Dagblaðið - 04.12.1975, Síða 13
Dagblaðið. Fimmtudagur 4. desember 1975,
Jafntefli
hjá Tékkum
Tékkneska landsliðið i knatt-
spyrnu, sem komið er i úrslita-
keppni Evrópumóts landsliða, náði
jafntefli i Vinarborg i gær i undan-
keppni Olympiuleikanna. Lék þá
við Austurriki og var ekkert mark
skorað i leiknum. Tékkar léku með
nær sama liði og sigraði England i
Evrópukeppninni.
t Blois sigraði Frakkland
Rúmeniu i sömu keppni — öðrum
riðli.
Heimsmetið
í þrístökki
Hinn 21 árs Braziliumaður Joao
Carlos de Oliveira setti sem kunn-
ugt er nýtt heimsmet i þrlstökki á
Amerikuleikjunum i Mexikóborg á
dögunum — stökk 17.88.795 metra.
Þaö var hækkað i 17,89 m — og
Braziliumaðurinn bætti fyrri ár-
angur sinn um 1.15 metra'.!
Beztu afrekin i þristökki f
heiminum eru nii:
17.89—Oliveira, Braziliu, 1975
17.44—Sanejev, Sovét, 1972
17.40 — Perez, Kúba, 1971
17.31 — Drehmel, A-Þýzkal. 1972
17.27 — Prudencio, Brazilfu, 1968
17.22 — Gentile, ítalíu, 1968
17.20 — Bariban, Sovét, 1973
17.20 — Haynes, USA, 1975
17.12 — Corbu, Rúmeniu, 1971
17.07 — Smith.USA, 1972
tslandsmet Vilhjálms Einarsson-
ar er 16.70 m — enn frábær árang-
ur. Náð 1960 hér i Reykjavik —
þannig, að þunna ioftið hjálpaði
honum ekki eins og flestum
stökkvurunum, sem nefndir eru að
framan. Sænska metið i þrfstökki
er t.d. 16.06 m.
Fyrsta opinbera heimsmetið var
15.52 m sett 1911 af Daniel Ahearne
USA. A Olympiuleikunum i Berlin
1936 stökk Japaninn Naoto Tajima
16.00 m. Það met stóð I 16 ár — en
1960 var fyrst stokkið yfir 17 m., |
Josef Schmidt, Póllandi, 17.03.
Heimsmetiö frá 1960 hefur þróazt
þannig:
17.03 — Schmidt, Póllandi, 1960
17.10 — Gentile, ttaliu, 1968
17.22 — Gentile, italiu, 1968
17.23 — Sanejev, Sovét, 1968
17.27 — Prudencio, Braziliu, 1968
17.39—Sanajev, Sovét, 1968
17.40 — Perez, Kúbu, 1971
17.44 — Sanejev, Sovét. 1972
17.89 — Oliveira, Braz. 1975
Hœttir í HM
Það var tilkynnt i aöalstöðvum
FIFA — alþjóöaknattspyrnusam-
bandiö — IZurichí gær, aðeitt land
heföi dregið sig til baka úr heims-
meistarakeppninni i knattspymu.
Sri Lanka — áður Ceylon — hefur
hætt við þátttöku I undankeppninni,
þar sem stjórnvöld vildu ekki
greiða keppnisgjaldið, 1000
svissneska franka — rúmlega
fimmtiu þúsund islenzkra króna.
Þátttökulönd i undankeppninni
verða þvl 103 — 105 I allt i keppn-
inni, þar sem Argentina, — þar
veröur úrslitakeppnin háð — og
heimsmeistarar Vestur-Þýzka-
lands komast beint i úrsUt.
Stefán á leið inn I teiginn eftir aö Tyrdal hafði gefið honum mjaðmahnykk — Arni er við öllu búinn og Páll fylgist spenntur meö. Þarna var
hins vegar dæmt á Tyrdal — frikast. DB-mynd Bjarnleifur.
