Dagblaðið - 22.11.1975, Side 8

Dagblaðið - 22.11.1975, Side 8
8 Oagblaðið. Laugardagur 22. nóvember 1975. Spurning dagsins Ilvað er forseti tslands gamall? Ingibjörg Pálsdóttir, auglýsinga- stofu á Mogga: „Hann er svona 54, — ég dæmi það eftir útliti.” Kristján Jóhannsson nemi: „For- setinn? Hann er sirka 54. Hann er svolitið ellilegur en samt ekkert ofsalega.” Kristin Sandholt nemi: „Ætli hann sé ekki um sextugt, — hann er það ellilegur.” Steingrfmur Jónsson nemi: „Er hann ekki fæddur 1916? Ég man ekki hvenær á árinu.” Birgir Aðalsteinsson verkamað- ur: „Það er hrein ágizkun hjá mér að hann sé 53ja ára.” Birna Pálsdóttir flugfreyja: „Ég held að hann sé fæddur 1916, i des- ember.” Kristján Eldjárn er fæddur að Tjörn f Svarfaðardal 6. desem- ber 1916. DB. GJALDEYRIR FYRIR BERAN BOSSA Háaloftið Þá er búið að bjarga þjóðinni rétt einu sinni. Þeir i bankanum, sem kenndur er við seðla, gerðu það með sóma og sann eins og þeirra var von og visa: Tóku sér far út fyrir pollinn og fengu vænt og rfflegt lán svo nú hefur heldur hækkað i gjaldeyrissjóðnum okkar. Þar með léttir nokkuð áhyggjum okkar i bili að minnsta kosti. Þegar seðlabankastjórinn var að segja okkur frá þessu gegnum útvarpið, með sinni ábyrgðarfullu landsföðurrödd, sagði hann eitthvað á þá leið að þetta hefði lánardrottinninn gert i góðri trú á það að islend- ingar réttu úr kútnum og stjórn- uðu sinum fjármálum af viti. Þeir eru ósviknir húmoristar þarna hjá alþjóðagjaldeyris- sjóðnum. Það hefur vist farið fram hjá þeim að islendingar hafa litla æfingu i að stjórna sér og hefur tekist það heldur illa þann tima sem þeir hafa fengið að reyna. Það hefur liklega farið fram hjá þeim lika að ef eitthvað er reynt að stjórna eru óðara komin verkföll og hvers konar önnur skemmdarverkastarfsemi, þannig að litlu máli skiptir hvort stjórnin kennir sig við vinstri eða hægri, viðreisn eða uppreisn, og endirinn er ævin- lega sá að stjórnarathafnir flestar fara beinustu leið út um þúfur. En það þarf ekki verkföll til svo að seglabúnaðurinn á þjóðarskútunni verði eitthvað skondinn. Innkaupastefna okkar er lika mjög á reiki. í fyrra var sagt frá frystikistu- staflanum sem var að grotna niður i ryði hjá einhverri skipa- félagsskemmunni og hefur sjálfsagt ryðgað til fulls þar núna. Vel farið með gjaldeyrinn þann. í vikunni sagði Dagblaðið okkur frá bilum sem eru að grotna niður úr ryði, hreyfingarleysi og tæringu á svipuðum slóðum. Vitleg innkaup það. Visir sagði i siðustu viku frá þvi hvernig þeir hausa þorskinn á Suðurnesjum —■ allt aftur undir gotrauf — og henda svo haushelmingnum. Bráðskynsamlegur bjargræðis- vegur það. En aílt er þetta þó hégómi hjá nýjustu gjaldeyrisfjárfesting- unni okkar. Við fundum sem sé upp á þvi snjallræði að flytja inn striplu frá Danmörku. Eva Nielsen kvað hún heita þegar hún er i fötum, Maria Theresa þegar hún tinir af sér spjarirnar. En það gerir hún fyrir pening svo oft og þétt sem þvi verður við komið i stöpum og hlégörðum og sesörum — og SIGURÐUR HREIÐAR HREIÐARSSON sagan segir að það sé enginn smáræðis peningur. Sem hún vill að sjálfsögðu fá i gjaldeyri þvi einhvers staðar las ég að hún ætlaði að byggja sér eða kaupa sér hús — og varla verður það i Breiðholti. Og i Danmörku þýðir vist litið að ætla að kaupa sér hús fyrir islenskar gullkrónur. Það gengur ekki svona lipurt að fá yfirfærslu fyrir þá islendinga sem eru að flytjast búferlum til annarra landa. Nú er ekki nema gott og blessað að fá að sjá svolitið kvenholdá þessu kvennaári. En, við eigum fullt af fallegum kroppum heima fyrir, sem gætu þegið bara venjulegar islenskar krónur, svo ekki þurfum við að taka nokkurra milljarða lán til að fá þær til að kroppa utan af sér garmana. Holt es heima hvat, minnir mig að standi i visri bók, og þessu hefði verið nær að halda i ættinni. Það má jafnvel gera þvi skóna að við gætum komið okkur upp einhverri Sigriði sem á kvöldin héti Maria Antoinette og gæti meira að segja tekið ofan hausinn og dansað með hann undir handleggnum, ef draugum vorum væri ekki þvi meir aftur farið. Og kannski væri þá hægt að flytja hana út og hafa örlitið upp i vextina á láninu góða. En þótt hún mætti vera með hausinn á réttum stað erég handviss um að við gætum fengið islenskar, hnellnar hnátur til þess að sveifla slæðum um naktar, ávalar lendar og þrifleg þjó, láta barminn dúa framan i áhorf- endur og dilla drellinum fyrir þá. Ég tala nú ekki um ef þær gætu gert það að atvinnuvegi. En kannski er það stjórn- viska, sem þeir kunna að meta hjá alþjóðasjóðnum, að taka milljarðalán til þess að borga fatafellu kaupið sitt i gjaldeyri. Nokkrir smábílar í deialunni Alltaf verður erfiðara að koma bilnum i stæði og maður- inn þrengir æ meir að sér sem honum fjölgar. Sem sjá má verða bilar vart framleiddir minni en þessir án þess að ná- kvæmur og strangur megrunar- kúr fylgi með til kaupenda. Michelotti Diamonö 4 GM mini-bill

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.