Dagblaðið - 27.03.1976, Side 5

Dagblaðið - 27.03.1976, Side 5
DAGBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARZ 1976. 5 Geirfinnur lézt í átökum um borð: Hótanir og ónœði leiddu til handtöku fjórmenninganna Skömmu eftir að banamenn Guðmundar Einarssonar höfðu verið hnepptir í gæzluvarðhald kvartaði sambýliskona eins þeirra, Sævars M. Ciesielskis, yfir stöðugu ónæði sem henni var sýnt. Önæði þetta lýsti sér í nafnlausum símhringingum og hótunum sem stöfuðu af vitn- eskju stúlkunnar um afdrif Geirfinns Einarssonar í Kefla- vík 19. nóvember 1974. Olli þetta henni miklum ótta og fór svo að lokum að hún nefndi rannsóknarlögreglunni í Reykjavík nöfn þriggja manna sem hún sagði viðriðna málið. Lagt upp frá Klúbbnum Við yfirheyrslur yfir Sævari í gæzluvarðhaldinu eftir þetta nefndi hann sömu menn og síðar einnig Kristján Viðar Viðarsson. Sögðu þeir síðan frá ákveðinni för til Keflavíkur, þeirri sömu og vísað hefur verið til í dómum Hæstaréttar um staðfestingu á varðhaldsúr- skurðum þeirra manna er hand- teknir voru 26. janúar sl. vegna meintrar aðildar að hvarfi Geir- finns. Þessi frásögn er á þá leið að þau þrjú, stúlkan og þeir Sævar og Kristján, hafi að kvöldi hins 19. nóvember 1974 farið frá Klúbbnum við fjórða mann, sem ók bifreiðinni og er einn þeirra er teknir voru 26. janúar. Ekki ber þeim þremur alveg saman um hvort fleiri voru með í bílnum, er hafi þá verið teknir upp í nágrenni miðborgar Reykjavíkur. „Maðurinn er með stœla” Á leiðinni til Keflavíkur snerust umræður Sævars og ökumannsins að sögn þeirra þriggja um að ákveðinn maður væri „með tóma stæla” og tæki engum sönsum, jafnvel þótt honum hefðu verið boðnir pen- ingar. Væri þvi heppilegast að losna við hann fyrir fullt og allt. Þessi maður mun hafa verið Geirfinnur Einarsson. Sævar Marinó hefur borið við yfirheyrslur að tilgangur fararinnar til Keflavíkur þetta kvöld hafi verið að fara sjó- leiðis út fyrir bæinn til að sækja plastbrúsa — væntan- lega með spíra — og áfengis- flöskur sem voru þar við bauju. Hann hefur töluverða reynslu af dreifingu fíkniefna og hafði því verið fenginn til að sjá um dreifingu á áfenginu. Geirfinnur Einarsson — mynd- irnar eru teknar með fimm ára millibili. Myndin til vinstri var tekin 1968 og birtist í fjölmiðl- um á sinum tíma, en hin er frá árinu 1973, ári áður en Geir- finnur fór í hina afdrifaríku sjóferð. Haukur Guðmundsson, rannsóknarlögreglumaður í Keflavík, segist ekki hafa vilj- að birta nýju myndina, sem hann hafi fengið viku eftir hvarfið, af ótta við að það kynni að rugla fólk í riminu. Ekki eru aliir sammála þvi í lögregl- unni, enda vart hægt að sjá að þessar tvær myndir séu af sama manninum. Ur dráttarbrautinni i Keflavík. Héðan var lagt upp í sjóferðina að kvöldi 19. nóvember 1974, að sögn tveggja pilta sem segjast hafa verið með í henni. Tiigangurinn var að sækja smyglvarning sem var við bauju. Fundurí fjörunni Þegar komið var til Keflavík- ur var farið rakleiðis niður i fjöru og bílnum lagt í dráttar- braut slippsins. Þar voru fyrir nokkrir menn, m.a. Geirfinnur