Dagblaðið - 05.07.1976, Side 8
DAGBLAÐIÐ — MANUDAGUR 5. JULl 1976
8
r
v
Æf ingaf lug loft-
belgsins tókst vel
— þótt fyrsta opinbera flugið vœri œvintýralegt
Loftbelgurinn er nú aftur
tilbúinn til flugs og er næst
ráögert aö fljúga síðari hluta
vikunnar. Þó ekki hafi vel til
tekizt meö fyrsta opinbera flug
loftbelgsins sl. fimmtudag og
það orðið allævintýralegt frá
upphafi til loka, tókst fyrsta
æfingaflug loftbelgsins og
re.vnsluflug hans vel. Það var
framkvæmt fyrra sunnudag.
Var þá flugtak við Hlíðardals
skóla i Ölfusi um kl. 5. Eftir vel
heppnað flugtak var flogið með
veginum að Hveragerði og
síðan til austurs og lent skammt
frá Kotströnd. Þar var skipt um
farþega og síðan hafið sig til
flugs á ný.
Nú var stefnan tekin á
Ingólfsfjall og flogið yfir það og
síðan stefnt á Selfoss og flogið
yfir bæinn. Loks var lent við
Hólakot austan Selfoss um
klukkan 7.
I fyrsta opinbera loftbelgs-
fluginu fræga komu þrjár
smárifur á loftbelginn. Við þær
hefur nú verið gert. Unnið er
að frekari endurbótum fyrir
næsta flug.
-ASt.
HÉLT AÐ GOS VÆRI
BYRJAÐ í EYJUM
þrumur og eldingar ó Suður- og Vesturlandi
„Það fyrsta sem mér datt í hug
var að nú væri byrjað gos í
Eyjum, þegar ég heyrði
hávaðann. Til allrar hamingju
voru þetta þrurnur," sagði Auður
Gunnarsdóttir á Stokkseyri í
samtali við DB í gær.
Síðastliðinn sólarhring hefur
gengið mikið þrumuveður yfir
suð-vestanvert landið. Þessu
veldur hluti þeirrar miklu hita-
bylgju, sem gengið hefur yfir
Evrópu undanfarið. Yfir Atlants-
hafinu tekur heita loftið í sie
mikinn raka og kólnar mikið.
Þess vegna fáum við hér á Islandi
bara rigningu og þoku og í
ofanálag þrumur og eldingar.
Rigningin á Stokkseyri var
þvílík að ekki hefur sézt annað
eins. Droparnir buldu eins og
hagl á rúðunum, að sögn Auðar,
og bjart varð af eldingunum.
Páll Bergþórsson veður-
fræðingur sagðist búast við svip-
uðu veðri næsta sólarhring.
Þrumur og eldingar eiga því eftir
að angra okkur hér á Suður- og
Vesturlandi lengur. Fyrir norðan
og austan sást ekki til sólar í gær,
en þar var hlýtt og hitinn komst í
19 stig á Akureyri. Hitinn fyrir
sunnan mældist mestur á Hellu,
14 stig.
—KP
LOGREGLUFRETTIR HELGARINNAR:
Ráðizt á 11 ára
telpu á
Rauðarárstíg
Ellefu ára telpa varð fyrir
árás tveggja unglingspilta á
föstudagskvöldið um klukkan
átta. Átti hún leið um Rauðar-
árstíginn er piltar véku sér að
henni við Austurbæjarapótek
og fengu hana til að fara inn
fyrir sig og kaupa spíraglas.
Varð hún við þeirri beiðni og
fengu piltarnir spirann.
Þá brá svo við að annar
þeirra dró hana inn í skúr þar
skammt frá. Hinn kom þar að
og fékk því ráðið að telpan
komst á braut. Hljóp hún til
ömmu sinnar og sagði frá at-
burðunum. Var síðan lögregl-
unni tilkynnt um málið.
Við yfirheyrslur kom i ljós að
tilgangurinn með því að draga
telpuna inn í skúrinn var ekki
illur. Aðeins átti að fá loforð
hennar um að segja ekki frá
spírakaupunum. Piltarnir
höfðu áður fest kaup á spíra
sjálfir í apótekinu og vildu
meira. Piltarnir náðust litlu
eftir atburðinn.
— ASt.
