Dagblaðið - 06.07.1976, Page 24
Þórsmörk um helgina:
UNGLINGAR LIGGJANDI
í SKÍTNUM „DAUÐIR" OG
SKORNIR EFTIR GLER!
„Unglingarnir vöfruðu þarna
um dauðadrukknir og víða
mátti sjá þá liggjandi í
drullunni „dauða“ og suma illa
skorna eftir glerbrot, sem lágu
eins og hráviði um allt,“ sagði
ferðalangur í viðtali við Dag-
blaðið, en hann var staddur í
Þórsmörkinni á vegum ferða-
félagsins Bata, en það stofnuðu
meðlimir úr AA-samtökunum.
„Það var hreint skelfilegt að
sjá þetta og er maður þó ýmsu
vanur frá fyrri árum þegar
áfengið hafði sín tök á manni,“
bætti ferðalangurinn við.
Þessir unglingar sem
ferðalangurinn talaði um voru
nemendur úr Alftamýrar-
skólanum í Reykjavík —
unglingar á aldrinum 14-15 ára.
Enginn fullorðinn var með
þeim í Mörkinni til eftirlits.
Mikil mildi má teljast að ekki
skuli hafa orðið stórslys, því
ölvunin af slík og krakkarnir
vissu mörg ekkert hvað þau
gerðu.
Til að mynda voru tvær
stúlkur nærri dnjkknaðar í
Krossá. Þær köstuðu sér út í
ána i ölæði og bárust um 2-300
metra með straumnum þangað
til nokkrir menn náðu aó
bjarga þeim og lögðu þeir sig í
lífshættu við björgunina. Var
engu líkara en.stúlkurnar hafi
viljað fyrirfara sér því þær
börðust um á hæl og hnakka er
verið var að bjarga þeim. Það
var á laugardagskvöldið er
stúlkurnar tvær lentu í ánni.
Nemendurnir munu hafa
tekið á leigu rútu án vitundar
starfsfólks skólans. Aðfaranótt
sunnudagsins gerði ofsaveður,
eða eins og einn ferðlanganna
lýsti því: „Engu líkara var en
allur dalurinn logaði og fjöllin
ætluðu að steypa sér yfir okkur,
slíkt var þrumuveðrið.“
Þá nótt var ástandið ákaflega
slæmt meðal nemendanna, eins
og nærri má geta.
Ekki var nóg með að
unglingarnir færu hamförum.
Aðfaranótt laugardagsins ók
augafullur maður um á jeppa,
böðlaðist um ár og torfærur og
festi jeppann að lokum í
Krossá, stórskemmdan með V-
laga stuðara. Var jeppinn svo
illa farinn að draga varð hann
úr óbyggðum.
Já, þær eru ekki fallegar
lýsingarnar sem ferðalangarnir
gáfu og er þó ekki frá öllu
greint.
Um helgina voru á milli 6-700
manns í Þórsmörkinni og
greinilega full þörf löggæzlu,
en hún var engin. h. halls.
ELLEFU MimONIR
KR. A NÍII DÓGUM
„Þetta er með betri afla
miðað við það, sem hefur verið
undanfarið," sagði Þórhallur
Helgason hjá Hraðfrystistöð-
inni í morgun. „Og bezti afli,
sem Hrönn hefur fengið í veiði-
ferð," bætti hann við.
Eins og við sögðum frá í
blaðinu í gær kom skuttogarinn
Hrönn með um 340 tonn úr níu
daga veiðiferð við Eldeyjar-
boða. Uppistaðan í aflanum er
aðallega góður ufsi og ágætis
karfi ásamt dálitlu magni af
þorski. Skipstjórinn á Hrönn er
Sævar Brynjólfsson, sem jafn-
framt er einn af þrem aðaleig-
endum skipsins.
Við spurðum Þórhall um
verð aflans og gizkaði hann á að
hann væri um 11 milljón kr.
virði. Ekki óálitlegur hlutur á
mann, en skipverjar á Hrönn
eru 24. EVI
Atvinnuþjófar ó ferð:
Lögregkimöimum
hrýs hugur víð
Atvinnuinnbrotsþjófur tók
heldur betur til hendinni í Háa-
leitishverfinu í fyrrinótt. Hann
fór inn í tvær raðhúsaíbúðir í
gegnum dyr á veröndum og
stal öllum þeim peningum, sem
tiltækir voru á hvorum stað, en
lét alla hluti, verðmæta, sem
verðlausa, í friði. Alls hurfu
þarna 75 þúsund krónur — 55
þúsund á öðrum staðnum en 20
á hinum.
„Manni hrýs eiginlega hugur
við mörgum þeim innbrotum,
sem nú eru framin,“ sagði ívar
P. Hannesson rannsóknarlög-
reglumaður i samtali við DB í
morgun. í þessu tilfelli
sprengdi þjófurinn upp
læsingar á garðdyrum og
gekk síðan um allt, meira að
segja inn í svefnherbergin. Þar
tók hann peningaveski, fór með
þau fram að dyrum og tæmdi
veskin þar.“
Fyrir rúmum mánuði voru
framin innbrot i Stigahlíð,
Hjálmholti og Brekkugerði,
sem lögreglunni þykir svipa
æði mikið til verkanna í
Háaleitishverfinu. 1 öllum
tilfellum voru brotnar upp
læsingar á verandardyrum.ívar
sagði í morgun, að þó að þessi
dyraumbúnaður virtist mjög
traustlegur, virtist auðvelt
fyrir vana menn að sprengja
hann upp.
Eina ráðið til þess að fólk
geti verið sæmilega öruggt um
eigur sínar er að hafa engan
hún utan á verandarhurðunum.
Krækjur innan á hjálpa einnig
til,“ sagði Ivar. -AT.
