Dagblaðið - 11.02.1976, Side 10

Dagblaðið - 11.02.1976, Side 10
10 Dagblaðið. Miðvikudagur 11. febrúar 1976. MMBUUUB frjálst, úháð dagblað Ctgefandi: Dagblaðið hf. Framkvæmdastjóri: Svelnn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason íþróttir: Hallur Símonarson Hönnun: Jóhannes Reykdal Blaðamenn: Anna Bjarnason, Ásgeir Tómasson, Atli Steinarsson, Bragi Sigurðsson, Erna V. Ingólfsdóttir, Gissur Sigurðsson, Hallur Hallsson, Helgi Pétursson, Katrín Pálsdóttir, ólafur Jonsson. Ómar Valdimarsson. Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Björgvin Pálsson, Ragnar Th. Sigurðsson. Ojaldkeri: Þráinn Þorlcifsson Dreifingarstjóri: Már E. M. Halldórsson. Askriftargjald 800 kr. á mánuði inrtanlands. í lausasölu 40 kr. eintakið. Ritstjórn Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar, áskriftir og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022. Setning og umbrot: Dagblaðið hf.og Steindórsprent hf., Ármúla 5. Mynda- og plötugerð: Hilmir.hf., Síðumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Alvarleg augu á flótta Forsætisráðherra lítur alvarlegum augum á málið og dómsmálaráðherra telur, að það verði skoðað. Ríkisstjórn okkar minnir í land- helgismálinu á Kildare lækni í sjón- varpinu, sem var á stöðugum flótta undan réttvísinni. Ríkisstjórnin er á flótta undan umbjóðendum sínum, kjósendum í landinu. Stundum þæfist hún fyrir almenningsálitinu með yfirlýsingum á borð við þær, sem hér getur að framan, og stundum hleypur hún á eftir almennings- álitinu. Bretar hafa gengið mjög hart fram í þessu þorskastríði. Atgangur þeirra náði hámarki, þegar þeir gerðu varðskipinu Þór fyrirsát í mynni Seyðisfjarðar og sigldu hvað eftir annað á það. Þessi atlaga var staðfest á Ijósmyndum og kvikmyndum. Þessi atburður réð úr- slitum um, að fyrri hugmyndir um slit á stjórnmála- sambandi við Breta fengu byr undir báða vængi. Ríkisstjórnin var í fyrstu treg til að tjá sig um málið og lýsti því svo yfir, að hún liti alvarlegum augum á það. Eftir margvísleg undanbrögð og samráð út og suður ákvað ríkisstjórnin að slíta stjórnmálasambandinu. Síðan fór hún strax að reyna að komast hjá fram- kvæmdum í málinu. Fyrst var beðið eftir komu Luns, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, og síðan eftir árangri ferðar forsætisráðherra til London. Loks sagðist stjórnin mundu slíta sambandinu, ef herskipin kæmu aftur inn í fiskveiðilögsöguna. Herskipin komu aftur og fóru meira að segja að skipuleggja veiðar á alfriðuðu svæði, einu af mikilvæg- ustu hrygningarsvæðum þorsksins. Nú voru allir sann- færðir um, að ríkisstjórnin kæmist ekki hjá því að framkvæma hótun sína og loforð. Brezkir ráðamenn og fjölmiðlar töldu stjórnmálaslit óhjákvæmileg og hið sama gerður tveir íslenzku ráðherranna. Hvað gerir svo ríkisstjórnin? Auðvitað lítur hún alvarlegum augum á málið! Og hún ætlar að hafa samráð við þingnefndir, sem hún var raunar búin að gera fyrir löngu. Langt er síðan Dagblaðið hélt því fram, að ríkis- stjórnin ætlaði sér ekki að framkvæma hótunina um stjórnmálaslit. Þetta taldi Morgunblaðið ósvífinn áburð Dagblaðsins. Hið sanna hefur nú komið rækilega í ljós. I heilan mánuð hefur ríkisstjórnin hliðrað sér hjá framkvæmdum. Og auðvitað hlæja Bretar að öllu saman. íslendingar líta yfirleitt svo á, að Atlantshafsbanda- lagið geti ekki sætt sig við aðgerðir brezkra herskipa á íslandsmiðum. Til áréttingar þeirri skoðun er okkur nauðsvnlegt að slíta stjórnmálasambandi við Breta. Þar á ofan ber okkur að draga tímabundið úr sam- starfinu við Atlantshafsbandalagið, meðal annars með yfirlýsingu um, að fulltrúar okkar muni ekki sitja við hlið fulltrúa árásarþjóðar á fundum ráðsins. Við eigum