Dagblaðið - 18.06.1976, Page 12

Dagblaðið - 18.06.1976, Page 12
12 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. JUNÍ 1976. DAGBI.ADID. FÖSTUDAGUK 18. JUNt 197»;. Þrír reknir af vellinum — þegarTékkar sigruðu Hollendinga Tékkar tryggdu sér rétt í úr- slitaleik Evrópukeppni landsliða, þegar þeir unnu Hollendinga 3-1 eftir framlengdan leik í Zagreb á miðvikudag. Það var leikur, þar sem dómarinn Clive Thomas Wales Iék aðalhlutverkið — og það svo furðuiega að á köflum botnuðu hvorki áhorfendur né leikmenn í dómum hans. Thomas rak tvo hollenzka leik- menn af velli — þá Johan Neeskens og Willy van Hanegen en áður hafði hann rekið Tékkann Jaroslav Pollak af velli. Fyrirliði Tékka, Anton Ondrus, skoraði á 20. mín. — en varð svo fyrir því að skora sjálfsmark á 74. mín. 1-1 stóð eftir venjulegan leiktíma, en Zdenek Nehoda á 114. mín. og Frantisek Veseley á 119. mín. tryggðu 3-1 sigur Tékka. Tékkar höfðu mikla yfirburði framan af og komu Hol- lendingum á óvart með því að sækja frá byrjun. Hollendingar náðu ekki tökum á leiknum og vörn þeirra lenti oft í erfið- leikum. Tékkar hefðu átt að skora oftar í f.h. Schrijvers varði snilldarlega frá Masny og Nehoda tókst ekki að koma knettinum í autt mark Hollendinga á 30. mín. Risjbergen tókst að komast fyrir knöttinn — en meiddist og kom van Hanegen í hans stað. A 58. mín. rak dómarinn Bollak af velli fyrir brot á Johan Neeskens, sem fór af velli í 2 mín. vegna smámeiðsla. 18 mín. síðar rak dómarinn Neeskens svo af velli vegna brots á Nehoda — og á 114. mín. fullkomnaði hann þrennu sína, þegar hann rak van Hanegen af velli vegna mótmæla,- þegar Tékkar skoruðu sitt annað mark. Þá bókaði hann einnig Kerkhof og John Cruyff hjá Hollandi og Masny, Tékkóslóvakíu. Bandarísk met í sundi Shirley Babashoff setti banda- rískt met i 200 m skriðsundi á úrtökumóti fyrir Olympíuleikana á miðvikudag. Synti á 2:02.17 mín. og bætti met sitt um tvo hundruðustu úr sekúndu. Það var heimsmet — en Kornelia Ender, A-Þýzkalandi, bætti það nýlega — synti innan við tvær mínútur. Önnur i sundinu á Lönguströnd á miðvikudag varð Brenda Borgh á 2:03.81 mín. Heimsmethafinn í 200 m bringusundi, John Hencken, náði sínum bezta tíma í ár — synti á 2:18.99 mín. Það er annar bezti árstíminn — Skotinn frægi, David Wilkie hefur synt á 2:18.48 min. Auðvelt hjó Svíum Svíar unnu auðveldan sigur 2-0 á Norðmönnum í HM-leik landanna i Stokkhólmi á miðvikudag. Það var í sjötta riðlinum í Evrópu. Svíar náðu algjörum tökum á miðju vallarins og sköpuðu sér góð færi, en mörkin urðu aðeins tvö vegna snilli Tom Jacobsen í norska markinu. A 27. mín. skoraði Björn Andersson fyrra markið af 10 metra færi eftir sendingu frá Thomas Sjöberg. A 42. mín. skoraði Sjöberg sjálfur. 