Bratteli við Elliðaórnar
„Ég hef nú heldur lítinn tíma til að veiða í Noregi,“ sagð! Trygve
Bratteli, fyrrum forsætisráðherra Noregs er DB menn hittu hann við
Elliðaárnar. Þar hafði hann mætt í morgun, en ekki tekizt að veiða
neinn stórlax. All hafði hins vegar krækst á öngulinn, en var gefið líf.
Bratteli kvaðst ákaflega hrifinn af tslandi enda þótt það væri mjög
frábrugðið Noregi, sérstaklega iandsiagið.
Þetta er 6. íslandsferð hans og hefur hann ferðast töluvert um
landið.
Trygve Bratteli er hér í einkaheimsókn og hefur dvalizt hér í 5
daga.
frjálst, óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 6. JULl 1976.
Hassmálin:
Allir lausir úr
gœzluvarðhaldinu
Mennirnir fjórir, sem setið
hafa í gæzluvarðhaldi undan-
farna daga og vikur vegna
meintrar aðildar að þremur
aðskildum fíkniefnamálum,
voru allir látnir lausir fyrir og
um helgina.
Rannsókn málanna er ekki
lokið en að sögn Arnars Guð-
mundssonar, fulltrúa hjá dóm-
stólnum f ávana- og ffkniefna-
málum, er góð von til að það
verði fljótlega.
Tveir þessara manna sátu í
gæziu vegna hasssmyglsins frá
Marokkó til Spánar á dögun-
um, einn vegna tilraunar til að
koma hingað til lands þremur
kílóum af hassi frá Rotterdam
og fjórði maðurinn vegna
þriðja málsiris. Hann sat inni i
aðeins tvo daga.
„Meira efni hefur ekki
kómið fram við þessa rann-
sókn,“ sagði Arnar í samtali
við DB, „og ég tel að þau muni
upplýsast að fullu.“ _()y
Tveir menn
teknir við
Póla hf.
Tveir ölvaðir náungar gerðu
sig heimakomna í rafgeyma-
verksmiðjunni Pólum hf. i nótt
sem leið. Ekki er vitað til þess
að neinu hafi verið stolið þar.
Svo virðist sem styggð hafi'
komið að mönnunum, því að
þeir voru komnir spölkorn frá
verksmiðjunni, þegar lögregl-
an gómaði þá og stakk þeim í
steininn.
—- AT.
Sjúklíngur frd
Kleppi drukknaði
í Sundahöf n
Menn, sem voru að vinnu við
Sundahöfn sáu í gærdag lík á
floti í höfninni. Þetta reyndist
vera lík af karlmanni, sem
hafði horfið frá Kleppsspítal-
anum um hádegisbilið i gær.
Maðurinn, sem er Akureyr-
ingur, var á svokallaðri opinni
deild og var þvi nokkuð frjáls
ferða sinna.
Ekki er unnt að birta nafn
mannsins að svo stöddu, þar eð
ekki hefur náðst í alla ættingja
hans enn.
— AT —
Eignarskatturinn:
Skattf rjólsir úf ram
Sumarglaðningur fyrir Kópovogsbúo:
Verða að borga ó 2. hundrað
þúsund í auka gatnagerðargjöld
P'ramteljendur, sem hafa
ekki borið eignarskatt af
íbúðarhúsnæði til þessav hefðu
greitl skatt nú vegna
breytinga á virði fasteigna til
éignar.ikatt'i, sem gerð var i
fyrra. Til að koma i veg fyrir
þetta voru i gær sett
bráðabirgðalög.
I lögunum segir, að engan
eignarskatt skuli greiða af
fyrstu 2,7 milljón króna eign,
0,6 prósent af næstu 1,5 milljón
króna eign og eitt prósent áf
því sem er umfram það.
Við álágningu eignarskatts
nú skal verðmæti fasteigna
reiknað á 2,< loldu gildandi
fasteignamatsverði.
1111
„Við notfærum okkur þessa
heimild til að leggja á viðbótar-
gatnagerðargjöld og ljúka-við
nokkrar götur" sagði Jón Guð-
laugur Magnússon bæjarritari i
Kópavogi. Kópavogur er sá
fyrsti af stóru bæjarfélögunum
sem þarf að grípa til þessar
fjármögnunarleiðar. Er þetta
byggt á heimild i lögum frá
1974. Þar er sveitarfélögum
leyft að leggja svokallað B-
gatnagerðargjald ofan á þau
gjöld sem greidd hafa verið
þegar húsin voru byggð.
Upphæð þessara gjalda er
mjög mismunandi eftir sveitar-
félögum en öll þurfa þau að fá
samþykki félagsmálaráðu-
neytisins áður en lagt er á. í
Kópavogi verða meinn að
greiða eitthvað á annað
hundrað þúsund fyrir að fa
fullfrágengnar lóðir.
Tóm'as Sveinsson hjá fram-
kvæmdastofnun upplýsti að
ekkert af stærri bæjarfélögun-
um hefði neytt þessarar
heimildar fyrr. Hjá sumum
þeirra stafaði það af því hversu
götur væru orðnar gamlar, en
lögin virka 5 ár aftur i tímann.
Og bæjarfélög, eins og til
dæmis ísafjörður og Akureyri,
treystu sér ekki til þess að
leggja háar fúlgur ofan á íbúa
gömlu gatnanna.
Gatnagerðarframkvæmd-
irnar í Kópavogi, þar sem
meiningin er að leggja gang-
stéttir og nýtt slitlag á margar
götur, munu kosta um 200
milljónir.
Er fyrirhugað að um 50
milljón króna verði aflað með
erlendri lántöku. Verður það
lán að sjálfsögðu gengistryggt
eins og önnur erlend lán.