Éícki heil brú eftir
góða byrjun íslands
— enn sigruðu Norðmenn þrútt fyrir 8-6 forustu íslands í húlfleik
Aftur mátti islenzka landsliðið
bita i það súra epli að tapa fyrir
norsku landsliði, 14-18— liði, sem
Islenzk landslið undanfarinna ára
hefðu unnið eins og það lék i gær.
Menn segja að i islenzka liðið
vanti máttarstólpa. — Vissulega
cr þaðrétt en i gærkvöld var slikt
ráðleysi rikjandi i siðari hálfleik
að ótrúlegt var. Enginn hafði
kraft né getu til að taka af skarið
og brjótast i gegn um sterka og
oft á tiðum grófa vörn Norð-
manna, sem léku mjög framar-
lega og trufluðu sókn tslending-
anna með þvi. t vörninni hopuðu
islenzku leikmennirnir i stað þess
að fara á móti — afleiðingin varð
sú að norsku leikmennirnir áttu
greiöa leið að markinu.
En ef viö snúum okkur að leikn-
um — þá byrjaöi islenzka liöið svo
sem nógu vel. Björgvin skoraði
glæsilegt mark af linu þegar i
upphafi — Grislingaas jafnaöi.
Þá tók Olafur Einarsson mikinn
kipp og skoraöi næstu 3 mörk og
Viggó bætti þvi 5. við. Staðan 5-1
eftir 15 minútna leik. Hreyfan-
leiki I vörninni var mikill og kom-
ust Norðmenn litt áleiðis — og að
baki stóð Ölafur Benediktsson og
varði mjög vel. — En islenzku
leikmennirnir voru of bráðir — ó-
timabær skot og ólafur missti
viti, kom norskum á bragöið —
sem jöfnuðu 5-5. Aftur tók is-
lenzka liðið kipp og Páll og Ólafur
Einarsson skoruðu 2 næstu mörk
og staðan i hálfleik var 8-6 og
menn bjartsýnir á sigur gegn
slöku norsku liöi.
Það átti ekki eftir að verða — i
stað ákveðni var hik bæði i vörn
og sókn. Allt miðaðist viö að
brjótast inn miðjuna — þar sem
norskir eru sterkastjr. Hvorki
gekk né rak — ráðleysi, þreyta og
ótti einkenndi leik liðsins — leik-
skipulag liösins gjörsamlega i
molum.
Norðmenn sigu örugglega fram
úr og Islendingar skoruðu sitt
fyrsta mark ekki fyrr en á 10.
minútu — þá úr viti, Jón Karlsson
— þá hafði Pal Bye variö viti frá
Páli skömmu áður.
Eftir 17minútna leik var staðan
10-15. Markvarzla og vörn i mol-
um og ráöleysi i sókn. íslendingar
skoruðu næstu tvö mörk — en
Norðmenn gátu skorað nánast
þegar þeir vildu.
Lokastaðan varð 18-14 — svona
rétt til að kóróna allt varði Pal
Bye viti frá Jóni Karlssyni að
leiktimaloknum, þannig fóru 3
vfti forgörðum.
Greinilegt er að islenzka lands-
liðið án Ólafs H Jónssonar, Axels
Axelssonar, Einars Magnússonar
og Gunnars Einarssonar er
hvorki fugl né fiskur — hér heima
eru ekki til afgerandi leikmenn.
Páll átti ekki sama stjörnuleikinn
og i fyrri leiknum — ekki nema
von bæði meiddur og þreyttur.
Ólafur Einarsson átti góðan leik i
fyrri hálfleik og skoraði þá 5
mörk — en þess á mUli gerði hann
slæmar skyssur —og braut illa af
sér I vörn. Þó verður hann að telj-
ast bezti maður liðsins i gær-
kvöldi. Sigurbergur stóð fyrir
sinu og skoraði gott mark. Stefán
Gunnarsson var sivinnandi og
skoraöi fallegt mark. Björgvin og
Ami voru góðir i vörn — Björgvin
hættulegur inni á linu. Norðmenn
þurftu sifellt að hafa gætur á hon-
Tottenham skoraði siö
Tottenham vann stórsigur á 4.
deildarliði Doncaster i átta liða
úrslitum deildabikarsins enska i
gærkvöld. AUs skoruðu leikmenn
Tottenham 7 mörk — John
Duncan var iðinn við kolann —
3svar sinnum sendi hann boltann i
mark Doncaster, sem þó skoraði
fyrsta mark leiksins.
