Dagblaðið - 09.03.1976, Side 12
12 Dagblaðið. Þriðjudagur 9. marz 19-76.
PEaaÉgjffei • ] 1A S 1 81 1J, 5
Ali keppir
í Munchen
Ákveðið hefur verið að Muhammad Ali,
heimsmeistari í þungavigt, keppi í Munchen
24. maí við Bretann Richard Dunne og verður
heimsmeistaratitillinn undir. Þessi Richard
Dunne verður þó áður að sigra Vestur-
Þjóðverjann August, en þeir munu keppa um
Evrópumeistaratitilinn, sem er laus síðan Joe
Bugner hætti, í Lundúnum 6. apríl. Ef Dunne
tapar þar verður ekkert af leiknum við Ali.
TBR vann KR í
liðakeppninni
í badminton
Liðakeppni Badmintonsambands Islands
hélt áfram um síðustu helgi og þá urðu úrslit
þessi:
EFRI FLKOKKUR
K.R. a—T.B.R. 6:7
T.B.R. b 2 leikir 2 stig 17:9
T.B.R. a 3 leikir 2 stig 18:21
K.R. a 3 leikir 0 stig 20:19
NEÐRI FLOKKUR
2. riðill
Víkingur—Í.A. 2:11
U.M.F.N—K.R c 6:7
Gerpla—U.M.F.N 9:4
Í.A. 3 leikir 3 stig 34:5
K.R. e 4 leikir 3 stig 27:25
Vikingur 4 leikir 2 stig 22:30
Gerpla 3 leikir 2 stig 20:19
U.M.F.N. 3 leikir 0 stig 8:31
Meistaramót
í fimleikum
Meistaramót Fimleikasambands íslands fer
fram í íþróttahúsi Kennaraháskóla íslands
laugardaginn 27. marz 1976 fyrir pilta og
sunnudaginn 28. marz fyrir stúlkur.
Keppt verður um meistartitil í eftirfarandi
aldursflokkum:
12 ára og yngri
13-14 ára
15-16 ára
17 ára og eldri.
Auk þess verður tekin upp sú nýbreytni að
um flokkakeppni verður að ræða í hverjum
aldursflokki. Keppt verður í fimleika-
stiganum. Þátttökutilkynningar þarf að senda
til fimleikasambandsins fyrir 13. marz 1976.
Stjoi ii» oi
Dukla vann
Dukla Prag, Tékkóslóvakíu; varð sigurveg-
ari í 28. alþjóðaknattspyrnumóti unglingaliða,
sem lauk í Viareggio á Ítalíu í gær. Mikill
heiður þykir að sigra í þessu móti og í
úrslitaleiknum sigraði Dukla AC Milanó,
ftalíu meó 1-0. Keppnin um 3ja sætiö var
alítalskt uppgjör. Torino sigraði lnter Milanó
með 3-0.
Ingemar Stenmark í keppninni í heimsbikarnum í vetur. Hann hefur sigrað í öllum meiriháttar svigmótunum — nema einu á Olympíuleikunum í Innsbruck — og er
nú kominn með aðra höndina á heimsbikarinn.
Stœrsta stund mín — heims-
bikarinn aðal-takmarkið!
— sagði Olympíumeistarinn Rosi Mittermaier eftir að hafa sigrað bœði í svigi
og stórsvigi heimsbikarsins í Koparf jalli
„Að hljóta olympísk gullverðlaun er
yndislegt, en þetta er stærsti dagur í lífi
mínu. Heimsbikarinn hefur verið tak-
markið hjá mér svo lengi. Það eru mesti
heiður sem skíðamanni getur hlotnazt á
íþróttasviðinu,” sagði hin 25 ára vestur-
þýzka stúlka Rosi Mittermaier, þegar
hún hafði sigrað í svigkeppninni í
heimsbikarnum í Koparfjalli á sunnu-
dag og þar með tryggt sér sigur í keppni
kvenna um heimsbikarinn. Lengi hefur
hún staðið í skugga önnu Maríu
Moser-Pröll — Nú er hún sjálf meistar-
inn mikli. Sigurvegari í heimsbikarnum
— og með tvenn gullverðlaun og ein
silfurverðlaun frá leiknum í Innsbruck.
Með því að setja sigurinn í heims-
bikarnum ofar olympíuverðlaununum
er Rosi sama sinnis og Frakkinn frægi
Jean-Claude Killy, sem einnig vann
heimsbikarinn og gullverðlaun á
Olympíuleikum á sama keppnistíma-
bili. Reyndar vann Killy þrenn gull-
verðlaun á leikunum í Grenoble 1968
— en samt sagði hann sigurinn í heims-
bikarnum þýðingarmeiri.
Eins og Killy hefur hin frábæra
vestur-þýzka skíðakona lengi orðið að
bíða eftir því að komast á efsta tindinn.
Frakkinn var að bíða í sex ár eftir fyrsta
stórsigri sínum — Rosi hefur verið tíu
ár í alþjóðlegri keppni án þess að hljóta
meiri háttar sigur þar til nú.
Sigur hennar í sviginu á sunnudag
var aðeins 3ji svigsigur hennar í vetur,
en fjölhæfni hennar hefur sópað inn
stigunum — afrek, sem aðeins Ingimar
Stenmark hefur leikið eftir „taktmælir
snjósins” eins og hann er nú kallaður. í
svigkeppninni hlaut Rosi samtals 110
stig, en næst kom Lise Marie More-
rod, Sviss, með 90 stig og Danielle
Debernard, Frakklandi, varð þriðja með
65 stig. Svigið í Koparfjalli var lokasvig-
keppni heimsbikarsins í vetur.
Staðan í keppni kvenna í heims-
bikarnum er nú þannig, en aðrir kepp-
endur geta ekki náð stigatölu Rosi.
1. Mittermaier, V-Þýzkaland, 272
2. Morerod, Sviss, 189
3. Zurbriggen, Sviss, 168
4. -5. Debernard, Fakklandi, 130
4.-5. Totschnig, Austurríki, 130
6. Kaserer, Austurríki, 126
7. C. Nelson, USA, 107
8. F. Serrat, Frakklandi, 104
Aðrar stúlkur hafa færri stig.
í keppni karla er Ingemar Stenmark
svo gott sem búinn að tryggja sér
sigurinn — aðeins 19 ára að aldri.
Hann hefur verið frábær í vetur. Aðeins
skuggi í sambandi við Olympíuleikana
— þar tapaði hann sinni einu svig-
keppni. Ingemar hefur nú 216 stig,
Piero Gros, Ítalíu, er annar með 178
stig, en hann sigraði í keppninni um
heimsbikarinn 1974. Gustavo Thoeni,
Ítalíu, sigurvegarinn í fyrra og þrívegis
áður, er 3ji með 175 stig. Franz
Klammer, brunsnillingurinn austur-
ríski, hefur 156 stig, en aðrir keppendur
koma langt á eftir. Um næstu helgi
verður keppt í heimsbikarnum í Aspen,
Colorado.
Vörðurinn kemur inn til að1
athuga hvað er á seyði
© Xinn f’e»lure» Syndicíle. Inc 1974 World right* reierved
Þegar beygt er er reynt að halda skíðunum vel saman. Þetta er gert á
sama hátt og þegar skíðin cru höfð sundur, þunginn fluttur á skíðin til
skiptis. Notið stafina þegar þið beygið. Þeim er stungið í snjóinn nokkru
áður en skíðin eru sveigð til hliðar og nokkuð fyrir framan fótinn.