Dagblaðið - 05.03.1976, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 05.03.1976, Blaðsíða 14
Baldur Már Arngrímsson, gítarleikari og hljóðstjóri, ræðir við höfund plötuumslagsins, Kristján Kristjánsson, sem hefur unnið fágætlega gott verk. Á neðri myndinni eru þeir Pálmi Gunnarsson og Magnús Eiriksson, höfundur ellefu af tólf lögum plötunnar. DB-myndir ÁT. Itó Mjóm- leltaWíngsí ivaupmanncinoTn áklukkutíma! Ennþá seljast Bítlastrákarnir eins og heitar lummur og alltaf er líf og fjör í kringum þá. Þegar miöasalan að konsert Paul McCartneys og Wings, sem halda á 20. þm. í Kaupmannahöfn var opnuð í fyrra- Ný hljómplata er væntanleg meö Wings núna undir mánaðamótin. dag, náði biðröðin frá Ráðhústorginu inn að Bryggersgade, sem er töluverður spotti. Um hundrað fremstu menn í röðinni höfðu gist í svefnpokum fyrir framan miðasöluna, „eins og í hina gömlu daga,” og áður en allir komust að — og áður en einn klukkutími var liðinn, — var uppselt. En þeir, sem fyrir hvað mestum vonbrigðum urðu, geta átt von á glaðningi. Erik Tomsen, sem er einn umsvifamesti umboðsmaður á Norðurlöndum, — stóð meira að segja fyrir komu Slade hingað til lands um árið — sér um hljóm- leikahald Wings, náði sambandi við McCartney og samningar tókust um einn konsert til viðbótar. Hljómsveitin Wings hefur annars lagt síðustu hönd á nýja hljómplötu, sem væntanleg er á markaðinn undir mánaðamót. Dagblaðið. Föstudagur 5. marz 1976 IPARTISTUÐI? Málið er leyst! Upptaka Ríó hefst í Útgefandi Ríó-plötunnar er Fálkinn. Ólafur Haraldsson forstjóri ræðir hér við Helga Pétursson (þennan met mysudósina). Við treystum okkur ekki til að ráða í þennan tvíræða svip Helga en vitað er, að ekki var verið að ræða um veðrið. „Mannakorn” heitir plata, sem kemur út í dag með samsafni hljóðfæraleikara sem hafa kallað sig „Hljómsveit Pálma Gunnarssonar” eftir bassaleikaranum og söngvaranum. Flest laganna eru eftir Magnús Eiríksson gítarleikara, sem m.a. hefur verið með Blues Company og Pónik, yfírleitt kallaður Maggi í Rín, enda starfsmaður hljóðfæraverzlunar- innar um langt skeið. Annar gítarleikari, sá sem stjórnar á þessari plötu sinni fyrstu plötuupptöku, Baldur Már Arngrímsson (starfsmaður í hljóðfæraverzlun Poul Bernburg), og rekur sinn tónlistarferil allt aftur til Lúdó-sextettsins. Trommuleikari er Björn Björnsson, samstarfsmaður þeirra felaga lengi, eitt sinn trommari hljómsveitarinnar Orion (4- Sigrúnar Harðard.). Auk þeirra koma við sögu ýmsir mætir menn, svo sem perlusöngvarinn Vilhjálmur Vilhjálmsson og píanó- og oreglleikarinn Úlfar Sigmarsson í Pónik, sem þar hefur lengi verið. Eins og sjá má af framangreindu er hér um einvalalið að ræða og eru þó ýmsir snjallir og reyndir hljóðfæraleikarar ótaldir. Tóny Cook tók upp. Lögin eru af ýmsu tagi, eins og þeir, sem sáu sjónvarpsþáttinn „Meé pálmann í höndunum”, sl. föstudagskvöld sannreyndu (skemmtilegur þáttur, raunar) Sum laganna eru í gömlum rokkstíl, sum minna jafnvel á Bítlana, sum eru sæt og sum eru hörð. Fálkinn, sem gefur plötuna út ( og hefur raunar ekki gefíð út plötu um nokkurt skeið), bauð nokkrum gestum að koma og hlusta á plötuna í stúdíói Hljóðrita í Hafnarfírði sl. miðvikudagskvöld. Líklega segir þaé mest um plötuna, að er hún var sett á fóninn myndaðist partístemning. -ÓV Björn Björnsson trommuleikari. Meðal aðstoðarhljóðfæraleikara á plötunni er pabbi hans, Björn R. Einarsson. London Ef einhverjir hafa haldið, að Ríó tríó væri dautt úr öllum æðum, þá er það hinn mesti misskilningur; Ríó tríóið heldur nefnilega utan til Lúndúna á mánudaginn kemur og hyggst taka þar upp LP plötu. „Við tökum upp í Majestic stúdíóinu í London, þar sem flestir íslendingar hafa unnið,” sagði Helgi Pétursson, einn af Ríómeðlimunum, er DB spurði hann um plötuna. „Við verðum þrír eins og í gamla daga, með þeirri undantekningu þó, að Ólafur Þórðarson verður ekki með, en Gunni Þórðar kemur sem þriðji maður.” Ríó tríóið hefur æft að undanfornu. ein sautján lög, sem verða tekin upp. Síðan verða tólf beztu lögin sett á plötuna. Um músíkstefnu hafði Helgi það að segja, að hún yrði að öllum líkingum í anda fyrri plata tríósins. Meðal efnis sem æft hefur verið eru sex lög sænska söngvarans og tónskáldsins Evert Taube, sem ó mánudaginn meðal annars samdi lagið „Vorkvölc í Reykjavík” og Ragnar Bjarnason hefur gert frægt. Það lag verður þó ekki með á olötu Ríó tríósins. Ríómeðlimirnir Helgi, Gunnar og Ágúst Atlason sjá þó ekki um tónlist- ina einir, því að enskir „session- menn” verða þeim til aðstoðar. Einnig hefur komið til tals að Tómas Tómasson bassaleikari spili með. Textar verða allir á íslenzku eins og fyrri daginn, — eftir Jónas Friðrik, hirðskáld Ríósins. Það kann þó að orka tvímælis hvort Jónas sé hirð- skáld tríósins, því að hann heldur því fram að þeir séu hirðfíflin hans. En hvað með það, LP plata meé Ríó tríóinu er væntanleg á markað- inn með vorinu. —ÁT— Sigríður Ella Maqnúsdóttir söngkona — Sjálfsmynd af Baltasar — Prjónaðar og heklaðar húfur — Litið inn hjá Bretadrottningu —

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.