Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 20.10.1975, Qupperneq 8

Dagblaðið - 20.10.1975, Qupperneq 8
8 Dagblaðið. Mánudagur 20. október 1975. MMBIABW frfálst, úháð dagblað Útgefandi: Dagblaðið hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason iþróttirr Ilallur Slmonarson Hönn.un; Jóhannes Reykdal Blaðamenn: Asgeir Tómasson, Atli Steinarsson, Bragi Sigurðsson, Erna V. Ingólfsdóttir Hallur Hallsson, Helgi Pétursson, ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson. Handrit: Asgrlmur Pálsson, Hildur Gunnlaugsdóttir, Inga Guðmannsdóttir, Maria ólafsdóttir. Ljósmyndir: Bjarnleifur BjárnleifsSon, Björgvin Pálsson Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson Auglýsingastjóri: Asgeir Hannes Eirfksson Dreifingarstjóri: Már E.M. Halldórsson Askriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 40 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Ritstjórn Siðumúla 12, slmi 83322, auglýsingar, áskriftir og af- grciðsla Þverholti 2, sími 27022. Látum ekki blekkjast aftur Þegar gerður var árið 1973 tveggja /I ára samningur við Breta um undan- þágur til togveiða innan 50 milna fiskveiðilögsögunnar, litu íslendingar almennt á árin tvö sem aðlögunar- tima, þannig að undanþágurnar rynnu út i nóvember á þessu ári. Þorsteinn Thorarensen rifjaði þetta upp i föstu- dagsgrein sinni hér i Dagblaðinu fyrir helgina. Benti hann á að þáverandi landsfeður okkar hefðu gefið til kynna, að samningurinn við Breta fæli það i sér, að undanþágurnar mundu falla niður við lok samningstimans. Núkemur hins vegar i ljós, að Bretar túlka samn- inginn á annan hátt. Þeir segja, að hvergi i samn- ingnum standi, að veiðum þeirra innan 50 milna eigi að ljúka i nóvember á þessu ári. Þeir telja sig geta samið um framlengingu, jafnvel á óbreyttum samningi, ella gildi eldra samkomulag um veiðar upp að gömlu tólf milna mörkunum. Þorsteinn bendir lika á i grein sinni, að árið 1973 hafi islenzk stjórnvöld haldið þvi fram, að samning- urinn fæli i sér takmörkun á aflamagni Breta við 130 þúsund tonn á ári. Þeir hafi hins vegar að minnsta kosti fyrra árið veitt töluvert meira en þetta. ,,Við höfum verið blekkt,” segir Þorsteinn og heldur áfram: ,,Samningurinn frá 1973 hefur þannig orðið meiri og minni mistök og blekking og við skiljum það ekki, hvernig slik mistök geta orðið i svo mikilvægu máli.” Þetta sýnir, hve hættulegir geta verið samningar, sem eru óljósir. ,,Höfum það i huga, að heppilegast er að vera aldrei með neinar undanskildar mein- ingar i samningum, heldur setja sem mest á papp- irinn,” segir Þorsteinn. Þessi ábending er timabær núna, þegar fyrir dyrum standa viðræður við Breta og Vestur-Þjóð- ver ja um hugsanlegar undanþágur innan 200 milna fiskveiðilögsögunnar. Ef mistök hafa verið gerð i fyrri viðræðum, verða stjórnvöld að læra af þeirri reynslu. Og við vitum lika af fyrri reynslu, að önnur mis- töku voru gerð i samningunum við Breta og Belga. Islenzk stjómvöld töldu þá, að þessir samningar mundu leiða til þess, að refsitollar Efnahagsbanda- lags Evrópu á islenzkum fiskafurðum yrðu felldir niður. Það hefur ekki gerzt enn. Ef samningar verða gerðir við einhver riki um veiðar innan 200 milna, verður margt að vera ljós- ara i þeim samningum en i fyrri samningum. Ekki dugir að trúa i blindni á meira eða minna vafa- samar túlkanir. 