Annars urðu úrslit þannig:
Burnley — Middlesbrough 0-2
Man.City — Mansfield 4-2
2. deild:
Charlton —Luton
Slæm mistök markvaröar Notts
County, Eric McManus, snemma
i leiknum gegn Newcastle nægðu
til að koma 1. deildarliöi New-
castle áfram i undanúrslit deilda-
bikarins I fyrsta sinn i sögu fé-
lagsins.
öllum á óvart stóö Mansfield i
Manchester City á Maine Road —
Newcastíe —Notts County 1-0
Tottenham — Doncaster 7-2 það var diki fyrr en Hartford
skoraði 4. mark City að þeir voru
öruggir — þar með er Mansfield
úr bikarnum eftir frækilega
frammistöðu en við tekur fallbar-
áttan i 3. deild — liöiö er nú lang-
neðst þar.
Leikur Burnley og Middlesbro á
Turf Moor I Burnley var eini leik-
urinn milíi 1. deildarliða — sann-
færandi sigur liðsins hans Jackie
Charlton, Middlesbro, kom alls
ekki á óvart eftir slaka frammi-
stöðu Burnley i vetur.
—h.halls
■■II
um — en það vantaði menn til að
mata hann á linunni.
íslenzka liðið vantar samæf-
ingu — og vonandi að Danmerk-
urferö landsliðsins verði liðinu
drjúg. Við getum ekki án „útlend-
inganna” verið — það fer ekkert
á milli mála. Þar eigum við við
vandamál að striöa — alltaf hlýt-
ur að vera erfitt að koma æfing-
um saman við slikar aðstæður.
Ég er aldeilis sannfærður um,
að meö fullu liöi — ekki varaliði -
myndu Islendingar vinna þetta
norska lið. Leikmenn eru stórir
og þungir en islenzka vörnin
sýndi i fyrri hálfleik að tiltölulega
einfalt er að stoppa norsku sókn-
ina. Bezti maöur norská liðsins
var Pal Bye — góður markmaður
og var það svolitiö furðulegt að
hann skyldi aðeins hafa verið not-
aöur i siöari hálfleik. Tyrdal átti
góöan siðari hálfleik — en skelf-
ing leiðinlegur leikmaður. Inge
Hansen fékk alltof mikið að fetta
upp á sig i siöari hálfleik og kom-
ast framhjá varnarmönnum -
alltaf eins.
Mörk tslands skoruöu Ólafur
Einarsson 6, Jón Karlsson 3,
Björgvin Björgvinsson, Viggó
Sigurðsson, Páll Björgvinsson,
Sigurbergur Sigsteinsson og
Stefán Gunnarsson skoruöu sitt!
markiö hver.
Lundberg var markhæstur
Norðmanna meö 5 mörk — 4 viti.
Tyrdal skoraði 4, Hansen,
Grislingaas og Hunsager 3 mörk
hver.
Dómarar leiksins voru sænskir
Per Dahlöf og Lars Erik Jersmyr
— ekki er hægt aö segja aö þeir
hafi veriö hagstæðir. Ekki stóð á
að dæma töf á islenzka liöið I fyrri
hálfleik .— hins vegar máttu
Norðmenn hnoða endalaust án
allrar ógnunar I lok leiksins.
- h.halls
Dagblaðið. Fimmtudagur 4. desember 1975.
13
EKKI MAR
EKKI STIG!
— hjá Kýpur í Evrópukeppni landsliða
Portúgal sigraði Kýpur 1-0 i
Setubai i siðasta leiknum i 1. riðli
Evrópukeppni landsliða i gær.Or-
slit leiksins skiptu engu máli, þar
sem Tékkar höfðu þegar tryggt
sér rétt i úrslit Evrópukeppninn-
ar.
