Dagblaðið - 21.10.1975, Blaðsíða 4
rtagblaðið. Þriðjudagur 21. október 1975.
4
Það er notalegt fyrir húsbóndann
að eiga frí ó kvennafrídaginn
Jón var bara farinn að hlakka
til kvennafridagsins. Það vildi
svo vel tií að hanri átti fri
þennan dag og hann skyldi svei
mér hafa það gott. Þetta raus
um að hans kæra frú ætlaði
að fara i algjört verkfall
var áreiðanlega bara raus. Þetta
kvenfólk malaði alltaf svo
mikið. Jón rifjaði upp fyrir
sér hvað hann ætlaði að gera. Já,
það var rétt, hann þurfti endilega
að muna eftir að borga af vixli,
sem var á siðasta degi. Svo ætlaði
hann lika að vera svolitið góður
við konuna sina, kaupa mjólkina
ogbrauðiö og hann ætlaði að leyfa
henni að sofa út, koma krökk-
unum þeirra sjálfur i skólann og
þeirri litlu á barnaheimilið. Þar
með gat lika konan hans tekið við.
Hann var húsbóndinn á heimilinu,
ekki átti hann að standa I hús-
verkum á frideginum sinum.
Barnið þarf pelanysinn
Og nú rann dagurinn upp. Sú
litla vaknaöi upp með miklum
bægslagangi. Hún vildi fá pelann
sinn og engar refjar. Jón leit á
klukkuna. Hjálpi mér, hún var
ekki nema hálfsjö. Hann leit á
konuna sina, sem bara sneri sér á
hina hliðina. Hann fór fram og
hitaði pelann. Þegar það var búið
var timi til kominn að vekja
krakkana i skólann. Hann smurði
nesti, eldaði hafragraut, klæddi
þá litlu i gallann og lagði af stað á
barnaheimilið.
Hvernig stóð nú á þessu? Þarna
voru pabbar i löngum bunum með
barnavagna og kerrur, allir að
koma til baka frá barnaheim-
ilinu. Jú, barnaheimilin voru
bara lokuð, heyrði hann einhvern
segja, svo það var ekki um annað
að ræða en snúa heim á leið. Hann
mætti stærri krökkunum i dyr-
unum. Fri i skóíanum hrópuðu
þau. Já, það er kona sem kennir
mér, sagði annar. Annar hver
timi hefði verið fri, sagði hinn,
skólastjóranum fannst þvi ekki
taka þvi að hafa skólann opinn i
dag. Þau voru horfin út úr dyr-
unum með það sama, þvi að fót-
boltinn var i fullum gangi á næsta
velli.
Mjólkurbúðin lokuð
Jón ætlaði að fá sér kaffisopa af
hitakönnunni. Ha, ekkert kaffi.
Hvar var konan hans eiginlega.
Hann kom að henni I baðherberg-
inu. Hún var að mála sig og
komin i betri fötin. Bleyjurnar af
þeirri litlu voru enn á gólfinu, þar
sem hann hafði skilið við þær, og
öll rúm voru óumbúin.
Frúin raulaði lagstúf fyrir
munni sér, kveikti á útvarpinu og
i sigarettu og settist inn I stofu.
Hún leit ekki einu sinni á þá litlu,
sem enn var i gallanum. Jón færði
hana úr og ætlaði að gefa henni
pelann. Engin mjólk. Nú var
konan farin að lakka á sér negl-
urnar. Það var ekki um annað aö
ræða en fara i mjólkurbúð og litlu
yrði hann að taka með. Aftur
færði hann hana i gallann. Hann
þrammaði af stað en mjólkur-
búöin varlokuð.brauðbúðin lokuö
og eitthvað varlitið um starfsfólk
i kjörbúðinni. Hann nældi sér
samt I mjólkurpott þar eftir að
hafa staðið i biðröð i heilan
klukkutima.
Engin blöð
vini sinum, sem staddur var
undir Eyjafjöllum. Hann hringdi i
02. Er þetta áríðandi, var sagt. Út
af skytterii. Þvi miður, við
sinnum bara neyðarvakt.
Enginn póstur
Hvernig var eiginlega með
póstinn? Jón átti von á mjög svo
spennandi bréfi. Heyrðu góða
min, hefurðu séð póstinn? Kemur
ekki i dag, það er kona sem ber út,
póstinn I þessu hverfi og konurnar
á Póststofunni eru i frii i dag, var
svarið.
Jæja, það var bezt að fara að
borga af þessum víxli. Ha, ertu að
fara á fund niðri á Lækjartorgi?
Heim kom hann og kveikti á
útvarpinu. Jón Múli var aö lesa
fréttirnar, en eitthvað voru þær i
styttra lagi. Jú, nú kom
skýringin: þar sem kvenfólkið
sem vinnur hér á útvarpinu, hefur
tekið sig saman og farið i frl i dag
verða fréttir I styttra lagi og litið
verður um auglýsingar af sömu
ástæðu.
