Dagblaðið - 06.07.1976, Page 23

Dagblaðið - 06.07.1976, Page 23
DAC.BLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1976. I ?3 Útvarp Útvarp kl. 19.35 í kvöld: Aldarminning othofnamanns sem lézt fyrír aldur fram Páll H. Jónsson frá Laugum flytur aldarminningu um Haiigrim og hefur ritaö ævisögu hans, sem kemur út í haust. i dag eru liðin 100 ár frá fæðingu Hallgríms Kristinsson- ar, fyrrum forstjóra Sambands isl. samvinnufélaga. í tilefni af því flytur Páll H. Jónsson frá Laugum erindi um Hallgrím í útvarpinu kl. 19.35 í kvöld. „Hallgrímur var Eyfirðingur að ætt og var kaupfélagsstjóri á Akureyri frá árinu 1902 og að nafninu til til ársins 1918 — en árið 1917 varð hann forstjóri Sambar.ds ísl. samvinnufélaga í nútíma skilningi þess orðs. Hann stofnsetti heildsölu Sam- bandsins og stjórnaði henni. Hann átti þátt í að stofna Sam- vinnuskólann og einnig í byggingu húss Sambandsins við Sölvhólsgötu. Hann andaðist langt fyrir aldur fram, ekki nema 46 ára gamall, árið 1923. Honum tókst þó að afkasta geysilega miklu, bæði á Akureyri og I Reykja- vík.“ Páll H. Jónsson kenndi bæði söng og j'mislegt fleira við Laugaskóla í Reykjadal I nær 30 ár. Á árunum milli 1960- og 1970 var hann forstjóri fræðsludeildar Sambandsins og ritstjóri Samvinnunnar í nokkur ár. Páll hefur gefið út tvær ljóðabækur, 'Nótt fyrir norðan og Á 17. bekk, sem eru löngu uppseldar. Hann hefur einnig skrifað leikrit og er eitt leikrita hans birt I leikritasafni Þjóð- leikhússins og Menningarsjóðs. Leikrit hans, Úlfhildur, hefur verið sýnt bæði á Akureyri og á Blönduósi. Páll sagðist nú vera orðinn frekar heilsulítill og hættur störfum að mestu. Hann er nýfluttur til Húsavíkur. Hjá Eysteini Sigurðssyni hjá fræðsludeild Sambandsins fengum við þær upplýsingar að Páll H. Jónsson hefði nú lokið við samningu ævisögu Hall- gríms Kristinssonar, en ákveðið var á aðalfundi Sambandsins árið 1962 að fela Páli það verk. Hallgrímur Kristinsson var fyrsti forstjóri Sambands ísi. samvinnufélaga. Páll var þá ritstjóri Sam- vinnunnar. Ráðgert er að bók- in, sem er stór í sniðum, um 500 bls., komi út hjá Prentverki Odds Björnssonar með haust- -A. Bj. r----------------- Útvarp kl. 21.00 í kvöid: HAPPASKIPINU SKAFT- Skaftfellingur er nú i siippnum i Vestmannaeyjum. Lrfingjar Helga Benediklssonar gáfu Skaftfellingnum Sigriinu Jónsdóttur skipiö, en hún he/ur mikinn áhuga á að varðveita það. FELLINGI HLEKKTIST ALDREIÁ Á 55 ÁRA FERLI — Gísli Helgason segir frá „Bjargvœtti Skaftfellinga í tvo áratugi" Gísii Helgason segir okkur frá þessu happaskipi... ..Skaftfellingar létu smíða. skip í Danmörku árið 1917 til þess að ráða bót á samgöngu- leysinu milli Víkur, Vest- mannaevja og Reykjavíkur. Skipið hlaut nafnið Skaftfell- ingur óg kom til Víkur 15. maí árið 1918," sagði Gísli Helga- sor.. en hann sér um útvarps- þátt. sem nefnist Bjargvættur Skaf.tfellir.ga um tvo áratugi,og er á dagskránr.i kl. 21 í kvöld. Lesari með Gísla er Jón Múli Árnason. Gísli sagði okkur nokkuð frá sögu þessa merka skips. „Þegar skipið kom hóf það þegar reglubundnar ferðir milli Reykjavíkur og Víkur, auk þess sem það hafði þrjá aðra viðkomustaði i sýslunum og komst alla leið austur undir Öræfi. Þegar báturinn kom voru Skaftfellingar svo hrifnir að þeir töluðu um hann likt og góðan vin sem þeir hefðu heimt úr hel.ju. Enn í dag gætir mikillar hlýju hjá gömlum Skaftfellingum, þegar þeir minnast á þennan bjargvætt sinn, því hann sinnti öllum þeirra ferðum i rúm tuttugu ár. Fyrir það eitt er skipið mjög merkilegt sem sögulegur minja- gripur frá þessum tíma. Nú stendur það uppi í slippn- um í Vestmannaej'jum. Helgi Benediktsson útgerðarmaður keypti Skaftfelling liklega um árið 1940. Þá varð Skaftfelling- ur bjargvættur Breta um árabil því hann var í fiskflutningum milli Fleetwood og Ej'ja og kom með varning til baka. Helgi gerði skipið einnig út til rek- neta- og síldveiða. Þar að auki var það einnig í farþegaflutn- ingum milli lands og Eyja um tíma. Helgi var þá umboðs- maður Skipaútgerðar ríkisins og sá um farþegaflutninga. Frægt er orðið þegar Skaft- feilingur, undir stjórn Páls Þor- björnssonar, bjargaði áhöfn af þýzkum kafbát, sem hefur lík- lega verið um 1942. Einnig kom Skaftfellingur við sögu þegar skotið var á