Dagblaðið - 04.12.1975, Page 24
Skýrsla fréttamannsins fró BBC
Treysti orðum skipstjóra
— um londgönguleyfi og ferðafrelsi
„Archie McPhee, frétta-
maður BBC, fer um borð i eftir-
litsskipið Miröndu fyrir eða um
hádegið i dag. Skipið er á leið
hingað inn á fjörðinn og mun
væntanlega leggjast svona 200
m úti fyrir og gúmbátur ferja
manninn til skips”. Þetta sagði
Böðvar Bragason, bæjarfógeti á
Neskaupstað, i viðtali við
Dagblaðið i morgun.
Fréttamaðurinn fékk her-
bergi i ibúð bæjarfógetans til
umráða i nótt. Hann var ekki i
stifri gæzlu en gát á honum höfð.
1 gærkvöldi sat fréttamaður-
inn við og skrifaði eigin skýrslu
um mál sitt. Kveðst hann hafa
farið i land i trausti þeirra um-
mæla skipstjórans á Miröndu,
að búið væri að tryggja öll
ferðaleyfi hans i þvi sambandi.
Þeim orðum skipstjórans hafi
hann treyst.
Böðvar Bragason kvaðst ekki
hafa frekari fyrirmæli frá
dómsmálaráðuneytinu en þau
að koma fréttamanninum um
borð i Miröndu aftur. Þvi boði
yrði fullnægt um hádegisbilið.
Hvort ummæli fréttamannsins i
skýrslunni varðandi fullyrð-
ingar skipstjórans um ferða-
frelsi fréttamannsins yrðu
sannreynd, vissi bæjarfógetinn
ekki.
Gott veður er i Neskaupstað
en verra úti fyrir.
ASt
Lœknir kœrður til Sakadóms:
„Mér var kastað út
af slysadeildinni"
— segir maður sem beið eftir sjúkri konu sinni
— Maðurinn var til truflunar, segja lœknarnir
,,Mér var kastað út af Slysa-
varðstofunni af lækni þar og sið-
an veittist hann þannig að konu
minni með orðum þar sem hún
lá inni á slysadeildinni, að ég á-
kvaðað kæra framkomu læknis-
ins til sakadóms,” sagði ungur
maður i viðtali við Dagblaðið i
gærkvöldi.
Læknirinn sem hér um ræðir
og Haukur Kristjánsson yfir-
læknir Slysadeildar sögðu þaö
rétt vera að manninum hefði
verið visað út af deildinni fram
á biðstofuna, þar sem aðstand-
endum slasaðra er ætlað að
biða. Hefði maðurion haft sig
um of i frammi og truflað fólk i
starfi. Hjá þeim á slysadeildinni
væri yfirleitt mikill erill i
þröngu húsnæði, og til þeirra
kæmu auk þess sjúklingar, sem
ekki ættu erindi á slysadeild,
heldur á aðrar deildir sjúkra-
húsanna.
Maðurinn'sem hér um ræðir,
kvaðst hafa þurft aö flytja konu
sina meðvitundarlausa á
sjúkrahús kl. hálfátta i gær-
morgun. Þjáðist hún þá af sjúk-
dómi, sem hefur hrjáö hana
lengi. Hefur hún af hans völdum
orðið að dvelja langdvölum á
sjúkrahúsi. Farið var með kon-
una á slysavaröstofuna, enda
þótt ekki væri um slys að ræða.
Þar var konan lögð i rúm og fór
að brá af henni seinni hluta
morgunsins. Maðurinn beið sið-
an fram eftir degi, en þá segir
hann að læknar hafi talið að kon-
an gæti snúið til sins heima.
Sjálf treysti hún sér ekki til að
fara heim og kvaðst vilja fara á
Landakotsspitala, þar sem hún
hafði veriö til meðferðar.
Upp úr þessu spratt ágrein-
ingur milli eiginmanns og
lækna, sem lauk með þvi að einn
læknanna kastaði eiginmannin-
um út. „Hypjaðu þig út”, hafði
læknirinn kallað á eftir mannin-
um að sögn hans. um leið og
hann kastaði honum fram á bið-
stofunar. Þegar þetta gerðist
hafði maðurinn beðið i sjö
klukkutima á slysavarðstof-
unni, matarlaus og allslaus.
Maðurinn kvaðst hafa verið
hreint niðurbrotinn eftir þessar
móttökur. Hann kvaðst skilja
vel vandamál læknanna hjá
Slysadeildinni, erfiðan húsa-
kost, fámenni og annað. En hins
vegar gæti hann ekki unað fram
komu læknisins i þessu tilviki,
ekki sizt eftir að kona hans sagði
honum aö læknirinn hefði komið
þar sem hún lá fyrir og veitzt að
henni með blautlegum athuga-
semdum og kallað mann hennar
öllum illum nöfnum.
Maðurinn kærði til sakadóms,
og kvaðst hann gefa dómnum
skriflega skýrslu um atburða-
rás og orðaskipti við lækninn.
—JBP—
Ekki vitum við hvað hún er að hugsa um, þessi unga kona, sem
Ragnar ljósmyndari rakst á á Barónsstignum i gær, en tæplega
er það neitt sprenghlægilegt. Það skyldi þó ekki vera innbrota-
faraldur, ástandið i bankamálunum eða önnur spilling, sem æðir
yfir þessa dagana?
-•
fijáJst, úháð daghlað
Fimmtudagur 4. desember 1975.
Morf íni stolið
úr bóti í
Reykjavík
t nótt var brotizt inn i há-
setaklefa báts i Vesturhöfn-
inni i Reykjavik. Gengið var
hreint til verks, enda var verið
að leita að ákveðnum efnum.
