Dagblaðið - 21.10.1975, Page 18
18
Vegna þess hversu strætisvagnaskýlið er kjánalega staðsett gegnt zebra-brautinni, eiga ökumenn erfitt
meö að átta sig á þvi hvort fólk er að biða eftir strætisvagni eða ekki.
Tvœr stórar
slysagildrur
Okkur hefur verið bent á tvær
af mörgum slysagildrum sem
myndazt hafa í umferðinni hér i
Reykjavik og ekki hefur verið
úr bætt, enda þótt yfirvöldum
hafi margsinnis verið bent á
hættuna
önnur er við fjölfarna um-
ferðargötu I Breiðholti, Vestur-
berg, gegnt verzluninni Straum-
nes. Þar hafa legið niðri fram-
kvæmdir við undirgöng undir
götuna, allt frá þvi snemma i
júni og gangstigar meðfram
götunni eru þar engir.
Sfðan skólar hófust hefur
straumur barna og ungmenna
um hana aukizt að mun, og
verða þau öll að sæta lagi við að
komast yfir götuna. Hafa orðið
nokkur slys þarna á skömmum
tima.
Hin gildran er við nýja öskju-
hliðarskólann i Fossvogi. Þrátt
fyrir margitrekaðar beiðnir
hafa yfirvöld látið undir höfuð
leggjast að færa úr stað strætis-
vagnaskýli, sem staðsett er
gegnt zebra-braut yfir gamla
Hafnarfjarðarveginn. Hafa bil-
stjórar þvi átt mjög erfitt með
aö átta sig á þvi, hvort fólk sé að
biða eftir strætisvagni eða að
komast yfir götuna. Hafa þó oft
orðið tafir þarna á umferð og
bilstjórar oft hunzað rétt hins
fótgangandi, eins og myndin
sýnir. HP
Undirgöngin undir Vesturberg hafa verib Ismfðum i aillangan tima,
en nú hafa framkvæmdir legið niöri við þau frá þvi I vor. Börnin
verða þvi að sæta lagi við að komast yfir götuna.
L
„Mexico-ný hljómsveit
Enn ein ný hljómsveit hefur
bætzt I poppflota okkar Islend-
inga. Hljómsveitin „Mexico”
var formlega stofnuð i gærkvöld
og kemur i fyrsta skipti opin-
berlega fram á næsta laugar-
dag, — i Tónabæ.
Meölimir þessarar nýju
hljómsveitar eru þeir Arnar
Sigurbjörnsson og Ragnar
Sigurjónsson, fyrrverandi með-
limir Brimklóar, Þórður Arna-
son Stuðmaður, Guðmundur
„Jesús” Benediktsson og
Akureyringurinn Bjarki
Tryggvason.
Þeir félagar hófu æfingar I
siðustu viku. Þeir leggja mikla
áherzlu á vel rödduð lög, enda
eru miklir og góðir söngmenn i
hljómsveitinni. Einnig taka þeir
fyrir alls konar lög, bæði rokk,
soul og fleira.
Tildrögin að nafninu Mexico
eru þau, að fyrsta lagið sem þeir
félagarnir æfðu hét einmitt
Mexico. —AT—
GiTA FÆREYINGAR KENNT
OKKUR AÐ MALBIKA?
1 Færeyjum er árlega mal-
bikaöur meira en 10 sinnum
lengri vegarspotti á hvern ibúa
eyjanna en gert er hér á landi
miðaö við ibúafjölda, segir I
greinargerð er fylgdi álitsgerö
er samþykkt var á landsþingi
Félags isl. bifreiðaeigenda.
1 henni kemur og i ljós að á ís-
landi er ekki nema 1,9% vega-
kerfis landsins með ryklausu
slitlagi. Eru Islendingar með
langlægst hlutfall i þessum efn-
um allra Norðurlandaþjóða.
Vegna þessa átaldi þingið
óheppilega ráðstöfun rikisins á
skattpeningi bifreiðaeigenda. 1
skýringum er frá þvi sagt, að I
Noregi séu 39% vegakerfis með
sliku slitlagi, i Svlþjóð sé hlut-
fallið 50% og I Færeyjum er það
hæst eða 61,3% vegakerfis með
ryklausu slitlagi. Islenzka talan
I þessum efnum er 1,9% að þvi
er FIB segir.
ASt.
nagbiaðið. Þriðjudagur 21. október 1975.
CENCISSKRANING
NR. 193 - 17. októb«r 1975
SkrÁ8 rn KiniiiK Kl. 12.00 Sa la
15/10 1975 1 llanda rík Jarioll* r 165,60
17/10 1 Stc rliny*pvmd 340,40 •
- 1 K* na da ilol In r 161, 10 *
. 100 Danakar krúnur 2768,70 *
. 100 Norakar krúrmr 3016,75 *
100 S.«,nakfir krúnur 3788,90 «
15/10 100 Kinnak mOrk 4273,75
17/10 100 t ranakir írfink.ir 3776,55 »
100 H. Ik, Ir.ink.ir 428,20 •
. 100 Svii.au. fr.iuk.ir 6253.90 *
- 100 (iyllinl 6271,05 •
- 100 V. - l»ý/.k mtirk 6458,10 •
. 100 Lfrur 24. 50 •
. 100 Auaturr. Srh. 911,95 •
100 Lac udna 624,H5 •
. 100 l’earta r 280, 30 •
15/10 100 Yen 54,73
100 1 Hclkningakronur VitruakiptalOnd Rcikningsdolla r • 100, 14
V/iruakiptalOnd 165,60
* Hreyting fra •fBinlu akráningu
Kvennadeild Slysavarna-
félagsins í Reykjavik
heldur fund miðvikudaginn 22.
október klukkan 8.30 stundvislega
i húsi Slysavarnafélagsins á
Grandagarði. Félagskonur eru
beðnar að fjölmenna. — Stjórnin.
