Dagblaðið - 09.03.1976, Qupperneq 13
Dagblaðið. Þriðjudagur 9. marz 1976.
i
þróttir
Iþróttir
róttir
Hörkuskotið hofnaði í
moiki, en dœmd var löf!
— Lá við að mér vöknaði um augun, þegar Páll fótbrotnaði. Rœtt við Berg Guðna-
son um Olympiuleikinn við Júgóslava, en íslenzka landsliðið kom heim i gœrkvöld
Móttökur allar í Júgóslavíu voru
hreint frábærar. Júgóslavnesku hand-
knattleiksmennirnir báru okkur bein-
línis á höndum sér — vildu allt fyrir
okkur gera, sagði Bergur Guðnason,
aðalfararstjóri íslenzka landsliðsins í
handknattleiknum við Dagblaðið í
mórgun, en íslenzku landsliðsmennirnir
komu heim úr keppnisförinni í gær-
kvöld.
Ég hef sjaldan eða aldrei kynnzt
annarri eins vinsemd í keppnisför og
það var eins og Júgóslavarnir vildu
endurgjalda sem bezt móttökur þær,
sem þeir hafa fengið hér á íslandi. Já,
ísland er efst á óskalista þeirra, þegar
um keppnisferðir er að ræða, sagði
Bergur ennfremur.
Við fórum frá Zagreb og millilentum
fyrst í Frankfurt, þar sem þeir Gunnar
Einarsson og Jón Hjaltalín Magnús-
son urðu eftir — Jón á leið sinni til
Svíþjóðar, en Gunnar til Göppingen.
Síðan var flogið til Luxemborgar og þar
varð fyrirliðinn Ólafur H. Jónsson eftir
— lið hans Dankersen á erfiða leiki
framundan í Bundeslígunni og Evrópu-
keppni.
Við hinir komum heim í gærkvöld —
Páll Björgvinsson slasaður, en allir aðrir
heilir. Páll þurfti þó ekki að fara á
sjúkrahús, heldur fékk að fara heim, en
hann verður um tvo mánuði frá vinnu.
Páll var að leika í gegn, þegar hann
’lenti í samstuði og féll illa. Hann bein-
Hnis heyrði þegar leggurinn brotnaði
rétt fyrir ofan ökklann á vinstra fæti.
Við fórum strax til hans og, það lá við,
að mér vöknaði um augun, þegar ég sá
hvað hafði komið fyrir. Það var sorg-
legt, sagði Bergur, og við fórum- strax
með Pál á sjúkrahús, þar sem búið var
um brotið. Páll hafði átt snilldarlegan
leik — ég hef ekki séð hann betri í
annan tíma. Hann var hreint frábær í
vörninni og fljótt eftir að hann hvarf af
leikvelli fengum við á okkur tvö mörk
frá þeim punkti, sem Páll hafði verið í
vörninni. Þetta er víst í áttunda skipti,
sem Páll brotnar í keppni.
Allan fyrri hálfleikinn — og reyndar
nær allan leikinn, þegar Páll er frátal-
inn — lékum við með sömu leikmönn-
unum. Óli Ben. í marki, síðan Ólafur
H. Jónsson, Bjarni Jónsson, Arni
Indriðason, Páll, Jón Hjaltalín og bræð-
urnir Gunnar og Ólafur Einarssynir
skiptust svo á. Eftir meiðsli Páls kom
Sigurbergur Sigsteinsson inn á. Liðið
small saman — leikkerfin gengu frá-
bærlega vel upp og skotnýting var um
60%, sem teljast verður mjög gott.
Jóhann Ingi Gunnarsson, sem dvalið
hefur á Júgóslavíu, reyndist okkur afar
vel í undirbúningi fyrir leikinn — við
bókstaflega vissum aJlt. um júgóslavn-
esku leikmennina.
Ólafur H. Jónsson komst strax í mik-
inn ham og sýndi nú allar sínar beztu
hliðar og Jón Hjaltalín var „brilliant.”
Ég hef ekki séð hann betri áður. Bjarni
vann ákaflega vel og Árni er orðinn
mjög þýðingarmikill leikmaður fyrir
liðið. Þá sáum við nýja hlið á ólafi
Einarssyni. — Hann gaf oft fallega inn
á línu, sagði Bergur Guðnason.
