Dagblaðið - 27.03.1976, Blaðsíða 14
DAGBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARZ 1976.
Skreytið húsið
með páskafuglum
Skemmtilegt
borðskraut
fyrir páskana
Ungi
litli i
eggi...
Þessir iitlu filtfuglar eru
auðveldir í tilbúningi og gaman
að búa þá til. Það gerir ekkert
til bótt þeir séu klunnalegir,
þannig að börnin geta vel
hjálpað til. Hægt er að skreyta
fuglana með pallíettum og
fjöðrum og þeir eru síðan
hengdir með tvinnaspotta
annaðhvort á birkigrein, f
gluggann, eða jafnvel sem órói
fyrir ofan lampa eða neðan í
ljósakrónu.
Efnið: Filt í skrautlegum litum,
pallíettur, perlur, mislitar
fjaðrir. bómull eða frauðplast
Það sem þarf til þess að búa
til þessar páska-stúlkur er
g.vlltur eða mislitur pappi,
Itlúndu eða efnisafgangar og
..hausar", en þeir fást tilbúnir í
föndur-verzlunum. Nú og
auðvitað þarf svo tússpenna til
þess að teikna andlitin á
hausana og lim.
Klippið út hring og hann
siðan i tvennt, búið til
Finnst ykkur þeir ekki vera
sætir ungarnir í þessum
litskrúðugu eggjum? Til þess
að útbúa svona skraut er
nauðsynlegt að blása úr
eggjunum, til þess að geta
hengt eggið upp. Framhliðin er
klippl úr með beittum
naglaskærum, eggið málað að
innan með bronzi og utan með
þekjulitum, silki eða
flauelisband er dregið í
gegnum gatið og límt fast. Litil
slaufa er límd ofan á gatið.
Unginn er límdur fastur inni í
egginu og síðan má hengja þau
á blómagrein. Á myndinni eru
eggin hengd á forsytiugrein en
það má alveg eins notast við
birkigrein úr garðinum hjá sér.
Klippið og saumið:
Teiknið sniðið af fuglunum
(sá stóri er með væng) á
smjörpappír og klippið siðan
tvö stykki í hvern fugl. Nefið er
einfalt. Fuglinn er saumaður
saman með nál og tvinna, nefið
er saumað í, skilið er eftir
svolítið op til þess að fylla
fuglinn annað hvort með
bómull eða frauðplasti.
Fjaðrirnar eru saumaðar með
stélinu. Þeir eru síðan
skreyttir, spotti látinn í þá, —
og þeir eru tilbúnir.
A.Bj.
kramarhús og límið saman á
bakhliðinni. Hausinn er límdur
ofan á (klippt úr toppnum)
Dömurnar má siðan skreyta
eftir því sem andinn innblæs
hverjum og einum.
Gerið örlítið gat í hliðina á
..kjólunum’’ og stingið
páskalilju í það. Ef ekki þarf að
flytja þessar dömur of mikið til
má hafa litið glas með vatni í
undir kjólunum. A.Bj.