1 s.h. virtust Svíarnir ánægðir með að halda forskoti sínu — en rétt fyrir lokin fengu Norðmenn gott tækifæri, sem Goye Skistad misnotaði illa. Roland Sandbcrg meiddist á 32. mín. og kom Jan Mattsson í hans stað — og 12. mín. síðar varð Norðmaðurinn Tor-Egil Johannesen að yfirgefa völlinn vegna meiðsla. Jörn Tronstad kom í hans stað. Ahorfendur voru 30.500. Fallegur still Bjarkar Eiríksdóttur, IR, í hástökkinu í gær — og Björk varð sigurvegari í spjótkasti á þjóðhátíðarmótinu, kastaði 30.16 m. DB-mynd BP. Breyting á leikkerfinu kom Fœreyingum úr jafnvœgi! — Guðmundur Þorbjörnsson skoraði tvö mörk í sínum fyrsta landsleik — Fimm íslenzkir leikmenn lélcu í fyrsta skipti í landsliðinu Þetta var ákafiega ánægjuleg ferð og landsleikurinn við Færey- inga gekk prýðilega. Færeyingar léku í fyrri hálfleiknum betur en ég hef séð til þeirra áður — en síðan náðu strákarnir okkar sam- an og sigurinn varð stór, 6-1 eftir 1-1 í hálfleik, sagði Jens Sumar- liðason, fararstjóri, er Dagblaðið ræddi við hann, þegar íslenzku landsliðsmennirnir komu frá Færeyjum um sex-leytið í gær. Liðið, sem byrjaði hjá okkur, var þannig skipað: Arni Stefánsson, Fram, Ölafur Sigur- vinsson, ÍBV, Jón Gunnlaugsson, ÍA, Marteinn Gcirss., Fram, Jón Pétursson, Fram, Ásgeir Elíasson, Fram, Viðar Halldórsson, FH, Árni Sveinsson, lA, Matthías Hallgrímsson, ÍA, Teitur Þórðar- son, ÍA, og Guðmundur Þor- björnsson, Val. Strax í byrjun leiksins fékk Guðmundur tvö mjög góð tæki- færi, sem honum tókst ekki að Afrek tugþrautarmannsins var Ijósasti punkturinn! — Stef án Hallgrímsson, KR, varpaði kúlunni 15,70 metra á þjóðhátíðarmótinu Það var ekki mikil reisn yfir þjóðhátíðarmóti frjálsíþrótta- manna í gær og fyrradag — og kannski ekki við því að búast, þar sem margt af bezta frjálsíþrótta- fólki landsins er við æfingar og keppni erlendis. Mesta athygli vakti kúluvarp Stefáns Hallgrímssonar, KR, sem varpaði kúlunui 15,70 metra, og bætti árangur sinn í greininni um 48 sentimetra. Það telur vel í tug- þrautarkeppni, sem Stefán leggur aðaláherzluna á. Að sögn fróðra manna er Stefán nú með árangur í greinum fyrri dags tugþrautar eins og bezt gerist í heiminum. Hreinn Halldórsson, KR, sigraði í kúluvarpinu — varpaði 18.83 m og Guðni Halldórsson, KR, varð annar með 17.40 metra þannig, að þeir voru báðir nokkuð frá sínu bezta. Áhugi áhorfenda í gær beindist að Þórdísi Gísla- dóttur, ÍR, sem setti ágætt ísland- met í hástökki í Finnlandi á dögunum — stökk þá 1.73 metra. Þórdísi, sem aðeins er 15 ára, tókst ekki að komast nálægt þeim árangri. Stökk 1.66 m, sem þó er einum sentimetra betra en hún átti fyrir Finnlandsmetið. Reyndi síðan við 1.69 m en felldi í öll þrjú skiptin. Þær Hrafnhildur Val- björnsdóttir, Á, og íris Jónsdóttir, UBK, urðu í öðru og þriðja sæti með 1.60 metra. Friðrik Þór Óskarsson, IR, er í mikilli framför í stökkunum. Hann stökk lengst 15.21 metra í þrístökki — stökk einnig 15.05,15.00 og 14,94 m í keppninni KR vann KR sigraði Fylki 1-0 í úrslitaleik