Dagblaðið - 06.07.1976, Page 1

Dagblaðið - 06.07.1976, Page 1
V 2. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1976 — 145. TBL. RITSTJÖRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, 4UGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022. ' íslendingar enn í lánoleit: Nú er leitað 2760 milljóna „Landsvirkjun hefur fengið heimild allra eignaraðila til að taka lán erlendis að upphæð 15 milljónir dollara eða um 2760 milljónir. ísl. króna. Borgarstjórn Reykja- víkur varð síðust eignaraðila til að veita heimildina, en gerði það í júnímánuði," sagði Agnar Friðriksson skrifstofustjóri fjármáladeildar Lands- virkjunar í viðtali við Dag- blaðið. „Þetta lán er þad-síðasta sem tekið verður til að ljúka fram- kvæmdum við Sigölduvirkjun," sagði Agnar. „Lánið var frá upphafi inni í áætlunargerðum Sigölduvirkjunar." Lánsundirbúningurinn hófst í fyrra og fyrsti hluti lánsins er þegar fenginn. Var undir- ritaður lántökusamningur við þrjá holienzka aðila hinn 1. júlí. Sá hluti, sem fenginn er hljóðar upp á jafnvirði einnar og hálfrar milljónar Bandarikja- dala. Er þetta lán til 13 ára, ber 9,75% vexti og er afborgunar- laust fyrstu fjögur árin. „Engar alvarlegar tilraunir hafa verið gerðar fram að þessu til að útvega þær 13V4 milljón dollara er á vantar, en leitað er nú hófanna bæði í Evrópu og Bandaríkjunum," sagði Agnar. Hann bætti því við að stefnt væri að því að ljúka Iántökunni í vetur eða næsta vor. -ASt. Páll skipstjóri á Guðmundi RE: „Erfitt að spá um þetta enn' „Þetta ei anzi víðáttumikið svæði, en við erum búnir að halda okkur á sama blettinum hér undan isröndinni síðan við fundum loðnuna," sagði Páll Guðmundsson á Guðmundi RE í viðtali við Dagblaðið. „Við erum búnir að fá 450 tonn og erum á svæði. um 40 mílur norður af Skaga.“ Sagði Páll, að þarna væri einnig Sigurður RE og von væri á Súlunni og Gullbergi einhverja næstu daga. „Enn sem komið er vitum við ekki hversu mikil loðna er hér á feróinni og erfitt er að spá nokkru um það,“ sagði Páll ennfremur. „Eins og ég sagði, er hún dreifð yfir nokkuð víð- áttumikið svæði og við erum enn ekki farnir að stíma um það. Það ætti þvi að koma i ljós á næstu dögum, hversu mikil loðna er hér og hversu stórar torfurnar eru.“ —HP. Hjálmar Vilhjálmsson, fiskif rœðingur: Smœrri torfur í nótt en áður „Loðnan var í nótt i enn smærri torfum en verið hefur undanfarna daga,“ sagði Hjálmar Vilhjálmsson um borð í Bjarna Sæmundssyni, í sam- tali við DB í morgun. Hjálmar sagði að loðnan væri mjög dreifð. Hefðu komið þetta 40—50 tn. í kasti. Loðnusvæðið sagði hann vera 120—130 sjómílur norður af Skagatá. Loðnan væri aó fitna þar sem hún væri átufull. Skömmu eftir miðnætti hélt Sigurður RE til lands. Var hann þá kominn með 850 tonn eftir 3 daga. — ba Enn án raf magns eftir eldingar Starfsmenn Rafmagnsveit- unnar leggja nú nótt við dag að gera -við rafmagnsbilanir þær, er urðu vegna þrumuveðursins er gekk yfir Suðurland aðfara- nótt sunnudagsins. H já Raf magnsveit unm fengum við þær upplýsingar að skemmdir hefðu orðið mjög miklar. Aðallega eru það spennar, einangrar i spenni- sliiðvum og eldingavarar sem verða f.vrir skemmdum er eld- ingum slær niður. Bráðabirgðaviðgerðum er nú víðast hvar lokið. Þó er ýtafmagn enn ekki komið á austur á Kirkjubæjarklaustri. Ekki kváðust þeir hjá Raf- magnsveitunni geta gert sér grein fyrir hvenær fullnaðar- viðgerðum yrði lokið, né hvað viðgerðirnar kæmu til með að kosta. En ljóst væri að enn ættu þéir mikið eftir ógert. — KL TRYGVE BRATTELIVIÐ ELLIÐAÁRNAR — BAK Skuggaleg ferð ung- linga í Þórsmörk — sjó baksíðu Hrein vitleysa að halda óf ram — segja jarðf rœðingar um Kröflu — sjó bls. 4 Nœr allir unglingarnir hafa nú f engið vinnu SSi, — sjó bls. 8 Sprangar með bumbuna úti „Hvað ertu eiginlega að taka ni.vnd af mér áður en ég er almennilega búin að iæra þetta." gæti hún hafa hrópað, Revkjavíkurstúlkan, sem Ragnar ljósmyndari skaut á, er hann var í Vestmannaeyjum fyrir skömmu. Hópur Reykvíkinga var t Kyjum og þótti þeim þá til- hlýðilegt að reyna sig við þessa þjóðaríþrótt E.vjapeyja. Og þó að borgarbúum gengi ekki vel í fyrstu tilraun, voru þeir þó stórum betri í annað skiptið. Þannig var það einnig nteð stúlkuna á myndinni, sem val- hoppar þarna með bumbuna úti. — AT/DB-mynd: Ragnar Th. Sigurðsson. Amin hótar hefndum i — Erl. f réttir á bls.6-7 ■bHMMMMir

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.