Helgarblaðið - 13.03.1992, Síða 20
Helgar 20 blaðið
CQ
CQ
O
o
o
<
Barnaefniö er að byrja 1 sjónvarp- inu. Ég er að missa af þættin- um mlnum. ^ Ég er viss um að þörfin til að boröa fer að taka við sér inn- an skamms.
f Á l l. -j • Hfíí Jr
Hvað er svona merkllegt við það
að borða kvöldmat? Af nverju má
ég ekki fara og horfa á sjónvarp-
ið? Fullt af fólki borðar meðan
það horfir á sjónvarp.
Kalli, kvöldmatartlminn er sá tími
sem við erum öll saman og get-
um talaö saman. Það felst meira
I þvl að vera fjölskylda en bara
búa i sama húsi. Við þurfum öll
að tala og vera saman öðru
hvoru.
Spilað
og
dansað
Það verður spilað og
dansað hjá Félagi eldri
borgara í Kópavogi í
kvöld, föstudaginn 13.
mars, að Auðbrekku
25. Skemmtunin hefst
kl. 20.30 og er húsið
opið öllum.
gæðaflokki
Um áratuga skeið hefur
Grillið á Hótel Sögu verið
einn vinsælasti og full-
komnasti matstaður höf-
uðborgarinnar. Kemur þar
margt til: Þar hefur jafnan
verið fyrsta flokks matur
og þjónusta, og svo er
staðurinn sjálfur einkar
vel í sveit settur - á efstu
hæð í einu glæsilegasta
hóteli landsins. I síðustu
viku var staðurinn opnað-
ur eftír að komið var fyrir
nýjum og glæsilegum hús-
gögnum, eldhúsið endur-
bætt og matseðill og vín-
seðill aukinn. Það er því
ekld í kot vísað að vera
boðinn á slíkan stað.
Gestir Helgarblaðsins
sunnudaginn 8. mars
voru þau Andrea Jóns-
dóttir dagskrárgerðarmað-
ur og Elías Mar rithöfund-
ur, og hafa þau þetta um
staðinn að segja:
BYPACK fataskápar
frá Þýskalandi
Takmarkað rými Astralbarsins
er nú nolað á sem hagkvæmastan
hátt, og þar er strax mjög vinaleg
stemmning, innréttingin í senn
virðuleg og hlýleg og þjónustan
mjög góð. Ekki er nema sjálfsagt
að koma þar við og fá sér eitthvað
lystaukandi. Eftir miklar vanga-
veltur yfir kokteillistanum, sem er
sá fjölbreyttasti sem við höfum
augum barið, valdi Elías sér einn
sem ber nafnið Prince Charles, bú-
inn til úr koníaki, Drambuie og sí-
trónusafa; Andrea valdi Boss, man
ekki samsetninguna en að hann var
hressandi og góður eins og Prins-
inn.
Þegar inn í sjálfan veitingasalinn
er komið, er staðurinn í senn kunn-
uglegur, en þó nýr. Þar eru ný borð
og stólar, nokkuð viðamikil og
virðuleg húsgögn, en einkar þægi-
leg. Margfrægt útsýnið blasir við
til allra átta, en þó að það sé vissu-
lega gott í sjálfu sér - og einkar
gaman að bjóða útlendingum
þama upp, svo þeir geti virt fyrir
sér höfuðborgina okkar og um-
hverfi hennar, - þá er maður þó
fyrst og fremst kominn veiting-
anna vegna, og þær eru ekki af
lakari sortinni.
Himneskir
réttir og höfug vín
Andrca valdi sér að forrétti hum-
ar og lárpem, Vinaigrette, sem var
aldcilis himneskur, en Elías valdi
sniglasúpu með vermút.
I aðalrétt valdi Andrea hrein-
dýrahnappa með rauðvínssoðinni
peru. Kjötið var meyrt og mjög vel
meðhöndlað, en humarforrétturinn
var svo góður að hreindýrið, þótt
Fagnaöarfundur. Þóft venjan sé aó matargestimir séu sjólfir ó myndunum sem birtast með þessum
pistlum, gátum við ekki stillt okkur um að velja þessa slcemmtilegu mynd sem Andrea tók af Eliasi í
hrókasamræðum við fyrrum samstarfsmann þeirra beggja, Krístófer Svavarsson sem nú starfar á
Hótel Sögu.
gott væri, féll í skuggann. Líklega
mætti gera réttinn dálitið „villtari“,
svona til að undirstríka það frelsi
sem dýrið býr við áður en það
lendir á disknum. Elías kaus sér
það sem á matseðlinum nefnist
Saga gratin, en það er réttur sem
verið hefur á matseðli staðarins í
nærri tvo áratugi og orðið mjög ró-
maður og vinsæll. Hann er fram
borinn í logandi heitri skál, sem er
einkar hentugt fýrir þá sem njóta
þess að vera lengi að borða án þess
að maturinn kólni of fljótt. 1 fáum
orðum sagt: Það er óhætt að mæla
með þessum húsrétti staðarins, því
hann er bæði mjög ljúffengur og
rausnarlega útilátinn.
