Dagblaðið - 27.03.1976, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 27.03.1976, Blaðsíða 17
DACBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARZ 1976. 17 Frá rauðsokka- hreyfingunni: Umræðufundur um 1. maí verður haldinn að Skðlavörðustíg 12 á morgun kl. 15.00. Dagur aldraðra í Hallgrímskirkju. Næstkomandi sunnudag, 28. marz, er dagur aldraðra í Hallgrímskirkju. Kl. 2 e.h. er messa þar sem dr. Jakob Jónsson predikar. Að lokinni guðsþjónustu býður kvenfélag Hallgrimskirkju eldra fólki til hinnar árlegu kaffidrykkju í safnaðarheimilinu og þar syngur Kristinn Hallsson óperusöngvari einsöng. Kvenfélag Hallgrímskirkju býður eldra fólki til kaffidrykkju nk. sunnudag 28. marz kl. 3 eftir hádegi í safnaðarheimili kirkjunnar. Dr. Jakob Jónsson flytur ávarp og Kristinn Hallsson óperusöngvari syngur einsöng. Stjórnin. Vestf irðingafélagið Flóamarkaður og basar verður laugardaginn 27. marz nk. í Langholtsskóla. Opnað kl. 14. Ef vinir og félagar vilja gefa eitthvað veitir stjórn félagsins þvi viðtöku í Langholtsskóla eftir kl. 19 á föstudag. Allur ágóði rennur til Vestfjarða, meðal annars í Menningarsjóð vestfirzkrar æsku, sem er veitt úr ár hvert í ágústbyrjun. Hlutavelta FH Á sunnudaginn kl. 2 halda FH- ingar hlutaveltu í Víðistaðaskóla. Að sögn verður margt góðra muna og engin núll — já, engin núll. Skrifstofa félags einstœðra foreldra Traðarkotsundi 6 er opin mánudaga og fimmtudaga kl. 3 — 7 e.h., þriðjudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 1 — 5. Sími 11822. Á fimmtudögum kl. 3 — 5 er lögfræðingur FEF til viðtals á skrifstofunni f.vrir félagsmenn. Bahá’í-trúin Kynning á Bahá'í-trúnni er haldin hvert fimmtudagskvöld kl. 20 að Öðinsgötu 20. Bahá'íar i Reykjavík. Samtök asma- og ofnœmissjúklinga. Tilkynning frá samtökum asma- og ofnæmissjúklinga: Skrifstofan opin alla fimmtudaga kl. 17 — 19 i Suðurgötu 10, bakhúsi. Sími 22153. Frammi liggja tímarit frá norrænum samtökum. Fótaaðgerðir fyrir eldra fólk í Kópavogi Kvenfélagasamband Kópavogs starfrækir fótaaðgerðastofu fyrir eldra fólk (65 ára og eldra) að Digranesvegi 10 (neðstu hæð — gengið inn að vestanverðu) alla mánudaga. Símapantanir og upplýsingar gefnar í síma 41886. Kvenfélagasambandið vill hvetja Kópavogsbúa til að notfæra sér þjónustu þessa. Sveitarstjórnarmól er nýútkomið og í því er m.a. Að gosi loknu, grein eftir Magnús H. Magnússon fv. bæjarstjóra. Samtal er vió Bjarna Þórðarson, fv. bæjarstjóra í Neskaupstað, sem hefur verið bæjarfulltrúi lengur en nokkur annar maður hér. Aðalsteinn Guðjohnsen, rafmagnsveitustjóri á greinina Þverbrestir í orkumálum landsmanna, sagt er frá tilfærslu nokkurra verkefna frá ríki til sveitarfélaga og forustugreinin, Orð og gerðir, eftir Pál Líndal, formann Sambands tsl. sveitarfélaga, fjallar urn það mál. Útivistarferðir Laugardagur 27.3. kl. 13. Um Gálgahraun til Hafnarfjarðar í fylgd með Gísla Sigurðssyni. Verð 500 kr. Sunnudagur 28.3. kl. 13. Borgarhólar á Mosfellsheiði. Einnig hentug ferð fyrir skíða- göngufólk. Fararstjóri Jón I. Bjarnason. Verð 600 kr. Brottför frá B.S.