Dagblaðið - 11.02.1976, Síða 12
12 ___________ Daffblaðið. Miðvikudapur 11. febrúar 1976.
Austurrikismenn
stukku bezt
Austur-þýzku stökkmennirnir stóÖu sig
illa í æfingum á 90 metra skíðapallinum í
Innsbruck í gær — og austurrísku
keppendurnir eru nú aftur taldir sigur-
stranglegastir. Á sunnudag verður keppt í
skíðastökkinu.
Karl Schnabl, sem hlaut 3ju verðlaun á
70 m paliinum, stökk bezt í gær — vel yfir
100 metra. Hins vegar féll silfurmaðurinn
Jochen Danneberg og slasaðist. Ekki var
vitað í morgun hvort meiðslin voru það
alvarleg, að hann geti ekki keppt á sunnu-
dag. Olympíumeistarinn Hans-Georg
Aschenbach stökk 102 og 99 m en skorti
öryggi. Bróðir hans Dietmar féll eftir 101
m stökk og var haltur eftir það. Aðrir sem
stukku yfir 100 m voru Walter Steiner,
Sviss, og Yuri Kalinin, Sovétríkjunum.
Johan Cruyff
varamaður!
Mikið stríð er nú í spænsku blöðunum
milli Johans Cruyff og þjálfara Barcelona
Hennes Weisweiler eftir að Cruyff var
aðeins á varamannabekk í Sevilla. Barce-
lona tapaði leiknum 2-0 á sunnudag. Það
er í fyrsta skipti síðan Cruyff var keyptur
frá Ajax fyrir metupphæðina 920 þúsund
sterlingspund að hann er ekki valinn í lið
Barcelona.
„Þjálfarinn er að leita að fórnadýri og
valdi mig til að afsaka slaka frammistöðu
liðsins,” sagði Cruyff. „Þegar hann
byrjar að leika á útivöllum kemst Cruyff
aftur í liðið,” sagði þjálfarinn, sem áður
var með Borussia Mönchengladbach.
Við vini sína sagði Cruyff, að hann
muni fara frá Barcelona í lok keppnistíma-
bilsins og ítalska meistaraliðið Juventus
hefur áhuga.
Alíslenzkt golf mét
hóð ó Kanaríeyjum!
Það er afar sjaldgæft —
en hefur þó átt sér stað —
að alíslenzk íþróttamót
séu haldin erlendis. Eitt
slíkt var haldið á Kanarí-
eyjum 3. janúar síðastlið-
inn. Þá hittust 15 kylfing-
ar, sem voru á eyjunum á
vegum ferðaskrifstofanna
Sunnu og Úrvals, á einum
fegursta golfvelli, sem Is-
lendingar líta augum á
þessum tíma árs, og efndu
til móts. Keppt í karla- og
kvennaflokki með og án
forgjafar.
í kvennakeppninni með forgjöf sigr-
aði Inga Magnúsdóttir. Lék á 52 og 47
höggum, eða 99. Með 17 í forgjöf.
Samtals 82 högg. Kristín Pálsdóttir
varð önnur á 93 höggum (113—20).
Lilja Óskarsdóttir þriðja á 96 höggum
(126—30), en þær eru allar í Golf-
klúbbnum Keili og fjórða varð Sigur-
björg Guðnadóttir, GV, á 101 höggi
(115—14).
í karlaflokki án forgjafar sigraði
Sigurjón Gíslason, Keili, á 85 höggum.
Magnús Birgisson, Keili, lék á 87 högg-
um, og Bert Hansson, Nesklúbbnum,
varð þriðji á 96 höggum.
Með forgjöf urðu þeir Birgir Björns-
són, Keili, og Sveinbjörn Björnsson,
Ke'li, jafnir, á 78 höggum. Birgir 92-14
e.i Sveinbjörn 87-9. Þeir léku bráða-
bana 27 holur og sigraði Birgir.
Aðrir sem tóku þátt í mótinu voru
Geir Þórðarson, GR, Arnkell B. Guð-
mundsson, GR, Eyjólfur Jónsson, GR,
Karl Hólm, Keili, Guðmundur Þórar-
insson, GV, og Tryggvi Sæmundsson,
GA
Reykjavikur-
meistarar KR
KR — nýbakaðir Reykjavíkur-
meistrarar í meistaraflokki
kvenna í körfunni. KR sigraði ÍR
í úrslitaleik 44-34.
Á myndinn? í efri röð talið frá
vinstri eru: Curtiss Carter, þjálf-J
ari, Björg Kristjánsdóttir, Eme-
lía Sigurðardóttir, Sólveig Þór-
hallsdóttir, Salina Helgadóttir,)
Birna Björnsdóttir, Margrét
Halldórsdóttir Lida Jónsdóttir og
Guttormur Ólafsson, þjálfari.
