Helgarblaðið - 13.03.1992, Page 17
Markmið Aðalstöðvarinnar er að sýna landsmönnum að hœgt sé
að reka útvarpsstöð með fjölbreyttri og metnaðarfullri dagskrá,
án þess að þjóðin sjálf kosti til þess hundruðum milljóna króna
REYKJAVÍKURRÚNTURINN
Reykjavíkurrúnturinn með Pétri Péturssyni er einn
alira besti útvarpsþáttur á öldum Ijósvakans (dag.
Þátturinn er á dagskrá á laugardögum kl. 13. Vegna
mikilla vinsælda er hann endurfluttur á sunnudögum
kl. 10 árdegis. Umhyggja Péturs fyrir borg sinni og
meðborgurum skín í gegn um vandaðan undir-
búning og frábæran flutning fróðlegs og skemmtilegs efnis.
Það er alltaf eitthvað nýtt og spennandi
að genast á Aðalstöðinni!
Af splunkunyjum þáttum má nefna:
ÞAÐ VAR LOÐIÐ!
Spurningakeppni Aðalstöðvarinnar undir stjórn hins.landsfræga
keppnismanns Jóhannesar Jónassonar. „Það var lóðið“ verður á
dagskrá þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 18. Hörku-
spennandi keppni um almenn þekkingaratriði á milli þekktra garpa.
ÞÚ OG UMHVERFI ÞITT
Þáttur um umhverfismál. Við viljum viðhalda því sem að gott er og
bæta það sem betur má fara í umhverfi okkar. Við viljum búa í
fögru og hreinu landi sem við getum verið stolt af. Hvernig stuðlum
við sem best að hreinu og ómenguðu umhverfi?
TÓNLISTIN Á AÐALSTÖÐINNI FER VEL MEÐ EYRUN!
Ótrúlega fjölbreyttir tónlistarþættir með harmonikkulögum, sígildri
tónlist, kvikmyndatónlist, jazztónlist, blústónlist, sveitatónlist,
dægurlagatónlist, rokktónlist, framúrstefnutónlist, o. fl.
Ö R Þ Æ T T I R
Stuttir þættir, fluttir nokkrum sinnum á degi hverjum. Meðal
vinsælustu örþáttanna má nefna:
ÍSLENSKA, ÞAÐ ER MÁLIÐ!
Guðni Kolbeinsson flytur þætti sína á fræðandi og bráðskemmti-
legan hátt. Guðni er fyrir löngu orðinn þjóðkunnur útvarpsmaður fyrir
skemmtilega og áheyrilega þætti. Á Aðalstöðinni lætur Guðni í sér
heyra á hverjum degi.
STJÖRNUSPEKI
Gunnlaugur Guðmundsson, stjörnuspekingur, ræðir ýmis forvitnileg
atriði sem tengjast stjörnuspeki. Gunnlaugur hefur margvíslegan
fróðleik fram að færa í þáttum sínum. Hann hefur af ýmsu að taka
enda er hann búinn að vera f forsvari fyrir Stjörnuspekistöðina í
fjöldamörg ár.
LJÓÐIN
Perlur íslenskrar Ijóðlistar, hljóðritanir með Tómasi Guðmundssyni,
Steini Steinarr, Davíð Stefánssyni, Halldóri Laxness, Matthíasi
Jóhannessen, o. fl. Þessir þættir verða fluttir af og til á næstu vikum.
UMFERÐIN
Umfjöllun um umferð og umferðaröryggi. Þættir unnir í samráði við
Umferðarráð.
VERTU VAKANDI
Stórfróðlegir þættir þar sem Neytendasamtökin vekja athygli
hlustenda á því sem skiptir máli í daglegum samskiptum á sviði
neytendamála.
Farðu vel með heyrnina -hlustaðu á Aðalstöðina
90.9
Höfuðborgarsvœðið
Suðurnes
Vesturland
93 S7
Sauðárkrókur
Skagafjórður
103.2
Suðurland
Akureyri
90.9 93.7
1 03.2
fvtw 520
FM909TFM 1C©2
• •
AÐALSTOÐIN
Utvarpsstöðin sem kostar þig ekki krónu!
SÍMAR 62 15 20 og 62 12 13. BEIN ÚTSENDING 62 60 60