Dagblaðið - 21.11.1975, Side 24
í stað gengisfellingar?
Krónan látin „síga"
Gengi krónunnar er
að „siga”. Gengissig
hefur á ýmsum timum
komið i stað gengis-
lækkunar. Það gerist
með hægfara breyting-
um frá degi til dags i
stað snöggra breytinga
gengislækkana.
Stjórnvöld hafa ekki staðfest,
að til standi að láta gengið siga
talsvert áfram, en það hefur
vissulega komið mönnum i hug.
Ólafur Jóhannesson viðskipta-
ráðherra hefur margsinnis sagt
að undanförnu, að gengislækkun
komi ekki til greina að svo
stöddu.
Gengissigið nú gerist með
þeim hætti, að Bandarikjadollar
hefur hækkað á alþjóðlegum
markaði og islenzka krónan
ekki verið látin fylgja honum i
hækkuninni. Yfirleitt hefur
þeirri stefnu hins vegar verið
fylgt að láta gengi krónunnar
fylgja gengi dollars með litlum
frávikum.
A aðeins nokkrum dögum hef-
ur gengi krónunnar lækkað þó
nokkuð gagnvart dollar. Dollar-
inn kostaði 165,90 krónur hinn
fyrsta þessa mánaðar en var
kominn upp i 168,50 krónur i
morgun. Þetta er verðhækkun á
dollar, sem nemur 2,60 krónum.
Dollarinn er langmikilvæg-
asta myntin i viðskiptum okkar.
Aðrir gjaldmiðlar hafa litið
breytzt. Pundið var i morgun á
344,35 krónur en var 344,40 krón-
ur 1. nóvember. Vestur-þýzkt
mark kostar tæplega 64,92 kr.
en kostaði tæplega 64,99 1.
nóvember. Dönsk króna er nú á
tæplega 27,84 islenzkar, saman-
borið við rúmlega 27,81 1. nóv.
Gengi norsku krónunnar er rif-
lega 30,45 islenzkar en var tæp-
lega 30,41 hinn fyrsta þessa
mánaðar, og sænsk króna hefur
hækkað úr rúmlega 38,21 is-
lenzkri i tæpar 38,30. — HH
Innbrot hjá Sveini Egilssyni:
5-600 DÖLUM OG 50
ÞÚSUND KRÓNUM STOLIÐ
Miklar skemmdir unnar í skrifstofunum
Skrifstofurnar hjá Sveini
Egilssyni urðu illa úti i nótt af
völdum innbrotsþjófa. Skrifstof-
urnar eru i húsi fyrirtækisins i
Skeifunni og var farið inn um
glugga á þaki hússins. Ekki er
að fullu kannað hverju stolið
var,en ljóst er, að a.m.k. 50 þús.
krónum i seðlum og 500-600 doll-
um hefur verið stolið.
Mikil spjöll voru unnin á
húsnæði firmans. Peningaskáp-
ur var tættur i sundur, skrif-
borðsskúffur brotnar. Mjög
hefur verið rótað i skjölum og af
þeim sökum er enn ekki að fullu
ljóst, hvort meira hefur horfið
en áður er nefnt.
Þá var og i nótt brotizt inn
hjá Ræsi við Skúlagötu. Þar var
farið inn um glugga og ráðizt að
peningakassanum. í honum
voru um lOþús. kr. i skiptimynt
og voru þær horfnar. Skemmdir
voru ekki unnar að ráði.
ASt.
Keppni Norðurlandanna í hárgreiðslu:
ELSA MISSTI, - HÁRFÍNT,
AF FYRSTA SÆTINU
Elsa Haraldsdóttir I starfi.
um nema Elsa, en liðið fékk
þann dóm að það hefði jafnbeztu
keppendunum á að skipa.
Norðurlandameistarakeppni i
hárgreiðslu er haldin á tveggja
ára fresti. Næsta keppni verður
væntanlega haldin á Islandi árið
1977, og þá gefst vonandi tæki-
færi til að launa Norðmönnum
lambið gráa.
— AT —
Hér sjáum við sigurvegarann,
norsku stúlkuna Grete Nervold,
ásamt módeli sinu, Gerd
Gamst.
Mjög litlu munaði, að Elsa meistari hreppti Norðurlanda-
Haraldsdóttir hárgreiðslu- meistaratitilinn i hárgreiðslu..
Hún og sú, sem hreppti fyrsta
sætið, skildu jafnar að stigum
eftir keppnina, voru báðar með
85 st.ig, en eftirá var Elsa lækk-
uð.
