Dagblaðið - 05.03.1976, Síða 6
6
Dagblaðið. Föstudagur 5. marz 1976.
Úrval af röndóttum og einlitum
rúllukragabolum ó börn og fullorðna.
Einnig ódýrar, brugðnar
rúllukragapeysur.
Prjónagarn í mörgum litum.
Sœngur- og gjafavörur.
Sendi í póstkröfu um allt land.
Prímo,
Hagamel 67, sími 24870
Aðvörun
um stöðvun atvinnurekstrar vegna vanskila
á söluskatti
Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavík og
heimild í lögum nr. 10, 22. mars 1960, verður
atvinnurekstur þeirra fyrirtækja hér í um-
dæminu, sem enn skulda söluskatt fyrir októ-
ber, nóvember og desember 1975, og nýálagð-
an söluskatt frá fyrri tíma, stöðvaður, þar til
þau hafa gert full skil á hinum vangreiddu
gjöldum, ásamt áföllnum dráttarvöxtum og
kostnaði. Þeir sem vilja komast hjá stöðvun,
verða að gera full skil nú þegar til tollstjóra-
skrifstofunnar við Tryggvagötu.
Lögreglustjórinn í Reykjavík,
2. mars 1976
Sigurjón Sigurðsson
Auglýsing
Norrœnir iðnfrœðslustyrkir
Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finnlands, Noregs og Sví-
þjóðar munu á þessu ári veita nokkra styrki handa íslendingum til
náms við iðnfræðslustofnanir í þessum löndum. Er stofnað til
styrkveitinga þessara á grundvelli ályktunar Norðurlandaráðs frá
1968 um ráðstafanir til að gera íslenskum ungmennum kleift að
afla sér sérhæfðrar starfsmenntunar á Norðurlöndum. Styrkirnir
eru einkum ætlaðir:
1. þeim, sem lokið hafa iðnskólaprófi eða hliðstæðri starfsmenntun
á íslandi, en óska að stunda framhaldsnám í grein sinni.
2. þeim, sem hafa hug á að búa sig undir kennslu í iðnskólum, eða
iðnskólakennurum, sem leita vilja sérframhaldsmenntunar, og
3. þeim, sem óska að leggja stund á iðngreinar, sem ekki eru
kenndar á íslandi.
Varðandi fyrsta flokkinn hér að framan skal tekið fram, að bæði
koma til greina nokkurra mánaða námskeið og lengra framhalds-
nám fyrir þá, er lokið hafa sveinsprófi eða stundað sérhæfð störí í
verksmiðjuiðnaði, svo og nám við listiðnaðarskóla og hliðstæðar
fræðslustofnanir, hins vegar ekki tæknifræðinám. Hugsanlegt er, að
í Finnlandi yrði styrkur veittur til náms í húsagerðarlist, ef ekki
bærust umsóknir til náms á þeim sviðum, er að framan greinir.
Styrkir þeir, sem í boði eru, nema í Danmörku 10.000 d. kr., í
Noregi 8.100 n. kr., í Svíþjóð 6.000 s. kr. og í Finnlandi 6.000
mörkum, og er þá miðað við styrk til heils skólaárs. Sé styrkur
veittur til skemmri tíma breytist styrkfjárhæðin í hlutfalli við
tímalengdina. Til náms í Danmörku eru boðnir fram fjórir fullir
styrkir, þrír í Finnlandi, fimm í Noregi og jafnmargir í Svíþjóð.
Umsóknum um framangreinda styrki skal komið til mennta-
málaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 10. apríl n.k. í
umsókn skal m.a. skýrt frá náms- og starfsferli og tekið fram, hvers
konar nám umsækjandi hyggst stunda, hversu lengi og við hvaða
námsstofnanir. Fylgja skulu staðfest afrit prófskírteina og meðmæli.
Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
M ENNTAMÁLARÁÐU NE YTIÐ
4. mars 1976.
Til leigu
er nú þegar 300 íerm skrifstofu- eða iðn-
aðarhúsnæði nálægt Hlemmi, geymsluris
getur fylgt. Upplýsingar í síma 27220.
FRAKKLAND:
Tveir létu lífið í
nýrrí vínstyrjöld
Mestu óeirðir, sem orðið hafa í
Frakklandi um langan tíma urðu í gær
og leiddu til þess, að einn lögreglu-
maður og bóndi féllu í skotbardögum.
Ástæða: Vín.
Skotbardaginn stóð í rúma hálfa
klukkustund, þar sem lögregla og'
bændur skutust á með vélbyssum og
rifflum, eftir að bændurnir höfðu rifið
upp járnbrautarteina á fimm hundruð
metra löngum kafla og kveikt í þrem
járnbrautarvögnum. Alls særðust 27
lögregluþjónar og átta bændur í þessum
bardaga, auk mannanna tveggja sem
létu lífið í átökunum.
