Dagblaðið - 22.11.1975, Page 10
10
Pagblaðið. Laugardagur 22. nóveniber 1975.
Kl. 5 árdegis, meðan Kairó sefur
enn værum blundi og götuljós borg-
arinnar speglast i Nil, er komin á
hreyfing i forsetabústaðnum. For-
setafrúin er komin á kreik, fær sé
litinn bolla af sterku tyrknesku
kaffi og býr sig undir erfiðan dag.
Hún gegnir mörgum hlutverkum
dag hvern, — er eiginkona, móðir,
nemandi, iþróttakona, 'íélagsráð-
gjafi, kvenfrelsiskona og mjög um-
deildur opinber aðili.
Forsetahjónin eiga 4 börn. Dæt-
urnar Lubna 21 árs og Noha 18 ára
eru báðar giftar, sonurinn Gamal
er 19 ára og yngsta dóttirin Jihan er
15 ára gömul, en trúlofuð. Frú
L
Hún er ekki á móti því að karlmennirnir séu húsbœndur á sínum heimilum er
Jihan Sadat óvenju
Sadat var sjálf 15 ára þegar hún
giftist.
Jihan Sadat vinnur ötullega að
baráttumálum egypzkra kvenna,
takmörkun barneigna og afnámi
fjölkvænis.
Hún hefur sagt frá því að árið
1967 hafi hún hitt grátandi bónda-
konu. Bóndakonan sagði frá þvi að
maður hennar hefði tekið saumavél
hennar og selt og siðan notað pen-
ingana fyrir sig. Þessi saga hefði
. orðið til þess að frú Sadat ákvað að
berjast fyrir þvi að konur fengju
sjálfstæði. Hún lætur forsetann vita
hug sinn.
I blaðagrein, sem frú Sadat hefur
hengt upp á vegg hjá sér, er sagt
frá fundi forsetans með franskri
sendinefnd þar sem forsetinn segir
frá þvi að hann ætli að sjá til þess
'að þingið samþykki lög um aukin
réttindi kvenna fyrir áramót. Frúin
Sadat forseti ásamt konu sinni og
tveim dætrum fyrir utan forsetabú-
staðinn i Kairó.
ætlar ekki að láta mann sinn
gleyma þessu.
Offjölgun er meðal stærstu
vandamálanna að dómi Jihan.
Egyptar eru nú 37 milljónir og
þeim fjölgarum eina milljón á ári.
— Ég hef sagt manni minum að
hann ætti að láta setja lög þess
efnis að refsa ætti hverjum þeim
hjónum semeignast fleiri en 2 börn,
t.d. með þvi að neita endurgjalds-
lausri skólagöngu fyrir fleiri en 2
börn eða að konur verði gerðar ó-
frjóar eftir að hafa átt annað barn
sitt. Um þessar mundir er ég að
undirbúa herferð gegn offjölgunar-
vandamálinu, segir Jihan.
F'orsetafrúin, sem er sannur mú-
hameðstrúarmaður, segir að ekki
sé hægt að banna fjölkvæni vegna
þess að það sé leyft i Kóraninum.
Aftur á móti er hægt að gera mönn-
um erfitt fyrir með þvi að skylda þá
til þess að þeir eftirláti eiginkonu
nr. eitt að jafnaði helming launa
sinna. Eða þá að samþykki hennar
þurfi að koma til ef manninn langar
til að fá sér aðra konu eða setja
körlum þau skilyrði að þeir verði
að koma ó sama hátt fram við allar
eiginkonur sinar, og það er liklega
ekki framkvæmanlegt.
Það má ekki skilja orð min svo,
segir frú Sadat, — að ég sé á móti
Frúin settist á skólabekk 41 árs.
Ekki viröist lagt mikið upp úr hús-
gögnunum i háskólanum i Kairó.
Þvælufótur, athugaðu
Þú velur mig alltaf i skitverkin
Það gætu verið bleikhöfðar
Ef ég neita nú að fara,
i kjarrinu þarna
Ég mundi binda þig á mauraþúfu1
og láta þig liggja i viku. Síðan
mundi ég hengja þig upp á
þumalfingrunum i aðra viku. /
En fyrst mundi ég slá
þig í hausinn með
þessari stríðsöxi.
Ég var formaður
málfundafélagsins i
skóla.