Fyrir leikinn fengu allir leikmenn
íslenzka liðsins stórgjafir og setning
leiksins var hátíðleg. Það var leikið í
nýrri íþróttahöll í Novamesto, þar sem
1500 manns rúmast, og byrjað var á
býggingu hennar í september. Lokið í
nóvember og hún var valin fyrir leikinn
af 20 stöðum, sem um hann sóttu.
Áhorfendur voru okkur erfiðir Þeir
flautuðu og píptu, þegar Jón Karlsson
kom inn á til að taka víti snemma í
leiknum — og hávaðinn var enn meiri,
þegar Jón kom aftur inn á stuttu síðar
til að taka annað víti. Honum mis-
heppnaðist og það láir honum enginn.
Síðast í leiknum mistókst Gunnari
Einarssyni einnig vítakast — eftir að
hafa skorað áður úr tveimur. Tvö víta-
köst fóru því forgörðum hjá okkur í
leiknum — en ég held að Júgóslövum
hafi mistekizt við eitt.
Til marks um hvað leikflétturnar
gengu vel upp má geta þess, að aðeins
einu sinni var dæmd töf á íslenzka liðið •
í leiknum — og sá dómur rúmensku
dómaranna kom ekki á heppilegum
tíma. Ólafur Einarsson var einmitt í
uppstökki og augnabliki síðar lá
knötturinn í marki Júgóslava. En við
fengum ekki markið — Júgóslavar hins
vegar knöttinn vegna dómsins. Þar
munaði sekúndubroti og hvert mark
var þýðingarmikið í þessum leik.
Við erum ánÆgðir með útkomuna,
sagði Bergur Guðnason að lokum, og
samstilling innan landsliðsins er alveg
einstök. Þar vilja allir allt fyrir alla
gera.
4
Olafur H
Jónsson
Handboltapunktar
m frá V-Þýzkalandi
Meissen í febrúar.
Enn heldur baráttan áfram á öllum
vígstöðvum — barizt um efstu sætin
eða reynt að forðast fa.ll. Eftir 13.
umferðina — umferðirna.r eru alls 18 —
er enn ekki ljóst hvaða lið úr norður- og
suðurdeild koma til með að keppa um
baráttusætin. Óvænt úrslit í þeim Fimm
umferðum, sem eftir eru, munu eflaust
setja strik í reikninginn.
Ef við tökum stöðuna eins og hún er
núna er greinilegt að Gummersbach
sigrar í norðurdeild, en Dankersen og
Phönix Essen berjast um annað sætið.
Þrjú neðstu liðin Hamborg, Bad
Schwartau og Altenholz eru í fall-
baráttunni. Tvö neðstu liðin falla, en
þriðja neðsta liðið í norðurdeild keppir
við þriðja neðsta liðið í suðurdeild um
tilverurétt sinn í Bundeslígunni. í
suðurdeild hafa nýliðarnir,
Dietzenbach; komið mjög á óvart og
eru í efsta sæti « deildinni. Önnur lið,
sem berjast um fyrsta og annað sætið
eru Rintheim og Milbertshofen. í
fallbaráttunni eru Göppingen,
Reinisckend Fusche og Neuhausen.
Eins og málin standa nú gæti svo
farið, að Hamborg og Göppingen (bæði
iið í 3. neðsta sæti í deildunum) keppi
um sæti í Bundeslígunni innbyrðis í
vor. Þar yrði þá um íslendingaslag að
ræða, þar sem Einar Magnússon og
Gunnar Einarsson leika með liðunum.
Þetta er þó allt í óvissu enn, en staðan
gefur þennan möguleika.
Eftir 14. umferðina verður hálfs
mánaðar hlé vegna undirbúnings og
keppni þýzka landsliðsins við Austur-
Þjóðverja. (Leikurinn var um helgina
— og -Vestur-Þjóðverjar komust í
úrslitakeppnina í Montreal, þrátt fyrir
tap 11-8.). Hafa þessi hlé í
Bundcslígunni komið misjafnlega niður
á liðunum þ.e. viku- eða hálfsmánaðar-
hlé. Þau lið, sem eiga landsliðsmcnn,
Iiafa ekki getað aðlagað sig að þessu
neina Gummersbach. Það er ljóst, að
þcgar aðalpóstar í hverju liði geta ekki
æft með liðum sínum nema með
höppum og glöppum. Fyrir lið í heild
næst ekki samspil sem skyldi. Má til
dæmis benda á að Dietzenbach, sem
ekki hefur einn einasta landsliðsmann,
*er nú í 1. sæti í suðurdeild og hefur liðið
sýnt nokkuð stöðuga leiki. önnur lið í
efstu sætunum hafa sveiflazt upp og
niður — átt góða leiki en fallið niður á
milli og jafnvel tapað fyrir neðstu
liðunum.