að nýta okkur til fullnustu þann afleik Breta að senda herskipin í annað sinn á vettvang og í þetta sinn til að skipuleggja veiðar á alfriðuðu svæði. Ríkisstjórnin þarf nú að fara að hætta að nudda hin alvarlegu augu, og hætta að ræða um, að málið verði skoðað. KALIFORNÍA, USA: Vaxandi and- sfaða almennings við úlbreiðslu kjamorkunnar — kosið um tillögur andspyrnuhópa jafnhliða forsetakosningum PALO ALTO, KALIFORNÍU: Þrír kjarneðlisfræðingar hafa látið af vel launuðum störfum sínum til að taka þátt í vaxandi hreyfingu gegn bygg- ingu og rekstri kjarnorkustöðva. Afsagnir vísindamannanna eiga sér ekki fordæmi í sögu kjarnavísind- anna. Þær hafa orðið til að hleypa nýju blóði í kalifornískan starfshóp sem kallar sig ,,Project Survival” og telur kjarnakljúfa hættulega lífi jarðarinnar. Þessi vinnuhópur eða samtök er aðeins einn af fjöldamörgum slíkum í að minnsta kosti tólf fylkjum Banda- ríkjanna. Flest eru á vesturströndinni og vinna um þessar mundir að því að láta kjósendur greiða atkvæði um tillögur um takmörkun og bann við notkun kjarnorku um leið og forseta- kosningarnar fara fram þar vestra í haust. Gerir ráð fyrir endanlegu banni Tillögur hópsins gera ráð fyrir, að starfræksla kjarnkljúfa verði bönn- uð í Kaliforníu. Þær verða með á kjörseðlinum þegar forkosningar for- setakosninganna vcrða þar í júní. í bandarískum stjórnarskrárlögum er gert ráð fyrir því, að kjósendur geti safnað ákveðnum fjölda undirskrifta til að knýja fram almenna atkvæða greiðslu. Sjálfboðaliðar „Project Sur- vival” þurftu að fá 321 þúsund undirskriftir í Kaliforníu — en fengu hálfa milljón. Tillögurnar Tillögurnar gera ráð fyrir eftirfar- andi: V — Hlutaðeigandi verði skylt að sanna og sýna, svo ekki verði um það deilt, að kjarnorkuverin séu fullkom- Iega örugg. Þetta ber að gera innan fimm ára. Að öðrum kosti verður leyfileg framleiðsla versins minnkuð um 40% og síðan 10% á ári þar til kröfum hefur verið mætt. — Hlutaðeigandi verður að tryggja fullar skaðabætur og ábyrgð gagnvart almenningi, ef til kjarn- orkuslyss kemur. Hafi það ekki verið gert innan árs verður fyrirskipaður 40% samdráttur í framleiðslu þar til úr hefur verið bætt. Samkvæmt gild- andi alríkislögum verða stjórnendur kjarnorkuvera að vera tryggðir fyrir 560 milljón dollara gagnvart þessari hættu. r / :: Á ÓMAR 'Éi VALDIMARSSON ;f; s £ Þetta myndi eiga við öll kjarn- orkuver, sem nú eru í notkun og í byggingu. Áður en leyfi verða veitt fyrir byggingu nýrra kjarnorkuvera verður að tryggja áðurgreind atriði, samkvæmt tillögunum. Árleg endurnýjun undankomuáætlunar- innar Eitt ákvæði tillagnanna skyldar fylkisstjórann að gera áætlun, til birt- ingar og árlegrar endurnýjunar, um undankomuleiðir íbúa í nágrenni við kjarnorkuver ef til einhverra kjarn- orkuhörmunga kæmi. Frú Shirley Wilkerson, aðaldrif- fjöðurin í hópnum, telur atkvæða- greiðsluna í sumar hinn mikla bjöllu- hljóm hreyfingar andstæðinga kjarn- orkunotkunarinnar. Og þegar það gerðist svo í síðustu viku, að kjarneðlisfræðingarnir þrír, sem samanlagt hafa þrjátíu og sjö ára reynslu hjá kjarnorkudeild Gene- ral Electric í San José, skýrðu frá því á blaðamannafundi að þeir hefðu ákveóið að láta af störfum sínum og ganga til liðs við hreyfinguna. Árs- laun þeirra voru 5—7 milljónir ís- lenzkra króna. „Áhætta... óvissa... stórhættuleg... slys...” „Þetta kom okkur mjög á óvart,” sagði talsmaður General Electric í samtali við fréttamann Reuters. „Þetta kom þægilega á óvart,” sagði frú Wilkerson. Dale Bridenbaugh, einn vísinda- mannanna, sagði á fundinum: „Áhættan og óvissan um mannlegu hliðina hefur gert það að verkum, að ég álít að engin kjarnorka eigi að fyrirfinnast.” Gregori Minor sagði