Dagblaðið - 27.03.1976, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 27.03.1976, Blaðsíða 16
16 DAGBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARZ 1976. Hvað segja stjörnurnar? Spáin fíildir f.vrir sunnudaginn 28. marz. Vatnsberinn (21. jan. — 19. febr.): Fjölskyldutengsl veröa meó betra móti í dag. Þér er reyndar óhætt aó vera bjartsýnn á heilsufar þitt en veröur þó að varast taugaálag. Leggðu ekki allt of mikið upp úr athugasemd sem þú heyrir fyrir tilviljun. Fiskarnir (20. febr.— 20. marz): Þér býðst nú tækifæri til að víkka út félagssvið þitt. Þetta er einstaklega góður dagur til að fást við fjölskyldumál. Inn í frístundir þínar gæti fléttazt ferðalag til að hitta gamlan vin. Hrúturinn (21. marz — 20. apríl): Hafirðu lent í að skiptast á andstæðum skoðunum við einhvern ætti þér nú að bjóðast tækifæri til að ná samkomulagi án þess að tapa andlitinu Heppilegast væri að nota kvöldið til að bjóða heim gestum. Nautið (21. apríl — 2JL maí): Vinur þinn tekur mikið af tíma þínum. Vertu ósinkur á hann en leyfðu samt ekki þessari manneskju að ganga of langt í þessu tilliti. Þér berast mjög nytsamlegar upplýsingar einmitt þegar þú áttir sízt von á þeim. Tvíburarnir (22. maí — 21. júni): Þú hefur tilhneigingar til að flækjast í deilur. Þú hefur nú loksins tíma til að skrifa mjög mikilvægt bréf en ættir að athuga hvort ekki er hollara að sleppa einni frétt. Krabbinn (22. júní — 23. júli): Þú heillast af nýjum vini. Haltu áfram að stefna að því að gera sjálfan þig gagnlegan við störf er viö koma heimilinu. Líklegt er að vinur þinn hringi og að þið rifjið upp hina gömlu góðu tíma. Ljónið (24. júli — 23. ágúst): Lengi þráð ósk rætist mjög skyndilega. Félagslegur viðburður verður til þess að þú ferð um nokkuð langan veg og reynist það dálítið dýrt. Klæddu þig eins og tilefnið býður upp á. Meyjan (24. ágúst — 23. sept.): Óvæntur gestur flytur þér mjög góðar fréttir af gömlum vini þínum. Þetta er góður dagur til að vinna að áætlunum er stefna að breytingum eða umbótum. Listamaðurinn í þér er áberandi núna. Vogin (24. sept. — 23. okt.): Þessi dagur er hagstæður ástamálum. Auðvelt reynist að laga ósamkomulag og um leið skapast innilegra samband. Skýr og skjót hugsun bjargar þér frá að lenda í leiðinlegri aðstöðu. Sporðdrekinn (24. okt. — 22. nóv.): Láttu nú ekki flækja þér í deilur setn í rauninni koma þér ekkert við. Það lítur út fyrir að þú verðir mjög önnum kafinn í kvöld. Ekki er óliklegt að eitthvað af gestum detti inn úrdyrunum. Bogmaðurinn (23. nóv. — 23. des.): Þú finnur nú lausn á persónulegu vandamáli þar sem þú áttir sízt von á því. Þetta er dagur sem þú ættir að nota til að velta fyrir þér hlutunum og gera framtíðaráætlanir. Þú skalt vera sem mest einn. Steingeitin (21. des. — 20. jan.): Það gæti verið hóað í þig til að hjálpa ókunnum manni í vandræðum. Það hvernig þú rneðhöndlar vandamál mun vekja óskipta aðdáun einhvers af hinu kyninu á þér. Að öðru leyti verður dagurinn rólegur. Afmælisbarn dagsins: Þú munt þurfa að leggja hart að þér fyrri hluta árs til að öðlast það sem þú ætlar þér. Að því loknu ættirðu að geta notið ávaxta erfiðis þíns. Spáð er frekar stormasömu ástasambandi um mitt tímabilið. Nú ætti að myndast betri skilningur milli þín og manneskju, erfiðrar í umgengni. ,,1‘J |)ú m*lur larirt úi innl slulpiimim ciii kviild í viku, |)á a*lla t*i» aú lála |)in vila, að (*i» m*i |>aó iíka.” <T að rcyna að b<)i»t(la saman frótlabrcTi til vina okkar um hvað við ncrðinn á síðasta ári. Rg gct ó'mögulcga numað ncitt scm vió ^cróuni! Lögregla Reykjavík: Lögreglan sími 11166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Kópavogur: Lögreglan simi 41200, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Hafnarfjörður: Lögreglan sími 51166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 51100. Keflavík: Lögreglan sími 3333. Sjúkrabifreið 1110. Slökkvistöðin 2222. Akureyri: Lögreglan sími 23222. Slökkvi- og sjúkrabifreið sími 22222. Vestmannaeyjar: Lögreglan sími 3333. Sjúkrabifreið 1110. Slökkvi- stöðin 2222. Biianir Rafmagn: I Reykjavík og Kópavogi, sími 18230. í Hafnarfirði í sima 51336. Hitaveitubilanir: Sími 25524. Vatnsveitubilarnir: Sími 85477. Símabilanir: Sími 05. Bilanavakt borgarstofnana Sírni 27311. Svarar alla virka daga frá kl. 17 síðdegis til kl. 8 árdegis og á helgidögum er svarað allan sólarhringinn. Tekið er við tilkynningum um bilanir á veitukerfum borgarinnar og í öðrum tilfellum, sem borgarbúar telja sig þurfa að fá aðstoð borgarstofnana. Borgarspítalinn: Mánud. — föstud. kl. 18.30 — 19.30. Laugard. — sunnud. kl. 13.30 — 14.30 og 18.30—19. Heiisuverndarstöðin: Kl. 15 — 16 ogkl. 18.30— 19.30. x Fæðingardeild: Kl. 15 — 16 og 19.30 — 20. Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla daga kl. 15.30 — 16.30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl. 15 — 16 og 18.30— 19.30. . Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 — 16.30 Landakot: Kl. 18.30 — 19.30 mánud. — föstud., laugard. og sunnud. kl. 15—16. Barnadeild alia daga kl. 15 — 16. Grensásdeild: Kl. 18.30 — 19.30 alla daga og kl. 13 — 17 á laugard. og sunnud. Hvítabandið: Mánud. — föstud. kl. 19 — 19.30, laugard. og sunnud. á sama tíma og kl. 15 — 16. Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15 — 17 á helgum dögum. Sólvangur, Hafnarfirði: Mánud. — laugard. kl. 15 — 16 og kl. 19.30 — 20. Sunnudaga og aðra helgidaga kl. 15 — 16.30. Landspítalinn: Alla daga kl. 15 — 16 og 19 — 19.30. Fæðingardeíld: Kl. 15 — 16 og 19.30 — 20. Barnaspitali Hringsius: Kl. 15 — 16 alla ilaga. Apétek Kvöld- og helgidagavarzla vikuna 19.-25. marz er í Reykjavíkurapóteki og Borgar- apóteki. Það apótek sem fyrr er nefnt annast eitt vörzluna á sunnudögum, helgidögum og al- mennum frídögum, einnig næturvörzlu frá kl. 22 að kvöldi til kl. 9 að morgni virka daga, en til kl. 10 á sunnudögum, helgidög- um, og almennum frídögum. HAFNARFJÖRÐUR — GARÐABÆR NÆTUR- OG HELGIDAGAVARZLA, upplýsingar á slökkvistöðinni i sima 51100. Á laugardögum og helgidögum eru læknastofur lokaðar en læknir er til viðtals á göngudeild Landspítalans, sími 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfjabúðaþjónustu eru gefnar i símsvara 18888. Sjúkrabifreið: Reykjavík og Kópavogur, sími 11100, Hafnar- fjörður, sími 51100. Tannlæknavakt er í Heilsu- verndarstöðinni við Barónsstíg alla laugardaga og sunnudaga kl. 17-18. Sími 22411. Læknar Reykjavík—Kópavogur Dagvakt: Kl. 8-17. Mánud,- föstud., ef ekki næst i heimilislækni, sími 11510. Kvöld- og næturvakt: Kl. 17-08 mánud,- fimmtud., sími 21230. A laugardögum og helgidögum eru læknastofur lokaðar, en læknir er til viðtals á göngudeild Landspítalans, gími 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfjabúðaþjónustu eru gefnar í simsvara 18888. ffi Bridge D Það er nú aðeins rúmur mánuður þar til HM í bridge hefst í Monte Carlo. Fyrsta heimsmeist- arakeppnin var spiluð á Bermuda 1950 — og þar spiluðu tveir Is- lendingar í Evrópusveit, Einar Þorfinnsson og Gunnar Guð- mundsson, ásamt fjórum Svíum. Sveitin varð I öðru sæti á eftir sveit Eandaríkjanna. Hér er spil frá fyrstu keppninni á Bermuda 1950. Nobður e D75 1095 0 ÁD1042 + 62 Vestur A 832 D86432 0 enginn + ÁK95 Austur ♦ G1094 <?K7 0 G987 + D73 SUÐUH AÁE6 (? AG 0 K653 +G1084 Lokasögnin á báðum borðum var 3 grönd í suður. Vestur spilaði út hjartafjarka. Gunnar Guðmundsson 1 sæti suðurs tók hjartakóng austurs með ás — spilaði litlum tfgli og þegar vestur sýndi eyðu lét hann tíuna úr blindum. Austur tók á gosa. Spilaði hjarta. Vestur átti slaginn á drottningu og hélt áfram í hjartanu, sannfærður um a$ austur ætti tígulkóng. Þar með átti Gunnar níu slagi — fjóra á tígul, þrjá á spaða og tvo á hjarta. Á hinu borðinu spilaði suður tigulkóng eftir að hafa drepið hjartakóng með ás. Legan kom í ljós og austri var gefinn slagur á tígul. Hann spilaði hjarta. Vestur tók á drottningu — lagði niður laufakóng, austur kallaði og vörn- in tók þrjá slagi á laufið. Tapað spil og 700 til Evrópusveitarinn- ar. A skákmóti I Györ 1932 kom þessi staða upp í skák Chalupetzky, sem hafði hvítt og átti leik, og Kallos. 1. Hxg7! Kxg7 2. Be5+ — Kh6 3. Rf7+ — Kh5 4. Be2+ — Kh4 5. Bg3+ — Kh3 6. Rg5 mát. — Ha — Nú er það? Er það ekki á fyrstu hæð lengur?

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.