Dagblaðið - 19.01.1976, Side 2
2
Bifreiðaeigendur
— ryðvarnartilboð
Notið timann i ófærðinni og umhleyping-
unum. Haldið við verðgildi bifreiðarinnar.
Látið ryðverja strax. Bjóðum 15% afslátt
auk hreinsunar á vél og vélarhúsi.
Tékkneska bifreiðaumboðið
Auðbrekku 44 — 46.
Simi 42604.
Úrvals kjötvörur
og þjónusta
'xcvensr) AVALLT EITTHVAÐ
GOTT í MATINN
Stigahlíð 45-47 Sírni 35645
Allar vðrur
ó útsðlu
10—60% afsláttur
Buxur — Peysur —
Úlpur — Kjólar —
Skyrtur — o.m.fl.
Póstsendum um
allt land
Veizlusalir
Hótel Loftleiöa
standa öllum opnir
HOTEL LQFTLEIÐIR
Pagblaðið. Mánudagur 19. janúar 1976
l^^m^mtmmmmtmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^^^m^^mmmmmmmmmmmmmmmmmm^m^mmmm^mi
Segið jó takk, nœst
þegar guðsbðrnin
bjóða þér bœkling
Unnur ólafsdóttir, Kópavogi,
skrifar:
,,Ég skrifa eingöngu til að
þakka manninum, sem skrifaði
undir fyrirsöginni Guðsbörn —
hvað er það? kærlega fyrir orð
sin. Ég hef ekki mikla reynslu af
Guðsbörnunum og trú þeirra, en
lifnaðarhætti þeirra og þolin-
mæði mætti margur „betri
borgari” taka til fyrirmyndar.
Oft hef ég séð Guðsbörnin i
Austurstræti við að dreifa blöð-
um sinum og bæklingum. Það er
virðingarvert, hversu þolinmóð
þau eru við fólk, sem litúr á þau
eins og einhverjar óæðri verur,
bæði með orðum og augnatilliti.
Fólk er svo fanatiskt i sér, að
það hefur myndað sér skoðun
fyrirfram um þennan yndislega
hóp.
Margir, sem ég hef talað við,
halda þvi fram, að Guðsbörnin
séu letingjar, sem ekki nenni að
vinna. En veit fólk i raun og
veru, hversu mikil vinna liggur
á bak við útgáfu blaðanna, sem
þau dreifa, svo að ekki sé
minnst á að standa úti i kuldan-
um og reyna að svara fólki kur-
teislega, er það er með skit-
kast út i hópinn?
Að lokum, lesandi góður:
Hvernig væri að segja já, takk,
næst, þegar þér verður boðinn
bæklingur frá Guðsbörnunum?
Þegar þú hefur kynnt þér efni
hans, geturðu fyrst myndað þér
skoðun um börnin og lifsviðhorf
þeirra.”
Raddir
lesenda
1 lesendabréfi Sigurðar
Jónssonar flugmanns, sem
birtist 15. janúar varð smá
misskilningur. Þar segir i
myndatexta, að setja þurfi
vökvastýrðar undirstöður
undir Kröfluhúsið til að það
standist jarðskjálfta. Mein-
ing Sigurðar var önnur, sem
sé sú að setja vökvastýrðar
undirstöður undir tækjabún-
að stöðvarinnar, gufu-
hverfla, rafala og þess hátt-
ar.
—ÁT—
Guðsbarn að störfum i Austurstræti. DB-mynd: Björgvin.
Ósmekklegt af sjónvarpinu að sýna
Kópaskersbúum jarðskjólftamynd
daginn eftir hörmungarnar
Björn Guðmundsson, Lóni I
Kelduhverfi, skrifar:
„1 þættinum „Nýjasta tækni
og visindi” i sjónvarpinu á mið-
vikudaginn var f jallað um ýmsa
hluti. Aðalinntak þáttarins var
þó frásögn með myndum af
jarðskjálftunum miklu i San
Francisco.
Ég leyfi mér aö gagnrýna
hina óheppilegu timasetningu á
annars fróðlegu efni. Slikt efnis-
Óhentugur
sjónvarpsþóttur
Jón Þorsteinsson hringdi:
„Mig langar til að vekja at-
hygli á þvi að ég tel að sjón-
varpsþáttur Arna Þórs Eý-
mundssonar, sem sýndur var á
þriðjudagskvöldið, sé ekki nógu
góður. Þáttur þessi er erlendur
og á að sýna akstur i snjó. Alit
mitt er að ekki sé nægilega mik-
ill snjór þarna til að við Islend-
ingar getum dregið nokkurn
lærdóm af honum. I snjóþyngsl-
um siðustu daga hefði verið þörf
á að fá raunhæfari kennslu með
mynd sem sýndi aðstæður okkar
Islendinga betur.
Annars hef ég ágæta lausn fyrir
þá ökumenn sem eiga i vand-
ræðum að aka i snjóþyngslum.
Haldið ykkur bara á leiðum
strætisvagnanna. Þær eru alltaf
vel ruddar og góðar þó að ófært
sé annars staðar. Ef þið farið
eftir þessu en hættiðykkurekki i
hliðargöturnar komizt þið leiðar
ykkar óhindrað.”
val á þessum tima er fullkomið
tillitsleysi við það fólk, sem hér
var að flýja heimili sin daginn
fyrir þennan þátt og raunar
einnig sama dag og hann var
fluttur. Ég tel ekki þörf á að
rökstyðja þetta frekar, né held-
ur að lýsa þvi, á hvern hátt þessi
þáttur snerti tilfinningar fólks
hér um slóðir.
Vitanlega er þetta gert i hugs-
unarleysi, og þvi óviljandi að
þvi leyti, sem ég gagnrýni þátt-
inn, sem sýndur var á röngum
tima. Ef til vill er þetta aðeins
mat fólksins hér en ekki annars
staðar á landinu. Ég tel þó vist,
að aðrir skilji afstöðu mina, sem
er ekki sprottin af meinbægni.
Sérstaklega vil ég að lokum
taka það fram, að þessi gagn-
rýni byggist á persónulegri
skoðun minni einvörðungu, þótt
ég kannist við svipuð viðhorf
fleiri manna.
Erfitt er að gera svo öllum
liki, og þátturinn, sem ber heitið
„Nýjasta tækni og visindi” er
með betra sjónvarpsefni. En á
miðvikudaginn var efnisvalið
mjög óheppilegt og gagnrýni ég
það hiklaust i fullri alvöru.”