Aðeins fjögur þúsund áhorfend-
ur sáu leikinn. Innherjinn Alves
skoraði eina mark leiksins á 20.
min. eftir sendingu Victor'
Batista. Rétt i lokin reyndu leik-
menn Kýpur mjög að jafna — en
tókst ekki — og tókst þvi ekki i sex
leikjum sinum i riðlinum að skora
mark eða hljóta stig.
Lokastaðan i riðlinum var
þessi:
Tékkar 6 4 11 15-5 9
England 6 3 2 1 11-3 8
Portúgal 6 2 3 1 5-7 7
Kýpur 6 0 0 3 0-16 0
Fimm fóru í
keppnisbann
Fjórir leikmenn portúgalska
liðsins Oporto voru settir i
leikbann, þegar aganefnd
Evrópusambandsins kom saman
á fund I Bern I gær, frá tveimur
upp I fjóra leiki. Brot þeirra áttu
sér stað i hinum mikla æsingaleik
Hamburger SV og Oporto i
UEFA-keppninni i Hamborg I sið-
asta mánuði.
Aganefndin sektaði Oporto um
7000 svissneska franka — um 300
þúsund islenzkrar krónur vegna
framkomu leikmanna i Hamborg.
Þetta var fyrri leikur Hamburger
SV og Oporto I þriöju umferð — og
leikmenn sýndu dómara og linu-
vörðum mikla óvirðingu.
Hamburger SV sigraði I leikn-
um 2-0 — og hlaut einnig sekt 3000
svissneska franka vegna þess, að
áhorfendur köstuðu flöskum á
eftir dómara, linuvörðum og leik-
mönnum Oporto eftir leikinn.
Fyrirliöi Oporto, Oliveira An-
tonio hlaut keppnisbann i fjóra
leiki — allt vegna framkomu
sinnar við dómarann i leiknum og
eftir hann. Þriggja leikja bann
fékk kantmaðurinn Mendes
Gabriel, en hann var rekinn af
velli i leiknum eftir brot á Vol-
kert, Hamborg. Þá sprakk blaðr-
an hjá fyrirliðanum Antonio, sem
neitaði að taka ákvörðun dómar-
ans til greina. Þá hlaut Dinis
Jaoquim tveggja leikja bann
vegna bókunar i leiknum — fyrir
grófan leik. Hann hafði áður verið
bókaður i leik i UEFA-keppninni.
Einn leikmaður i liði Ham-
burger SV hlaut eins leiks
keppnisbann — Hans Ettmayer,
austurriskur leikmaður, sem fékk
að sjá gula spjaldið hjá dómara
leiksins — önnur bókun hans i
!UEFA-leik.
Sigrún Guðmundsdóttir hampar bikarnum að loknum sigri Vals gegn
Fram I úrslitaleik Reykjavíkurmótsins.
Valsstúlkurnar
urðu meistarar
— sigruðu Fram 6-4 í framlengdum leik
í úrslitum Reykjavíkurmótsins
Á iindan landsleik
íslands og Noregs i gær-
kvöldi fór fram úrslita-
Þá skeður það óvænta
'
Best til USA
Framkvæmdastjóri Los
Angeles-féiagsins Aztek skýrði
frá þvi, að George Best mundi
koma til Bandarikjanna i næsta
mánuði og leika með félaginu I
vetur. Frá þessu var skýrt I frétt
hjá BBC f gær.
leikur Reykjavikur-
mótsins i kvennaflokki.
Þar áttust við Valur og
Fram — hvað annað.
Rétt einu sinni báru Valsstúlk-
urnar sigurorð af Fram — sem
var án Arnþrúöar Karlsdóttur 6-4.
En Valur þurfti að hafa fyrir sigr-
inum — staðan i hálfleik var 3-2
Fram i vil og að loknum venjuleg-
um leiktima 4-4. Þvi var
framlengt og þá reyndist Valur
sterkari og lokatölur urðu 6-4.
Mörk Vals skoruðu Björg 2—1
viti, Sigrún 2 —1 viti. Elin og
Ragnheiður skoruðu sitt markið
hvor.
Oddný, Guðrún, Jóhanna og
Jenný skoruðu sitt markið hver
fyrir Fram.