Jæja, hann Jón gat þá bara sætt
sig við blöðin sin, þau höfðu þó
komið um morguninn. En hvað
stóð þarr.a i Mogganum, ekkert
blað á morgun vegna kvenna-
frisins.
Jón mundi allti einu eftir þvi að
hann hafði ætlað á skytteri meö
Hver á þá að passa litlu meðan ég
fer I bankann? Verð ég að taka
hana með mér?
Jón fór I bankann, þvilik biðröð,
hann sá ekki betur en bankastjór-
inn sjálfur stæði þarna kóf-
sveittur og teldi peninga. Loks
komst Jón heim. Nú ætlaði hann
að teygja úr sér og lesa Dagblaðið
eða Visi. En það bólaði ekkert á
þeim. Það var vist kvennafriið
einu sinni enn.
Konan kom dragfin úr bænum,
búin að vera á fundi með meiru.
Enginn matur. Það var gott að til
voru pylsur i frystikistunni, þvi
að konan gerði sig ekkert liklega
til þess að elda.
Jæja, klukkan orðin átta. Bezt
að horfa á sjónvarpið. En eitt-
hvað var þetta skrítið. Útsend-
ingarnar virtust ekki vera i lagi
og þarna kom fréttamaður sjón-
varpsins og afsakaði sig. Hann
þurfti að fara heim að passa
börnin, þvi konan hans ætlaði á
fund. Þvi miður gat ekkert orðið
af fréttaútsendingu i kvöld en
aðrir dagskrárliðir yrðu senni-
lega eins og venjulega, færðust
bara aðeins fram.
Þetta fannst Jóni bara ágætt
eftir erfiðan dag. Það varð samt
aldrei af þvi að hann horfði á
sjónvarpiö til enda. Hann sofnaði
sjálfur við að svæfa þá litlu.
EVI
Karlmennirnir geta veriö hinir myndarlegustu við eldhússtörfin, eins og við sjáum hér. En auðvitað
hafa þeir það náðugt á kvennafrfdaginn eins og konurnar.
Sýningartœki og nánari upplýsingar á staðnum
Bílasmiðjan Kyndill 35051 09 85040
Réttingaverkstœði athugið
Getum útvegað með stuttum fyrirvara hina fjölhœfu
rétfingatjakka og réttingatœki frá Guy - Chart í Kanada
fyrir allar stœrðir ökutœkja og verkstœða
Skemmdarverk og póli-
tískur skjalastuldur
Innbrot var framið i bakari
Hermanns Bridde við Háaleitis-
braut aðfaranótt laugardags. Var
öllu umturnað i vinnusal bakar-
anna, hveiti og sykri stráð um
allt, bökunardropum hellt,
hlutum velt og alls kyns sóða-
skapur i frammi hafður. Var
bakariið óstarfhæft fram til há-
degis á laugardag.
Er þessi skemmdarverk höfðu
verið unnin var farið I skrifstofu
fyrirtækisins og þar stolið
minnispeningi Sjálfstæðis-
hússins, sem Hermann Bridde
hefur til sölu, fyrir að verðmæti
um 80 þús. kr. og auk þess skipti-
mynt 5-6 þús. kr. Allt var þar
brotið og bramlað, hellt úr
skúffum og sérstök skjöl, póli-
tisks eðlis, virðast hafa verið
valin úr skjalabunkum og tekin,
að sögn Hermanns Bridde.
—ASt
TVÆR BÍLVELTUR
í BORGINNI
Það var sérstaklega róleg helgi
hjá starfsmönnum bifreiðaslysa-
deildar rannsóknarlögreglunnar
um helgina.. Þó urðu tvær bil-
Kaupið bílmerki
Landverndar
w
EKKI
[UTANVEGA]
\mmm
Til sölu hjá ESSO og SHELL
berfsinafgreióslum og skrifstofu
Landverndar Skólavöröustig 25
veltur i borginni og 9 ára drengur
á reiðhjóli varð fyrir bil.
Fyrri veltan varð á laugardag á
mótum Lækjargötu og Hverfis-
götu. Bill sem var á leið norður
Lækjargötu athugaði of seint
umferð frá Hafnarstræti og lentu
fólksbilarnir saman. Sá sem
Lækjargötuna ók valt og
skemmdist mikið en li.tt sá á
hinum. Stúlka var flutt I slysa-
deild en meiðslin ekki alvarleg.
A sunnudag varð önnur velta á
mótum Tjarnargötu og Skothús-
vegar. Sá er slysinu olli var að
dást að húsum leikaranna' i
kring og gleymdi umferðinni.
Farþegi I bilnum sem valt fékk
taugaáfall.
Niu ára drengur hjólaði fyrir bil
við Sólheima 27 á laugardaginn.
Hlaut hann höfuðmeiðsl og var
fluttur i gjörgæzludeild, en ekki
lifshættulega slasaður. —ASt.