Reykjavikurmótsins í 1. flokki á miðvikudag. Baldvin Baldvinsson skoraði mark KR — og leikmenn Fyihi . verða því að bíða um sinn að komast í meistaraflokk Reykjavíkurmótsins. ^ Nölurlrgur siaður. — þótt hann sé ekki alveg heill. Það er auðvitað langt í íslandsmet Vilhjálms Einarssonar, ÍR, 16,70 metra — en Olympíulágmarkið 15,90 m er ekki fjarlægur draumur hjá Friðriki. í lang- stökki sigraði hann einnig — stökk 7.09 og átti annað stökk, sem mældist 7.06 metra. I 200 m hlaupinu vakti athygli að Sigurður Sigurðsson, Á, sigraði Bjarna Stefánsson, KR. Munurinn var þó lítill — Sigurður hljóp á 22.3 sek., en Bjarni, sem litið hefur getað æft vegna prófa, hljóp á 22.4 sek. í 100 m sigraði Sigurður á 11.3 sek. I mótvindi og Magnús Jónasson, Á, varð annar á 11,5 sek. Bjarni sigraði hins vegar í 400 m á 50.0 sek. og Þorvaldur Þórsson, UMSS, varð annar á 52.1 sek. Það er nýtt Skagafjarðarmet og þessi 18 ára Skagfirðingur er bráðefnilegur hlaupari. I kringlukasti var mikil keppni — en árangur ekki sá, sem búizt var við. Guðni Halldórsson kastaði 49.92 m í fvrstu tilraun — og það var ekki fyrr en í fimmtu umferðinni, sem Hreini Halldórs- syni tókst að bæta þann árangur. Nýi þjálfarinn frá KR skoraði eina markið! Víkingar Ólafsvík sigruðu „erkifjendurna“ Snæfeli úr Stykkishólmi, á miðvikudags- kvöldið í fyrsta leik liðanna í E- riðli 3. deildar í knattspyrnu. Leikurinn var mikill „rok“- leikur og bar keim af þvi. Eina mark leiksins skoraði hinn nýi þjálfari Víkinganna, Gunnar Gunnarsson, sem áður iék með KR. I Grundarfirði sigruðu heimamenn V-Húnvetninga með 5-0 i sömu keppni. — RM — Kastaði þá tveimur sentimetrum lengra og sigraði á 49.94 m. Elías Sveinsson, KR, varð 3ji með 46.64 m — gott hjá tugþrautarmanni. Elías sigraði í hástökki með 1.95 m. Um aðrar greinar er það að segja, að Lára Sveinsdóttir, Á, — nýútskrifaður íþrótta- kennari — sigraði í langstökki með 5.38 m Hafdís Ingimars- dóttir, UBK, varð önnur með 5.29 m og Erna Guðmundsdóttir, KR, 3ja með 5.25 m. Bjarki Bjarnason, Aftureldingu, sigraði I 1500 m hlaupi á 4:18.3 mín. Elías Sveins- son í spjótkasti 60.62 m Sigrún Sveinsdóttir, Á, í kúluvarpi, 9.08 m. Valbjörn Þorláksson, KR, í 110 m grindahlaupi á 15.7 sek Kristín Jónsdóttir, UBK, í 100 m hlaupi á 13.3 sek. María Guðjohnsen, ÍR, önnur á 13.4 sek. Hafsteinn Óskarsson,ÍR, í 800 m hlaupi, 2: 02.2 mín. rétt á undan bróður sínum Þorgeiri Öskarssyni, ÍR, 2:02,5 mín. og Bjarki Bjarnason þriðji á 2:04.3 mín. Valur skoraði þrjú fyrstu mörkin — en IBV iafnaði! Efstu liðin í 1. og 2. deild — Valur og Vestmannaeyjar — notuðu tækifærið í gær og léku æfingaleik í Eyjum. Það var hörkuskemmtilegur leikur og lauk með jafntefli 3-3 þó svo Vals- menn skoruðu þrjú fyrstu mörk leiksins. Bæði lið voru án lands- liðsmannanna, sem léku í Færeyjum, en þar voru þrír Valsmenn og Ólafur Sigurvins- son, ÍBV. Valsmenn