Dagblaðið - 05.03.1976, Síða 9

Dagblaðið - 05.03.1976, Síða 9
Dagblaðið. Föstudagurð. marz 1976. Katta- vma- félagið: Siðferðiskenndin númer eitt gagnvort dýrum rysjóttu vetrarverði kýs kisa að halda sig innan dyra, gónir út í vatnsveður íarzmánaðar og lætur sér fátt um finnast. (Ljósmynd Árni Páll íhannsson). Guðrún Á. Símonar, — þekktasti kattaaðdáandinn hérlendis. (DB- mynd Bjarnleifur) Kettir Guðrúnar Á. bregða á leik. ,Já kettirnir eiga marga óvini, fordómar í garð katta eru einnig ótrúlega miklir, fólk álítur ketti boða þetta og hitt,” sagði Guðrún Á. Símonar okkur þegar við spurðumst fyrir um nauðsyn þess að stofna kattavinafélag á íslandi. Guðrún er einn af stjórnarmönnum þess félags og sennilega sú persóna hér á landi sem hvað þekktust er fyrir ást og umhyggju sína á köttum. Sagði hún það of algengt að þegar kettir eru teknir inn á heimiii sem kettlingar fari börnin með þá eins og tuskudúkkur, togi í þá og poti. Síðan þegar kettirnir stækki og börnin hætti að hafa gaman af þeim sé þeim hent út á gaddinn, þar sem þeir verða sjálfir að sjá sér farborða. Hér á landi vantar algjörlega dýraheimili þar sem flækingsköttum og öðrum útigangsdýrum er séð farborða. Meira að segja í Ghana, þar sem húdýrum er skipað upp úr skipum með því að setja band um hálsinn á þeim, er til slíkt heimili fyrir flækingsdýr í borgum. „öiöferðilega ætti fyrst og fremst að reyna að hjálpa þessum köttum en ef það gengur ekki, þá lóga þeim.” Hefir Guðrún sjálf unnið að því að sjá heimilislausum dýrum fyrir skjóli og tók m.a. við köttum frá Vestmannaeyjum vegna gossins. Einnig hefur fólk lagt kött á hús- tröppurnar hjá henni, hringt bjöllunni og hlaupið svo í brott, sá köttur er hjá henni ennþá. Félagar á stofnfundi kattavina- félagsins voru 80 og fer fjölgandi og virðist „almennur áhugi fyrir því að rétta hlut kattarins,” að sögn Svanlaugar Löve formanns Katta- vinafélags íslands. Aðrir í stjórninni eru Hildegaard Þórhallsson, Eyþór Erlendsson, Gunnar Pétursson, Hörður Pétursson og Guðrun Á. Símonar, sem fyrr sagði. -BH. Kaupmenn ósammóla um laugardagana Kaupmenn eru ósammála um, hvort búðirnar skuli vera opnar á laugardögum. Matvörukaupmenn vilja hafa verzlanir lokaðar á laugardags- morgnum. Reynslan hjá þeim hefur orðið, að viðskiptin hafa flutzt yfir á aðra daga, föstu- og mánudaga. Aðrir kaupmenn vilja yfirleitt hafa búðir sínar opnar á laugar- dagsmorgnum. Magnús Finnsson, framkvæmda- stjóri Kaupmannasamtakanna, sagði í morgun, að hann teldi, að laugardagar mundu verða meiri verzlunardagar í framtíðinni en verið hefur. Hins vegar stæðu mál nú þannig, að allar verzlanir skyldu vera lokaðar tíu laugardaga yfir sumar- tímann. Ástandið mundi líklega lítið breytast á næstunni. -HH. Skuttogararnir á Neskaupstað enn í verkfalli Skuttogararnir Barði og Bjartur þess að aflétta verkfallinu hafa verið frá Neskaupstað eru enn ekki komnir mistúlkuð. Munu þeir ekki fara út á sjó þótt víðast hvar annars staðar á fyrr en samið verður og getur það í landinu hafi verkfalli verið frestað fyrsta lagi orðið eftir helgi þegar eða aflýst. Ástæðan mun vera sú að fyrsti viðræðufundur útgerðarinnar sjómenn álíta orð sín um heimild til og sjómanna hefur verið boðaður. BH Jarðskjálftasvœðið: SKJÁLFTAVIRKNIN MINNKAR STÖÐUGT — orðin svipuð og sl. sumar Slöóugt hcfur dregið úr jarðskjálfta- virkni á jarðskjálftasvæðinu á Norð- Austurlandi nú síðasta mánuðinn og að sögn Páls Kinarssonar hjá Kaunvísinda- slofnun Háskólans cr hún nú komin niður í það scm hún var í suiiiar og hausl sl. Sagði Páll að minukunin liafi vcrið alvcg stöðug og jöln þcmiaii -ts.na og væri breyting ekki sjáanleg á þeirri þróun. Þrátt fyrir þetta sagði hann virknina þó enn teljast óeðlilega mikla og athugaverða, enda taldist hún það cinnig sl. haust. Þrátt fyrir þessa þróun að undan- förnu, vildi Páll engan vcginn útiloka mögulcika á cldgosi á svæðinu á næst- unni, ástandið væri cnn óeðlilegt. G.S. Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt Sófasett í háum gœðaflokki — en lágum verðflokki ÞAÐ KOSTAR AÐEINS KR.160.400 Staðgreiðsluafsláttur eða afborgunarkjör Hringbraut 121 - Sími 28-601

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.