Dagblaðið - 05.07.1976, Blaðsíða 14
14
DAGBLAÐIÐ — MÁNUDAGUR 5. JULÍ 1976
f§gl
B m
■
■
|Sfg
%
' .. i
íþróttir
Björn Borg
meistari
Björn Borg, hinn tvítugi,
sænski tennisleikari, vann sinn
mesta sigur á laugardag þegar
hann sigraði Rúmenann Uic
Nastase með yfirburðum í úrslit-
um á Wimbledontennismótinu —
hinni óopinberu heimsmeistara-
keppni í tennis. Borg sigraði með
6-4, 6-2 og 9-7 og vann einstakt
afrek i mótinu. Hann tapaði ekki
setti (lotu) í leikjum sinum, og
það í keppni þar sem allir beztu
tennisleikarar heims voru saman-
komnir.
I einliðaleik kvenna sigraði
Chris Evert, Bandaríkjunum,
Evonne Goolagong, Astralíu, í
afar tvísýnum ieik — 6-3, 4-6 og
8-6. Það er í annað sinn sem hún
sigrar á þessu frægasta tennis-
móti heims, og þó er hún aðeins
21 árs. Mótið var því mikill sigur
ungu kynslóðarinnar — og Borg
er fyrsti Svíinn sem verður
Wimbledon-meistari. Chris Evert
varð einnig meistari í tvíliðaleik
kvenna með Martinu Navratilova,
Tékkóslóvakíu.
Jafntefli hjó
Standard
Standard Liege, belgíska iiðið
sem Ásgeir Sigurvinsson leikur
með, gerði í gær jafntefli, 0-0, í
Toto-keppninni. Liðið lék þá við
Happel Beer-Sheva, ísrael, og var
leikið í Tel Aviv. Holbæk, Dan-
mörku, sem Atli Þór Héðinsson
leikur með, tapaði á heimaveiii
fyrir Vittoria Guimareas, Portú-
gal, 1-2. Inter, Bratislava, Tékkó-
slóvakíu, sem sigraði Holbæk 0-5 í
fyrstu umferðinni, gerði sér nú
lítið fyrir og sigraði Ostende í
Belgiu 1-6. Þá má nefna að Köge,
Danmörku, tapaði heima 1-5 fyrir
Hertha, Berlin, og Lodz, Póllandi,
vann KB, Danmörku, 5-0.
3»S>%<3S<«
puma
u f/*r cliiyiiiit;
Inqélíff/ ©íkQtífQ nqr
Hólagarður
Breiðholti S. 75020
Klapparstig 44 S.1178;
Skjurgegn
Kanoda, síg-
ur í mótinu
— island sigraði Kanada 22-19 í af mcelis-
mótinu í Bandarikjunum og haf naði i
fyrsta sœti! _
„Við réðum alltaf gangi leiks-
ins og áttum alls kostar við
Kanadamennina í síðasta leiknum
hér á 200 ára afmælismóti Banda-
ríkjanna, lokatölur gegn Kanada
urðu 22-19 og fyrsta sætið okkar,“
sagði Birgir Björnsson formaður
landsliðsnefndar HSÍ eftir sigur
íslands í handknattleik á afmælis-
mótinu í Bandaríkjunum á
laugardag.
tsland hreppti því fyrsta sætið
— vann tvo sigra, báða gegn
Kanada, en tapaði í tvígang fyrir
Bandaríkjunum.
Það kom greinilega fram að
okkar strákar eru ekki í fullri
æfingu enda enn langt í keppnis-
tímabilið. Hins vegar eru bæði'
Bandaríkjamenn og Kanadamenn
að ljúka undirbúningi sínum fyrir
ólympíuleikana og því i toppæf-
ingu.
Ef við annars lítum á leikinn
gegn Kanada þá náðum við góðum
tökum þegar í upphafi og staðan i
hálfleik var 11-7 okkur i vil. Við
stóðum uppi sem sigurvegarar í
lokin og sigur okkar var aldrei í
hættu.
Markhæstu leikmenn gegn'
Kanada voru þeir Viðar Símonar-
son og Pálmi Pálmason, báðir
skoruðu 6 mörk. Ágúst Svavars-
son skoraði 4, Geir Hallsteinsson
2 og þeir Pétur Jóhannsson,
Viggó Sigurðsson og Þórarinn
Ragnarsson skoruðu sitt markið
hver.
Lokastaðan í mótinu varð:
ísland 4 2 0 2 89-85 4
Bandaríkin 4 2 0 2 73-74 4
Kanada 4 2 0 2 74-77 4
íslenzka landsliðið kemur heim
í dag.
h.halls.
Völsungur kom ó
óvart ó ísafirði
ísfirðingar töpuðu óvænt fyrir
Völsungi á Isafirði í 2. deild Is-
landsmótsins í knattspyrnu, 1-3.
Þetta er annar ósigur Isfirðinga á
heimavelli, höfðu áður aðeins
tapað fyrir ÍBV. Hins vegar var
þetta fyrsti útisigur Völsunga,
aðeins einu sinni áður höfðu þeir
sigrað í leik i 2. deild í sumar, þá í
sínum fyrsta leik gegn Selfossi.
Það má því segja að sigur
Völsunga hafi verið óyæntur.
Liðið fékk óskabyrjun— þegar á
3. mínútu lá knötturinn í marki
heimamanna. Hermann Jónasson
átti þá gott skot utan af kanti,
snúningur var á boltanum og
hann hafnaði efst í horninu fjær.
