Dagblaðið - 18.09.1975, Qupperneq 12
12
DagblaOiö. Fimmtudagur 18. september 1975
KOSTAR LITLAR
27.520.000 KR.
— Þessi Rolls Royce er áreið-
anlega einn sá glæsilegasti i
heimi, jafnvel þó Susan Shaw
fylgi ekki. 1 honum er sjónvarp,
myndsegulband, isskápur, bar,
snyrtiborð, tveir simar, 12 rása
stereótæki, spilaborð o.s.frv.
Tegund: Rolls Royce, árgerð
1961, og vegur fjóra og hálfa
lest. Hvort hann sé tilbúinn? Nei
aldeilis ekki, eigandinn, hann
heitir Frank Avianca, á eftir að
setja radar i hann til notkunar i
þoku!
Það nýjasta úr ítalskri
höggmyndalist
Þetta mikla listaverk i Róm, Það tók hann þrjú ár að fullgera
sem er á stærð við fjögurra það. í baksýn er Péturskirkjan i
hæða hús, gerði Giamco Manzu. Róm.
AÐEINS
40%
SEGJA
ALLTAF
r ••
I LOG
FRÆÐI
Julie Christie er að hugleiða
að fara i háskóla og nema lög.
Hún er vist búin að fá nög af
leiklistinni.
í faðmi
fjölskyldunnar
A hvita tjaldinu er Roger
Moore heldur en ekki kaldur
karl, þeysist um i sportbilum
veifandi byssu á milli þess sem
hann heillar kvenfólk. En i sinu
einkalifi er hann hæglátur og
umhyggjusamur fjölskyldu-
maður. Hér er hann með fjöl-
skyldu sinni i S-Afriku og fer
ekki mikið fyrir hinum alræmda
007.
JÚLÍA
Aðeins fjórir af hverjum 10
segja ávallt sannleikann. Hinir
ljúga, segja aðeins hálfan
sannleikann, varast sannleik-
ann, ýkja eða halda leyndu.
Þetta eru niðurstöður könnun-
ar, sem nokkrir félagsfræðingar
stjórnuðu, til að komast að
hvers vegna fólk skrökvar og
hve oft i daglegri umgengni.
Aðeins 38.5% voru alveg
heiðarlegir — 61.5% voru mis-
munandi óheiðarlegir.
Dr. Ronny E. Turner, sem
starfar við háskólann i Colo-
rado, sagði að fólk skrökvaði til
að komast hjá deilum, verja
vini og vandamenn og til að
verða sér ekki til skammar. Er
þá málshátturinn „sannleikur-
inn er ávallt sagna beztur” ekki
i fullu gildi.??
EITT OG ANNAÐ
Borgaði 70 þúsund
fyrir 500 kr.
aðgöngumiða á
Presley-hljómleika
Einn aðdáenda Elvis Presleys
borgaði rúmar sjötiu þúsund
krónur fyrir 500 króna aðgöngu-
miða til að sjá og heyra dýrling
sinn. Ánnar eyddi tæpri hálfri
milljón króna i smáhlut úr
klæðaskáp Presleys. Og nokkrir
aðdáenda rokkkóngsins hafa
komizt inn á heimili hans með
þvi að láta senda sig þangað i
pósti — innpakkaða og hvað
eind.
Þetta eru aðeins nokkrar
fáránlegar hugmyndir, sem
þeim, sem Prestley-æðið hefur
gripið, hefur látið sér detta i
hug, segir Sean Shaver, formað-
ur Elvis Presleys-félagsins.
Eftir að hafa ferðazt meðal að-
dáenda Elvis hef ég kynnzt
mörgu. Þeir, sem ekki hafa
fengið góð sæti, eru reiðubúnir
til að greiða hinar ótrúlegustu
upphæðir til að fá sæti sem næst
sviðinu. Þeir borga oft 70—80
dollara fyrir 10 dollara miða, og
ég veit um mann i Memphis,
sem i fyrra borgaði 450 dollara
fyrir þriggja dollara miða.
Aðdáendur Elvis i Japan hafa
tekið þar flugvélar á leigu til að
komast á Wjómleika hjá Elvis i
Bandarikjunum. Minjagripa-
verzlun Presleys, sem hefur
aðsetur i Kansas-borg, er með
háa prisa. Stökkklæðnaður, sem
Elvis gaf til góðgerðarstarf-
semi, fór á hálfa milljón króna á
uppboði — og húfa, sem Elvis
kastaði til aðdáenda sinna á
hljómleikum á Hawaii-eyjum,
var siðar seld á 450 þúsund
krónur.
Þá sagði Shaver, að margir
gæfu Elvis stórgjafir — ef gjöfin
kostaði nógu mikið gerði fólk
sér vonir um að fá sjálft að af-
I henda Elvis þær — ,,og ég veit
um stúlku, sem borgaði 3000
dollara — 480 þúsund krónur —
fyrirbandariskasilfurnælutil að
gefa Elvis — aðeins i þeirri von,
að hún mundi þá hitta hann.
Henni tókst það,” bætti formað-
urinn við.
I félagi Shavers eru meðlimir
frá 26 löndum — sá elzti 89 ára
gömul kona k- og hundruð innan
við tiu ára aldur.