Dagblaðið - 05.03.1976, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 05.03.1976, Blaðsíða 23
Dagblaðið. Föstudagurð. marz 1976. i Utvarp 23 Sjónvarp D þ£rr* sxo £/?STL OCS t Bonnie og Clyde-stjarnan Warren Beatty fer með aðalhlutverkið í Mickey One. Sjónvarp í kvöld kl. 21,40: Mynd um ofíóga skemmtikraft Kvikmyndin Mickcy One sem hefur í islenzkri þýðingu Kristmanns 'Eiðssonar hlotið titilinn í skugga for- tíðarinnar fær þrjár og hálfa stjörnu í kvikmyndahandbúk Dagblaðsins. Mvndin er gerð árið 1965 af leikaranum Warren Beatty og leikstjóranum Arthur Penn, þeim sömu og eru ábyrgir fyrir kvikmyndinni Bonnie and Clyde. í Mickcy One fcr Bcatty einnig með aðalhlutverkið. Mickcy Onc vakti inikla athygli er hún var fruiusýnd á sinuni tima. Hún fjallar um skeinmtikrafl á veitingahúsi í Chicago. Hann er orðinn aflóga og sjálfstraustið þorrið. Umboðsmaður hans er í góðum sam- böndum við undirheima Chicago og hyggst græða á skemmtikraftinum. Mickey One þykir lýsa Arthur Penn mjög vel sem leikstjóra. Hún er ekki dæmigerð Hollywoodframleiðsla og það kann að vera skýringin á þeim góðu viðtökum sem hún fékk á sínum tíma. Aðalhlutverk auk Warrens Beatty leika Alexandra Stewart og Hurt Hatficld. -ÁT- Sjónvarp i kvöld kl. 20,40: Bókasðfn, kynditœki og grógœsir „Aldrei þessu vant þá liggur alveg ljós fyrir um hvað verður fjallað í Kastljósi í kvöld,” sagði Ólafur Ragnarsson, er DB ræddi við hann. „Við ætlum að sleppa málum sem eru ofarlega á baugi svo sem verkfallsmálum, Norðurlandaráði og þess háttar sem ég held að fólk sé orðið dálítið þreytt á. Þess í stað tökum við fyrir þrjú mál, sem ber lítt á, en eru merkileg eigi að síður. í byrjun verður íjallað um þá miklu rekstrarerfiðleika sem bóka- söfn eiga í um þessar mundir. Um síðustu áramót hætti ríkið að styrkja bókasöfn og setti þá byrði yfir á sveitafélögin sem mörg hver geta ekki styrk þá starfsemi svo að vel sé. Vegna þessa máls ræðum við við Gunnar Markússon, bókavörð í Þorlákshöfn, Elfu Björk Gunnars- dóttur, borgarbókavörð og Stefán Júlíusson rithöfund. Það munum við athuga mál sem var mikið rætt fyrir um það bil ári en það er sparnaður vegna stillinga á kynditækjum. Vélskólanemar athugðu þetta mál á sínum tíma og komust að þeirri niðurstöðu að spara mætti milljónir króna á hverju ári með því að stilla kynditækin rétt. Síðan hefur ekkert heyrzt um þetta mál. Okkur til ánægju kom í ljós að margt hefur verið gert vegna þessa þótt það hafi farið hljótt. Meðal annars hefur verið komið á námskeiðum í að stilla tækin. Atli — eru mólin sem fjalloð verður um í Kastljósi Steinarsson blaðamaður ræðir við Ólaf Eiríksson vélskólakennara og fleiri um þetta mál en það er einmitt Ólafur sem átti hugmyndina að því og stjórnaði könnun neméncfenna.” „Þriðja málið sem tekið verður fyrir, ” sagði Ólafur enn fremur, „er um grágæsina. Á búnaðarþingi hefur verið mikið rætt um hana. Bændur telja hana eyðileggja mikið fyrir sér og vilja fækkun á stofninum. Væntanlega verður rætt við einhverja bændur og enn fremur Arnþór Garðarsson fuglafræðing sem másegja að mæti sem málsvari grá- gæsarinnar.” Umræðum um grágassina stýrir Markús örn Antonsson. Ólafur bætti því við að síðan titilinn fréttaskýringaþáttur var tekinn af Kastljósi hafi sá möguleiki opnazt að fjalla um fleiri mál en þau sem efst eru á baugi hverju sinni. „Við höfum nú svigrúm til að draga fram í dagsljósið — eða kastljósið — mál sem eru lítt áberandi en merkileg eigi að síður,” sagði hann að lokum. -ÁT- ^ Sjónvarp i FÖSTUDAGUR 5. marz 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Dagskrá og auglýsingar. 