Dagblaðið - 20.10.1975, Page 2

Dagblaðið - 20.10.1975, Page 2
2 Dagblaðið. Mánudagur 20. október 1975, ,/ÞESSI FLOKKUR Á EFTIR AÐ HAFA ÁHRIF Á LEIKHÚSÞRÓUNINA" — segir hollenzkt bloð um Þjóðleikhúsflokkinn, sem fer um Evrópu í sýningarferð þessa dagana Hollandi er á margan hátt hlúð að leiklistarstarfsemi. T.d. er ekki óalgengt að aðgangur sé ó- keypis á sýningar. Mickery Theater er þekkt langt út fyrir landamæri Hollands. Stofnun þessi ræður leikflokka viðs veg- ar að til að koma og leika á sin- um vegum i Amsterdam og viðar, og það sem boðið er upp á er jafnan athyglisvert. Mickery Theater á sitt eigið hótel, þar sem leikflokkar þess búa og er fyrirgreiðsla öll fyrsta flokks. t einu hollenzku blaði var tal- að um, að þessi islenzki leik-. flokkur ætti eftir að hafa áhrif á þróun leikhúss almennt. Þessi setning lætur fljótt á litið litið yfir sér innan um mörg önnur hrósyrði, en fari svo að innihald hennar verði raunverulegt, þá er vel. 1 Evrópu starfa hundruð leikhúsa á sama grundvelli og Þjóðleikhúsið. Þeir sem ráðnir eru til leikhúsanna hafa ekki möguleika á öðru en að fram- kvæma skipanir ár eftir ár. Eins og gefur að skilja er þar á meðal margt hæfileikafólk, sem væri þakklátt fyrir að fá tækifæri til að starfa sjálfstætt með stuðn- ingi leikhússins á sama hátt og tnúk-flokkurinn. Vafalaust yrði það til þess að ryka svolitið upp i „betriborgaraáskrifenda- móralnum”, sem tröllriður leik- húsmenningunni viðast hvar (það eru til undantekningar, guði sé lof) og er á góðri leið með að breyta leikhúsinu i safn, þar sem allt lif tilheyrir liðinni tið. tnúk er fullkomið lifandi leik- hús, þar sem áhorfendur sitja agndofa og trúa þvi ekki að þetta geti veriö pólitiskt leikhús, úr þvi að þeir skemmtu sér svona vel. ÍNÚK í HOLLANDI Brynja, Helga og Þórhallui spjalla við Sigrúnu Valgeirs dóttur, fréttaritara Dagblaðsins i Aachen (DB-mynd Gisli Már) Aachen, frá Sigrúnu Valgeirs- dóttur: Leikflokkur Þjóðleikhússins með leikrit sitt Inúk var á ferð- inni i Hollandi fyrir stuttu. Dvöldust þau þar á vegum Mickery Theater i Amsterdam. Var leikið i borgunum Enschede, Rotterdam, Delft, Tilburg, Haag og Amsterdam, en þar voru flestar sýningar. t allt var leikið 22 sinnum. Ferðin var sannkölluð sigurför og hlaut sýningin verðskuldaða athygli. — „Þetta er búið að vera af- skaplega gaman, en erfitt,” sagöi Brynja Benediktsdóttir, þegar við hittum tnúk-fólkið i Tilburg. „við erum búin að leika hér i Hollandi i rúmar þrjár vik- ur og höfum átt þrjú frikvöld siðan við komum út. Móttökurn- ar eru alveg einstakar, bæði hjá áhorfendum og svo eru blaöa- dómarnir stórfinir. Sumt fólk kemur jafnvel kvöld eftir kvöld til að horfa á okkur og margir hafa fært okkur gjafir eftir sýn- inguna.” „140 sýningar eru búnar,” sögðu þau okkur, og skutu þvi inn i, að ef þau kærðu sig um, gætu þau haldið áfram að leika tnúk næstu 2—3 árin, ef þau tækjuöllum þeim tilboðum, sem þau fengju. „Þetta er eins og snjóbolti, sem hleður utan á sig,” sagði Þórhallur, „ef svona heldur áfram endar þaö senni- lega með þvi, aö við verðum einn góðan veöurdag skilin eftir úti á isnum sakir elli.” Þau voru öll ánægö með dvöl- ina i Hollandi, sem er upDhafiö á tveggja mánaöa sýningarferð. Spánn er næstur á dagskrá og sið- an leiklistarhátíö i Póllandi. 1 Skjöldur Ólafs Thors hvarf — en var á vísum stað „Skjöldurinn á styttunni nýju af Olafi Thors i Keflavík er horfinn,” sagði okkur einn af velunnurum blaðsins og þótti að vonum nýstárlegt þar sem styttan var af- hjúpuð fyrir fáum dögum. Við bárum málið undir rannsóknarlög- regluna i Keflavik og þeir þar höfðu ekki heyrt á máiið minnzt. En lengi voru þeir ekki aö finna lausn „gátunnar”. Þegar afhjúpunin fór fram var ekki lokið að fullu við festingar skjaldarins, og framleið- endur hans höfðu numið hann á brott til að undirbúa varanlega festingu. Skjöldurinn verður þvi aftur á sinum stað fljótlega. . —ASt 1 HR&miimmmmmm FAST 1 RAFTÆKJAVERZLUNUM tíM AL LT LANÐ | Leiguvélar í gœzluflugið: „Fóum Flugleiðavélar ef á þarf að halda" segir Pétur Sigurðsson „Landhelgisgæzlan er ekki að reyna að semja við Flugleiðir um að leigja af þeim eina Fokker-vél,” sagði Pétur Sigurðsson, forstjóri Land- helgisgæzlunnar, i samtali við fréttamann blaðsins i gær. „Aftur á móti er i gildi óform- legt samkomulag okkar og Flugleiöa um að þeir hlaupi undir bagga meö okkur, ef um timabundna erfiðleika verður aö ræða. Það sama myndum viö gera.” Pétur lét þess getið, að áætl- unarvélarnar væru tæplega nægilega vel búnar til að gegna daglegum eftirlitsstörfum fyrir Landhelgisgæzluna. Eins og fram hefur komið i fréttum, skýrði Bjarni Helga- son, skipherra á TH-Sýr, frétta- mönnum frá þvi um borð I flug- vélinni á miðvikudaginn, að I gangi væru samningaviðræður við Flugleiöir um leigu á Fokk- er-vél til gæzlustarfa. —óV Það er rúmt um áhafnir og gesti i Fokkervélunum sem þurfa að sinna hálfgerðu miliilandaflugi i 200 milna gæzlunni. (DB-mynd, ómar Vald.).

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.