voru sterkari í byrjun og eftir aðeins sex mín. skoraði Albert Guðmundsson fyrst mark Vals. Þremur mín. síðar sendi Ingi Björn Albertsson knöttinn í mark Eyjaskeggja eftir sendingu Hermanns Gunnars- sonar — og Hermann skoraði 3ja mark Vals úr vítaspyrnu á 26.mín. eftir að Inga Birni hafði verið brugðið. Sveinssyni — og mínútu fyrir leikhléið skoraði Örn aftur. Nú úr vítaspyrnu, sem dæmd var, þegar Valsmaður sló knöttinn með höndunum innan vitateigs. í síðari hálfleiknum jafnaði nýi markakóngurinn í Eyjum, Sigur- lás Þorleifsson. Það var á 62. mín. og fleiri urðu mörkin ekki, þó svo heimamenn fengju sin tækifæri, því kergja hljóp í leik nýta, en Matthías skoraði svo fyrsta mark leiksins. Færeying- um tókst að jafna — og það var mikið klaufamark. Árni Stefáns- son hljóp úr markinu og ætlaði að grípa knöttinn — hætti við það á síðustu stundu og sló knöttinn í þess stað. En það tókst ekki betur en svo, að knötturinn fór beint framan í einn færeyska sóknar- manninn og í markið. Færeysku leikmennirnir léku af miklum krafti fyrri hálfleikinn — gáfu okkur aldrei tækifæri til að byggja upp spil okkar, sagði Jens epnfremur. En það breyttist I síðari hálf- leiknum. Strax á 9. mín. hálfleiks- ins skoraði Teitur annað mark okkar — og Matthías það þriðja skömmu síðar. Ölafur Danivals- son, FH, sem kom inn á þegar um 20 mín. voru af hálfleiknum, skoraði fjórða mark íslands — en Guðmundur Þorbjörnsson tvö þau síðustu. Leikurinn var háður á nýjum velli, sem tekinn var i notkun í fyrrahaust — og er góður af malarvelli að vera. Áhorfendur voru um 3000 eða fleiri en nokkru sinni áður I Þórshöfn, sagði Jens að lokum. Tony Knapp, landsliðsþjálfari, breytti leikskipulaginu úr 4-3-3 í 4-4-2 í síðari hálfleiknum og það kom Færeyingum alveg í opna skjöldu. Þeir áttuðu sig ekki á því, þegar bakverðir okkar brun- uðu upp kantana, sagði Árni Þorgrímsson, landsliðsnefndar- maður og fararstjóri, og þá stóð ekki á mörkunum. Þrjár breyt- ingar voru gerðar á islenzka liðinu í síðari hálfleik. Ólafur Danivalsson kom I stað Teits — Tvöfalt hjá Ferencvaros Ferencvaros, ungverska liðið fræga, sigraði bæði í deild og bikar í Ungverjalandi. A mið- vikudag varð félagið deilda- meistari eftir 3-1 sigur gegn Zalaegerszeg og hlaut 46 stig. í öðru sæti varð Ujpesti Doza með 42 stig. Aður hafði Ferencvaros sigraði MTVK í bikarúrslitunum og mun það lið þvi leika í Evrópu- keppni bikarhafa næsta leiktima- bil. — síðan Vilhjálmur Kjartansson, Val, fyrir Ölaf Sigurvinsson, og upp úr miðjum hálfleiknum Atli Eðvaldsson, Val, fyrir Matthías. Fimm leikmenn léku því þarna sinn fyrsta landsleik — Vals- mennirnir Guðmundur, Vil- hjálmur og Atli, og Viðar og Ólafur úr FH. Mér fannst færeyska liðið merkilega gott lengi vel, sagði Árni ennfremur, og þetta er mjög nauðsynlegur þáttur i starf- semi okkar að leika við Færey- inga — Hvergi betra að koma og Færeyingar í sókn á knatt- spyrnusviðinu. St. Etienne enn meistari St. Etienne varð Iranskur meistari þriðja árið i röð þegar liðið sigraði Avignon, neðsta liðið í 1. deildinni frönsku, með 4-0 á miðvikudag. « Þórunn Alfreðsdóttir. Ægi, eftir Islandsmetið í Laugardalslaug í gær. DB-mvnd BP. íslandsmet - en Olympíu- lógmörkin stóðust ótökin Við höfum tækifæri út þennan mánuð að reyna við olympíulág- mörkin í sundinu. Það munaði aðeins hársbreidd hjá þeim Vilborgu Sverrisdóttur, SH, og Þórunni Alfreðsdóttur, Ægi, að ná mörkunum — og báðar settu ágæt íslandsmet, sagði Torfi Tómasson, formaður Sundsam- bands tslands, inni í Laugar- dalslaug í gær á þjóðhátíðar- mótinu í sundi. Þær Vilborg og Þórunn munu báðar keppa á Sundmeistara- mótinu nú um helgina og Reykja- víkurmótinu um þar næstu helgi — og við gerum okkur góðar vonir um, að þær nái þá til- skildum árangri, ságði Torfi enn- fremur. á mótinu á miðvikudagskvöld, 16. júní, voru tvær aukagreinar auk þess, sem meistaramótið hófst — keppni á lengri vega- lengdunuin. Vilborg bætti met sitt verulega í 200 m. skrið- sundinu og var aðeins sundtaki frá að ná olympiulágmarkinu Synti á 2:15.4 mín. en eldra Islandsmet hennar var 2:16.7 mín. sett í 8-landa-keppninni í Cardiff nýlega. Ölympíu- lágmarkið er 2:15.0 mín. — og Vilborg hafði enga keppni í RITSTJORN: HALLUR SIMONARSON sundinu. Þórunn synti 200 m flug- sund á 2:30.1 mín. — Islandsmet hennar er 2:29.65 mín. og olympíulágmarkið 2:29.0 mín. Ég held að það muni ekki reynast Þórunni erfitt að ná þvi marki ef hun fær keppni við góð skilyrði, sagði Guðmundur Harðarson, landsliðsþjálfari. í gær — og sama er að segja um Vilborgu. Það var of kalt til að ná toppárangri á mótinu nú. Islandsmetin stóðust þó ekki átökin. Auk íslandsmets Vil- borgar setti Þórunn nýtt íslandsmet í 100 m flugsundi í gær — svnti á 1:09.8 mín. Eldra rnet hennar var 1:10.0 mín, Bára Oiafsdóttir, Á — sundkona í mikilli framför — veitti henni harða keppni alveg framundir það síðasta. Synti 1:11,8 mín. í 100 m. skriðsundinu var Vilborg nærri íslandsmeti Lísu Ronson — synti á 1:03.6 mín., en metið er 1:03.3 rr.in. Olympíulágmarkið er 1:02.5 mín. Bára varð önnur á 1:05.4 mín. og Þórunn 3ja á 1:06.6 mín. Þá vakti Guðný Guðjónsdóttir athygli — aðeins 13 ára og synti á 1:13.1 mín., sem er betri árangur en móðir hennar, sundkonan kunna, Ágústa Þor- steinsdóttir, náði. þegar hún setti fyrst íslandsmet á vegalengdinni 1:13.2 mín. Þá var Ágústa 15 ára og synt var í 25 metra laug. Sigurður Ólafsson, Ægi, sem náð hefur Olympíulágmarkinu í 200 m skriðsundi, synti 100 m skriðsund á 57.2 sek. í gær — 1.7 sek. frá íslandsmeti Finns Garðarssonar.Axel Alfreðsson, Ægi, varð annar á 59.2 sek. og Arni E.vþórsson. A 3ji a 59.7 sek. I 100 m. flugsundi sigraði Axel á 1:05.2 mín. Árni varð annar á 1:06.2 mín. Sigurður 3ji á 1:07.1 mín. og sama tíma fékk BrynjólfurBjörnsson, Á. Á íslandsmótinu á miðvikudag varð Sigurður Ólafsson Islands- meistari i 1500 m sundi á 17:41.0 mín. Of lítill byrjunarhraði kom í veg fvrir. að hann bætti Islands- met Friðriks Guðinundssonar á vegaieiigdiuni. Axel varö annar á 18:02.0 mín Brvn jólfur 3ii ál8:02.0 niín, og Arni íjor.