Dagblaðið - 19.07.1976, Síða 14
14
DACBLAÐIÐ. — MÁNUDAGUR 19. JULl 1976.,
í keppni karla sigraði Nikolai
Andrianov, Sovét, i hringjum og á
tvíslá — 9.80 í báðum greinum —
Zoltan Magyar, Ungverjalandi, á
hesti með 9.75 og Vladimir
Markelov, Sovétríkjunum, i gólf-
æfingum með 9.70 stig.
íslandsmet
Vilborgar
Vilborg Sverrisdóttir, Hafnar-
firði, varð f.vrst íslenzku þátttak-
endanna til að keppa á Olympiu-
leikunum. Það var i 100 m skrið-
sundinu í gær. Vilborg s.vnti á
1:03.26 mín. og setti nýtt íslands-
met. Eldra metið átti Lisa
Ronson, 1:03.3 mín. Þrátt f.vrir
þennan árangur varð Vilborg í
sjöunda og síðasta sæti í 2. riðli
sundsins — og nr. 43 af 45 kepp-
endum í 100 m skriðsundinu, sem
luku keppni.
Úrslit i riðlunum urðu þessi:
1. A. Jardin, Kanada, 57.61
2. J. Weber, V-Þýzkaland, 57.71
3. S. Yamazaki, Japan, 60.43
4. R. Nizzen, V-Þýzkaland, 60.60
5. L. Harvvav, Astraliu, 61.59
6. D. Sheehan, írlandi, 62.11
7. Vilborg Sverrisdóttir 63.26
SK
Olympíulei
Setningarhátíð 21.
Ólympíuleikanna — þeirra
átjándu, sem háðir eru, — fór
fram með miklum glæsibrag í
Montreal á laugardag, en jafn-
framt biturleik og ruglingi.
Enginn vissi hve þátttökuþjóðir
voru margar — yfir 20 Afríku- og
Arabaþjóðir voru ekki við
setninguna auk Taiwan. Ólvmpíu-
hugsjónin virðist í mikilli hættu.
Pólitískar deilur eru á góðri leið
með að splundra Ólympíu-
hreyfingunni — og aldrei fyrr
hafa skuggahliðarnar verið jafn
margar við setningu Ólympíu-
leika og nú. En Kanadamönnum
fór setningarhátíðin vel úr
hendi — uin það verður ekki
deilt. Þar var mikil litadýrð,
fegurð, og allt fór fram sam-
kvæmt áætlun.
Yfir sjötíu þúsund áhorfendur
voru samankomnir á hinum stór-
kostlega leikvangi í Montreal og
veðrið lék við þá. vfir 25 stiga hiti
og sólskin.
Elísabet Bretadrottning önnur
opnaði leikana og mælti f.vrst á
frönsku — síðan ensku. I fyrsta
skipti hlupu tveir íþróttamenn
með Ólvmpíueldinn inn á leik-
vanginn. Enskumælandi drengur,
16 ára. og 14 ára frönskumælandi
stúlka. Úlympíufáninn var
dreginn að hún'i —á m.jög hárn
fanastöng á suðurhluta leik-
vangsins og þar mun hann blakta
næstu tvær vikurnar. Lvftinga-
maður frá Quebee sór Ólvmpiu-
eiðinn fyrir hönd allra þátt-
takanda. Uti fyiir leikvanginunt
var mikið svartamarkaðsbrask
með aðgöngumiða. Margir stóðu
með skilti. sem á var letrað;
Okkur vantar miða, og verð á
miðum komst upp i fjörutíu
dollara.
Keppendurfrá
94 löndum
Yfir 7000 þátttakendur gengu
inn á leikvanginn á setningar-
athöfninni — og þátttökuþjóðir
reyndust 94 í lokin. Fleiri og fleiri
lönd höfðu helzt úr lestinni,
en það kom í ljós þegar
íþróttafólkið gekk framhjá
heiðursstúkunni. Tanzanía,
Sómalía og Mauritius sendu
aldrei þáttakendur . til
Montreal — og rétt fyrir
setningarathöfnina gengu eftir-
taldar þjóðir úr skaftinu. Alsír.