Einarsson og þeir þrír sem nú sitja í gæzlu ásamt ökumanni bílsins þetta kvöld. Einnig var þar sendiferðabíll af gerðinni Benz, að öllum líkindum hinn sami og sást fyrir utan Hafnar- búðina í Keflavik þetta sama kvöld. Bátur var og bundinn þar viðTtryggju. Stúlkan beið ein i bílnum á meðan þremenningarnir gengu á fund þeirra sem fyrir voru, en ekki hefur við yfirheyrslur komið skýrt fram hversu margir þeir voru alls. Stúlkan var óstjórnlega hrædd á meðan hún beið i bílnum, enda taldi hún sig hafa ástæðu til að ætla að vegna vitneskju sinnar um morð Guðmundar Einarssonar tíu mánuðum áður hafi hún þótt fremur óæskileg á lífi. Eftir skamma stund — þegar allir, að undanskildum einum, er voru í fjöruhni, höfðu lagt frá landi á 10—12 tonna bát (sem ekki hefur fundizt enn) — læddist stúlkan í burtu og faldi sig í mannlausu húsi þar í grenndinni þar til hún varð vör við mannaferðir daginn eftir. Á puttanum í bœinn Þá hélt hún upp á Kefla- víkurveg og fór á puttanum að Grindavíkurafleggjaranum. Hún telur sig muna rétt að þessa leið hafi hún þegið far með fullorðnum manni á göml- um Moskvitch með V-númeri. Rannsóknarlögreglan, sem veitti upplýsingarnar hér á undan og eftir á fundi með fréttamönnum i gær, hefur nú áhuga á að hitta þennan mann að máli. Frá Grindavíkurveginum til Hafnarfjarðar þá stúlkan far með stórum flutningabíl, trú- legast grjótflutningabíl, því hún man bílstjórann hafa sagt sér að hann sækti grjót upp undir Esju. Þennan mann vill lögreglan einnig gjarnan hitta. Þetta var að morgni 20. nóvem- ber 1974. ÁYök um borð leiddu til dauða Geirfinns Nokkra þeirra manna, sem voru í. dráttarbrautinni þetta kvöld, þekkti stúlkan, aðra hefur hún þekkt án hiks af ljós- myndum sem hún hefur séð hjá rannsóknarlögreglunni. Víkur nú að sjóferðinni. í upphafi voru þeir Sævar og Kristján — helztu og raunar einu vitnin um það sem gerðist á þeim tveimur klukkustund- um sem hún stóð yfir — afar fámálir um siglinguna og töldu þátt sinn í málinu mjög lítil- vægan. Síðar skýrðu þeir frá því að í þessari ferð hefði Geir- finnur Einar-sson látið lífið í átökum sem urðu um borð. Að sögn þeirra Sævars og Krist- jáns tóku þrír þeirra fjögurra manna, sem nú sitja í gæzlu vegna Geirfinnsmálsins, þátt i þessum átökum en sá fjórði i þeim hóp var sá er ekki fylgdi með í þessa örlagaríku sjóferð. Lík Geirfinns var síðan flutt til lands, að því er þeir Kristján og Sævar telja, en ekki er vitað hvað varð síðar um líkið. Eimingartœkin flutt á brott Hver þáttur Geirfinns Einarssonar var í því áfengis- smygli, sem þarna var á ferðinni, er ekki fullkomlega ljóst. Aftur á móti kom fram við fyrri rannsókn málsins, sem Haukur Guðmundsson annaðist ásamt fleirum í Keflavík, að þess hafði verið farið á leit við Geirfinn að hann eimaði sjó- rekinn spíra, sem kom á land við Gróttu. Geirfinnur var á þeim tíma . með tæki til eimingar í láni en þeim hafði hann skilað þegar hann hvarf. Dagblaðið hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að Geir- finnur hafi hins vegar verið búinn að eignast eigin tæki