Utansveitarfólk
uppivöðslusamt ó
Héraði
Helgarumferðin var mikil
austur á Héraði og nokkuð um
umferðaróhöpp að sögn lögregl
unnar á Egilsstöðum. Tveir
voru teknir ölvaðir við akstur
og 7 manns gistu fanga-
geymslu'r lögreglunnar vegna
smá umferðaróhappa og ölv-
unar.
Ekki voru það innansveitar-
menn sem hér komu við sögu
heldur „allt utansveitarfólk",
sagði lögreglumaðurinn á Egils-
stöðum.
„Ilér eru tveir lögreglumenn
við löggæzlu á sumrin og einn á
veturna,“ sagði vakthafandi
lögregluþjónn. „I>að er engan
veginn nægilegt og stendur til
að fjölga í lögreglunni á staðn-
um.“
Vegirnir á Héraði eru ákaf-
lega harðir og vondir, mjög
þurrir og þar af leiðandi mikið
ryk. Veðrið var aftur á móti
með allra bezta móti, steikjandi
hiti og sól/
— A.Bj.
Gífurlegur
drykkjuskapur
— 17 ölvaðir við akstur
Gífurlegur drykkjuskapur
var í Reykjavík bæði á föstu-
dags- og laugardagskvöld og
fylltust fangageymslur af þess-
um sökum bæði kvöldin. Að
sögn lögreglunnar er drykkju-
skapur ævinlega vinsæll um
helgar sumarmánuðina eða
kemur betur í ljós, því fólk er
þá meira útivið.
Skemmdaryerk var unnið á
bifreið af ölvuðum manni við
einn af veitingastöðunum.
Annar ölvaður var staðinn að
verki við innbrot í kvöldsölu að
Laugavegi 76.
Yfir helgina, frá föstudegi til
sunnudags, voru 17 ökumenn
teknir fyrir ölvun við akstur.
Sú tala er í hærra lagi, þó ekki
sé hún met.
— ASt.
Vildi sýna ölvímuaf I
sitt í Austurstrœti
Einn ölvaður átti leið um
Austurstræti í fyrrinótt og eins
og títt er um ölvaða menn
gerðist hann sterkur mjög.
Þessa ölviinukrafta sína vildi
hann gjarnan . nota og
ruslafata á staur var tiltæk.
Hana reif maðurinn af staurn-
um, en lét ekki þar við sitja.
Körfunni vildi hann kasta og
fyrir urðu rúður í Austurstræti
8, gamla Isafoldarhúsinu. Þar
braut hann tvær rúður á
annarri hæð. Rúður á fyrstu
hæð fengu að vera í friði.
Maður þessi var handtekinn
litlu siðar og fékk gistingu i
fangageymslum. Fyrir honum
liggur að standa skil á skemmd-
arverkum sinum.
-ASt.
Stökk af svöl-
um 3. hœðar
Övenjulegt slys varð við hús
við Möðrufell í Breiðholti að-
faranótt laugardagsins. Þar
stökk maður út af svölum sem
teljast til 3. hæðar. Lögreglan
kvaðst ætla að ölvun hefði verið
orsök þessa fífldirfskustökks.
Maðurinn lá slasaóur neðan
svalanna er að var komið og var
hann fluttur i slysadeild. Eftir
því sem lögreglan tjáði Dag-
blaðinu mun hryggur hans hafa
skaddazt, en lífshættuleg eru
meiðsl mannsins ekki.
v ASt.
Slagsmál á ytri
höfninni
Til áfloga kom um borð í tog-
aranum Maí þar sem hann lá á
ytri höfninni aðfaranótt laugar-
dags. Þessum slagsmálum lauk
með því að einn skipverja slas--
aðist. Var lögreglu gert viðvart
kl. 01.12 um nóttina. Var feng-
inn lóðsbátur til að sækja
manninn og síðan var hann
fluttur í slysadeild. Þar lauk
sjóferð hans að þessu sinni.
— ASt.
Bílvelta í
þjóðgarðinum
Bifreið valt á veginum milli
tjaldmiðstöðvarinnar og
Valhallar á Þingvöllum
aðfaranótt laugardags. Að
sögn lögreglunnar á Selfossi
urðu smávægileg meiðsl á far-
þega og ökumanni, sem mun
hafa haft Bakkus með í förinni,
en meiðslin ekki talin alvarleg.
