Dagblaðið - 05.07.1976, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ — MANUDAGUR 5. JÚLl 1976
„Þetta gat enginn ísraelsmaður þolað":
DRAPU ALLA SKÆRUUÐANA,
FÓRU 1M> GÍSIANA HEIM!
áhlaupinu var lokið eftir
aðeins 36 mínútur
„Myndin af þj'zkri konu og
þS'zkum manni aö miöa byssum
á gyðinga enn einu sinni var
mynd sem enginn ísraelsmaður
gat þolað," sagði Simon Peres,
varnarmálaráðherra Israels, á
fundi með fréttamönnum i Tel
Avív í gær eftir að fregnir voru
kunnar af atburðum i Uganda.
Það var um miðnætti á
laugardag sem þrjár ísraelskar
herflutningavélar lentu á
Entebbe-flugvelli í Uganda eft
ir að hafa flogið um fjögur
þ.úsund kílómetra leið. Það sem
síðan gerðist hefur varnarmála-
ráðherrann ísraelski kallað
„glæsilegt, djarflegt og
einstakt" hernaðaráhlaup.
Gíslarnir hundrað voru
fluttir til Tel Aviv, þar sem
þeim var fagnað gifuiiega.
Stemmningin á götum úti er
sögð hafa helzt líkzt
stemmningunni eftir sigur
ísraelsmanna i sex daga
stríðinu 1967.
Idi Amin, forseti Uganda, var
ekki eins ánægður I yfirlýsingu
hans, sem útvarpað var frá
höfuðborginni Kampala, sagði
Amin að tuttugu menn úr her-
sveitum hans hefðu fallið og
þrjátíu og tveir særzt. Að auki
voru skæruliðarnir sjö drepnir.
Amin kvartaði sáran yfir því að
„ísraelsmennirnir drápu menn
okkar í staðinn fyrir að þakka
þeirn fyrir þá aðstöðu sem
gíslunum var látin i té."
ísraelsmenn hafa sakað
Amin um að hafa tekið afstöðu
með skæruliðunum, sem
rændu Air France-flugvélinni
fyrir viku.
Áhlaupið á flugstöðina á
Entebbe-flugvelli, þar sem
gyðingarnir voru í gíslingu, tók
aðeins hálftíma. En það kostaði
alla skæruliðana lífið, tuttugu
Uganda-hermenn og fjóra
gyðinga, þar af þrjá úr hópi
gíslanna. Að auki eyðilögðust
ellefu herþotur Uganda-hers
þegar ísraelsku hermennirnir
skutu á þær og vörpuðu hand-
sprengjum i allar áttir.
tsraelsku hermennirnir voru
fallhlífarhermenn og land-
gönguliðar sem komu með
þremur C-130 Hercules
flutningaflugvélum inn til
Entebbe hálfum sólarhring
áður en fresturinn, sem
skæruliðarnir höfðu gefið til að
verða við kröfum þeirra um
frelsi 53 skæruliða víðsvegar í
fangelsum heimsins, rann út
um hádegi í gær. Skæruliðarnir
rændu flugvélinni yfir Grikk-
landi fyrir viku og höfnuðu í
Uganda.
tsraelsmenn höfðu lýst því
yfir að þeir væru reiðubúnir að
semja um skipti á fangelsuðum
skæruliðum og gíslunum en
það hafa þeir ekki viljað til
þessa. Því kom skyndiáhlaupið
á Entebbe mjög á óvart.
Einn gíslanna sagði við heim-
komuna til Tel Aviv að þegar
ísraelsku hermennirnir hófu
Móðursýkislegir ættingjar þyrpast utan um grátandi stúlku, sem slapp á ævintýralegan og bióðugan
hátt úr prísundinni í Uganda. Stemmningunni í ísrael, þegar fréttist um að tekizt hefði að frelsa
gíslana úr haldi og drepa ræningja þeirra, hefur verið líkt við sigurdaginn í sex daga stríðinu 1967.
SÍMAMYND UPl í MORGUN.
skothríðina hefði hann fyrst
haldið að skæruliðarnir væru
nú farnir að berjast við
Uganda-hermennina sem um-
kringdu flugvöllinn.
