Dagblaðið - 27.03.1976, Qupperneq 6
BORGARHUSGOGN
Úrval af áklœðum BORGARHÚSGÖGN
Lítið inn, það borgar sig Grensásvegi ^Sími 8-59-44
RUBIN HORN
SALON
DAGBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARZ 1976.
HÚSEIGNIN
^ Sími 28370 m
Hðfum til sðlu
3ja herb. 95 ferm íbúd í Breidholti I.
Stór stofa med svölum í sudvestur.
Fallegt og rúmgott eldhús,
sérþvottaherbergi inn af badherbergi.
Allt frágengid. Útborgun 4.6 millj.
Skipti koma til greina á gódri 2ja
herb. íbúd í Hlída-, Háaleitis- eda
Fossvogshverfi. Opid tii kl. 8 í kvöld.
Húseignin, fasteignasala,
Laugavegi 24, 4. hæd.
Pétur Gunnlaugsson lögfr.
símar 28040 ög 28370.
Létt vinna
Dagbladid óskar ad ráda mann eda
konu, sem hefur bíl til umráda, til
léttra sendiferda kl. 7—12 fyrir
hádegi frá mánudegi til föstudags og
kl. 16—21 síddegis á föstudögum.
Vidkomandi þarf ad geta hafid störf
strax. Skriflegar umsóknir med
upplýsingum afhendist á afgreidslu
Dagbladsins í dag kl. 9 — 18 eda á
morgun kl. 14 — 20.
EMSBUBW
frfálst, óháð dagblað
Eftir vmdasaman vetur,
Þurr skyldi þorri,
þeysin góa,
votur einmánuður,
þá mun vel vora.
VIKTORIA
SAFIR
— gott sumar?
„Þessi vetur hefur veriö afar
vindasamur, einn sá
veörasamasti sem ég man
eftir,” sagði Páll Bergþórsson
veðurfræðingur okkur þegar
við spurðum hann hvort veðrið
að undanförnu hefði nú í raun
og veru ekki verið óvenju
slæmt. Bindur nú fjöldi
landsmanna vonir sínar við það
að sumarið verði gott og í því
tilefni rifjaði Páll upp þennan
gamla húsgang:
Þorrinn var fremur þurr
norðanlands en það sama er
víst ekki hægt að segja um
veðrið sunnanlands. Þeysin góa
þýðir að hún eigi að vera
vindasöm. Og það er alveg
ábyggilegt, vindurinn blés
mikið alla góuna. Nú verða
menn bara að vona mikið rigni í
einmánuði sem hófst á
þriðjudaginn var.
Nú er litið frost í jörðu, hún
litur vel út og kvaðst Páll þv'í
bjartsýnn á að gróður kæmist
vel á legg í sumar, því gróður
sumarsins ræðst að talsverðu
leyti eftir vetrinum. Vegna
hins litla frosts, sem nú er í
jörðu, og að lítið er um
svellalög, verður hættan á kali
að teljast hverfandi lítil.
Hafís er langt undan landi
um þessar mundir og verður
því líkast til lítið um hann, en
hann er að jafnaði mestur í
apríl og maí. Lítill hafis hefur
verið fyrir norðan land og má
þess vegna búast við því að
norðanáttin í sumar verði ekki
eins köld og ella. Annars er
heldur lítið hægt að segja um
veðráttuna í sumar, úrkomu og
Það getur verið kalsamt að fara til útivinnu á morgnana eins og hita, menn verða bara að bíða
þessi. (DB-mvnd Björgvin.) og vona það bezta. —HH