Bardaginn var hápunkturinn á óeirð-
um, sem herjað hafa héruð í nágrenni
Norbonne og annarra stærri borga í
vínræktarhéruðum Frakklands, sem
hafa mótmælt innflutningi á ódýrum
ítölskum vínum. Hafa þau verið flutt
inn í krafti tollalaga í Efnahagsbanda-
laginu og orðið enn ódýrari vegna
gengislækkunar lírunnar nú á dögun-
um. Herskáir vínræktunarbændur létu
því til skarar skríða er yfirvöld létu
innflutning þennan sem vind um eyrun
þjóta, — brenndu niður skattainn-
heimtur og sprengdu í loft upp rafveitu,
þannig að rafmagnslaust varð um allt
héraðið.
Harðnandi átök í Mosambique:
MEÐ 0LÆKNANDI
TAUGAKIPPI
í ANDLITINU
Jerry Lewis, grínistinn heims-
frægi, er nýstiginn af sjúkrabeði.
Lewis, sem m.a. er þekktur fyrir
brjálæðislegar andlitsfettur, þjáist af
ólæknandi taugasjúkdómi. Einkenni
hans eru ákafir kippir í andliti. Eftir
þriggja daga spítalavist hefur
málunum verið komið í lag, a.m.k. í
bili.
KISSINGER AÐ-
VARAR KÚBUMENN
Bandaríkin hafa nú blandað sér í
harðnandi deildu Rodesíu og Mosam-
bique. Kissinger utanríkisráðherra
beindi eindregnum tilmælum til Kúbu
að forðast það að blanda sér í átökin og
að þeir „eigi að vega og meta aðstæður
vandlega” áður en til slíks kæmi.
Sagði Kissinger nefnd fulltrúadeildar
þingsins, að íhlutun Kúbu mundi valda
„miklum vandræðum.” Um ellefu
þúsund hermenn frá Kúbu börðust í
borgarastyrjöldinni í Angóla og hefur
Castró lýst því yfir, að þeir séu reiðu-
búnir til þess að styðja Mosambique í
baráttu þeirra gegn Rodesíu.
í ræðu sinni lagði Kissinger áherzlu
á, að Bandaríkjamenn væru fylgjandi
stjórn blökkumanna í Rodesíu og sagði,
að stjórn hvíta minnihlutans í Salisbury
væri sennilega eina vonin til þess, að
friðsamleg lausn fengist á vandamálinu
vegna þess, að þeir hafa viðurkennt rétt
blökkumannanna til stjórnar og hafið
samningaviðræður við þá.
Lockheed:
Stjónwrmömum hafa
borízt morðhótanir .
Forstjóri Lockheed verksmiðjanna,
Robert Haack, segir að mútugreiðslur
fyrirtækisins, og hneykslið í kjölfar
þeirra, hafi nú haft þrjár morðhótanir
og mikið viðskiptatap í för með sér.
Sagði hann sérstakri þingnefnd, sem
rannsakar mútugreiðslur þessar, að
hneykslið hafi haft í för með sér mikið
tap fyrir fyrirtækið og þessar milljón
dollara mútugreiðslur skaðað fyrirtækið
óbætanlega og leitt til hótana um
„líkamsmeiðingar og jafnvel dauða” til
handa mönnum innan stjórnar þess.
Hann vildi þó ekki nefna nein nöfn.
Sagði hann ennfremur, að fyrirtækið
tapaði stórfé með hverjum deginum
sem liði vegna þess, að erlcnda flug-
vélaverksmiðjur greiddu áfram mútur
til þeirra, er völdin hefðu. Því væru
Lockheed verksmiðjurnar nú hættar, í
samræmi við nýja stefnu í viðskipta-
málum sínum.
Fyrirtækið hefur viðurkennt að hafa
greitt allt að 20 milljónir dollara í
mútur, auk 200 milljóna í sölulaun til
ríkisstjórna cða annarra háttsettra emb-
ætissmanna.
Rannsóknir á mútugreiðslum Lock-
heed fyrirtækisins, fara nú fram i
Japan, Hollandi, Italíu og í Columbíu
og eru þær byggðar á upplýsingum sem
rannsóknin í Bandaríkjunum hefur leitt
í ljós. Hins vegar hefur fyrirtækið
neitaó, enn sem komið er, að láta
erlendum ríkjum í té nokkuð af sínum
upplýsingum, vegna þess að þær séu að
mörgu leyti byggðár á kjaft^sögum og
munnmælum.
Hægri maðurinn Yoshio Kodama sést hér á sjúkrabörum, þar sem hann var
fluttur úr sjúkrahúsi til heimilis síns í Tokyo. Hann er talinn eitt af
höfuðvitnum í mútumáli Lockheed verksmiðjanna í Japan. Þótti draga til
tíðinda við spítalann þegar fréttamenn tróðust að dyrum þar, svo að sjúkra-
bifreiðin var að snúa við.