ði 18.13.8 luin. 1 800 m skriðsundi kvenna varð Bára Ölafsdóttir íslands- meistari-----synti á 10:15.8 min. Hrefna Rúnarsdóttir, Æ, varð önnur á 10:45.3 min. I 400 m bringusundi karla varð Hreinn .lakobsson, A. Islandsmeistari á 5:55.8 inín. Hermann Alfreðsson. K varð annar á 5:56.3 min. Af rek heims- meistaranna — unnu upp 2ja marka forskot! — og leika til úrslita viðTékkaí Evrópukeppni londsliðo Vestur-þýzku heimsmeistararn- ir i knattspyrnu — og um leið Evrópumeistararnir — unnu mikið afrek í Belgrad i gær í. Evrópukeppni landsliða í undan- úrslitum við Júgóslava. Hreint ótrúlegt afrek, því Slavarnir vel studdir af tugþúsundum áhorf- enda í Belgrad náðu tveggja marka forskoti í fyrri hálfleik. Þjóðverjum tókst að jafna í 2-2 i venjulegum leiktima — og skoruðu svo tvö mörk til viðbótar í framlengingu. Sigruðu því 4-2 í frábærum leik. Það voru tveir varamenn hjá Þjóðverjum, sem voru hetjur i leiknum — einkum þó Dieter MuIIer, sem kom í stað Wimmer á 79. min. og skoraði þrjú mörk í leiknum!! — og það í sínum fyrsta landsleik. Júgóslavar virtust stefna í ör- uggan sigur framan af — og kannski nokkur óheppni, að þeim skyldi ekki takast að sigra i leikn- um. Á 19. mín. náðu þeir forustu með marki Danilo Popivoda, sem leikur með Eintracht Brunswick, og á 31. mín. kom Dragan Dzajic Júgóslavíu í 2-0. Þýzka liðið átti í miklum erfiðleikum vegna frá- bærs sóknarleiks Slavanna. En í síðari hálfleiknum snerist dæmið við eftir að þýzka liðið hafði skorað heppnismark á 65. mín. — og úthald Júgóslava brást. Flohe, sem kom í stað Danner eftir leikhléið, átti fast skot af löngu færi að júgóslavneska markinu — en innan vítateigs hrökk knötturinn í Beer og breytti stefnu þannig að Olja Petrovic, júgóslavneski mark- vörðurinn, hafði ekki möguleika á að verja. Og svo kom Dieter Muller inn á á 79. mín. og mínútu síðar jafnaði hann — skallaði knöttinn i mark eftir hornspyrnu. 1 lokin reyndu Júgóslavar allt sem þeir kunnu og á 89. mín. munaði litlu. Eftir þrumufleyg Dzajic smaug knött- urinn framhjá stöng þýzka marksins. En framlenging var staðreynd og á 2. mín. hennar átti Dzajic aðra spyrnu, sem rétt smaug yfir þverslá. En svo náðu Þjóðverjar alveg yfirtökunum. A 115. min. skoraði Muller annað mark sitt í leiknum — og á 119. mín. það þriðja. Þjóðverjar leika því-til úrslita við Tékka á sunnu- dag í Belgrad — en Júgóslavar við Hollendinga um 3ja sætið á laugardag. Hollenskir knattspyrnu- og œfingaskór Mjög hagstœft verð

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.