Aðeins fimm mínútum síðar lá
knötturinn aftur í marki heima-
manna, nú var að verki Jóhannes
Sigurjónsson. Þessi óskabyrjun
Völsungs nægði, ísfirðingar voru
loks búnir að hita upp og tóku á
móti en allt um seinan. Þeim tókst
að vísu að minnka muninn í 1-2
um miðjan síðari hálfleik er
Gunnar Guðmundsson skoraði.
Eftir það sóttu ísfirðingar mjög
stíft en inn vildi knötturinn ekki.
Hins vegar tókst Völsungum að
bæta við marki úr einu af fáum
upphlaupum sínum í síðari hálf-
leik er Hreinn Elliðason skoraði
af stuttu færi og gulltryggði sigur
Húsvikinga. h.halls.
f Muhammad AIi liggur nú á sjúkrahúsi í Santa Monica — heldur illa
farinn í fótum eftir vitlevsuna í fjölbragðaglímu síðustu vikurnar. 1
gær var hann bjartsýnn og sagði: Ég verð góður eftir nokkra daga —
þetta er ekki alvarlegt. Það mun ekki koma í veg fyrir leikinn við
Norton i september. A m.vndinni að ofan er glímukappi að hamast á
fa>ti Alis — áður en kom að keppni hans við Japanann Inoki.
1 m M—! % 11 um f‘1 s .1 i. -JlIIill
1 ■ 11 m m mm h \\í m jm.
t * t s r’
L >3'rf* i M. f f f 1 *■'*+■ fr i fC f:>_ ' * tT * ’ jyrryt^
4 < 1 rra Kmk .1;
Sókn Vals var þung — en Blikarnir börðust vel. Efri myndin, Ólafur
Hákonarson, markvörður Breiðabliks, nær að lyfta knettinum yfir slá
— Valsmenn fylgjast spenntir með, ekki síður Blikarnir. A neðrl
Heppnin ekl
Valur komst i nann
krappan í 1. deild Islands-
mótsins i gærkvöld þegar liðið Iék
við Breiðablik — Valur var
undir í 50 langar mínútur en
tókst þó að jafna og hljóta annað
stigið úr viðureigninni — en
óvænt og dýrmætt stig tapaðist 1
hinni hörðu baráttu um Islands-
meistaratitilinn.
Já, taugaspenna setti sín mörk
á leik Vals í gærkvöld —
Breiðablik skoraði eftir aðeins 10
mínútna leik. Gísli Sigurðsson
tók hornspyrnu frá vinstri, sendi
knöttinn vel fyrir markið og
Einar Þórhailsson stökk upp og
skallaði knöttinn fyrir fætur Þórs
Hreiðarssonar. Hann stóð einn í
dauðafæri og spyrnti vel.
Knötturinn fór í Grím Sæmund-
sen og þaðan í stöng en dómari
leiksins, Öli Ölsen, dæmdi
umsvifalaust mark. Grímur stóð
inni í markinu. Öli var í mjög
góðri aðstöðu til að siá. 'hvort
knötturinn hefði farið inn fyrir
eða ekki — hann stóð í beinni
línu við Grím og eins
línuvörðurinn. Ármann Péturs-
son. Báðir dæmdu mark og um
það verður ekki deilt hér! Óvænt
forysta Breiðabliks, 1-0.
Markið setti Valsmenn úr jafn-
vægi, leikur liðsins fór úr
skorðum og hið skemmtilega spil,
er við höfurn séð hjá Val í sumar.
hvarf. Þess i stað kom vand-
ræðalegt spil, langspyrnur og
árangurinn eftir því. Blikarnir
börðust líka vel. fundu á sér að
þetta var einn þeirra dagur—og
gegn
lukkan var ekki liðsmaður Vals-
manna — Blikarnir lögðu alla
áherzlu á að halda sínu. *
Þrátt fyrir að Valur næði sér
alls ekki á strik fór ekkert á milli
mála, hvor aðilinn væri sterkari,
Valur. Hvað eftir annað skapaðist
hætta við mark Breiðabliks,
aldrei meiri en þegar Ingi Björn
Albertsson komst einn inn fyrir
vörn Blikanna og skaut föstu
skoti en Ölafur Hákonarson mark-
vörður varði. Knötturinn féll
fyrir fætur Inga, aftur skaut hann
en enn varði Ólafur.
Hið óvænta mótlæti og svo að
sóknir Valsmanna gengu ekki
upp urðu til þess að sjálfstraust
Vals þvarr þvi meir eftir því sem
á leikinn leið. Leikmenn byrjuðu
að rífast en þrátt fyrir það Iá
markið ávallt í loftinu — og þaði
kom, í síðari hálfleik.
Magnús Bergs tók aukaspyrnu
við miðlínu, sendi knöttinn á Guð-
mund Þorbjörnsson í vftateig
Blikanna.
Guðmundnr lék upp í hornið
lék á tvo varnarmenn og semii
knöttinn vel fyrir markið. Þar
stóð Ingi Björn einn og skallaði
knöttinn af öryggi I netið, 1-1 og
Valsmenn fögnuðu geysilega.
Mestan heiður af besu marki
átti Guómundur sem með
harðfylgi náði að senda knöttinn
fyrir, vel gert.
Við markið fengu Valsmenn
sjá)fstraustið aftur og aítur sást
hin skemmtilega sóknarknatt-
spyrna Vals eins og hún gerist
bezt og Blikarnir máttu hafa sig