Frá Fuglaverndarfélagi
islands.
Næsti fræðslufundur Fugla-
verndarfélags Islands verður
haldinn i Norræna húsinu þriðju-
daginn 28. október kl. 20.30.
Tómas Tómasson rakara-
meistari, sem stundað hefur ljós-
myndun i áratugi, sýnir úrval af
islenzkum náttúrumyndum, bæði
af lifi i flæðarmáli, blómamyndir
og myndir af landslagi af öræfum
Islands. Myndir hans einkennast
af einstakri vandvirkni, smekk-
visi og þolinmæði að fá sem bezta
mynd.
A undan sýningunni flytur for-
maður félagsins, Magnús
Magnússon prófessor, stutt ávarp
um störf félagsins á liðnu sumri.
Stjórnin.
Sýningar
Sýningarsalur Menningarstofn-
unar Bandarikjanna: Helen C.
Frederick, bandarfsk listakona,
opnar sýningu á verkum sinum á
mcrgun, sunnudag milli kl. 14 og
17. Verkin, sem hún sýnir eru
svartlist og teikningar, um
fimmtiu talsins. Sýningin verður
opin til 24. október klukkan 13-18.
Galleri Súm: -Tryggvi Ölafsson
sýnir. Sýningin stendur frá
klukkan 16-22 a.m.k. til mánaða-
móta.
Norræna húsið: Agúst Petersen
sýnir. Stendur til 28. október. Op-
jö frá 2-10.
Bogasalurinn: Minningarsýning
Drifu Viöaí. Stendur til sunnu-
dagskvölds 26. október. Opið frá
3-10.
Listasafn tslands: Yfirlitssýning
á verkum Jóns Egilberts. Opið
frá 13.20-22 daglega til 18. nóvem-
ber.
Byggingarþjónusta arkitekta við
Grensásveg: Einar Hákonarson
sýnir. Opið frá 14-22 til 30. októ-
ber.
Sýningar i Brautarholti 6 á
teikningum eftir Jóhannes
Kjarval. Sýningin stendur til 25.
október og er opin frá 16—22 alla
daga.
Kjarvalsstaöir: Ragnar Páll.
Sýningin stendur til 23. október.
Opið frá 4-10. .
Kjarvalsstaöir: Sýning á verkum
Jóhannesar S. Kjarvals er opin
alla daga nema mánudaga klukk-
an 16—22. Aðgangur og sýningar-
skrá ókeypis.
Matthias Sveinbjörnsson
fyrrverandi aðalvarðstjóri,
Bergþórugötu 31 verður jarðsett-
ur frá Dómkirkjunni i dag kl.
13.30. Matthias lézt 13. október sl.
iLandspitalanum, nærri 71 árs að
aldri. Hann starfaði I lögreglunni
i Reykjavik i 44 ár, frá 1930—1974.
Árið 1940 varð hann varðstjóri og
árið .1961 aðalvarðstjóri. Hann
var einn af stofnendum Lögreglu-
félags Reykjavikur og heiðurs-
félagi Lögreglukórsins.
Hulda Andrésdóttir,
Sogavegi 210, verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju á morgun kl.
13:30.
Svava Thordersen
ölduslóð 4, Hafnarfirði, verður
jarðsungin frá Frikirkjunni i
Hafnarfirði á morgun kl. 13:30.
Jón Bjarnason,
vélstjóri, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju i dag kl. 13.30.
Steinvör Ágústa Egiisdóttir
Marberg,
Þórufelli 12, verður jarðsett frá
Fossvogskirkju I dag kl. 15.
Agústa Hildibrandsdóttir,
Stóragerði 13, andaðist i Borgar-
spitalanum 19. október.
Ole Omundsen,
Fifuhvammsvegi 25, Kópavogi,
lézt 19. október
Ágústa Kristin Ingimundardóttir
Andersen,
Hólmgarði 26, lézt i Landakots-
spitala 18. október.
Herdis Simonardóttir
lézt i Landspitalanum 17. október
Þorsteinn Þorkelsson,
skrifstofustjóri, Bólstaðarhlið 39,
andaðist i Landspitalanum 17.
október.
Sveinbjörg Einarsdóttir,
Bræðratungu viö Holtaveg,
Reykjavik, andaðist i Landspital-
anum 20. október
Guðmundur Guðjónsson,
Kleppsvegi 42, andaðist i Borgar-
spitalanum 20. október.
Karl Júliusson .
fyrrverandi bryti lézt að Reykja-
lundi 19. október.
Sigriöur Guðmundsdóttir,
Austurbrún 6, lézt I Landspitalan-
um 19. október.
Maria Hallgrimsdóttir,
Brávallagötu 16A, andaðist i
Landakotsspitala 18. október.
Læknaritarar
Fundur i Félagi isl. læknarit-
ara lýsir fullum stuðningi við
kvennafridaginn og hvetur sem
flestar konur til að mæta á fund-
inum 24. okt., þó ekki teljist
stætt á að allir læknaritarar
leggi niður vinnu þennan dag.
Kvenfélag Bæjarleiða: Aðalfund-
ur verður baldinn I Siðumúla 11,
þriðjudaginn 21. október kl. 20.30.
Aðalfundarstörf, myndasýning úr
sumarferðalaginu.
Hjólhúsoklúbbur íslands
Aðalfundur 1975 verður haldinn fimmtudag-
inn 30. október nk. í Kristalsal Hótel Loftleiða
kl. 21 stundvíslega.
Stjórnin.