Mið-Afríkulýðveldið, Kongo.
Eg.vptaland, Eþíópía, Gabon.
Gambía, Ghana, Irak, Kenýa,
Líbía, Malagasy, Nígería, Uganda,
Taiwan, Chad, Togo, Efri-Volta og
Zambía. Alls 22 þjóðir — en eftir
á að koma í ljós hve margar þeirra
hætta við þátttöku. Egyptar mót-
mæltu þátttöku Nýja-Sjálands á
leikúnum með því að mæta ekki á
setningarhátiðina, en rnunu ef af
líkunt lætur keppa á leikunum. og
svo mun um fleiri Araba-þjóðir,
jafnvel Afríku-þjóðir.
Að venju gengu Grikkir fyrstir,‘
inn á leikvanginn og var fagnað
mjög — síðan komu V-Þjóð-
verjar. sem héldu síðustu leika
í Múnchen 1972. Þá komu þátt-
tökuþjóðir hver af annarri i
stafrófsröð. Antica. Antilles.
Andora. Saudi-Arabía — örfáir
iþróttamenn í hverjum hóp, — en
siðan Argentína og Astralía með
mikinn f.jölda þátttakenda.
Minnsti flokkurinn var frá Fiji.
tveir keppendur. karl og kona og
íslenzki olympíuhópurinn gengur inn á leikvanginn í Montreal á
setningarhátíðinni á laugardag. ísland var 57. landið í röðinni.
Óskar Jakobsson er fánaberi — og í næslu röð má sjá Svein
Björnsson aðalfararstjóra, Gísla Iíalldörsson forseta ÍSÍ, Örn
Eiðsson formann FRÍ, og Braga Kristjánsson gjaldkera olvmpíu-
nefndar. Símamynd NTB.
Allt í Ijóm
andi gengi!
— sagði Sveinn Björnsson í Montreal í nótt
Ferðin hingað til Montreal
gekk í alla staði mjög vel — við
Fyrsta gull
austur-þýzkt
Austur-Þjóðverjinn Uwe
Potteck varð fvrstur til að hljóta
gullverðlaun á 21. Olvmpíuleik-
unum. Það var í skotkeppni —
frjálsri aðferð með skammbyssu
og Uwe setti nýtt heimsmet.
Illaut 573 stig af 600 mögulegum.
Heimsmeistarinn llarald
Vollmar, einnig frá A-Þýzkalandi,
sem talinn var sigurstranglegast-
ur f.vrirfram, varð að láta sér
nægja annað sætið. Hlaut 567
stig. Potteck bætti heimsmetið
um eitt stig. Það var 572 stig, sett
1969 af Grigory Kossych. Sovét-
ríkjunum. Potteck er 21 árs og
árangur hans í lotunum sex var
92-98-94-95-98 og 96. Eldra
olympíumetið var 567 sett af
Ragnari Skanaker, Sviþjóð, 1972.
Lengi vel var haldið af olympíu-
meistarinn Ragnar hefði orðið 3ji
í gær — en svo re.vndist ekki við
nánari endurskoðun. Rudolf Doll-
inger, Austurríki. varð 3ji með
562 stig. Heinz Mertel V-
Þýzkalandi, fjórði með 560 stig.
Þá kom Sviinn í fimmta sæti með
559 stig. ítalinn Tondo varð sjötti
Í með sömu stigatölu, og Kosvkh,
Sovétrikjunum, sjöundi — einnig
með 559 stig.
En það nœsta
varð sovézkt
Sovézku sveitinni í 100 ni hjól-
reiðum tókst að standast gífur-
legan endasprett þeirra pólsku á
leikunum í Montreal í gær — og
hljóta þar með önnur gullverð-
launin á 21. Olympiuleikunum.
Sovézku hjólreiðamennirnir náðu
forustu þegar i upphafi og eftir
50 km voru þeir 69 sek. á undan
Pólverjum. Eftir 75 km var
munurinn 59 sek. og aöeins 20
sek. i lokin. Meðal áhorfenda var
sovézki íþróttamálaráðherrann,
Sergei Pavlov.
l'rslit urðu þessi.
