Dagblaðið - 27.04.1976, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐ.ÍUDAGUR 27. APRÍL 1976
Le.vniþjónusta Bandaríkj-
anna. CIA, hefur enn í þjón-
ustu sinni bandarískar einka-
stofnanir of> fjölda einstaklinga
í öllum mannfélagsstigum,
bæöi í Bandaríkjunum og er-
lendis, til þess aö viðhalda hinu
geysiumfangsmikla njósnakerfi
sinu.
Nefnd sú. er kannað hefur
starfsemi leyniþjónustunnar að
undanförnu, segir í skýrslu um
störf sin, sem birt var opinber-
lega í gær, að CIA hefði haft á
snærum sínum alls kyns
menntastofnanir, blaðamenn
og trúarstofnanir.
Segir þar ennfremur, að í dag
hafi leyniþjónustan „mennta-
menn í sinni þjónustu, — sjórn-
endur háskóla og háskólastúd-
enta sem vinni að leyniþjón-
ustu-og njósnastarfsemi.
„Menntamenn” þessir starfa
við meira en 100 ameríska há-
skóla víðs vegar um landið og
erlendis.
SKYGGNZTINN í DÝRÐINA
r r r r
INYUTKOMINNISKYRSLU
í nýtútkominni skýrslu rannsóknarnefndar þeirrar, er kannað hefur starfsemi bandarísku leyniþjónustunnar, kennir margra grasa,
encia startsemin fjölþætt og fræg af endemum.
Egyptaland:
Kínverjar gefa
Egyptum mikið
magn herbúnaðar
Kínverjar munu nú láta
Egyptum í té ókeypis vopn og
varahluti, eftir að hernaðarleg-
ur samningur var undirritaður
í Peking í síðustu viku af vara-
Erlendar
fréttir
REUTER
forseta Egyptalands, Hosni
Murbarak, segir í dagblaðinu
A1 Ankbar í Kairó.
Segir í dagblaðinu, að Kín-
verjar hefðu lagt á það áherzlu
að ekki þyrfti að borga fyrir
vopnin og að Mao formaður
hefði sagt við varaforsetann:
„Kína lætur þeim þjóðum sem
berjast fyrir frelsi sínu og
reyna að hrinda árásum í té
vopn, en stundar ekki vopna-
sölu.”
Ekki hefur verið greint frá
nánari smáatriðum í sambandi
við samninginn, en í síðasta
mánuði létu Kínverjar Egypt-
um í té vélar fyrir MIG herþot-
ur, sem framleiddar eru í
Sovétríkjunum og fjölda vara-
hluta, en Sovétmenn hafa neit-
að að afhenda Egyptum þessa
hluta þar eð sletzt hefur upp á
vinskapinn þar á milli og auk
þess eru Egyptar stór-
skuldugir.
Bretland:
AFRAM
LÁTINN
- LEIKARI
Leikarinn Sidney James, einn
af mestu gamanleikurum Breta,
féll niður á leiksviði í gærkvöld
og iézt skömmu síðar. Hann var 62
ára að aldri.
Leikarinn, sem var ættaður frá
Suður-Afríku, lék í meira en 180
kvikmyndum og var sérstaklega
þekktur fyrir hlutverk sín í
„Afram”-myndunum.
Leikarinn Sidney James þótti
oft fara á kostum, sérstaklega í
hlutverkum sínum í „Afram’-
m.vndunum.
Stonehouse
fyrir rétt í dag
John Stonehouse, þing-
maðurinn brezki, sem setti
drukknun sína á svið á Miami
fyrir rúmum átján mánuðum,
verður leiddur fyrir rétt í dag
sakaður um 23 afbrot, m.a. sam-
særi, fölsun, þjófnað og fölsun
skilríkja.
Ákærurnar byggja í höfuð-
atriðum á skuggalegum viðskipta-
háttum þingmannsins og að hann
hafi ætlað að græða á hvarfi sínu í
nóvember 1974. Hann var hand-
tekinn einum mánuði síðar í
Melbourne í Ástralíu, þar sem
hann var ákærður fyrir að konta
inn í landið með falskt vegabréf.
Ródesía: Stjórnin
fyrirskipat ritskoöun
Ríkisstjörn Ródesíu hefur nú
ákveðið uð taku upp nokkurs
konur ritskoðun Hefur þessu
verið ákaflega mótmælt, l.d. uf
eiganda einnur stærstu blaða-
keðju í landinu og uf formanni
samtaka' bluðamunna. Alll
hefur þó komiö lyrir ekki.
Að siign stjörnarvaldu er
þetta gerl til þess að berjast
gegn „starfsemi sk.eruliða og
gegn óeirðunt" og einnig til
þess uð létta á „gifuriegri sál -
rænni áreynslu, sem þjóðin
hefur oniiö að liðu" að
undanfiirnu.
Bandaríkin:
Patty nógu heilbrigð til
að fara í 6 mánaða
geðrannsókn
Patricia Hearst hefur nú öðlazt
heilsuna á ný, eftir að annað
lunga hennar sprakk. Hefur hún
nú verið flutt í fangaklefann á ný,
eftir tveggja vikna dvöl á sjúkra-
húsi.
Dómari úrskurðaði að Patty
skyldi sæta sex mánaða geð-
rannsókn og eftir að hún hefur
nú náð sér vegna sjúkdóms í
lungum, hefur hún nú verið
send til fangelsisins á ný.
Hearst, sem sakfelld var í sl.
mánuði fyrir aðild að bankaráni
árið 1974 með félögum sínum úr
Symbionesiska frelsishernum,
var útskrifuð af sjúkrahúsinu,
eftir að læknar höfðu lýst því yfir,
að hún væri orðin heil heilsuá ný.
Hinn 22ja ára gamli erfingi
milljónaauðæfa mun nú verða'
settur í geðrannsókn og læknis-
skoðanir næstu sex mánuði, en þá
á hún að mæta fyrir rétti á ný,
ákærð fyrir hlutdeild að öðru ráni
og misþyrmingum.
Morðingi Pasolinis á Ítalíu:
VAR EKKIEINN
AÐ VERKI
Hinn sautján ára gamli bana-
maður ítalska leikstjórans Pier
Pasolini var í gær dæmdur í
allt að níu ára fangelsi fyrir
ódæðið. Þó sagði í dómsupp-
kvaðningunni, að menn væru
sannfærðir um, að drengurinn
hefði ekki verið einn að verki.
Giuseppi Pelosi, sonur
bakara, játaði að hafa framið
morðið, eftir að Pasolini hefði
reynt að hafa við hann kyn-
ferðisleg mök, en hann neitað.
Niðurstaða dómaranna þess
efnis að hér hefði verið um
morð „með aðstoð fleiri
manna” að ræða er talið gefa
þeim skoðunum, að leikstjór-
inn hefði verið myrtur af
stjórnmálalegum ástæðum, byr
undir báða vængi á ný. Pasolini
var ákafur marxisti og er álit
margra að hann hafi verið
fórnarlamb samsæri.,.
Lik leikstjórans fannst áyfir-
gefinni strönd og hafði
manninum verið misþyrmt illa.
Telja fróðir rnenn, að ntorðingi
hans hafi alls ekki getað verið
einn að verki.
Dœmdur í 9 ára
fangelsi