í norðurdeild hefur t.d. Rheinhausen
engan landsliðsmann og hefur nú unnið
sex leiki í röð. Gummprsbach er með
tvo landsliðsmenn, en á alltaf nokkuð
jafngóða leiki. Liðið byggir á áralangri
reynslu — hefur leikmenn, sem leikið
hafa saman 4-6 ár og hafa ekki þurft að
aðlagast nýjum leikmönnum.
Nú þegar eru komnar dagsetningar
fyrir næsta leiktímabil og þar kemur
fram, að slík hlé eins og verið hafa í
vetur, verða ekki á næsta keppnis-
tímabili. Ekki er að efa að slíkt kemur
til góða þeim félögum, sem fengu nýja
menn síðastliðið haust, því þá næst
meiri samæFing og hinn duldi skiln-
ingur leikmanna á millum hvað varðar
staðsetningar og fleira.
En lítum aðeins á úrslitin í 13.
umferðinni. Undanfarin ár hefur
Hamborg alltaf unnið Dankersen á
heimavelli sínum. Þetta — eftir því sem
sagt er — virðist vera sálrænt tak, sem
Hamborgararnir hafa á GWD. Þeir
eiga alltaf mjög góða leiki gegn GWD á
heimavelli. í byrjun leiks liðanna nú
virtist þó ekki svo ætla að verða, því
GWD byrjaði á því að skora tvö fyrstu
mörkin í leiknum — en tvö mörk eru
ekki mikill munur. Eftir það var
leikurinn nokkuð jafn. í hálfleik stóð
7-7. Hafði GWD þá misst mann út
af í tvær mínútur — Becker. — í
byrjun síðari hálfleiks komst GWD
aftur tveimur mörkum yfir, þrátt fyrir,
að Becker var rekinn út af aftur. Nú í
Fimm mínútur. Allan síðari hálfleikinn
hafði GWD forustuna. í stöðunni 11-9
mistókst vítakast hjá GWD — og eftir
það sóttu Hamborgarar í sig veðrið og
jöfnuðu í 11-11, 12-12, og komust yfir á
síðustu mínútunni 13-12. Þá
hafði Pickel verið GWD mjög erfiður
og virtist sama hvaðan hann skaut. Það
sem fór framhjá vörninni náðu mark-
verðirnir ekki að verja. Becker jafnaði
fyrir GWD —Hamborg klúðraði
knettinum í næstu sókn. Dankersen
hafði því möguleika á að sigra og voru
áhorfendur, um 1800, yfir sig spenntir
— og taugar margra leikmanna
brugðust þá. Fríkast og aftur fríkast.
Axel
Axelsson
Um dómarana er ekki hægt að tala. Við
getum fullyrt, að mörg íslenzk
dómarapör eru klassa betri en starfs-
bræður þeirra hér í Bundesligunni — ef
starfsbræður er hægt að kalla!!! Einar
Magnússon lék ekki með Hamborg —
en það fer nú að styttast í að hann leiki
á ný. Pickel skoraði átta mörk
Hamborgarliðsins í leiknum, en hjá
Dankersen skoraði ólafur H. fimm og
Busch fjögur.
í suðurdeildinni tapaði Göppingen
fyrir nýliðunum Dietzenbach 16-20.
Það voru einkum tveir menn, sem
gerðu út um leikinn, þ.e. þeir Wehnert,
fyrrum landsliðsmaður sem skoraði átta
mörk, og Júgóslavinn Kirstic, sem
skoraði Fimm mörk, eða 13 mörk
saman fyrir Dietzenbach. í hálfleik stóð
9-4. í síðari hálfleik tóku leikmenn
Göppingen sig saman í andlitinu og
skoruðu 12 mörk gegn 11 í hálfleiknum,
en það nægði ekki. Útlitið er því ekki
bjart hjá Göppingen. Gunnar Einarsson
skoraði þrjú mörk í leiknum og átti
ekki einn af sínum góðu dögum.
Áhorfendu
i2200.
Kveðja
ólafur og Axel.
