Dagblaðið - 21.10.1975, Síða 3
nagblaðiP. Þriftjudagur 21. október 1975.
RiSAR FLUGVÉLAIÐNAÐARINS
KEPPA Nlí UM FRAMLEIÐSLU Á HENT
UGUM VÉLUM f LANDHELGISGÆZLU:
ÍSLAND VERDUR
GÓD AUGLÝSING!
Fyrirsjáanleg landhelgisút-
færsla velflestra rikja heims
hefur opnaft nýjan markað fyrir
hentugar flugvélar til eftirlits-
flugs. Er þegar hafin gifurleg
samkeppni flugvélaframleið-
enda um þennan markað og
áróðursherferðir þegar i fullum
gangi, þótt þeirra verði ekki
vart i auglýsingum á hinum al-
menna neyzlumarkaði.
Þegar landhelgi Islands var
færð út i 200 milur, voru hér
staddir blaðamenn frá sérstöku
timariti Fokker-verksmiðjanna
i Hollandi. Fóru þeir meðal ann-
ars i landhelgisflug með Gæzl-
unni og má þvi búast við frásögn
um það i hausthefti timaritsins.
Mörg þeirra rikja, sem á
næstunni eru likleg til þess að
færa út lögsögu sina, hafa
engum flugherjum á að skipa,
enda ekki vist, að algengustu
gerðir litilla flugherja eigi þær
vélar, sem bezt henta til land-
helgisgæzlu.
Sækir vaxandi fjöldi risafyrir-
tækja inn á þennan nýja markað
fyrir ,,MPA”-,,Marine Patrole
Aircraft”-fiugvélar. Auk Fokk-
er-verksmiðjanna i Hollandi er
vitað um japönsk fyrirtæki, svo
sem Mitsubishi og de Havilland-
verksmiðjurnar brezku.
— BS —
t
ifflf /•
1 — -- ' m
Gæzlan á eina Fokkervél og aftra pantaða. Þá munu möguleikar á
viftskiptum vift Flugleiöir, ef með þarf. Hér er Gæzluvélin TF-SÝR.
DAGBLAÐK)"
ÁTOPPNUM
##‘
W
Höfundur Dogbloii-la9>iiu:
HANN ÓMAR í PELICAN
ÓMAR t PELICAN,—
hann samdi lagift um Dagblaðiö.
I VESTMANNAEYJUM
Eitt vinsælasta lagið, sem
hljómsveitin Logar i Vest-
mannaeyjum leikur á dansleikj-
um þar, er auglýsingalagið fyrir
Dagblaðið. „Hvort það er af
tónelsku Vestmannaeyinga eða
af öðrum hvötum veit ég ekki,”
sagði Hermann Ingi, söngvari
hljómsveitarinnar, ,,en hitt veit
ég, að lagið er geysivinsælt og
verðum við að leika það oft á
hverju balli.
Við i hljómsveitinni reiknum
með að geta komið upp á land
einhvern tima á næstunni og
spilað á nokkrum stöðum á
höfuðborgarsvæðinu,” sagði
Hermann Ingi ennfremur. „Svo
er eitthvað verið að velta fyrir
sér plötugerð, en það hafa verið
tið mannaskipti hjá okkur und-
anfarið, svo við erum ennþá að
syngja okkur saman.” HP
SKIPTI ÞYFINU
— brenndi bankabókina
Um miðjan dag i gær var
kærður þjófnaður i húsi innar-
lega við Kleppsveg. Þar vann
stúlka að heimilishjálp, en er
hún hafði lokið dagsverki sinu
komst hún að raun um að um 20
þús. kr. I peningum og banka-
bók var horfið úr tösku hennar.
Lögreglan var kvödd á vett-
vang og bárust böndin fljótt að
13—14 ára pilti, sem viðurkennt
hefur þjófnaðinn.
Peningunum, sem stolið var,
hafði pilturinn skipt á milli fé-
laga sinna, en bankabókina átti
hann ekki við að öðru leyti en
þvi að hann bar hana á bál og
fann rannsóknarlögreglan að-
eins tætlur af henni og öskuleif-
ar. —ASt.
KINVERSKI
A Tröft. t baksýn sést veggklæftningin sem Sveinn hannafti. Tekift skal fram aft möguleikar klæftningar-
innar hafa ekki verift nýttir er myndirnar á veggnum voru hengdar upp. DB-mynd,Björgvin Pálsson.
„SYSTEM KJARVAL"
Ný tegund af veggklœðningu
Veitingastofan Tröð er fyrir
margra hluta sakir merkilegur
staður. Hún var innréttuð fyrir
fimmtán árum, og þá voru arki-
tektinum, Sveini Kjarval,
gefnar algjörlega frjálsar
hendur til að gera það sem hann
vildi. En eitt skilyrði settu eig-
endurnir þó: á veggjunum átti
að vera klæðning sem væri
hentug fyrir skiptanlegar
málverkasýningar.
„Satt að segja stóð ég frammi
fyrir dálitlum vanda,” segir
Sveinn Kjarval,” ég prófaði allt
mögulegt, bæði af innlendri og
erlendri framleiðslu, en ekkert
dugði.