Í. vestanverðu. Kvenfélag Hreyfils. Aðalfundur félagsins verður haldinn í Hreyfilshúsinu þriðjudaginn 30. marz kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Mætið vel og stundvíslega. Stjórnin. Lausn á á bls. 12 DAGBLAÐIÐ ER SMÁ AUGLÝSINGABLAÐIÐ I Til sölu gosdrykkjarsjálfsali, einnig Plymouth bifreið, árg. '68. Tilboð. Uppl. í síma 84850 eða 15890. Vel með farinn svefnbekkur, nýr barnastóll meó litlu og stóru borði og lítil Hoover þvottavél til sölu. Uppl. í síma 53598. Til sölu ýmiss konar húsbúnaður. Uppl. í síma 26138 eftir kl. 5. Til sölu sem ný Pianetta (J.P. Löfberg) úr palesander einnig ný Gandy þvottavél. Tilboð óskast. Uppl. í síma 28125. Eftir kl. 5 í síma 28452. Ilúsdýraáhurður til sölu, dreift úr ef óskað er. Góð umgengni. Uppl. í síma 81793 og 42499. Til sölu uliugufuketill, 12 fer- metra. Tilboð merkl „Ketill 14060" leggist inn á afgreiðslu blaðsins. Hlaðrúm Falleg hlaðrúm til sölu. Uppl. í síma 75238. Franskur frúarpels úr gervi- skinni nr. 42-44. Sigilt snið. Verð 12 þús. 2 síðir samkvæmiskjólar, verð 2 þús. kr. hvor, handsnúin saumavél, þarfnast smá lag- færingar, kr. 2 þús. Emerson ís- skápur, þarfnast viðgerðar, verð 3 þús. Uppl. í síma 16713. Til sölu vegna sérstakra aðstæðna 13 feta Iwaðbulur nieð 18 hestafla Johnsson mótor og treiler undir, Ford Cortina árg. '70. skoðuð 76, tauþurrkari, Lava Ferm og 30 hestafla Creisler mótor, árg. '75. Uppll í síma 74385. „Staðreýndir” eina blaðið, sem telur lýðræði óhjákvæmilega forsendu kommúnisma, kemur út 1. og 16. hvers mánaðar 1 Óskast keypt Trillubátur óskast Óska eftir að kaupa trillubát 2V4 til 4 tonna. Uppl. í síma 74725 eftirkl. 19. Traktor. Öskum eftir að kaupa notaðan traktor með dísilvél, má vera í lélegu ásigkomulagi. Uppl. í síma 25140 á skrifktofutíma. Rauðhetta auglýsir. Náttfötin komin, númer 20—26, verð 690, frottégallar á 640, bleyjur á 130 kr. stk., Borás sængurfatnaður 4800 settið. Barnasængurfatnaður frá 1450. Mikið úrval fallegra sængurgjafa. Barnafataverzlunin Rauðhetta, Iðnaðarmannahúsinu v/Hallveigarstíg. Hestamenn! Mikið úrval af ýmiskonar reiðtygjum, svo sem beizli, höfuðleður. taumar. nasamúlar og margt fleira. Hátún 1 (skúrinn), sími 14230. Heimasími 16457. Kópavogsbúar. Smábarnafatnaður í úrvali. Gallabuxur stærð 0-5, baðhandklæði, dúkar, slæður og náttkjólar. Verð frá 1155. Hraunbúð, Hrauntungu 34. Hvað segja stjörnurnar? Spáin gildir fyrir mánudaginn 29. marz. Vatnsberinn (21. jan. — 19. febr.): Dag- urinn líður við hversdagsleg störf. Fólk, sem þú hefur ekki séð í langan tíma, mun nú hafa samband við þig. Vinur þinn gæti þurft á hjálp þinni að halda við ákveðið vandamál. Fiskarnir (20. febr.—20. marz): Það gætu skapazt vandræði í sambandi við heimilis- málin. Það myndi gera öllum gott að skipta um umhverfi. Gættu þess að skrifa mikilvægt bréf, áður en það er orðið um seinan. Hrúturinn (21. marz —20. apríl): Þessir tímar eru ekki sem bezt fallnir til að reyna nýjar hugmyndir. Það hentar þér bezt að fara að venjulegum leiðum núna og að sinna gamalkunnum málum. Spenna skapast vegna kæruleysis annarrar mann- eskju. Nautið (21. apríl — 21. maí): Þér finnst e.t.v. sjálfum að litið miði hjá þér í nýju ástarsambandi, en þú virðist samt hafa meiri áhrif en þú gerir þér grein fyrir. Yngri manneskja færir þér skemmtilega gjöf. Tvíburarnir (22. maí — 21. júní): Nú virðist myndast spenna sem er komin til af hugsunarlausri framkomu eldri mann- eskju. Einhver gerir athugasemd, sem er mjög hagstæð þér, en þú