-A.Bj.
Harður órekstur d
Akureyri
Allharður bifreiðaárekstur
varð aðfaranótt laugardags á
gatnamótum Hörgárbrautar og
Ekkeri ónapp varð í þessari lendingu loftbelgsins þótt nærri
skurðinum í Ölfusi væri farið i æfingafluginu. —DB-mynd
Halldór Guðmundsson.
Höfðahlíðar á Akureyri. Voru
það tveir fólksbílar sem rákust
á, og var annar leigubíll. Leigu-
bílstjórinn, sem var einn í bíl
sínum, kastaðist út úr honum
og hlaut nokkur meiðsl.
I hinum bílnum voru tveir,
sem sluppu ómeiddir. Bílarnir
eru báðir nokkur mikið
skemmdir eftir áreksturinn.
-A.Bj.
Vantaði peninga
fyrir brennivíni?
Náungi einn, sem er kunn-
ur lögreglumönnum vegna
ýmissa ævintýra, sem hann
hefur lent í, var handtekinn í
fyrrinótt. Hafði hann þá brotizt
inn í bifreið og slitið úr henni
útvarpstækið. Ráfaði hann um
göturnar ölvaður með tækið í
höndunum og mun það hafa
verið falt fyrir tiltölulega lítið
verð. Hafði hann ekkert með
tækið að gera en vildi fá pen-'
inga fyrir öðru. Hann gisti
fangageymslur enn einu sinni.
ASt.
Sauðf é drepið
d Suðurlandsvegi
Ekið var á tvö lömb á Suður-
.andsvegi nú um helgina og
drápust bæði. Varð annað
óhappið við Lögberg en hitt
skammt frá Hveradölum. Báðir
ökumennirnir gáfu sig fram og
tilkynntu um óhöppin.
Þegar ekið er á sauðfé verða
ökumenn að greiða bætur.
Bætur fyrir lamb munu vera
áætlað verð meðalþungs lambs
að hausti, og nemur það verð
nokkrum þúsundum króna.
-ASt._
Drykkjuskapur í góða
veðrinu ó Akureyri
' Talsvert var um ölvun á
Akureyri um helgina, að sögn
lögreglunnar. Tveir bílstjórar
voru teknir, grunaðir um ölvun
við akstur og alls gistu átta
fangageymslur lögreglunnar
vegna ölvunar. Þar af var
helmingur heimamenn en
hinir utanbæjarmenn.
Lögreglan sagði í viðtali við
DB að nokkuð ónæðissamt væri
á tjaldstæði bæjarins af völdum
drykkjuskapar en aðsókn að
tjaldstæðinu hefur verið dræm
það sem af er sumri. Seinni
part vikunnar fór aðsóknin þó
að vaxa.
Veöurblíða var á Akureyri
um helgina, um hádegi i gær
var sólarlaust en 17 stiga hiti.
-A.Bj.
Óróaseggir handjórnaðir
í hitabeltisloftslagi
Ungmennasamband Norður-
Þingeyinga gekkst fyrir sam-
komu i Ásbyrgi um .helgina:
Hátíðin gekk að mestu friðsam-
lega og vel fyrir sig i
bliðskaparveðri.
Dansleikir voru haldnir i
Skúlagarði i Kelduhverfi og var
nokkuð mikið um ölvun þar.
sérstaklega á föstudagkvöld.
Lögreglan þurfti að hafa af-
skipti af ballgestum og voru
þeir órólegustu handjárnaðir.
A laugardagskvöld var veður
hið fegursta í Asbyrgi og sást
varta vin á nokkrum manni
samkvæmt talsmanni DB. Hafði
lögreglan gert áfengisleit í
bilum mótsgesta og eitthvert
magn var gert upptækt.
Vegirnir í sveitinni eru í
mjög slæmu ástandi vegna
mikilla þurrka sem þar hafa
verið undanfarið og því óger-
legt aðheflaþá. Ofaniburðurinn
fýkur burt jafnóðum.
Um miðjan dag í gær var
sólarlaust f.vrir norðan en hiti
um 24 stig. Þá var hitinn um 30
stig i Asbyrgi. -A. Bj.
V