - 13.03.1992, Síða 12

Helgarblaðið - 13.03.1992, Síða 12
ÖII almenn farseÓlasala Laugavegi 3, Reykjavík, sími 91-626362 og Fjarðargötu 8, Seyðisfirði, sími 97-21111 Helgar 12 blaðið Helgar 13 blaðið Nú vorar í Eistlandi. íbúar í bænum Tappa í norðurhluta landsins finna fyrstu vorboðana. Jörðin byrjar að sortna afolíu sem vellur upp, olíu- daunninn liggur yfir svæðinu ogsvo kvikna eldarnir sem loga vikum sam- an. Það er grunnvatnið peirra sem log- ar vegna olíumengunar. Tappa var fag- ur smábær og herragarður en síðan reistu Rússarnir þar risastóran flugvöll og herstöð. Nú eru afleiðingarnar af margra ára olíumengun að koma fram; þegargrunnvatnið stígur í leysingum á vorin, vellur olían uþþ á yfirborðið á stóru svæði umhverfis flugvöllinn. En það er fleira en olía sem nú kemur uþþ á yfirborðið í Eistlandi; lokinu hefur verið lyft afkraumandi þotti. Steinblokkir í miðborg Tallin, tókn um varj- stöbu eistneskra þjóðernis- sinna er þeir áttu í átökum við sovéskar hersveitir á síðasta ári. Áf bverjti ckki að aka af iattdi brotf œtd Norrasnu ? Sigling með Norrænu er ævintýri, sem allir ættu að láta eftir sér, og frekar fyrr en síðar ! Hvers vegna ekki að láta nú drauminn rætast og drífa sig með Norrænu í sumar ? Norræna siglir frá Seyðisfirði vikulega 4/6-1/9 til nágrannalanda okkar, Færeyja, Danmerkur, Hjaltlands og Noregs. Og nú bætist einn áfangastaður við, Skotland, með gamla góða Smyrli, sem siglir frá Seyðisfirði til Aberdeen og til baka frá Scrabster á norðurströnd Skotlands. Norræna getur flutt 1050 farþega og 300 bíla.. Öll aðstaða um borð er eins og best verður á kosið. Lúxusklefar með tvöföldu rúmi, tveggja manna klefar, fjögurra manna klefar eða svefnpokapláss. Leikherbergi fyrir bömin, sólbaðsþilfar - og verslanir með rnikið úrval af tollfrjálsum vamingi. Fyrsta flokks veitingastaður og ágætur skyndibitastaður. Notalegur bar og næturklúbbur með lifandi tónlist fyrir nátthrafna. Sigling meb Norrænu - ævintýralegt sumarfrí. Sviðin jörð og sært stolt □ ftir áratuga undirokun grafa Eistar í sögu sína og reyna að gera upp við for- tíðina. Þegar fólk á borð við sagnfræðinginn Evald Lassi og gyðingaforkólfínn Eugeniu Loov- Gurin byrjar að grafa í gömul skjalasöfn kemur ýmislegt fram í dagsljósið. Allt í einu kemur upp nafn á Islendingi sem er hluti af flókinni og viðkvæmri sögu, tengsl Eista við Rússa og samskipti þeirra við nasista í stríðinu. Sjálfstætt Eist- land með um 40 prósent íbúanna rússneskumælandi og af rússnesku bergi brotna þarf að leysa erfið vandamál. Hver eiga að verða rétt- indi Rússa sem búa í Eistlandi? Hvemig á að taka á Rússahatrinu sem nú blossar upp? Er andsemít- ismi að vakna á ný? Hvemig geta Eistar leyst þau ótrúlegu umhverfis- vandamál sem miðstýrð iðnvæðing- in hefur leitt af sér? Olían flýtur Það er martröð líkast að virða fyr- ir sér jörðina umhverfis herflugvöll- inn í Tappa. Jarðvegurinn er gcgn- vættur af olíu og hvarvetna loga eld- ar sem bændurnir kveikja í von um að losna við eitthvað af olíunni sem kemur upp. Arum saman helltu rússnesku hermennimir olíu í stóra bmnna við