Dagblaðið - 27.03.1976, Side 24

Dagblaðið - 27.03.1976, Side 24
Fjöldalögtök hjá fyrirtœkjum í Reykjavík: Skulda hundruð millj- óna í opinber gjöld Gjaldheimtan í Reykjavík gerir jafnt og þétt hrið að þeim sem dregst hjá að greiða tiiskil- in gjöld, ýmist eigin gjöld eða þau sem fyrirtæki bera ábyrgð á vegna starfsmanna. I nýútkomnu Lögbirtingar- blaði tilkynnjr Gjaldheimtan uppboð á eignum á þriðja hundrað fyrirtækja og einstakl- inga sem lögtök hafa verið gerð i. Fara þessi 218 uppboð fram kl. 10.00 fyrir hádegi hinn 6. maí næstkomandi, samkvæmt auglýsingunni, svo að sýnilega er gert ráð fyrir að ekki komi tii þeirra allra, fremur en venjulegt er, þrátt fyrir hefð- bundnar innheimtuaðferðir og auglýsingar vegna þeirra. Nokkurra áberandi hárra gjáldheimtukrafna, sem lögtök hafa verið gerð út af, er getið hér á eftir í sömu röð og í Lögbirtingarblaðinu: Kmil Iljartarson kr. 7.803.785.00 Þrymur hf. kr. 5.121.145.00 Sindra-Stál hf. kr. 16.215.393.00 Sigurbjörn Eiríksson kr. 5.140.116,00. Miðfell hf. kr. 6.157.456,00 Stálver. hf. kr. 4.930.401,00 Togaraafgreiðslan hf. kr. 4.603.938,00 Kristján Ö. Skagfjörð hf. kr. 10.659.055,00 Kassagerð Reykjavíkur hf. kr. 15.825.221,00 Egill Vilhjálmsson hf. kr. 11.784.246,00 Davíð Sigurðsson hf. kr. 9.307.103,00 Breiðholt hf. kr. 34.722.629,00 Sveinn Egilsson hf. kr. 29.455.106,00 Istak hf. kr. 11.327.453,00 Björgun hf. kr. 11.349.451,00 Hamar hf. kr. 6.044.933,00 Hjá fjölmörgum aðilum hafa verið gerð lögtök vegna ógreiddra gjalda á bilinu frá 1—4 milljónum króna. Enda þótt upptalning af handahófi úr einu tölublaði Lögbirtingar- blaðsins segi ekki merkilega sögu eða gefi tæmandi skýring- ar, er alveg ljóst að víðar eru erfiðleikar en í rekstri heimil- anna. Framangreindir 16 gjald- endur hafa orðið að þola lögtök vegna skulda að fjárhæð um 190 milljónir króna. —BS— Framsóknarmenn í Hveragerði um verðhœkkanirnar: STJÓRNIN HEFUR K0MIÐ AFTAN AÐ LAUNÞEGUM Framsóknarmenn í Hveragerði orðsins verðstöðvun. Fundurinn ríkisstjórn sem þannig kemur flokksins eindregið við því að eru ekki síður en aðrirlandsmenn harmar að Framsóknar- fram við lægst launuðu þegna samþykkja slik vinnubrögð. nú- furðu lostnir yfir flokkurinn skuli eiga aðild að þjóðfélagsins og varar forystu verandi ríkisstjórnar.” -A.Bj,- verðhækkanaskriöunni sem fylgt hefur í kjölfar kauphækkana þeirra sem launþegar fengu um siðustu mánaðamót. Á fundi í Framsóknarfélagi Hveragerðis var samþykkt tiliaga þessu aðlútandi og er hún á þessa leið: „Félagsfundur í Framsóknar- félagi Hveragerðis og Ölfus lýsir yfir furðu á hinum miklu verðhækkunum strax í kjölfar samninga og telur að ríkisstjórnin hafi með þessu komið aftan að launþegum landins og eigi eftir að koma í ljós að slíku unir verkalýðshreyfingin alls ekki, enda trúlega einsdæmi að nýum- samdar kjarabætur fengnar með erfiðu verkfalli, séu horfnar á einum mánuði eftir gerð samninga. Ennfremur lætur fundurinn í ljós furðu sína á skilningi stjórnvalda á merkingu Tilboðum um grœnmeti og gorðóvexti rignir inn: NÓG AF KÁU 0G GRÆNMETI BOÐIÐ í VIKU HVERRI „Það er hægt að fá nóg af grænmeti,” sagði heildsaiinn sem Dagblaðið hefur haft sam- starf við að undanförnu í sam- bandi við innflutninginn á kartöflum. í gærmorgun fékk hann telex-skeyti frá Rotterdam. Þar býður grænmetisheildverzlun honum 18 tegundir afallskonar nýju grænmeti og káii til af- greiðslu í viku hverri. Eins og flestum mun kunn- ugt er lítið um þessa hollustu- vöru á markaði á íslandi. Kann- ski Grænmetisverzlun landbún- aðarins geti gengið inn í þetta tilboð? Það væri vel. —JBP— Umferðarslysa- alda í gœr- morgun: MARGIR SLOSUÐUST, - FIMM BÍLAR SKEMMDUST Umferðarslysaalda gekk yfir á ellefta tímanum ígærmorgun. — Um klukkan hálfellefu var lögreglunm tiikynnl um árekstur tveggja sendibifreiða á Artúnshöfða á móts við Nesti. Slysið varðmeð þeim hætti að vörubifreið sem kom akandi úr sandgryfjunum á Ártúnshöfða, hugðist beygja inn á