í sínu upp- sagnarbréfi: „Ástæðan fyrir því að ég hætti er innileg sannfæring mín um að kjarnakljúfar og kjarnorkuvopn eru stórhættuleg framtíð alls lífs á þessari plánetu.” Richard Hubbar sagði í sínu: „Ég er sannfærður um, að útilokað er að halda áfram að reisa kjarnorkuver og starfrækja þau án þess að verða fyrir slysi.” Sýna virðingu, en eru ekki sammála Þremenningarnir eru kvæntir fjöl- skyldumenn og hafa aðeins unnið fyrir General Electric, stærsta kjarn- orkubúnaðarframleiðanda heims. Fyrirtækið sendi frá sér yfirlýsingu vegna uppsagna vísindamannanna þriggja og sagðist þar virða skoðanir þeirra en ekki vera þeim sammála. „Öryggi kjarnorku hefur verið staðfest af mörgum hlutlausum rann- sóknum undanfarna tvo áratugi,” sagði þar. „Yfirgnæfandi meirihluti vísindamanna og verkfræðinga.. er þeirrar skoðunar að kostir kjarnork- unnar séu miklu meiri en gallarnir og áhættan.” Þremenningarnir nefndu ýmsa at- burði og atvik, sem leiddu til ákvöró- unar þeirra, þar á með^d deilurnar um áhrif geislunar á heilsu manna, flutningur kjarnakljúfa til Mið- Austurlanda og eldsvoði, sem kom upp í stærstu kjarnakljúfasamstæðu heims í Bröwn’s Ferry í Alabama. Fyrirlestraferð „Project Surival” hefur tekið að sér að greiða ferðakostnað fyrir þremenningana á fyrirlestraferðalagi þeirra um Kaliforníu. Þar hitta þeir stuðningsmenn og reka áróður fyrir málstað andstæðinga kjarnorkunotk- unarinnar. Mennirnir eru reiðubúnir að vinna fyrir „málstaðinn” kauplaust næstu fimm mánuði. Að þeim tíma liðnum telja þeir að þeir verði að leita sér að atvinnu. Frú Wilkerson og maður hennar Jerry, eru meðal nokkurra para, sem komu „Project Survival” af stað í apríl í fyrra. Hún vill ekki beinlínis Slysið í Alþýðubankanum Það sem af er þessu ári hefur verið heldur hljótt um mál Alþýðubankans h/f, sem upphófst í byrjun des. sl. með heljar miklum gusugangi og Pílatusar- þvotti formanns bankaráðs Alþýðu- bankans h/f og forseta ASÍ í blöðum og fjölmiðlum. Báðir þessir heiðursmcnn, sem hvorugur vill vamm sitt vita, áttu vart orð til að lýsa undrun sinni á því herfilega „slvsi” cins og þeir nefndu, sem orðið hafði hjá bankastjórum Al- þýðubankans h/f í apríl til nóvember 1975. Þeir leiddu ekki einu sinni hugann að því, hvernig þetta stóra slys gerðist eða gat gerst á svo skömmum tíma, eða hitl, hvort þeir hefðu gctað afstýrt því. með aðgát eða einni saman skyldu- rækni. Vonandi vita báðir þessir menn hvað skyldurækni er, en það er „hugtak” sem óbreytt, siðavant alþýðufólk telur fvlgja trúnaðarstörfum. En nú vill svo vel til, að orsök þessa stóra slyss er í athugun hjá sakadómi og þá kcmur trúlega í ljós hvort umrætt slys gat orðið með svo skjótum hætti, sem talið er, — eða hvort aðdragandi þess leiði í ljós, að tildrög slvssins spanni vfir miklu lengra tímabil jafnvel nokkur ár og að unnt hefði verið með aðgát og skyldurækni að afstýra því. Formaður bankaráð.ins, Hcrmann Guðmundsson sagði í sjónvarpsviðtali, að í apríl 1975 hali allt vcrið í stakasta lagi með rekstur Alþýðubankans. En í nóvember sl. er svo komið hag.bankans vegna útlána bankastjóranna, að meira en helm. útlanafjárins er bundinn í stórlánum til átta aðila og milljónatugir af því fé án nægilegra trygginga, svo taka varð 125 milljóna kr. skyndilán til þess að bankinn gæti haldið áfram störfum. Til viðbótar kvartaði formaður bankaráðsins undan þeirri „þangar- skvldu” sem hann væri bundinn sem bankaráðsmaður og sem varnaði hon- um þess að hann gæti upplýst lands- menn um orsakir og hverjir raunveru- lega yllu þessu stóra slysi og mistökum sem bankastjórum Alþýðubankans heföu orðið á. En vissulega án vitundar

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.