flugvöllinn en líkt og víðast í Eistlandi er sprungið kalk- steinslag undir sverðinum og olían lak út í grunnvatnið á öllu svæðinu. Flugmenn sem fengu skammtaða ol- íu fyrir ákveðna flugtíma og nenntu ekki að sinna skyldum sínum, helltu olíunni niður til að blekkja her- stjómina. Aflciðingin er nær ónýtur jarðvegur og allt vatn þarf að flytja til Tappa. Ekki langt frá Tappa í austri er Kadila-skógur og þar blasir við ann- ars konar eyðilegging af völdum sovéska hersins. I Kadila-skógi var leynileg eldflaugastöð falin á um 400 hektara svæði. Skömmu eftir 1980 ákvað sovéski herinn að leggja hana niður. Aðferðin var einföld: Þeir bmtu niður öll mannvirki á svæðinu og skildu eftir sig skóg fullan af rústum. Það er erfitt að imynda sér hve mikinn tíma og hve mikla peninga þarf til að hreinsa til í þessum fagra skógi. En það er líka ómögulegt að segja til um hver um- hverfisspjöllin verða að lokum því fljótlega eftir að herinn yfirgaf svæðið uppgötvuðu Eistar að hann hafði skilið eflir sig olíubirgðir grafnar í jörðu. I tíu ár hafa bændur á samyrkjubúunum í grenndinni ausið olíu úr jörðu og enginn veit hve mikið magn er enn að finna undir skóginum. Þegar maður upplifir þau geig- vænlegu umhverfisspjöll sem fram- in hafa verið í Eistlandi á undan- fomum áratugum er ekki erfitt að skilja að sjálfstæðishreyfing Eista skuli hafa sprottið af umhverfis- vakningu. Sjálfstæðisvakningin hófst í Norður- og Austur-Eistlandi, á iðnaðarsvæðum á borð við Kohtla Járve þar sem um 2000 hektarar eru mengaðir vegna efnaiðnaðar og fos- fór- og olíusteinsnáma. Mótmæli gegn frekara olíusteinsnámi kveiktu neistann sem síðar varð að báli. Þegar olíusteinn er numinn er sverð- inum flett af kalksteinsundirlaginu og skóflað í risavaxnar hæðir. Síðan er bergið sprengt upp og olíusteinn- inn flokkaður frá kaíksteininum. Eftir er tungllandslag mcð einkenni- lega löguðum hæðum. Umhverfis Kohtla Jarve voru áður blómleg landbúnaðarsvæði sem fæddu fjögur þorp, nú er þar ónol- hæf jörð. Annað vandamál skapast þcgar olíusteinninn er brenndur. Að- eins hluti brennur en hitt vcrður að ösku. Við raforkuverin myndast því risavaxin Ijöll af grárri þurrösku og þcgar þurrt er í veðri rýkur af þeim yfir nágrennið. Við orkuverið í Nar- va í Austur-Eistlandi sá ég þurr- öskufjöll scm voru margir kílómetr- ar að lengd. Það er erfitt að koma orðum að þeirri tilfinningu sem grípur mann andspænis svona eyði- leggingu. Bætt fyrir brot Rússa Þótl auðvclt sé að fyllast vonleysi reyna Eistar nú að bæta spjöllin, til dæmis með skógrækt á þeim svæð- um sem olíusteinsnámið hefur skilið eftir í auðn. í Eistlandi lílur fólk svo á að það sé að bæta fyrir það sem Rússamir gerðu rangt og eyðiiögðu í landinu þeirra. Eistar bera því eng- ar hlýjar tilfinningar í garð Rússa og sífellt kemur upp fleira og fleira úr fortíðinni. Eitt lítið dæmi er að þeg- ar styttan af Lenin, sem stóð fyrir framan aðalstöðvar kommúnista- flokksins í Tallinn, var íjarlægð í fyrra brotnaði stallurinn í sundur og í ljós kom að hann var hlaðinn úr legsteinum. Þessir legsteinar höfðu verið teknir úr kirkjugarði