Rétt einu sinni höfðu þær betur —
Reykjavikurmeistarar Vals eftir
sigur gegn Fram I gærkvöld. DB-
myndir Bjarnleifur.
Gummersboch
vann stórt
Gummersbach sigraði Danker-
sen með talsverðum mun i Bundes-
ligunni I gær eða með niu marka !
mun, 21-12. Leikið var á heimavelli
Gummersbach og þar er liðið al-
gjörlega ósigrandi.
Vikingur leikur viö Gummers-
bach í Evrópukeppninni á sunnu-
dag. Leikið verður I Köln — og ts-
landsmeistarar Vikings halda utan
á laugardag.
Markaregn
í kvenna-
handbolta
— Júgóslavnesku
stúlkurnar skoruðu 41
mark ó HM
í Sovétríkjunum
Heimsmeistarakeppnin i hand-
knattleik kvenna stendur nú yfir I
Sovétrikjunum. Mjög stórar tölur
komu fyrir i leikjunum i gær —
þannig skoruðu júgósiavnesku kon-
urnaryfir40 mörk gegn Túnis, sem
er einhver mesta markaskorun I
kvennahandknattleik, sem um get-
ur. Júgóslavia sigraöi i leiknum
með 41-13 eftir 20-2 i hálfleik. Leik-
urinn var háður i Rostov.
Þá unnu sovézku konurnar einnig
stórsigur á þeim bandarisku — 29
marka sigur i Kiev. I.okatölur
Sovétrikin 33 — Bandarikin 4.1 öðr-
um leik i Kiev léku Austur-Þýzka-
land og Pólland og þar sigruöu
austur-þýzku stúlkurnar með mikl-
um yfirburðum 24-6 eftir 9-4 í hálf-
leik.
i Vilnius sigraði Tékkóslóvakia
Noreg með nokkrum yfirburðum
21-12 eftir 11-6 í hálfleik og i siðari
leiknum þar vann Rúmenia Japan
með 24-18 eftir 12-8 i hálfleik.
í Rostov sigraði Ungverjaland
Danmörku 17-9, þar sem dösnku
stúlkurnar stóðu i þeim ungversku i
fyrri hálfleik, 7-6 I leikhléi fyrir
Ungverjaland, en siöan sprungu
þær dönsku á limminu.
Á fyrsta keppnisdeginum, mánu-
dag, vann Tékkóslóvakia Japan
með 21-13, Júgóslavia vann Dan-
mörku meö 16-9 og Sovétrikin og
Austur-Þýzkaland gerðu jafntefli
10-10 i Kiev.
Jónas Ásgeirs-
son formaður
Skíðafélagsins
Fimmtudaginn 27. nóvember var
aðalfundur Skiðafélags Reykjavik-
ur haldinn i Skiðaskálanum I
Hveradölum. Formaður félagsins
Leifur Muller setti fundinn og fund-
arstjóri var kosinn Stefán Björns-
son, heiðursformaður Skiöafélags
Reykjavikur.
1 skýrslu formanns kom fram aö
Skiðafélag Reykjavikur hefur á s.l.
ári eins og undanfariö starfað á
mjög breiðum grundvelli. Skiðafé-
lagið hefur staöið fyrir fjölda
skiðamóta. 1 stjórn fél. eru nú:
Jónas Ásgeirsson formaður, Leifur
Muller, sem hefur verið formaður
félágsins I fjölda ára, baöst undan
endurkosningu vegna annrik-
is.Ennfremur eru i stjórn Skarp-
héðinn Guðmundsson, Páll Guð-
björnsson, Baldur Asgeirsson,
Haraldur Pálsson og Ellen
Sighvatsson og Leifur Muller.
Félagið mun eins og undanfarið
beita sér sérstaklega fyrir norrænu
skiðagreinunum stökki og göngu
fyrir almenning og keppendur. Við
skiðaskálann i Hveradölum er mjög
góð aðstaða fyrir skiðaiðkun og
með tilkomu steypibaðs i kjallara
hefur aðstaðan fyrir æfingar og
keppnir batnað mjög mikið.