Lyfjakassi bátsins var brotinn
upp og þaðan teknar
morfinsprautur.
Að sögn rannsóknarlögregl-
unnar er alltaf eitthvað um
slik innbrot i skip, en heldur
fer þeim fækkandi. HP. *
Fíat að bíða-
eftir strœtó
Litill rauður Fiat, árgerð
1966, stóð einn og yfirgefinn á
strætisvagnastöð uppi i Rofa-
bæ, þegar lögreglan átti leið
fram hjá i morgun. 1 stað þess
að leyfa honum að fara með
strætó, athuguðu lögreglu-
menn hann nánar, enda var
enginn i fylgd með bilnum og
hann skilrikjalaus, og ómerkt-
ur. Tók lögreglan á Arbæjar-
stöðinni bilinn i sina vörzlu og
biður hann eiganda sins þar.
HP.
Ölvaður með
stolið veski
Mikil rólegheit voru yfir
borgarlifinu í gær og i nótt,
enda dregur sjaldan til tiðinda
svona i miðri viku. Þó þurfti
lögreglan að hafa afskipti af
einum ökumanni, er stöðvaður
var á bfl sinum fyrir utan
Hótel Borg siðdegis i gær.
Reyndist maðurinn hafa feng-
ið sér eitthvað hjarta-
styrkjandi i strekkingnum i
gær en þegar betur var að gáð
reyndist hann einnig hafa
fengið „lánað” fyrir veigun-
um, þar sem á honum fannst
veski, sem skilrikjum annars
manns. 1 þvi voru 16.700 krón-
ur.
Maðurinn er málkunnugur
lögreglunni og gisti hjá henni i
nótt. HP.
„Trúarbragðastyrjöld" flugfélaganna
fœr byr undir vœngi rétt einu sinni
Afborgun af láni, sem Air
Viking hafði tekið erlendis
vegna flugvélakaupleigusamn-
ings, var greidd siðastliðinn
mánudag. Nær samtimis voru
greiddar ávisanir, sem reynzt
höfðu innistæðulausar við sið-
ustu ávisanakönnun Seðlabank-
ans og gefnar voru út af Air Vik-
ing á reikning hjá Alþýðubank-
anum. Tókst Guðna i Sunnu
þannig að ráða fram úr erfið-
leikum vegna rekstrarf jár-
skorts, að minnsta kosti i bili, og
senda flugvél utan til þess að
standa við mjög hagstæðan
samning um fíutning á pila-
grimum.
Hefur flugvél frá Air Viking
nú flutt pilagrima dag og nótt
frá ýmsum löndum múhameðs-
trúarmanna til hinnar helgu
borgar þeirra, Mekka. Er Guðni
Þórðarson nú staddur erlendis
þessara erinda.
Um margra ára skeið hefur
veriðháð harðskeytt samkeppni
i flugreksturs- og ferðaskrif-
stofuheiminum islenzka. Hefur
þessara átaka eðlilega mest
orðið vart hér heima, en raunar
einnig erlendis.
A islenzkan mælikvarða eru
hér gifurlegir viðskiptahags-
munir i húfi. Snerta þeir meðal
annars öll stærri flugfélögin,
oliufélögin og tryggingarfélög-
in. Margvislegir hagsmuna-'
þræðir liggja siðan beint inn i is-
lenzk stjórnmál.
Fyrir utan látlaust auglýs-
ingastrið og samkeppni margra
fyrirtækja, sem annast skipu-
lagningu ferða fyrir tugþúsund-
ir íslendinga, bera sumar
flokksskrifstofur stjórnmála-
flokka fremur yfirbragð ferða-
skrifstofa en landsmálamið-
stöðva. Samningar þeir, sem
þessar ferðaskrifstofur stjórn-
málaflokkanna ná við flug-
rekstrarfyrirtæki, eru betri en
þeir, sem starfandi ferðaskrif-
stofum standa yfirleitt til boða.
Nokkur hundruð manna
starfa við þennan rekstur beint
og óbeint. Bankafyrirgreiðslur
og góð samskipti við stjórnvöld
eru þessum fyrirtækjum nauð-
synlegir þættir. Sannleikurinn
er sá, að islenzkum viðskipta-
bönkum er yfirleitt um megn að
veita lán og fyrirgreiðslu til
kaupa og reksturs á flugvélum.
Má i þvi tilliti minna á, að is-
.lenzka rikið hefur oft á tiðum
talið rétt að koma þar til skjal-
anna, meðal annars með rikisá-
byrgðum.
Hjá hinum minni viðskipta-
bönkum hafa oftar en einu sinni
skapast timabundnir erfiðleik-
ar, þegar þeir hafa reynt að
sinna viðskiptaþörfum umsvifa-
mikils flugreksturs að nokkru
marki. Hefur bankaeftirlit
Seðlabankans gætt þeirrar
skyldu sinnar að hafa leiðsögn
og marka stefnu þeirra, þegar
þess hefur þótt þurfa.
Vegna mikilla samskipta
ferðaskrifstofu Alþýðuorlofs og
Air Viking og Alþýðubankans
hafa verið uppi tilgátur um sllk
afskipti bankaeftirlitsins nú.
Ekki hefur þó fengizt staðfest-
ing á þeim. Hafi til þess komið,
er það eflaust eðlilegt og sjálf-
sagt, enda með öllu utan við
„trúarbragðastyrjöld” flug-
reksturs- og ferðaskrifstofu-
hagsmuna, sem fær byr undir
vængi alltaf öðru hverju. —BS