á Kopli- nesinu í Tallinn þar sem einkum voru jarðsettir eistenskir listamcnn og menningarforkólfar liðinna ára. Þegar sagnfræðingurinn Evald Lassi talar um gjörðir Rússanna í Eistlandi brennur eldur í augum hans. Lassi er einn þeirra sem hafa rannsakað skjalasafn kommúnista- flokksins. Á fundi sem ég átti með honum fullyrti þessi gamli maður að á meðan Rússamir, óvinir eistnesku þjóðarinnar, búi meðal þeirra, sé sjálfstæði Eistlands aðeins að form- inu til. „Það verða endalok eistnesku þjóðarinnar ef Rússamir fá ríkis- borgararétt hér,“ sagði Lassi. Hann bætti við að hann byggist ekki við að ég gæti skilið tilfinningar sínar og sjónarmið. Lassi var ungur drengur þegar Rússamir komu og kveðst hvorki geta né vilja gleyma því. Hann sagði mér sögur af nauð- ungarflutningum þúsunda Eista til Síbiríu og af baráttu eistneskra skæruliða gegn hemáminu. Tími skæruhemaðar Eista gegn Rússum er sérgrein Lassis og hann leitar nú skjala um skæruhreyfing- una í nýopnuðum skjalasöfnum Kommúnistaflokksins. Sögumar af þessari baráttu hafa greinilega mikið tilfinningalegt gildi fyrir þau átök sem nú em í Eistlandi. Evald Lassi skrifar frá Eistlandi táraðist þegar hann sagði mér sög- una af orrustunni um bæ ekkjunnar Mörtu Meritz í Suður-Eistlandi. Þar vörðust 6 skæruliðar árás 120 rúss- neskra hermanna í 8 klukkustundir eða allt þar til skæruliðamir og ekkj- an vom brennd inni. Aður en þau voru brennd náðu þau að skrifa bréf og fela í bænum. Þetta bréf varð- veittist og Evald Lassi fann það í skjalasafni Kommúnistaflokksins. í bréfinu er hvatt til þrollausrar bar- áttu gegn rússneskum yfirráðum í Eistlandi og það er sú barátta sem Evaid Lassi getur nú tekið upp eftir áratuga undirokun. Lokinu hefur verið lyft af. En það er óneitanlega óhugnanlegt að upplifa það hatur sem Lassi er fullur af og sú spuming er áleitin hvort það skapi ekki óleys- anleg vandamál í Eistlandi ef slíkar tilfinningar fá að ráða ferðinni. Mikson-málið Þegar talið berst að tengslum eist- nesku skæmliðanna við nasista í síðari heimsstyrjöldinni er greini- lega komið inn á viðkvæmt svið. Lassi segir skæmliðana hafa viljað hjálp frá Vesturlöndum en þegar hún kom ekki snem þeir sér til Þjóð- verja. „Við hefðum þegið hjálp frá andskotanum sjálfum í þeirri baráttu sem við háðum gegn Rússum,“ sagði Lassi. Eistar vom milli steins og sleggju í þessari baráttu því and- stæðingar þeirra, Rússar, vom á sama tíma bandamenn Vesturveld- anna í stríðinu gegn nasistum. Til að gera myndina enn flóknari var sú staðreynd að þessir „bandamenn" Eista, þýski herinn, drap Ijölda eist- neskra gyðinga. Og nú em gyðingar í Eistlandi einnig að grafa í skjala- söfnin og draga fram staðreyndir úr fortíðinni um þessa hlið sögunnar. Þar sprettur skyndilega fram nafn eins Islendings sem hluti af þessu sjónarspili. Eugenia Loov-Gurin er formaður sambands gyðinga í Eistlandi. Nú fæst hún við að kanna tengsl landa sinna við nasista á stríðsámnum. Ég spurði Eugeniu um Islendinginn Ev- ald Mikson og fékk þau svör að það væri hafið yfir allan vafa að hann hefði verið foringi í eistnesku ör- yggis- eða