1. Sovétríkin 2:08.53.0
2. Pólland 2:09.13.0
3. Danmörk 2:12.20.0
4. V-Þýzkaland 2:12.35.0
5. Tékkóslóvakia 2:12.56.0
6. Brctland 2:13.10.0
7. Svíþjóð 2:13.13.0
8. Noregur 2:13.17.0
9. Astralia 2:13.43.0
10. A-Þýzkaland 2:14.39.0
vorum 4 klst. og 35 mín. á leiðinni
frá Keflavík og þó gæzla sé hér
mikil gekk tollskoðun og ferðin í
olympíuþorpið vel fyrir sig, sagði
Sveinn Björnsson aðalfararstjóri
ísl. olympíuliðsins, þegar blaðið
ræddi við hann í nótt.
Það eru allir inni í herberginu
minu að horfa á sjónvarpið - það
helzta, sem skeði á leikunum í
gær. Klukkan er nú að nálgast eitt
— fjórum tímum á eftir ísienzka
tímanum. Það er einnig sjónvarp
á skrifstofu, sem við höfum tilaí-
nota hér í byggingunni. Aðstaða
er sæmileg — nokkuð þröngt þó,
4—6 saman í stórum herbergjum.
Skipt í bása.
Vilborg Sverrisdóttir setti ts-
landsmet í gær — og meira er
ekki hægt að krefjast, en kepp-
endur okkar nái sínum bezta
árangri. Sundfólkið hefur verið í
mikilli sókn á æfingum — en hjá
frjálsíþróttafólkinu hafa enn ekki
verið mældar kastlengdir eða
teknir tímar á æfingum, sagði
Sveinn ennfremur.
Matur er hér mikill og góður og
kaffiterían, þar sem við borðum
er eins stór og tveir knattspyrnu-
vellir. Þar er oft handagangur I
öskjunni — þessir stóru menn
þurfa mikið að borða.
Sundkeppnin heldur áfram í
dag — það var nú meira meta-
regnið í gær — og þá keppa Sig-
urður Olafsson og Þórunn Al-
freðsdóttir. Það er allt í ljómandi
gengi hér — allir frískir og una
glaðir við sitt, þrátt fyrir hina
miklu gæzlu, sem er hér í
olympíuþorpinu. Varúðarráðstaf-
anir eru gífurlegar til að koma í
veg fyrir hugsanlegar aðgerðir
einhverra herntdarverkaflokka,
sagði Sveinn Björnsson aðlokum.
Fara Egyptar
aftur heim?
Olympíulið Egypta varð heldur
betur fyrir vonbrigðum í nótt,
þegar ske.vti kom frá egypzku
rikisstjórninni, þar sem liðinu
var skipað að koma heim. Farar-
stjórinn el Shafei hafði rætt við
Sadat i síma nokkru áður og
Sadat þá sagt, að Eg.vptaland yrði
að taka þátt í leikunum. Egyptar
voru ekki við setníngarathöfnina
— en hnefaleikamcnn og lyft-
ingamenn höfðu krppt á leikun-
um, þegar skeytið kom, og egypzk
lið tekið þátt i körfubolta og
blaki.
Þá tilkynnti Guvana í gær, að
landið dragi sig í hlé á leikunum
til að sýna Afriku-ríkjum samúð í
mótmælum þeirra við þátttöku
Nýja-Sjálands.
☆
Undankeppnin i sundknattleik
hófst í gær — á fyrsta degi leik-
anna. I sundknattleiknum er
liðum skipt i 3 riðla — en 12 lið
komust i úrslit. A óvart kom að
olympíumeistararnir frá '72 —
Sovétrikin gerðu jafntefli við
Rúmena 5-5.
Urslit urðu: A-riðill. Sovétrikin
— Rúmenia 5-5
Ilolland — Mexikó 5-3
B-riðill:
Ungverjaland — Ástralia 7-6
V-Þýzkaland — Kanada 5-0
C-riðill:
ttalia — Iran 12-1
.lúgóslavia — Kúba 4-4