20.40 Kastljós. Umsjónarmaður Guðjón Einars- son. 21.40 í skugga fortíðarinnar (Mickey One) Bandarísk bíómynd frá árinu 1965. Leikstjóri er Arthur Penn, en aðalhlutverk leika Warren Beatty, Hurd Hatfield og Alexandra Stewart. Mickey One er skemmtikraftur á næturklúbbi. Vinsældir hans fara þverrandi, og hann hefur glatað sjálfstraustinu. Umboðsmaður hans er í slagtogi við glæpamenn, sem hyggjast græða á Mickey. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 23.15 Dagskrárlok. Ijfe Útvarp FÖSTUDAGUR 5. marz 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til- kynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til- kynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Hofstaða- bræður” eftir Jónas Jónasson frá Hrafnagili. Jón R. Hjálmarsson les (6). 15.00 Miðdegistórdeikar. Konung- lega hljómsveitin í Kaupmanna- höfn leikur „Sögudraum”, hljóm- sveitaverk op. 39 eftir Carl Niel- sen; Igor Markevitsj stj. Fílhar- moníuhljómsveitin í Stokkhólmi leikur Serenöðu í F-dúr fyrir stóra hljómsveit op. 31 eftir Wilhelm Stenhammar; Rafael Kubelik stj. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn. 17.10 Útvarpssaga barnanna: Spjall um Indíána. Bryndís Víg- lundsdóttir byrjar frásögu sína. 17.30 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynn- ingar. 19.35 Daglegt mál. Guðni Kol- beinsson flytur þáttinn. 19.40 Þingsjá. Kári Jónasson sér um þáttinn. 20.00 Tónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands í Háskólabíói kvöldið áður. Stjórnandi: Páll P. Pálsson. Einleikari á píanó: Halldór Haraldsson. a. Fornir dansar eftir Jón ÁS- geirsson. b. Píanókonsert nr. 2 í G-dúr eftir Tsjaíkovský. c. Petrúsjka, balletttónlist eftir Stravinsky. — Jón Múli Árnason kynnir. 21.30 Útvarpssagan: „Kristnihald undir jökli” eftir Halldór Lax- ness. Höfundur les sögulok (17). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passíusálma (16) 22.25 Dvöl. Þáttur um bókmenntir. Umsjói^ Gylfi Gröndal. 22.55 Áfangar. Tónlistarþáttur í umsjá Asmundar Jónssonar og Guðna Rúnars Agnarssonar. 23.45 Fréttir. Dagskráarlok. LAUGARDAGUR 6. marz 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05: Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli atriða. Óskalög sjúklinga kl. 10.25: Kristín Sveinbjörnsddóttir kynnir. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til- kynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til- kynningar. 13.30 íþróttir. Umsjón: Bjarni Felixson. 14.00 Tónskáldakynning Atla Heimis Sveinssonar. 15.00 Vikan framundan. Björn Baldursson kynnir dagskrá út- varps og sjónvarps. 16.00 Fréttir. 16E5 Veðurfregnir. íslenzkt mál. Gunnlaugur Ingólfsson cand. mag. flytur þáttinn. 16.40 Popp á laugardegi. 17.30 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynn ingar. 19.35 Gatan mín. Sólveig Eyjólfs- dóttir gengur um Jófríðarstaða- veg í Hafnarfirði með Jökli Jakobssyni; — fyrri þáttur. 20.00 Hljómplöturabb Þorsteins Hannessonar. 20.45 Svo kom öldin tuttugasta. Síðari þáttur um minnisverð tíð- indi árið 1901. Umsjón: Jónas Jónasson. 21.30 Útvarpshljómsveitin í Moskvu leikur tilbrigði eflir Nor- chenko og Tokareff um stef eftir Gershwin, Kalman, Kosma, Jo- hann Strauss o.fl. Stjórnandi: Júrí Sílantíeff. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passíu- sálma (17). 22.25 Danslög. 23.55 Fréttir Dagskrárlok.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.