1 slikum samningum verður að standa,hvort þeir eru samningar um aðlögunartima eða um eins konar endalausar undanþágur. í þeim samningum verður lika að standa, hvaðá áhrif þeir hafa á ýmis viðskiptakjör og viðskiptabönn. 1 samningunum verða að vera ákvæði um smáfiskadráp og möskva- stærð. Ennfremur verða þar að vera skýrari ákvæði um strangt eftirlit en áður hafa verið i slikum samningum. Ef til vill léiðir allt þetta til þess, að engir samningar takist. En það er þó betra en að byggja samninga á sjálfsblekkingu. Auðvitað ó að semja Landhelgismálið ber hæst þessa dagana sem eðlilegt er vegna útfærslu landhelginnar i 200 sjómilur. Samninga- viðræður munu eiga sér stað við Þjóðverja, Breta og Belga innan skamms, og vegna þess hafa dunið yfir samþykktir fjolda funda um að rlkisstjórnin gangi ekki til samninga um neinar til- slakanir innan 200 markanna. Askoranir og samþykktir streyma að rikisstjórninni og eru birtar I fjölmiðlum, svo ætla mætti að almenningsálitið geri rikisstjórninni fullerfitt um vik, ef hún þá tekur nokkurt mark á þvi sem birt er henni til höfuðs i blöðum og sjónvarpi. Er ekki fulllangt gengið með þessum samþykktum um engar tilslakanir? Er ekki hyggilegra og reyndar aðalatriðið aö fá aðrar þjóðir til að viðurkenna 200 sjómilurnar sem fyrst. Við verðum að gera okkur grein fyrir þvi, að fyrir óvin- veittum þjóðum, sem við ekki viljum ganga til samninga við, höfum við ekkert bolmagn til að verja víðáttumikil svæði, þó við lýsum þvi yfir að þau skuli vera friöuð. Við höfum engan mátt til hernaðar og kunnum reyndar lltið til slikra verka. I reýnd múnu þvi stórþjóðirnar veiða að vild sinni eftir sem áöur, undir herskipavernd, ef ekki vill betur, nema það verði samið. Friðunin verður' þvi aðeins viljayfirlýsing okkar en engin friðun I reynd. Við munum leggja lif og limi sjómannanna á varðskipunum i stórhættu án þess að áhætta þeirra komi að nokkru verulegu gagni. Jafnframt munu verzlunarhömlur þær, sem við Kjallarinn Jón Kr. Gunnarsson búum nú við, halda áfram að verka okkur til höfuðs og gæti staðan frekar versnað verulega frá þvi sem nú er. Aðalatriðið hlýtur þvi að vera að hljóta viðurkenningu á 200 sjómllna fiskveiðilögsögu, þó aö við þurfum að láta eitthvað i sölurnar i takmarkaðan tima. Þaö er aðeins timaspursmál þangað til öðrum þjóðum, eins og Bretum og Þjóðverjum, verður það ljóst, að meirihluti þjóða heims er hlynntur 200 sjómilna fiskveiðilögsögu. Hugmyndinni um 200 milurnar vex stöðugt fylgi i heiminum, þvi það er öllum að verða betur og betur ljóst að skipuleggja verður hagnýtingu auðlinda eins og fiskveiða vegna friðunar á fiskstofnum, sem eru i yfir vofandi hættu, og svo að réttur strandrikjanna verður ekki sniðgenginn til að sitja i fyrir- rúmi á nálægum fiskimiðum. Stórþjóðirnar skilja ekkert annað en meirihlutavald, en láta sér i léttu rúmi liggja hags- muni smáþjóðar, eins og Islendinga. Við eigum þvi að semja, sé þess nokkur kostur. Auðvitað liggur okkur á að friða ofveidd fiskimið, en við friðum ekki fiskimið, sem okkur er ofviða að gæta. Það er ekki friðun á fiskimiðum, þó skráð séu niður nöfn og númer skipa úr flugvélum og veiðunum síðan mótmælt. Það er heldur engin friðun að gagni þó einn og einn óvelkominn togari sé „hala- klipptur” og á meðan nota hópar landhelgisbrjóta tæki- færið og veiða einhvers staðar annars staðar. Friðun