Svo var það einn sunnudags-
morgun að ég var að velta þessu
fyrir mér. — Algengasta
aðferðin til að hengja upp mál-
verk hafði viðgengizt um aldir,
allt frá timum Loðviks
fimmtánda Frakkakonungs. —
Og allt i einu datt mér i hug að
hægt væri að útfæra þá aðferð á
einfaldan máta, — svo einfaldan
að ég er enn þann dag i dag
steinhissa á þvi að engum skuli
hafa dottið þetta i hug á undan
mér.”
Siðan þetta gerðist eru liðin
fimmtán ár, og enn þann dag i
dag er Sveinn að endurbæta
þessa uppfinningu sina. Siðast-
liðin fimm ár hefur hann verið
búsettur i Danmörku og þar
hefur hann orðið að berjast
harðri baráttu fyrir aö fá hana
viðurkennda. Þaö var siðast
fyrir tæpu ári að verksmiðja á
Jótlandi féllst á að taka hana i
framleiðslu, og nú hefur annað
józkt fyrirtæki tekið að sér að
selja klæðninguna. Það fyrir-
tæki hefur jafnframt einkarétt á
að setja hana upp i verzlunum.
Sjálfur hefur Sveinn tryggt
sér einkaleyfi á uppfinningunni i
Noregi, Danmörku og Sviþjóð.
Einnig hefur hann einkaleyfi á
framleiðslunni hérlendis, og á
næstunni mun hann sækja um
leyfi i Benelux-löndunum.
Veggklæðninguna, sem hlotið
hefur nafnið „System Kjarval”,
er hægt að nota á fleiri stöðum
en i sýningarsölum. Hún kemur
að góðu haldi i verzlunum,
skólum, verksmiðjum og jafn-
vel á heimilum. Hér á landi hafa
til dæmis tvær verzlanir, Kaup-
félagið á Laugum og bóka-
verzlun á Akranesi, verið inn-
réttaðar með klæðningunni.
„Fólkið mitt er farið að kalla
uppfinninguna eilifðarvél,”
segir Sveinn, ,,en ég hef
tröllatrú á hugmyndinni og er
sannfærður um að hún eigi
eftir að ná mikilli útbreiðslu i
framtlðinni.”
—AT—
J
16 ölvaðir
við akstur
Sjö voru teknir ölvaðir við akst-
ur i Reykjavik um helgina. Allir
viðurkenndu þeir brot sin en að-
eins einn þeirra hafði lent i
árekstri, smávægilegum þó. En
sá hinn sami var sofnaður við
stýrið er lögreglan kom á vett-
vang.
A Keflavikurflugvelli voru 4
ökumenn teknir fyrir meinta ölv-
un við akstur og lögreglan i
Keflavik stöðvaði einn slikan i
fyrri nótt.
Lögreglan i Hafnarfirði tók
þrjá ökumenn fyrir ölvun, tvo i
Hafnarfirði og einn á Seltjarnar-
nesi.
Lögreglan á Akureyri grunar
einn ökumann um ölvun. Lenti sá
i árekstri á mótum Skipagötu og
Glerárgötu. Fór hann af slysstað
en náðist siðar. Málið er i rann-
sókn.
— ASt.
Skert haustlón: —
Greiðum 5/12
af umframfjár-
þörfinni nú"
Útborgun hluta haustlána frá
Lánasjóði islenzkra náms-
manna hefst i dag, eftir að
sjóðnum hefur tekizt aö verða
sérúti um 100 milljón króna lán-
tökuheimild. Hefur sjóðurinn
þvi 165 milljónir til umráða
nú,en að sögn Sigurjóns Valdi-
marssonar framkvæmdastjóra
þyrfti 290 milljónir til þess að
standa undir lánabeiðnum.
„Við ætlum að reyna að lána
öllum sem farið hafa fram á
haustlán, bæði fyrri og seinni
hluta,” sagli Sigurjón. „Það
þýðir að við verðum að skera út-
hlutun til hvers og eins allveru-
lega niður. Undanfarin ár hefur
haustlán verið 7/12 af umfram-
fjárþörf námsmanns, en ég
reikna með að úthlutunin nú
verði um 5/12. Þeim peningum
má fólk fara að búast við nú i
vikunni og við vonum að við get-
um greitt afganginn i fyrrihluta
janúar,” sagði Sigurjón enn-
fremur.
LOFTFIMLEIKAFLOKKURINN
Síðustu sýningar flokksins:
Miðvikudag kl. 5.00
Miðvikudag kl. 8.00.
SÝNIR y KVÖLD
KL. 20 I
LAUGARDALSHÖLL
Verð aðgöngumiða:
Sæti kr. 800.-
Stæði kr. 500.-
AUKASÝNING VERÐUR MIÐVIKUDAG KL. 5,00 . , , , , „ „
Míð.sai. i Laugard.ishöii i d.g kl. 5,30 - 8,00 Iþrottabandalag Reyk|0V,kur