skipið Fróða. Hann kom að sundurskotnu skipinu og sendu skipsmenn skej'ti til Eyja og báðu um hjálp. Svo einkennilega vildi til að sama dag varð vélarbilun um borð í Skaftfellingi og af þeim sökum gekk skipið hægar en venjulega. Ef það hefði haldið eðlilegri ferð hefði það að öllum líkindum lerit i sömu árásinni og Fróði. Þannig virtist fylgja þvi sér- stök gæfa, það sigldi öll stríðs- árin og kom aldrei neitt fyrir. Arið 1963 hætti Helgi Benediktsson að gera Skaftfell- ing út en skömmu áður hafði hann verið i fiskflutningum milli Esbjerg og Eyja. Þá var Skaftfellingur fiuttur í slipp í Eyjum og bíður þess nú að verða fluttur í heimahaga sína. Fyrir ári gáfu erfingjar Helga Benediktssonar Sigrúnu Jóns- dóttur listakonu, sem er Skaft- fellingur, skipið, því hún hefur mikinn áhuga á að varðveita það. , Skaftfellingur er eina skipið sem eftir er af þeim fjórum skipum sem hingað komu' í fyrri h'-imsstyrjöldinni, en það voru auk Skaftfellings Gullfoss, Goðafoss og Svanur- inn. Þess vegna hefur Skaftfell- ingur verið óskabarn íslend- inga og Skaftfellinga alla tíð.“ — A.Bj. Jón Múli Arnason er lesari með Gísla Helgasyni. Þriðjudagur 6. júlí I 12:00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning- ar. y 12.25 Fréttir. og veðurfregnir. Tilkynningar. [; 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.00 Mifidegissagan: „Farfiu burt, skuggi'* eftir Steinar Sigurjónsson. Karl Guðmundsson leikari les (4). 15.00 Miödegistónleikar. Jena Fournier. Antonio Janigro og Paul j Badura-Skoda leika Tríó nr. 2 1 g-moll op. 2fi fyrir fiðlu, selló og píanó eftir Antónín Dvorák. Pro Arte píanókvart- ettinn leikur Kvartett f c-moll op. fiO i fyrir píanó og strengi eftir Johannes | Brahms. - 16.00 Fréttir. Tilkynningar (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphom. 17.30 Sagan: „Ljóniö, norninjkapurinn" eftir C.S. Lewis. Rögnvaldur Finnbogason les (2). 18.00 Tónleikar. Tilkvnningar. 5 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fróttir. Fróttaauki. Tilkynningar. 19.35 Aldarminning Hallgríms Kristins- sonar forstjóra. Páll H. Jónsson frá Laugum flvtur erindi. ! 20.00 Lög unga fólksins. Asta R. Jóhannesdóttir kvnnir. í 21.00 Bjargvœttur Skaftfellinga í tvo ára- tugi. Brot úr sögu vélskipsins Skaft- fellings frá 1918—1963. Gísli Helga- son tekur saman. Lesari með honum: Jón Múli Arnason. 22.00 Fréttir. ; 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan: „Litli dýrlingurinn" eftir Georges Simenon. Asmundur Jónsson þýddi. Kristinn .Reyr les (5). j 22.40 Harmonikulög. Andrés Nibstad og félagar leika. 23.00 Á hljófibergi. Mannsröddin: Mónódrama eftir Jean Cocteau. Ingrid Bergman flytur. 23.50 Fréttir. Dagskfarlok. Miðvikudagur 7. júlí 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30. 8.15 (og forustugr. dagbl). 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Sigrún Valbergs- dóttir endar lestur sögunnar ..Levnigarðsins” eftir Francis Hodgson Burnett; Silja Aðalsteins- ilóttir þýddi og b.jó til útvarps- flutniiigs (15). Tilkynningar kl. 9.30. Lét.t lög milli atriða. Kirkjutónlist kl. 10.25: Kantata nr. 80. ..Vor Guð er borg á bjargi traust” eftir Bach. Flytjendur. Agnes Giebel. Wiihelm- ine Matthés. Richard Lewis. Heinz Réhfuss. Bachkórinn og Filharmoniu- Hveitin i Amsterdam. Stjórnandi: André van der Noot. Morguntónloikar kl. 11.00: 12.00 Dagskráin. Tönleikar. Til- kynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til- kynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miödegissagan: „FarAu burt. skuggi" eftir Steinar Sigurjónsson. Karl Guðmundsson leikari les (5). 15.00 Mifidegistónleikar. Samson Fráncois og hljómsveitin Filharmonia leika Pianókonsert nr. 2 í A-dúr eftir Franz Liszt. ('onstantin Silvestri stjórnar. Filharmoniusveil Berlinar leikur Sinfóniu nr. 2 i (’.-dúr op. 61 eftir Robert Schumann: Rafael Kubelik 'itjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkvnningar. 16 15 Veðurfregnir. 16.20 Tóuli'ikar. 17.00 Lagifi mitt. Anne-Marie Markan kynnir óskalög barna innan tölf ara alduiN. 17.30 Bækur, sem breyttu heiminum — III. ,..\fst;eðiski'iiniugin" eftir Alliert Kmstem. Barður .lakobsson lög- frieðingur tekur samati og flytur.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.