stjómmálalögreglunni og sem slíkur undirritað skipanir um handtöku á fólki sem síðan var skot- ið eða látið hverfa sporlausl. Hún kvaðst hafa undir höndum skjöl sem sönnuðu þetta og nefndi sem dæmi skipanir um handtöku á 83 ára gam- alli konu og 14 ára stúlku sem hún sagði hafa verið drepnar. Eugenia segist enn fremur vera viss um að Mikson hafi vitað hver yrðu örlög þessa fólks. Líkt og Lassi vill Eugenia ekki að sagan liggi í þagnargildi, hún vill finna hina seku og refsa þeim. En meðal yngri Eista finnur maður ann- arskonar og mildari viðhorf. í vikublaðinu Eesti Ekspress þann 6. þessa mánaðar birtist stutt grein um mál íslendingsins Evalds Mik- sons. Yfirskriftin var „íslenski Eist- inn Evald Mikson truflaður í ell- inni“. I inngangi greinarinnar segir að öldungurinn Mikson, sem hafi búið í 37 ár á íslandi, sé nú orðinn að skemmtiefni fyrir íslenska blaða- menn eftir að Wiesenthal- stofnunin lýsti eftir honum fýrir að undirrita handtökuskipanir. Ég hitti blaða- manninn sem skrifaði þessa grein, unga konu að nafni Tiina Jögeda. Tiina var ekki jafn sannfærð um sekt Miksons og Eugenia. Hún sagði það vandamál að gyðingar í Eist- landi töluðu bara rússnesku og vissu afar lítið um Eistland. Tiina nefndi sem dæmi að Mikson hefðii í raun undirritað mun fleiri handtökuskip- anir á hendur Eistum en gyðingum en það væri aldrei nefnt í umræð- unni. Hún sagði að það gleymdist líka í þessari umræðu um gyðinga- ofsóknir Eista að Eistland hefði ver- ið fyrsta landið sem gaf gyðingum frelsi til að halda menningu sinni ár- ið 1920. Vegna þessa hefúr Eugenia Loov-Gurin sakað Eesti Ekspress um að vera andsemítískt blað. Tiina Jögeda sagði þær ásakanir óskiljan- legar, hún vildi bara benda á að það voru ekki bara gyðingar sem þurftu að líða í Eistlandi. Tiina Jögeda tilheyrir annarri kyn- slóð en Eugenia og Évald Lassi. Hún deilir ekki blindu Rússahatri Lassis og er ekki áfjáð i að grafa upp gamlar syndir. Vissulega er fjöldi Rússa í Eistlandi vandamál í augum Tiinu en hún segir jafnframt að enn sem komið er þurfi Eistar á þeim að halda þar eð Rússar séu uppistaða vinnuaflsins í þungaiðn- aði og verksmiðjum. Skyndilega stendur maður frammi fýrir vanda- máli þar sem engar góðar lausnir finnast. Jafnvel Evald Lassi viður- kenndi að hann kynni engin svör við spumingum dagsins. Landlausir Rússar Það er lýsandi dæmi um aðstæð- umar hér í Eistlandi að ný lög um ríkisborgararétt eru gagnrýnd úr öll- um áttum. Þau þykja ýmist allt of ströng eða allt of fijálslynd gagnvart Rússunum. Þessi lög em málamiðl- un sem var samþykkt með minnsta mögulega meirihluta. Þrátt fyrir að margir segi þessi lög vera mjög frjálsleg, þar eð aðeins er krafist tveggja ára búsetu í landinu og svo eins árs biðtíma til að fá ríkisborg- ararétt, hafa þau valdið ótta meðal rússneskumælandi hluta lands- manna. Nú þurfa Rússamir að læra eistnesku og sá hluti þeirra sem hef- ur flutt til landsins eflir 1940 þarf að sækja um ríkisborgararétt og bíða í eitt ár eftir svari. Nú vill svo til að á þessu eina ári fara fram kosningar til þings og sveitarstjóma. Stór hluti