Dagblaðið - 27.04.1976, Blaðsíða 9
DACBLAÐH). ÞKIÐ.JUDACUK 27. ADKll. 1976
Nýjar hugmyndir um fiskirœkt:
„YRÐIALGJÖR
STEFNUBREYTING"
„Þetta eru að mínu mati
mjög heillandi hugmyndir
en hér er • auðvitað stór
spurning um fjármagn
innifalin.” sagði Jónas
Bjarnason hjá Sjávar-
rannsóknum í viðtali við
Dagblaðið um hugmyndir
Eyjólfs Friðgeirssonar
fiskifræðing þess efnis að
koma af stað klaki þorsk-
seiða á landi og hjálpa þeim
þannig yfir erfiðasta
hjallann á vaxtarskeiði
þeirra.
„Svipaðar tilraunir voru
gerðar í Bretlandi fyrir
nokkrum árum og eftir því
sem mér skilst kom ekki
mikið út úr þeim,” sagði
Jónas ennfremur. „Ég held
sjálfur að það verði að gera
nokkuð umfangsmikla
ræktunartilraun til þess að
einhver árangur sjáist og þá
er þetta orðið allstórt fjár-
hagsvandamál.”
Ekki taldi Jónas að
hugmynd Eyjólfs hefði verið
rædd mikið hjá yfirmönnum
fiskiræktar við landið en
endurtók að sér fyndist
hugmyndin spennandi.
Þó taldi hann ýmsa
vankanta á framkvæmd
hennar, m.a. væri eftir að
kanna til hlítar efnasam-
setningu salta í uppsprettu-
vatni sem Eyjólfur vill not-
færa sér í Vestmannaeyjum
og á Reykjanesskaga og svo
auðvitað það að hér yrði um
algjöra stefnubreytingu í
fiskirækt að ræða. -HP.
Kartöf lurnar í 5 kílóa
pokum enn um sinn
Kartöflukaupendur verða enn
um sinn að kaupa varninginn í
fimm kílóa pokum, að minnsta
kosti út þessa viku. Að sögn Páls
Ólafssonar hjá Grænmetisverzlun
landbúnaðarins er ástæðan fyrir
því að kartöflur hafa ekki fengizt
í 2Vi kílóa pokum sú að miklu
meiri vinna er í því að pakka í
smærri umbúðirnar og enn hefur
ekki gefizt tími til þess. „En það
verður gert, þegar um hægist —
kannski í næstu viku,” sagði Páll.
Pólsku kartöflurnar, sem nú
hafa verið á markaðinum í nokkr-
ar vikur, eru mun betri í útliti
en þær mexikönsku, sem bárust
er kartöfluskorturinn var í al-
gleymingi. Pólskar kartöflur
verða til sölu hér á landi allt fram
í júní. Þá fer Grænmetisverzlunin
að leita fyrir sér um evrópska
sumaruppskeru. Sennilega verða
italskar kartöflur fyrstar fyrir
valinu.
—ÁT—
Klettaeyjan ísland:
„Okkur vantar grjót"
„Satt bezt að segja þá vantar
okkur grjót,” sagði Sigurgeir
Sigurðsson bæjarstjóri á Sel-
tjarnarnesi. í viðtali við Dag-
blaðið um það hvað væri til
ráða varðandi hið sífellda land-
brot við strendur nessins. „Við
höfum reynt að hækka grand-
ana og við hirðum grjót alls
staðar sem við getum náð í það”
Sigurgeir sagði að þeir
reyndu að fylgjast með hvort
eitthvert nothæft stórgrýti
fyndist í húsgrunnum og eins
reyndu þeir aö bera víurnar i
framkvæmdir hjá verktökum.
„Svæðið er að verða grjót-
laust, þótt undarlegt megi
virðast”, sagði Sigurgeir enn-
fremur. „Ég á ekki von á því að
borgarverkfræðingur sé.aflögu-
fær.”