mun aðeins komastá í reynd fyrir til- stilli samninga. Landhelgismálið er stórmál okkar Islendinga, en að veröur ekki farsællega til lykta leitt með stórkarlalegum yfir- lýsingum og kröfum um enga samninga og engar tilslakanir. Það er affarasælla að leggja nokkuð i sölurnar og öðlast i staðinn fulla viðurkenningu á 200sjómilna fiskveiðilögsögunni og tryggja um leið að manns- lifum verði ekki sóað i fárán- legum og ójöfnum átökum. Jafnframt þurfum við að reyna að halda öllum viðskiptaleiðum opnum, þvl það virðist ekki alltaf vera jafnauðvelt að tryggja framleiðslu okkar brautargengi á erlendum mörk- uðum. V. Tónlist JON KRISTINN CORTES Með ógœtum Sinfóniuhljómsveit tslands, 2. tónleikar I Háskólabiói 16.10. ’75. Efnisskrá: Glinka: Russlan og Ludmila, for- leikur Leifur Þórarinsson: ,,Jó”. W.A. Mozart: Píanókonsert nr. 23 I A-dúr. R. Schumann: Sinfónia nr. 3 i Es- dúr Eins og sjá má af efnisskránni eru verkin frá fjórum timabilum tónbókmenntanna. Klassiskur pianókonsert, rómantisk sinfónia, forleikur- frá upphafi þjóðernis- stefnu og að lokum islenskt sam- timaverk, eða það sem venjulega er nefnt nútimatónlist. Upphaf þjóöernis- stefnu Michail Glinka er oft nefndur faðir rússneskrar tónlistar, þvi hjá honum eru fyrst greind merki þess, að rússnesk tónskáld væru að brjótast undan þeim þýzku og itölsku áhrifum er tröllriðu rúss- nesku tónlistarlifi. Russlan og Ludmilu samdi hann árið 1842. Á tónleikunum sl. fimmtudagskvöld var verkið nokkurskonar aukaverk, þvi ekki var gert ráð fyrir þvi i efnisskrá, en það var sett inn i sennilegást til að ná fullri lengd tónleikanna. Hljómsveitin lék forleikinn af miklu fjöri, a.m.k. framan af, en þótt aðeins dofnaði yfir þá var það besta verk tónleikanna. „JÓ" Hljómsveitarverkið ,,Jó” eftir Leif Þórarinsson er dökkt og drungalegt, nánast hrikalegt á köflum. Var sem Leifur væri að likja eftir hafróti eða brimi, sjálf- nema Agnes mátti vera ákveðn- ari þvi hún kom ekki alltaf nógu sterkt i gegn. 3. sinfónia Roberts Schumanns, eða Rinarhljómkviðan eins og hún er oftast nefnd, var vel leikin af hljómsveitinni. Sérstaklega voru hornin góð, sterkur og á- kveðinn leikur þeirra setti svip á allan leik hljómsveitarinnar. Dansandi léttur Alun Francis er skemmtilegur stjórnandi, dansandi léttur og á- kveðinn. Honum tókst að hrifa hljómsveitina með sér, nema i fjórða kafla sinfóniunnar, þar held ég að hljómsveitin hafi ekki gefið það sem hann vildi fá. Hvað um það, tónleikarnir tókust með ágætum. ur bendir hann á söguna af Jó og Júpiter ef einhver vill leita skýr- inga á nafninu. Agnes Löve A-dúr pianókonsert Mozarts er einn af þekktustu konsertum hans. Hann var saminn 1786, er frægðar- og vinsældasól Mozarts var að hniga til viðar. Verkið er létt og skemmtilegt, þótt undir búi nokkur alvara, en það verður að hlusta eftir þeirri alvöru til að hún komi i ljós. Agnes Löve er vel þekkt fyrir leik sinn með hinum ýmsu kórum og söngvurum er hafa troðið upp undanfarin ár, en þetta er i fyrsta sinn sem hún kemur fram með Sinfóniuhljómsveit tslands sem einleikari. Það var þokki yfir leik hennar, hraðaval ágætt i flestum tilfellum, en stundum fannst mér vanta meiri léttleik og hlýju i leik hennar. Samspil píanós, hljómsveitar og stjórnanda tókst með ágætum, Agnes Löve Alun Francis

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.