Rússanna verður því án kosninga- réttar. I norðaustur hluta Eistlands, þar sem meirihluti íbúanna er Rússar, hafa lögin um rikisborgararétt vakið hörð viðbrögð. Borgin Narva liggur á landamæmm Eistlands og Rúss- lands og þar em 97 prósent íbúanna Rússar. Þegar ég heimsótti Narva gafst mér færi á að hitta borgarstjór- ann í Narva sem að sjálfsögðu er Rússi. Hann sagði að samkvæmt þessum lögum yrði hluti Eista land- laus og án réttar til að kjósa eða bjóða sig fram. Á fundinum kynnti borgarstjórinn líka glænýjar tillögur nefndar um nýja stjómarskrá Eistlands. Hann sagði að 56. grein þessarar stjóm- arskrár heimilaði stjómvöldum að banna þeim sem ekki hefðu ríkisborgararétt að taka þátt í stjómmálum, hafa með sér fé- lög um menningarstarfsemi, halda fundi, eiga eignir og fleira. Borgarsljórinn sagði ennfremur frá fjölmennum fundi starfsmanna í orkuverinu í Narva þann 7. mars sem ályktaði gegn þessum brotum á mannréttindum. Hann sagði að ef þessi stjómarskrá tæki gildi í Eistlandi gæti hann ekki sagt fyrir um viðbrögðin. Meðal þess sem borgarstjórinn las upp úr stjómarskrártillögunum og kom eist- nesku blaðamönnunum á staðnum alger- lega á óvart var að stjómvöld geta meðal annars takmarkað rétt þeirra íbúa sem ekki hafa ríkisborgararétt til að ráða bú- setu sinni og vinnu. Þar sem þessar til- lögur eru svo nýjar hafa þær ekki verið þýddar á fleiri tungumál eða þeim dreift. Eistar sem ég hef borið þessar upplýs- ingar undir segja að sá texti sem borgar- stjórinn í Narva las upp geti ekki staðist. Eftir fundinn með borgarstjóranum í Narva fundu eistnesku blaðamennimir hjá sér hvöt til að fullvissa mig um að þetta væm bara tillögur og að endanleg- ur texti gæti ekki orðið svona. Innihald þessara tillagna skýrist vænt- anlega á næstu dögum en þangað til saka Rússar Eista um að vilja hrekja sig úr landi eða svipta sig réttindum og Eistar segja á móti að Rússar vilji ekki verða Eistlendingar, þeir vilji ríghalda í gömlu sovésku réttindin sín. Eistneskur sér- fræðingur hjá finnska utanríkisráðuneyt- inu segir að tillagan um nýja stjómarskrá veki þessi viðbrögð hjá Rússum þvi auð- vitað vilji enginn tapa völdum. Hann var enn fremur sannfærður um að Rússar í Narva mistúlkuðu stjómarskrárdrögin. Rússamir sem búa í Eistlandi geta fæstir flutt til Rússlands. Þar er hvorki atvinnu né húsnæði að hafa. Ef þeir fá ekki ríkisborgararétt í Eistlandi er erfitt að segja hvað gerist. I umræðunni hefur komið upp sú hugmynd að í Norðaustur- Eistlandi setji Rússar upp sjálfstætt ríki innan landamæra Eistlands. Ég á erfitt með að ímynda mér að sá Eisti finnist sem er tilbúinn að ljá þeirri hugmynd eyra. En umræðan um lausn á þessum vanda heldur áfram og engar einfaldar lausnir eru í sjónmáli þegar 40% lands- manna em óvelkomnir en engin leið er að losna við þá. Á meðan vellur olían upp úr jörðinm við Tappa og rústir herstöðva minna Eista á yfirráð Rússa. Maður upplifir Eistland líkt og kraumandi pott þar sem allt getur gerst. Föstudagurinn 13. mars NÝfí DAGUfí AUGL ÝSINGASTOFA

x

Helgarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.