Sagðist Sigurgeir vona að
ekki kæmi til þess að þeir
þyrftu að fara að steypa upp-
fyllingarsteina, eins og þeir
gera í Þorlákshöfn, en þó gæti
það orðið þrautalending.
—HP
MYNDIR FRÁ FJARLÆGUM
STÖÐUM Á MOKXA
Um sextíu ljósmyndir frá
ýmsum fjarlægum stöðum eru til
sýnis á Mokkakaffi, Skóla-
vörðustig, um þessar mundir.
Myndasmiðurinn er ungur
maður, Örn Ásbjarnarson, sem er
mikill áhugamaður um
ljósmyndun og hefur hann tekið
þessar myndir á sl. sex árum.
Örn er kennari að mennt en
hefur undanfarin ár unnið hjá
flugafgreiðslu Flugleiða á Kefla-
víkurflugvelli. Hefur hann
ferðazt. víða um lönd, meðal
annars til Singapore, Thailands,
Luxemborgar og Grænlands.
Sýnir hann myndir frá þessum
stöðum og einnig nokkrar myndir
frá íslandi. Ljósm.: DB-
Björgvin./-A. Bj.
Styrktarfélag lamaðra og
fatlaðra fœr peningagjöf
Styrktarfélag Iamaðra og
fatlaðra fékk nýlega í hendur
rausnarlega gjöf frá ættingjum
Ingveldar Rögnvaldsdóttur sem
lézt 30. október 1975. Gjöfin er
skuldabréf og peningar að
upphæð 196.386 krónur.
A
Dada Dharmapala í eimii al' stollingimi sínuni.
DB-mynd Björgvin
Bandarískur yogi
kennir íslendingum
að bœtu sjólfa sig
Um þessar mundir er
staddur hér á landi bandarísk-
ur yogi, Dada Dharmapala að
nafni. Hann er hér á vegum
íslandsdeildar félagsskapar,
sem kallar sig Ananda Marga.
Dharmapala kom hingað sl.
föstudag og hefur síðan flutt
fyrirlestra í Re.vkjavík, stund-
um tvo á dag. Einnig kennir
hann fólki frumatriðin í fræð-
um sínum.
Dada Dharmapala kennir
fólki að lækna sig af sjálfselsku
og losna við taugaóstyrk.
Orkuna sem sparast við að
losna við sjálfselsku og óst.vrk á
svo að nota lil að skvnja hinn
ötakinarkaða hæfileika mann-
skepnunnar ef hún einbeitir
sér af alefli að einhverju.
Félagsskapurinn Ananda
Upphafsmaður hreyf-
ingarinnar hefur
fastað i þrjú ór og
lifir ó tveim bollum
af vatni á dag
Marga starfar í 60 löndunt.
Ekki er hann þó jafnvel séður
alís staðar því að fjögur þjóð-
liind hafa bannað hann. Þau
eru Indland. írak, Egyptaland
:>g Kenýa. Astæðan fyrir því að
þéssi lönd banna hreyfinguna
_>r sú að sögn Dharmapala, að
nún kallar á bætur lil hins
K'tra.
i Indlandi eru kennarar
Ananda Marga ýmist í fang-
alsum, í felum eða á sjúkrahús-
um. Upphafsmaðurinn situr í
fangelsi og hefur fastað þar í
meira en þrjú ár! A hverjum
degi drekkur hann tvo bolla af
vatni og siðan ekki söguna
meir. Þar éð upphafsmannin-
um hefur tekizt að lifa svona
lengi á ekki fjölbreyttara fæði
ihugar indverska stjórnin nú að
efna til réttarhalda yfir honum.
Síðustu fyrirlestrar Dada
Dharntapala í Reykjavík verða
í dag i Háskóla islands og að
Fríkirkjuvegi 11 klukkan átta í
kvöld. Á næstu dögum mun
hann heimsækja Ákranes.
Akure.vri og Keflavík. Yoginn
fer héðan um næstu helgi.
—ÁT—