Dagblaðið - 19.07.1976, Qupperneq 3
DACiBLAÐIÐ. — MANUDAGUR 19. JÚLl 197fi.
Afhjúpum
bónbjargar
stefnuna
— gerum gagn-
kvœma
samninga!
— segja sjö í
saumaklúbbi
Sjö í saumaklúbbi skrifa:
Þrátt fyrir að starfsemi
saumaklúbba liggi niðri á sumr-
in höfum við vinkonurnar haft
þann sig að koma saman einu
sinni í mánuði yfir sumarið.
Við tökum þá eiginmennina
með svona til að sýna þeim að
þetta sé „opinn“ félagsskapur.
Nú, en hvað um það! Það sem
við vildum sagt hafa er að við
fylgjum Sjálfstæðisflokknum
að málum en getum ómögulega
samþykkt núverandi stefnu
hans í varnarmálum. Þar
viljum við að herinn — eins og
aðrir þeir sem hér á landi
dvelja — greiði sömu tolla og
skatta og landsmenn.
Mikið hefur verið rætt og
ritað um hina svokölluðu „bón-
bjargarstefnu“ í varnarmálum
sem nú er fylgt. Þessi stefna er
rökstudd með þeirri fjarstæðu
að varnarliðið sé hér eingöngu
til að verja okkur. Ýmsir aðilar
hafa hvatt til þess að gerður
verði gagnkvæmur samningur
við Bandaríkjamenn um ýmsar
framkvæmdir í landinu vegna
þátttöku okkar í'NATO.
Norðmennhafakinnroðalaust
fært sér í nyt veru sína í NATO.
Menn verða að gera sér grein
fyrir að hér er ekki um einhliða
„plokkun" að ræða, heldur
koma til hagsmunir beggja
aðila — það er ef NATO hefur
raunhæfan áhuga á raunhæf-
um vörnum á Islandi.
Nú féfletta ýmis fyrirtæki
herinn, t.d. með byggingu
íbúða, sem eru miklu dýrari en
þekkist hér á almennum mark-
aði. Þetta er ekkert annað en
auvirðileg bónbjargarstefna og
lítilmótleg. Þó eru þessar
íbúðir að einhverju leyti und-
anþegnar ýmsum gjöldum á
byggingarefni, sem flutt er inn
beint til Keflavikurflugvallar
undanþegið gjöldum.
Já, ýmsir aðilar hafa nokkurs
konar einokun á að féfletta her-
inn suður á Miðnesheiði. Eðli-
lega vilja þessir aðiiar ekki
missa tök sín á bitanum feita.
Þvi liggur beinast við að gera
heiðarlegan samning við
Bandaríkjamenn og NATO.
Samning sem eflir á raunhæfan
hátt varnir íslands og er því
báðum til hagsbóta. ,
Ef til vil! þarf einhver sam-
tök til að berjast fyrir raunhæf-
um vörnum á íslandi, tii að
mvnda samtök eins og baráttu-
samtök ^jálfstæðismanna — en
einmitt um daginn birtist bréf i
DB frá þremur mönnum í þess-
um samtökum.
Ljóst er, að Sjálfstæðisflokk-
urinn sefur, að minnsta kosti
forysta hans. Bezt væri að
flokkurinn vaknaði áður en
hann gloprar niður fvlgi sínu.
Á því er hætta! Ef til vill vilja
þeir, er hæst hrópa um siðleysi
og bónbjargir, mynda innlent
varnarlið, er tæki við vörnum
iandsins. Það væri allavega
heiðarlegra. Ástandið í formi
núverandi bóngjarnan.tefnu er
þjóðarskömm, sem s.vmr liþjuð-
hollan undirhi'gjuiiátt hvernig
sem á málin er litið.
3
JEANS
ÞÚ ERT
NÆSTUR
LAUGAVEGUR
BANKASTRÆTI
©-21599
©-14275