Með hreindýrahnöppunum fékk
Andrea sér rauðvín, Chateauneuf
du Pape „Les Cédres“, en með
fiskréttinum drakk Elías hvítvín,
Chablis Premier Cru „Vosgros".
Þetta rann ljúflega niður, og snilld-
Matur
argóður og lystugur maturinn sá til
þess,
að áhrifin urðu eins þægileg og
best varð á kosið. Rétt er að geta
þess að vínlistinn, eins og kokteil-
listinn, er mjög Qölbreyttur og
hægt er að velja sér vínfiösku á
verðinu 1830 kr. og upp í 11.300
kr.!
I eflirrétt voru borin fram gratín-
eruð jarðarber, Grand Mamier, og
eftir jafn mikinn og góðan mat má
það merkilegt kallast að geta kom-
ið meiru niður. En svo Ijúffeng
voru þau og freistandi, að þau
hurfu af skálunum fýrr en varði.
Fyrsta flokks þjónusta
Öll þessi máltíð stóð yfir í meira
en þrjár klukkustundir, enda er
ekki farið á slíkan stað til að hest-
húsa sem mest á sem skemmstum
tíma. Þess vegna var heldur ekki
nema rétt að fá sér kaffi að lokum
og koníak með til þess að jafna sig
eftir allt átið. Og það er ekki ama-
legt að fá að velja úr tug tegunda
sem er ekið upp að borðinu hjá
manni í e.k. barvagni.
Þá er meira en mál til komið að
geta þess, að öll þjónusta starfs-
fólksins var fýrsta flokks, í senn
kórrétt og mjög alúðleg; allt gekk
mjög greiðlega, en samt sást ekki
asi á nokkrum manni. Matreiðslu-
meisturum helgarinnar, þeim
Ragnari Wessman og Karli Ás-
geirssyni, ber lof og prís fýrir
þeirra verk, sem áreiðanlega
myndi vera álitið fyrsta flokks á
bestu veitingastöðum stórborg-
anna. Einnig ber að nefna píanó-
tónlistina sem Karl Möller lék af
fingrum fram allt kvöldið - lág-
vær, smekkleg og vel flutt.
Það er hátíðleg og ljúf minning
sem maður geymir eftir að hafa
komið á slíkan stað sem Grillið á
Hótel Sögu. Þetta er staður sem
stendur fyrir sínu, nú sem jafnan
áður, - og þarf ekki á því að halda
að snúast í hring um sjálfan sig.
Að lokum skulu Helgarblaðinu
færðar bestu þakkir fýrir boðið.
Ekki bara fyrir forseta
Grillið í hæsta
Stærð 100x197x52 cm.
Verð 16.590.- stgr.
Yfir 40 tegundir
til í hvítu, svörtu og eik.
Nýborgc§D
Betra verð
Skútuvogi 4
sími 812470 og 686760
Ragnar Wessman, matreiðslu-
maður á Hótel Sögu, veitti okkur
góðfúslega leyfi til að birta eftir-
farandi uppskrift sem samin var
í tilefni af komu Mitterrands
Frakklandsforseta til landsins
1990. Ragnar tók það fram að
þótt hún væri ekki flókin, þá
væri þetta ekkert sem maður
hristi fram úr erminni á svip-
stundu. Okkur láðist því miður
að afla okkur upplýsinga um það
hvar maður verður sér úti um
laxahrogn en klókir lesendur
finna eflaust út úr því.
Laxa- og lúóulög með
laxahrognum
200 gr ferskur, flakaður og bein-
hreinsaður lax
200 gr fersk smálúðuflök
2 msk. ferskar kryddjurtir, svo sem
graslaukur, steinselja, estragon,
karsi og ferskur arfi ef hann er fá-
anlegur.
1 gulrót
1/4 blaðlaukur
2 sellerístönglar
allt skorið í fína strimla
skvetta af Pemod
salt og pipar
ólífuolía
Hlauplögur:
350 ml þurrt kampavín
150 ml Nolly Prat
500 ml gott fisksoð
50 gr matarlím
40 gr laxahrogn
Matreiðslan
I smurt stálform, u.þ.b. 15x20 sm
og 5 sm djúpt, er sett lag af þunnt
skomum laxi. Ofan á laxinn er
stráð söxuðum kryddjurtum og
grænmetisstrimlum sem áður hafa
verið hitaðir í olíu. Síðan kemur
salt og pipar og skvetta af Pemod.
Þvínæst er lagt lag af lúðu, svo
kryddjurtir og grænmeti, salt og
pipar og skvetta af Pemod. Endur-
takið þar til lögin ná um 6 sm hæð.
Hellið nú sjóðheitum hlaupleg-
inum yfir og látið kólna.
Skerið út í hæfilega skammta og
leggið á diska með skrautkáli.
Hellið 1 dl af ólífuolíu yfir laxa-
hrognin og skvettu af sítrónusafa.
Saltið og piprið og dreypið síðan
yfir lögin.
Föstudagurinn 13. mars