Vestur- landsveg. Hún „svínaði” fyrir aðra sendibifreiðina með þeim afleiðingum að hún lenti framan á annarri sendibifreið. Skemmdir urðu nokkrar og voru ökumenn beggja send'bifreiðanna fluttir í slysadeild. Rétt á eftir var tilkynnt um mjög harðan árekslur tveggjá fólksbifreiða rétt fyrir ofan Sand skeið. Þar var skyggni mjög slæmt og færð að þyngjast. Bifreiðarnar — önnur úr Árnessýslu og hin úr Rangárvalla- sýslu — voru mjög illa farnar eftir áreksturinn. Ökumenn beggja bifreiðanna voru fluttir í slysadeild, svo og fjórir farþegar sent í bifreiðunum voru. Um það leyti sem lögreglumenn voru að fara af slysstaðnum við Sandskeið var ulkynnt um þriðja umferðar- óhappið. Broncojeppi sem var á leið til Reykjavíkur ók út af veginum rétt fyrir ofan Litlu kaffistofuna, sem er skammt þar frá sem fólksbifreiðarnar rákust saman. Jeppinn mun hafa lent á hvolf og skcmmzt mjög mikið. ökumaður Broncojeppans og tveir farþegar voru fluttir á Ökumaöur annars sendiferöabilsins fluttur í sjúkrabíl og þaöan á Slvsavaröstofu. Borgarspítalann. Ekki reyndist í gær unnt að fá uppgefið á slysadeild hve þetta fólk — ellefu talsins — var mikið meitt. Annríki var með mesta móti á Borgarspítalanum og hjúkrunarkona, sem blaðamaður DB ræddi við, sagðist ekki muna eftir öðru eins í langan tíma. Að sögn lögreglunnar mun þó margt af þessu fólki vera talsvert slasað. -AT- HRIKALEGAR HÆKKANIR PÓSTS 0G SÍMA Mjög verulegar verðhækkan- ir hafa nú verið leyfðar á simgjöldum og póstburðar- gjöldum. Afnotagjald hækkar úr kr. 2.350 i 2.900 á ársfjórðungi og gjald fyrir umframsímtal hækkar úr kr. 6.10 í kr. 7.50. Gjald fyrir l'lutning á síma hækkar úr kr. 7.800 í kr. 10 þús. Stofngjald fyrir sima hækkar úr kr. i5.800 í kr. 20.000. Skeytagjald hækkar um kr. 2.00 fyrir hvert orð. Telextækjaafnot hækka um 15,6%. Á öll ofangreind gjöld bætist að sjálfsögðu söluskatt- ur. Póstburðargjald fyrir almenn bréf hækkar úr kr. 27.00 í ki . 3;>.oo miumlands en úr kr. 35.00 i kr. i J() til útlanda. Fleira er í samræmi við þetta i nýrri gjaldskrá Pósts og síma og er gert ráð fyrir að gjaldahækkanir þessar neini 20% tekjuaukningu á ári. frjálst, úháð dagblað LAUGARDAGUR 27. MARZ 1976. Konurnar kunno að sýsla með fé: Kvennadagur- inn skilaði 800 þús. króna hagnaði! Það er ekki ofsögum ságt af ráðdeildarsemi kvenna en á morgun munu framkvæmda- nefnd og starfshópar um kvennafríið ljúka störfum og um leið afhenda kr. 800 þús- und sem er tekjuafgangur frá 24. október, sællar minningar. Peninganna var aflað með sölu merkis dagsins. Þessi myndarlega fjárupp- hæð verður afhent Kvenná- sögusafni Islands í Átthagasal Hótel Sögu kl. 3 á morgun og verður öllum sem koma boðið upp á kaffiveitingab. Aðalheiður Bjarnfreðs- dóttir, sem Dagblaðið kaus konu ársins 1975, kemur á fundinn og segir frá ferð sem hún fór til Danmerkur. Þangað var henni boðið af dönskum konum til þess að segja þeim frá kvejtnafrídeginum hér. Guðrún Á Símonar mun stjórna fjöldasöng og ýmislegt fleira verður til skemmtunar. —A.Bj. Verkamenn við Sigöldu segja: „Júgóslavar fara ekki að lögum" Islenzku verkamennirnir við Sigöldu telja júgóslavnesku verktakana ekki fara að lög- um. I gangi eru mótmælaað- gerðir. Þarna er ósamið við járn- bindingamenn, að sögn Sig- urðar Öskarssonar fram- kvæmdastjóra verkalýðsfélag- anna í Rangárvallasýslu. „Við gerðum samkomulag við Júgó- slavana um að þessir menn ynnu áfram meðan verið er að semja við þá,” sagði Sigurður í viðtali við Dagblaðið í gær, „en Júgóslavarnir hafa ekki viður- kennt að greiða skuli laun sam kvæmt gömlu samningunum meðan nýir hafa ekki verið gerðir. Það er þvi alls óvíst um kjör þessara manna og þeir ákváðu að vinna ekki aðra yfir- vinnu en þá venjulegu, þá sem„hefðbundin” er þarna. Þeir fóru til dæmis ekki til vinnu aðfaranótt fimmtudags. Samningafundur átti að verða klukkan hálftvö á fimmtudag en þá afboðuðu Júgóslavarnir hann.” —HH

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.