virðist láta þér fátt um finnast. Krabbinn (22. júní — 23. júlí): Þetta er góður dagur til að koma sér áfram. öll líkindi eru á að þú hafir heppnina með þér ef þú biður um greiða,. Rifrildi gæti varpað skugga á ástalífið. Taktu það ekki nærri þér því það lagast skjótt. Ljónið (24. júlí — 23. ágúst): Þú færð bréf, sem þér finnst áhugavert aflestrar og verður til þess að þú vilt kynna þér ákveðnar sumarleyfisáætlanir betur. Þetta er mjög góður dagur til að skrifa mikilvæg bréf. Meyjan (24. ágúst — 23. sept.): Þú skalt ekki treysta manni, sem reynir að fá út úr þér upplýsingar um einkamál annarrar manneskju. Stjörnustaðan bendir til að þú verðir heppinn ef þú stendur í innkaupa- leiðöngrum í dag. Vogin (24. sept. — 23. okt.): Innan skamms munt þú verða kynntur fyrir nýjum hópi vina. Þessi hópur fólks mun fylla þig meira sjálfstrausti, sem mun síðan gera þér mögulegt að tjá þig á óþvingaðri máta. Sporðdrekinn (24. okt. — 22. nóv.): Eitt- hvert vandamál virðist nú ná hámarki og síðan fara hlutirnir að gerast hratt. Svo virðist sem þú munir koma út úr þessu öllu saman með skínandi hreinan skjöld. Nýr aðdáandi þinn er að reyna að kynnast þér betur. Bogmaðurinn (23. nóv. —20. des.): Hafðu hemil á tungu þinni. Svo virðist sem einhver reyni nú að fá þig til að koma upp um leyndarmál einhvers annars. Reyndu að komast hjá öllum deilum í dag. Steingeitin (21. des. — 20. jan): Spáð er spennandi bréfi. Láttu ekki heppni annars manns gera þig öfundsjúkan. Stjörnurnar benda til að ýmislegt gott eigi eftir að verða á leið þinni innan skamms, ef þú aðeins leggur aðeins meira á þig. Afmælisbarn dagsins: Mikið verður um að vera á þessu ári og það á öllum sviðum. Margt bendir til að hinir einhleypu lendi nú í ástarævintýri sem verður varanlegt — og að dýpri skilningur og þýðing skapist hjá þeim sem þegar eru „á föstu.” Nýtt tómstundaáhugamál kemur þér I mikilvæg sambönd. ___ Körfugerðin Ingólfsstræti 16. Brúðuvöggur, vinsælar gjafir, margar tegundir. Nýtízku reyr- stólar með púðum, reyrborð, barnavöggur, bréfakörfur og þvottakörfur ávallt fyrirliggjandi. Kaupið íslenzkan iðnað. Körfugerðin, Ingólfsstr. 16, sími 12165. Glæsilegur fatamarkaður í Iðnaðarhúsinu við Ingólfsstræti, opið frá kl. 1-6. Fatamarkaðurinn Iðnaðarhúsinu. Iðnaðarmenn og aðrir handlagnir: Handverkfæri og rafmagns- verkfæri frá Miller’s Falls í fjölbre.vttu úrvali. Handverkfæri frá V. B.W. Loftverkfæri frá Kaeser. Málningarsprautur, letur grafarar og límb.vssur frá Powerline. Hjólsagarblöð, fræsaratennur, stálboltar, drag- hnoð og m. fl. Lítið inn. S. Sigmannsson og Co„ Súðarvogi 4, Iðnvogum. Simi 86470. Kjarakaup. Hjartacrepe og Combicrepe nú 176 pr. 50 gr., áður 196 pr. hnota. Af 1 kg pökkum eða meiru er aukaafsláttur kr. 3000 pr. kg. 150 pr. hnotan. Nokkrir ljósir litir á aðeins 100 kr. pr. hnota. Hof, Þingholtsstræti 1, sími 16764. Fermingarkerti servíettur, slæður, vasaklútar, hanzkar, sálmabækur, gjafir. Gyllum nöfn á sálmabækur og serívéttur. Póstsendum. Komið eða hringið milli kl. 1 og 6. Kirkjufell, Ingólfsstræti 6, sími 21090. I Fatnaður í Til sölu 2 nýir rúskinnsjakkar númer 10 og 12 . formingarskór númer 39, og 2 síðir kjólar númer 46, sem nýir. Til sýnis í verzluninni á Njálsgötu 106.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.