,,Allt í einu var hurðinni
sparkað upp,“ sagði Ilan
Hartuv frá Jerúsalem, „og
hermennirnir okkar kölluðu til
okkar á hebresku: Komið heim,
við erum með flugvélar fyrir
ykkur.“
Þrjátíu og sex mínútum
eftir að Israelsmennirnir lentu
á flugvellinum voru vélarnar
þrjár farnar af stað aftur með
alla gíslana innanborðs. Þær
millilentu í Nairobi í Kenya og
þar voru einhverjir særðir
gíslar skildir eftir.
Á ísraelska þinginu í gær,
sagði Yitzhak Rabin forsætis-
ráðherra: „Þessi aðgerð verður
þjóðsaga. Hún er framlag
Israels í baráttunni gegn
hryðjuverkastarfseminni,
þeirri baráttu er ekki lokið.“
Yitzhak Rabin:
„BJOST
HÆRRA
Yitzhak Rabin, forsætisráð-
herra Israels, viðurkenndi í
sjónvarpsviðtali í gærkvöld að
hann hefði búizt við því að að-
gerðirnar í Uganda, þegar gísl-
unum hundrað var bjargað þar,
yrðu kostnaðarsamari en raun-
in varð.
„Þegar þetta var ákveðið
taldi ég víst að við yrðum að
greiða árangur okkar hærra
verði." sagði Rabin.
m
VERDI"
Hann kvaðst þess fullviss að
aðgerðin í Uganda hefði greitt
alþjóðlegri hryðjuverkastarf-
semi þungt högg.
Rabin sagði að ef skærulið-
arnir heföu f^llizt á hugmyndir
ísraelsmanna um skipti á
skæruliðum og gíslum — t.d.
bæði hvað varðaði fjölda og til-
högun skiptanna — hefðu tsra-
elsmenn látið verða af skiptun-
um.
Mordechai Gur hershöfðingi, forseti ísraelska herráðsins, útskýrir
áhlauuið á flugstöðina á Entebbe-flugvelli fyrir fréttamönnum i
Tel Aviv i gær. Iiann bendir á kort af flugstöðinni. Simamvnd UPI i
morgun.
Portúgal:
Stuðningsmenn
Carvalhos mynda
„alþýðufylkingu"
Stuðningsmenn róttæka
vinstrisinnans Otelos Saraivas de
Carvalhos majórs, sem varð annar
í forsetakosningunum í Portúgal í
síðasta mánuði, hafa tilkynnt
stofnun nýrrar „alþýðufylk-
ingar“.
Talsmaður þeirra sagði í Lissa-
bon í morgun að fylkingin myndi
berjast gegn „uppvakningu fas-
isma og afturhaldsafla" í Portú-
gal.
Formlegt nafn fylkingarinnar
og stefnuskrá hennar verður sam-
þykkt á flokksþingi sem haldið
verður í haust. Stofnunin var
ákveðin í gærkvöld á fundi fimm
hundruð stuðningsmanna Carval-
hos.
Carvalho majór var einn af
lykilmönnunum í byltingunni
1974 þegar einræðisstjórn
Caetanos var steypt. Hann fékk
Otelo Saraiva de Carvalho majór:
ný alþýðufylking stuðnings-
manna hans.
sextán prósent atkvæða í forseta-
kosningunum, helmingi fleiri en
frambjóðandi kommúnista.
CARTER MYNDISIGRA í DAG
Ford forseti er mun vinsa'lli
en Ronald Reagan, en greini-
legt er að þeir myndu báðir
tapa kosningum gegn Jimmy
Carter ef forsetakosningar
yrðu haldnar r.ú, samkvæmt
niðurstöðum skoðanakönnunar,
sem tímaritið Time hefur
gengizt fvrir.
Samkvæmt skoðanakönn-
uninni m.vndi-Carter hljóta 51
prósent atkvæða í kosningum
gegn Keagan og -n prosent
gegn Ford ef kosningarnar
yrðu háðar í dag. Niðurstöður
þessar eru byggðar á símavið-
tölum við 1007 manns á kosn-
ingaaldri.
Jimm.v Carter: ekkert lát á
sigurgöngunni. En hvað gerist í
növember?