Dagblaðið - 19.01.1976, Side 6

Dagblaðið - 19.01.1976, Side 6
6 Dagblaðið. Mánudagur 19. janúar 1976 Sovétríkin stœrsti olíu- framleiðandi heims 1975 Sovétrikin voru stærsti oliu framleiðandi heims á nýliðnu ári Framleiðslan i Sovétrikjunum varð alls 490 milljónir tonna, að þvf er segir i timaritinu „Petroleum Economist.” Fram leiðsla Sovétmanna jókst um þrjátiu og eina milljón tonna frá árinu á undan. t öðru sæti voru Bandarikja- menn, sem framleiddu 468,5 milljón tonn og i þriðja sæti Sádi-Arabar með 333,3 millj. tonna. Bandarikjamenn hreinsuðu þó mest af oliu, eða 12.9 millj. tunnur daglega, en Sovétmenn hreinsuðu 7.8 milljón tunnur daglega. Sovézkur oliuiðnaður hefur tekið miklum framförum á undanförnum árum og hafa þar- lendir nú aðstöðu til vinnslu allra þátta framleiðslunnar. Nýjar og stórar verksmiðjur, búnar fullkomnustu tækjum, hafa aukið njög nýtingu oliuframleiðslunn- ir og sjálf oliuhreinsunin er ein helzta tekjulind sovézka efna- hagslifsins. Bandariska timaritið ,,0il and Gas Journal” segir frá þvi ný- lega, að þarlendis hafi að undan- förnu orðið mikil aukning á fram- leiðslu hreinsaðrar oliu. bað, auk minniháttar launahækkana og stöðugs verðlags, hafi skapað hreinsunariðnaðinum tekjur upp á tæpa tvo milljarða dollara (340 milljarða isl. kr.) árið 1973. Til samanburðar er þess getið, að tekjurnar hafi verið 1,55 milljarð- ar dollara 1970 og 755 milljónir dollara 1965. Samstarfsnefnd Hol- lendinga og S-Mólúkka Hollenzka stjórnin og leiðtog- ar suður-mólúkkanska þjóðar- brotsins i Hollandi hafa komið sér saman um að setja á lagg- irnar nefnd til að kanna vanda- mál flóttamannanna. Var þetta ákveðið á fundi, sem hollenzka stjórnin féllst á að halda er tveir hópar S- Mólúkkeyinga rændu fjölda manna i járnbrautarlest i Beilen og indóneslsku ræöis- mannsskrifstofunni i Amster- dam i siðasta mánuði. Fund- urinn var eitt þeirra skilyrða, sem mannræningjarnir settu fyrir uppgjöf sinni. Suður-Mólúkkeyingarnir berjast fyrir sjálfstæði heima- lands sins, Suður-Mólúkkaeyja, sem er 150 eyja klasi suður af Indón.esiu, en eyjarnar voru áð- ur fyrr hollenzk nýlenda. t stuttri yfirlýsingu hollenzku stjórnarinnar eftir fundinn, sem stóð i þrjá tima, sagði að báðir aðilar hefðu ákveðið að halda frekari fundi til að setja á lagg- irnar nefnd Hollendinga og Suð- ur-Mólúkkeyinga. í yfirlýsingunni sagði að hol- lenzka stjórnin hefði skilning á alvöru hugsjóna eyjaskeggja en gæti ekki stutt þær. „Ástkonum" Kennedvs fiölqqr: Segir John F. Kennedy hafa borgað fóstureyðinguna Þekkt samkvæmislifsdama i San Francisco, Joan Hitchcock, heldur þvi fram að John F. Kennedy, fyrrum Bandarikja- forseti hafi gert sér barn áður en hann varð forseti, en fóstrinu hafi verið eytt á kostnað Kenne- dys. í viðtali við Reuter á glæsi- legu heimili hennar, sagði frú Hitchcock, sem nú er 43 ára, að Kennedy hefði sent henni fjögur hundruð dali, þegar hún varð ó- frisk. Hún sagði honum siðar að peningarnir hefðu týnzt i pósti og þá sendi hann aðra fjögur hundruð dali með sérstökum sendiboða. 1 viðtalinu sagði frú Hitchcock að Kennedy hefði verið mjög „kjarnyrtur” þegar hún sagði honum að fyrri peningasending- in hefði greinilega týnzt. Fyrst var sagt frá sambandi Kennedys og frú Hitchocks i vikublaðinu Star. Blaðið átti viðtal við frúna fyrir átta mán- uðum siðan en grein, sem byggð var á þvi viðtali, var ekki birt fyrr en skömmu fyrir helgina. Hún segist hafa verið gjör- samlega peningalaus, þegar hún hitti Kennedy á krá i Santa Monica i Kaliforniu, en hann var þar ásamt systur sinni Pat- riciu og fyrrum eiginmanni hennar, leikaranum Peter Law- ford. Frú Hitchcock, sem hefur verið gift fjórum sinnum, segir REYKJAVÍK i Herradeild JMJ VIÐ HLEMM MitSTU UACA að Kennedy hafi bundið enda á samband þeirra þegar hann var Kenncdy. allar vildu þær elska hann. útnefndur forsetaefni Demó- krataflokksins 1960. „Ég talaði siðast við hann kvöldið sem hann var útnefnd- ur,” sagði frú Hitchcock. Að sögn hennar stóð ástasam- band þeirra i þrjú ár, eða frá 1957. Það varð siðan smám saman að engu. Frúin, sem er aðlaðandi kona og vel þekkt i San Francisco fyrir samkvæmishald sitt, seg- ist eiga „sérstakar minningar” um hinn látna forseta. Þegar hún var spurð hvort Kennedy hefði verið beztur elskhuga hennar, svaraði hún: „Það er allt svo afstætt — af- stætt gagnvart þeim, sem mað- ur er með daginn eftir.” I fyrra reyndi frúin að ná kjöri i borgarstjórn San Francisco, en án árangurs. Hún býr i stóru húsi i borginni ásamt fjórum börnum sinum, sem eru á aldr- inum 11-19 ára. Mark Fielder, 33 ára gamall kennari, sem er umboðsmaður frúarinnar i viðleitni hennar við að fá söguna birta, var spurður að þvi hvers vegna það væri ekki fyrr en nú, að hún kæmi fram i dagsljósið. „Hún vill vera stjarna,” svar- aði hann. Frú Hitchcock er önnur konan ■ á stuttum tima sem segist hafa verið ástkona Kennedys. Nokk- uð vist þykir, að hin fyrri, Judith Campbell Exner, sé aðallega i peningaleit, enda er vitað, að eiginmaður hennar, sem er misheppnaður golfleik- ari, vilji geta staðið á eigin fót- um fjárhagslega. Blaðastríð í París Starfsmenn Parisarblaðsins „Le Parisien Libere,” sem átt hafa I útistööum við eigendur blaðsins I nærri heilt ár vegna launakjara og vinnuaðstöðu, gripu I siðustu viku til aögeröa, sem voru fremur óvenjulegar eins og sjá má af myndinni að ofan. Starfsfólk dreif- ingardeildar blaðsins tók um helming upplagsins og dreiföi þvi skipulega um göturnar fyrir framan húsið.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.