Keppni þessi var haldin i
Noregi um siðustu helgi. Sú,
sem vann, er Grete Nervold
Noregsmeistari i hárskurði. Að
sögn Arnfriðar Isaksdóttur for-
manns Félags hárgreiðslu- og
hárskerarneistara, báru Elsa og
Grete af hinum keppendunum.
í islenzka liðinu, sem keppti i
Noregi, voru fimm manns. Eng-
inn komst i þrjú af efstu sætun-
Vilja að bœjarstjórinn nýi víki:
„ÉG MUN SVARA í DAG"
— segir Sigfinnur Sigurðsson, bœjarstjóri í Eyjum — minnihluti bœjarstjórnar
innar ásakar hann um gróft misferli í fjárreiðum bœjarins
Minnihluti i bæjar-
stjórn Vestmannaeyja
krafðist þess á fundi
hennar i fyrradag, að
bæjarstjóranum, Sig-
finni Sigurðssyni yrði
vikið frá vegna þess er
þeir álitu gróft misferli
i fjárreiðum bæjarins.
Telur minnihlutinn risnu
bæjarstjóra óeölilega háa og
nefndu töluna ' eina og hálfa
milljón i þvi sambandi. Segja
þeir að Sigfinnur, sem sam-
kvæmt samningi er meö um 200
þús. krónur i mánaðarlaun,
hafi greitt sjálfum sér fyrirfram
upp i laun 900 þús. kr. og hefur
húseign hans á Selfossi verið
dregin inn i umræðurnar. Sig-
finnur hefur ekki fast aðsetur i
Vestmannaeyjum enn sem
komið er og býr fjölskylda hans
i Reykjavik.
,,Það var samþykkt með öll-
um greiddum atkvæðum að fara
ofan i málið”, sagði Jóhannes
Kristinsson, bæjarstjórnarfull-
trúi, er við höfðum samband við
hann. „Tveir gagnrýnir endur-
skoðendur, Sigurður Jónsson
bæjarstjórnarfulltrúi og ég, eig-
um að kanna feril bæjarstjóra
undanfarna þrjá mánuði.”
„Ekkert er hæft i þessum
ásökunum og á misskilningur-
inn eftir að koma fram seinna i
dag,” sagði Sigfinnur Sigurðs-.
son i viðtali við DB. ,,Málið hef-
ur yfir sér megnan pólitiskan
ofsóknarblæ þar sem staðhæf-
ingar minnihlutans eru alger-
lega úr lausu lofti gripnar og
frjálslega farið með tölur.” Mun
ég svara þessum ofsóknum með
málaferlum á hendur hlutað-
eigandi aðilum”.
HP
Srjálst, óháð daghlað
Föstudagur 21. nóvember 1975.
ÓK í
SÆLU-
VÍMU
— á Ijósastaur
Rétt fyrir klukkan átta i
gærkvöldi var bifreið ekið á
ljósastaur. Atburðurinn gerð-
ist i Norðurfelli i Breiðholti
móts við Æsufell. Áreksturinn
var mjög harður og er billinn
illa leikinn eftir.
Hér var á ferð ökumaður,
sem lögreglan kannast vel við.
Ekki hafði maðurinn neytt
vins, aðþvi ertaliðvar.Eigi að
siður var hann vægast sagt i
annarlegu ástandi af völdum
lyfjainntöku, og þvi á engan
hátt fær um akstur. Hann gisti
hjá lögreglunni i nótt.
ASt
Slökkvi-
liðið
dœldi
bensín-
gusu
óeld-
inn
Eldur kom upp i vélbátnum
Sporði NS 10 þar sem hann lá i
Seyðisfjarðarhöfn um kl. 9 i
gærkvöldi. Svo vel vildi til að
maður var við vinnu i næsta bát,
sá eldinn og gerði viðvart. Kom
þvi slökkvilið staðarins fljótt á
vettvang.
Slökkvistörfin urðu þó nokkuð
fumkennd i fyrstu. Gerðist það
m.a. að slökkviliðsmenn, sem
ætluðu að sprauta kvoðu á eld-
inn tóku feil á kútum og spraut-
uðu óvart bensini á eldinn. Upp-
götvuðust mistökin þegar og
ekki varð skaði af. Gárungarnir
sögðu þó sin á milli, að fyrst
hefði brunaliðið komið á vett-
vang en siðan slökkviliðið.
Orsök eldsins var einhver bil-
un i rafkerfi bátsins og brunnu
rafmagnskaplar og leiðslur.
Sporður er 8 tonna bátur,
smiðaður 1954 úr furu og eik.
Hann hefur verið á linuveiðum,
en mun nú hafa verið hættur
þeim.
OJ/ASt.