Dagblaðið - 09.03.1976, Blaðsíða 22
22
I
NYJA BIO
Flugkappamir
Ný, bandarísk ævintýramynd í litum.
Aðalhlutverk: Cliff Robertson. Eric
Shea og Pamela Franklin.
Bönnuð innan 12 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
8
BÆJARBIO
Hafnarfirði. Sími 50184.
Hryllingsmeistarinn
*Wm
Vlncent. Peter Robert
Price Cushing'Quarry
íslcn/kuf tcxti.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 8 og 10.
HAFNARBÍO
I
Papillon
Steve McQueen, Dustin Hoffman.
ÍSLENZKUR TEXTI
Bönnuð innan 16 ára.
Endursýnd kl. 5 og 8.
Slaughter
ÍSLENZKUR TEXTI
Bönnuð innan 16 ára.
Endursýnd kl. 3 og 11.
8
AUSTURBÆJARBÍÓ
Valsinn
Mjög skemmtileg, frönsk gamanmynd.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.15.
8
LAUGARÁSBÍÓ
I
Mannaveiðar
CLINT
EASTWOOD
THE EIGER
SANCT10N
| A UNIVERSAL PICTUBE • TECHNIC0L0R" *
Æsispennandi mynd gerð af Universal
eftir metsölubók Trevanian. Leikstjóri:
Clint Eastwood. Aðalhlutverk: Clint
Eastwood, George Kennedy og Vanetta
McGee.
íslenzkur texti.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
8
HASKÓLABÍÓ
I
Tilhugalíf
(Lovers)
ÍUCHARD PAULA
BECIJNSAIE Wn0K
THE ð
IOVERSl
Brezk litmynd, er fjallar um gömlu
söguna, sem er alltaf ný.
ÍSLENZKUR TEXTI
Aðalhlutverk: Richard Beckinsale,
Paula Wilcox
Sýnd kl. 5, 7 og 9
bíðasta smn
8
STJÖRNUBÍÓ
40 karöt
Afar skemmtileg og afburðavel leikin
ný amerísk úrvalskvikmynd í litum með
úrvalsleikurum. Aðalhljutverk: Liv U11-
man, Gene Kelly
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
8
TONABÍO
I
Lenny"
n
Ný, djörf, amerísk kvikmynd, sem
fjallar um ævi grínistans Lenny Bruce,
sem gerði sítt til að brjóta niður
þröngsýni bandaríska kerfisins.
Aðalhlutverk:
DUSTIN HOFFMAN
VALERIE PERRINE
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
8
GAMLA BIO
I
Að moka flórinn
Víðfræg bandarísk úrvalsmynd í litum
— byggð á sönnum atburðum úr banda-
rísku þjóðlífi.
Aðalhlutverk:
JOE DON BAKER
ELIZABETH HARTMAN
SÝND KL. 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 16 ára.
Ritstjórn
SÍÐUMÚLA 12
Simj
83111
Áskriftir
AfgreiÓsla
Auglýsingar |
ÞVERHOLTI 2
Simi
17011
Smurbrauðstofan
BJORNIIVfM
Njólsgötu 49 — Sími 15105
8
Dagblaðið. Þriðjudagur 9. marz 1976.
Utvarp
Sjónvarp
Sjónvarp kl. 20.40 í kvöld:
HVAÐ ER
LESHRINGUR?
„Það er mesti misskilningur að
það þurfi einhverja sérfræðinga,
aðeins nauðsynlegt að hafa áhuga á
málinu,” sagði Gunnlaugur Kristins-
son, forstöðumaður fræðslu- og
félagsmáladeildar KEA á Akureyri,
er við spurðum hann um þátt er
nefnist „Leshringur” og er á dagskrá
sjónvarpsins í kvöld kl. 20.40.
„Þetta námsform virðist ekki vera
eins þekkt hér á landi og víða á
Norðurlöndunum. Ég kynntist þessu
formi í Svíþjóð fyrir nokkrum árum,
en þar hefur þetta námsform verið
útbreitt síðan um aldamótin síðustu.
Ég geri ráð fyrir að eitthvert
svipað form sé í gangi hér á landi, en
kannski ekki í eins föstum skorðum.
Bréfaskólinn. hefur áhuga á að kynna
þetta námsform og er þátturinn
gerður í samvinnu við Bréfaskólann.
Þetta er ágætt form til þess að æfa
menn í að koma fram á fundum og
mannamótum.
Ég er ekki viss um að fólk vit.
almennt hvað átt er við með „les-
hringur.” Gætu allt eins haldið að
þar sé um að ræða menn sem sitja í
hring og lesa!
í þættinum setjum við á svið fyrsta
fundinn hjá leshring, þannig að fólk
fái einhverja hugmynd um út á hvað
málið gengur.
Ég hef verið með nokkra leshringi
hér á Akureyri og í sveitunum í
nágrenninu og hefur aðsókn verið
mjög góð, þó langbezt hjá kvenfélög-
um þar sem mæting hefur verið.
100%.”
A.Bj.
Þaö er ekki ónýtt að kunna að koma fram á fundum og þora að taka til máls á mannamótum. Maður yrði þá kannski
sendur sem fulltrúi á stóra alheims Þarna þinga fjármálaráðherrar olíulandanna.
Tjáningarfrelsi
er ein meginforsenda þess
að frelsi geti viöhaldizt
í samfélagi.