Neðri röð talið frá vinstri: Sól-
veig Sveinsdóttir, Guðrún Krist-
jánsdóttir, Erna Jónsdóttir,
Ragnhildur Ingólfsdóttir og Guð-
finna Gústafsdóttir.
— Sjö glímumenn ha
Áður en 64. Skjaldar-
glíma Ármanns hófst sl.
sunnudag flutti Hörður
Gunnarsson eftirfarandi
setningarávarp — og fékk
íþróttasíðan góðfúslegt
leyfi hans til að birta það.
„í dag þegar 64. Skjaldarglíma
Ármanns fer fram, kemur fram í hug-
ann sú staðreynd að þessi íþrótta-
keppni er í rauninni langclzta íþrótta-
keppni á íslandi. Það var árið 1889 sem
fyrsta Ármannsglíman fór fram og nú í
dag er 77. Ármannsglíman háð. Árið
1908 létu Ármenningar gera silfurskjöld
til heiðurs mesta glímumanni Reykja-
víkur — á skjöldinn var greypt tákn-
inynd af Ármanni í Ármannsfelli, þeim
cr félag þeirra er heitið eftir. Eftir
Ámannsglímuna 1908, þegar í fyrsta
sinn var keppt um „Ármanns-
skj<)ldinn” tóku menn að tala um
„Skjaldarglímu Ármanns” og smám
saman varð það heiti hinu vfirsterkara
og svo fór, að það varð mönnum tamara
í numni en upprunalega heitið,
Ármanns-glíman. Oft hef ég
heyrt eldri borgara Reykjavíknr ra*ða
um glímu og þegar talið hefur bori/.t að
Ármannsglímunni, þá hafa þeir gjarn-
í dag hafa einungis 8 glímumenn
látið skrá sig til keppni en fjölmennasta
glíman fór fram sama árið og fyrsta
Íslandsglíman var háð eða árið 1908 en
þá tóku 30 glímumenn þátt og sigraði
Hallgrímur Benediktsson. F'ámennasta
glíman fór fram árið 1910 en þá glímdu
aðeins 5 glímumenn, að vísu hef ég ekki
upplýsingar um þátttöku í öllum 77
glímunum, en þessar tölur gefa okkur
ótvírætt til kynna umfang glímunnar.
Eins og gefur að skilja hefur verið
glímt bæði af snilld og drengskap en þó
hefur við brugðið að afls kyns bellibrögð
hafa verið notuð, en að mínu mati
hefur glímulag manna stórbatnað á
síðari árum. Nú er viðburður, ef glímu-
menn reyna níð eða reyna að hafa rangt
við, og tél ég það að sjálfsögðu til
mikilla bóta og vona ég að þessi já-
kvæða þróun haldi áfram, því öll gífur-
glíma skemmir fyrir glímunni í heild,
menn fá skömm á íþróttinni, ef illa er
staðið að henni.
Vildi ég óska þátttakendum að þessu
sinni gæfu og gengis í þesari Skjaldár-
glímu og bið þá að hafa það hugfast að
augu allra glímumanna hvíla á þeim í
dag. og glímur þeirra eru vegnar og
metnar fyrst og fremst eftir því hvernig
staðið er að glímunum.
77. Ármannsglíman er nú sett.
an og einatt notað jöfnum höndum
bæði heitin — Ármannsglíman eða
Skjaldarglíma Ármanns eða einungis
Skjaldarglíman.
Þegar glímt hafði verið um Ármanns-
skjöldinn um nokkurt skeið tóku menn
til hægðarauka að númera glímurnar og
hófu talningu við fyrstu Skjaldarglím-
una 1908, en gættu þess ekki að taka
með í reikninginn hinar þrettán
Ármannsglímur, sem háðar voru áður
cn stofnað var til kcppni um Ármanns-
skjöldinn. Ármannsglímurnar voru og
eru í beinu og orjúfanlegu samhengi við
Skjaldarglímu Ármanns, sem svo er
nefnd. Ármannsglíman sem nú fer fram
cr því hin 77. í röðinni frá upphafi og
hin 64. Skjaldarglíma Ármanns, eins og
áður var sagt.
í dag er keppt um 11. skjöldinn en
hann vinnst til cignar cftir þrjá sigra í
röð eða samtals 5 sigra. Fyrstu tvo
skildina vann Sigurjón Pétursson til
eignar, þriðja skjöldinn vann Sigurður
Fhorarensen, fjórða Lárus Salomons-
son, fimmta Guðmundur Ágústsson,
sj(')tta og sjöunda Ármann J. Lárusson,
áttunda og níunda Sigtryggur Sigurðs-
son og tíunda skjöldinn vann Sigurður
Jónsson til eignarj síðustu Ármanns-
ulímu, sem fram fór í fvrra á þessum
Þorsteinn Sigurjónsson, Víkvcrja — ættaður úr Austur-Húnavatnssýslu
vcgari í Skjaldarglímu Ármanns 1976. DB-mynd Bjarnleifur.