Líkur aukast á að Palace
komist í Wembley-úrslit
Kemst 3 ju deildarlið í fyrsta sinn i
úrslitaleik FA-bikarsins enska fyrsta
laugardaginn í inaí á Wembley? Á því
eru miklar líkur Þegar dregið var í
undanúrslitin í gær lenti Crystal Palace
gegn Southampton. Leikur liðanna
verður á Stoamford Bridge, þar
sem Palace sló Chclsea úr keppninni í
fimmtu umferð og verður háður 3.
apríl. Leikvöllur Crvstal Palace er í
Suður-London eins og Stamford
Bridge.
í hinum leiknum í undanúrslitum
leika Derby, sem nú er talið
sigurstranglegasta liðið í keppninni, og
annaðhvort Manch Utd. eða Úlfarnir.
Þau lið leika á ný í 6. umferð í
Wolverhampton í kvöld. Leikurinn í
undanúrslitum verður á leikvelli
Sheffield Wed. — Hillsborough.
Þá var dregið í undanúrslit skozka
bikarsins. Rangers leikur við annað-
hvort Motherwell eða Hibernian á
Hampden Park miðvikudaginn 30.
marz, en Dumbarton við annaðhvort
Montrose eð Hearts á Hampden 3.
apríl.
íþróttir
Miðasala hafin ó
Olympíuleikana
Sala er nú hafin á miðum á hina ýmsu
viðburði á Olympíuleikunum í Montreal í
Kanada í sumar. Ekki stendur á mönnum
að kaupa miða þrátt fyrir að á ýmsu hafi
gengið í undirbúningi leikanna. Til að
mynda mynduðust langar biðraðir í gær
— fólk sem var að kaupa miða. En sala á
■niðum hófst einmitt í gær í Kanada.
Áætlað er að selja um 2.3 milljónir miða
á fíina ýmsu viðburði í Kanada en erlendis
verða seldir jafnmargir miðar. Þannig
verða seldir hátt á fimmtu milljón miða á
leikana, enda mikið um að vera og margt
að gerast á Olympíuleikum.
Ef til vill lítur sala á sjötta þúsund miða
í Kanada á fyrsta degi ekki vel út, en
framkvæmdaaðilar eru bjartsýnir á
framhaldið og búizt við jafnri sölu fram að
leikunum.
Arthur Ashe
kjðrinn tennis-
leikari órsins
Arthur Ashe, hinn kunni tennisleikari,
var í gærkvöld kjörinn tennisleikari ársins í
New York. Enginn sem þekkir til í
tennisheiminum efast um réttmæti
þessarar útnefningar því Ashe hefur verið
fádæma sigursæll á síðasta 4ri — sigraði
meðal annars í Wimbeldon keppninni ogl
eins bar hann sigur úr býtum í heims-
meistarakeppninni, sem fór fram í Stokk-j
hólmi á síðast liðnu ári.
í Wimbeldon sigraði hann Jimmy
Connors í úrslitum og í Stokkhólmi bar
hann sigurorð af Svíanum unga Björn
Borg. En einmitt þeir Connors og Borg
höfnuðu í öðru og þriðja sæti.
Fallbaróttan
farin að sýna
sig ó Englandi
Nú er hin miskunnarlausa barátta
fallsins farin að segja til sín í hinum ýmsu
deildum á Englandi. í 1. deild stendur
fallbaráttan milli fjögurra liða en þrjú lið
falla. Þessi lið eru Birmingham 25 stig
eftir 32 leiki, Burnley 23 stig eftir 34 leiki,
Wolves 22 stig eftir 32 leiki og ShefField
Utd. með 13 stig eftir 32 leiki. Nú er
engan veginn ljóst hvaða lið fellur,
þó Birmingham standi langbezt að vígi af
þessum fjórum liðum.
í 2. deild eru York og Portsmouth svo
gott sem fallin' og Oxford stendur á
barmi fallsins — Blackburn Rovers hefur
engan veginn sloppið enn — liðið hefur
hlotið þremur stigum meir en Oxford.
í gærkvöld voru leiknir nokkrir leikir í 3.
deild, og þar er einnig hin harða barátta
fallsins farin að segja til sín. En lítum á
úrslitin í gærkvöld:
3. deild:
Mansfield-M illváll i-i
Southend-Aldershot 0-2
W rexham-Cardiff 1-1
4. deild:
Newport-Brentford 0-1
Mansfield sem lengst af
keppnistímabilinu hefur verið í neðsta sæti
3. deildar er nú farið að færast af hættu-
svæðinu — liðið hefur nú leikið 7 leiki í
röð án taps. Hins vegar batnaði staða
Southend ekki við tapið í gærkvöld gegn
Aldershot en liðið er nú í fimmta neðsta
sæti — fjögur lið falla.