þegar hann lét lífið, en að morgni hins 20. nóvember voru þau flutt frá heimili hans, að beiðni eiginkonu hans, áður en rannsóknarlögreglan kom þar heim. Um afdrif þeirra tækja er ekki vitað en það veit væntanlega sá vinur Geirfinns sem flutti þau á brott. Ýmsar blikur á lofti Af orðum Geirfinns fyrr þennan dag, 19. nóvember, þess efnis að líklega væri bezt að fara vopnaður á fyrirhugaðan fund sinn við ónefnda menn þá um kvöldið — í Hafnarbúðinni — og áðurgreindum samræðum í bilnum á leiðinni frá Klúbbnum til Keflavíkur þetta kvöld, má ráða að ýmsar blikur hafa verið á lofti i samskiptum Geirfinns við þá menn sem sagðir eru hafa tekið þátt í liinztu ferð hans. Rannsóknarlögreglan vildi á fréttamannafundinum í gær ekkert segja um hvort fjór- menningarnir hefðu játað að hafa orðið Geirfinni Einarssyni að bana. Hins vegar hefur eng- inn þeirra gilda fjarvistarsönn- un þetta kvöld, eins og telja má sannað af tveimur hæstaréttar- dómum til staðfestingar gæzluvarðhaldsvist þeirra. Hún byggist, eins og fyrr greinir, á framburði Kristjáns Viðars- sonar, Sævars Ciesielskis og sambýliskonu hans. -OV- Voru að pakka líki Guðmundar í teppi — þegar stúlkan kom að þeim Engin sérslök ástæða virðist hafa legið að baki morðinu á Guðmundi Einarssyni frá Hraunprýði i Blesugróf aðfaranótt 27. janúar 1974. Að afloknunt dansleik í Alþýðu- húsinu i Hafnarfirði þetta kvöld mun Guðmundur hafa hitt Kristján Viðar Viðarsson, gamlan skólafélaga sinn, sem var í fylgd með þeim Sævari Marinó Giesielski og Tryggva Rúnari I.eifssyni i ökulerð Guðmundur slóst i hópinn og fylgdi þremenningunum heim til Sæv.urs i Hafnarfirði. Allir munu hafa verið eitthvað við skál og munu jafnvel ein- hverjir þremenninganna hafa verið undir áhrifum fíknilyfja. Við yfirheyrslur hafa þeir bor- ið að venjuleg orðaskipti við drykkjuna hafi magnazt þar til kom til átaka og lyktaði þeim með þvi að Guðmundur. sent var einn á móti þeim þremur, hafi látið lifið. Síðan fóru þremenningarnir út í stutta ökuferð og skildu lík Guðmundar eftir í íbúðinni. Þegar þeir komu aftur var ákveðið að flytja líkið út í hraun fyrir sunnan bæinn og jafnframt að fá Albert Klahn, sem var gamall skólabróðir og félagi eins þeirra, til að flytja líkið. Hringdu þeir í hann um klukkan eitt unt nóttina. enda haföi Albert yfir betri bíl til flutninganna að ráða. Á meðan þeir Sævar, Kristján og Tryggvi voru að búa um lík Guðmundar kom sambýliskona Sævars að þeim. Þegar hún var handtekin ásamt Sævari sl. haust fyrir svik á 950 þúsund krónum út úr Pósti og síma skýrði hún frá þvi sem fyrir augu hennar bar þessa nótt. Það var svo 22. desember að Sævar játaði aðild að morði Guðntundar og leiddi sú játning til þess að hinir þrir mennirnir voru handteknir. Frá þvi í janúar 1974 og þar til í desem- ber sl. var yfirleitt einn þeirra félaga á bak við lás og slá fyrir afbrot af ýntsu tagi — og Kristján Viðar var raunar fangi á Litla-llrauni þegar hann var færður í gæzluvarðhald i Síðu- múlafangelsinu í Revkjavik. -OV-

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.