Dagblaðið - 04.08.1976, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 04.08.1976, Blaðsíða 9
DAliBLAÐIt). — MIÐVIKUDAIiUK 4. AUUST 1976. 9 BILASALAR ANNAST Ml LL J ARÐAVIÐSKIPTIARLEGA: EKKERT EFTIRLIT MEÐ TIL- SKYLDUM VERZLUNARLEYFUM Bilasalar i Reykjavík annast milljaröaviöskipti árlega, en ekkert eftirlit er, meö því hvort þeir eri^ færir um að ganga frá nauðsynlegum viðskiptaskjöl- um í örum eigendaskiptum þeirra verömæta sem bilar eru. Hér er að sjálfsögðu átt við þá, sem einungis taka að sér að selja notaða bíla. ,,Ég þykist ekki vera í vafa um að bílasalar þurfi verzlunar- Ieyfi,“ sagði Ölafur W. Stefáns- son. deildarstjóri í dómsmála- ráðuneytinu, í viðtali við Dag- blaðið. Ölafur sagði, að hvort sem litið væri á starf þessara manna sem tilboðasöfnun, umboðssölu eða annars konar meðalgöngu um viðskipti, félli það undir ákvæði laga um verzlunaratvinnu nr. 41 frá 1968. Til þess að selja karamellur í gegnum lúgu þarf verzlunar- leyfi, sem kostar nú kr. 50 þúsund, og ekki eru veitt öðrunt en þeim sem uppfylla tiltekin skilyrði. Meira að segja þarf verzlunarleyfi til þess að reka fornsölu með notaða húsmuni. Ekki er verið að vega að þeim bílasölum sem rækja starf sitt af ábyrgðartilfinningu þótt að þessu sé vikið, heldur bent á nauðsyn þess, að með einföldu eftirliti sé reynt að gæta hags- muna þeirra sem leita eðli- legrar þjónustu við sölu og kaup notaðra bíla. Dagblaðið sagði nýlega frá eftirfarandi viðskiptum: Full- orðinn maður setti notaðan bíl í sölu hjá bílasala. Kaupandi gaf •sig fram og bauð verð sem selj- andi sætti sig við. Það var kr. 140.000.00. Kaupandinn hafði handbærar kr. 20.000.00. en bauðst til að samþykkja víxil til þriggja vikna fyrir eftirstöðv- unum, að frádregnum sölulaun- um til bílasalans, sem hann gat snarað út. 117.200.00 króna víxill var ekki greiddur á gjald- daga og við eftirgrennslan kom í ljós að kaupandinn var eigna- laus. Hins vegar hafði hann selt bílinn strax aftur og fengið hann að fullu greiddan! „Bílasalanum bar að tryggja greiðslu víxilsins eftir því sem föng voru á,“ sagði Halldór Snorrason, sem er einn elzti og reyndasti bílasali borgarinnar, í viðtali við Dagblaðið. „Fyrir tryggilegan frágang er.u sölu- launin tekin," sagði Halldór, „enda þótt gæta beri hagsmuna beggja aðila í bílaviðskiptum." Varðandi verzlunarleyfi sagði Halldór: „Ég hefi talið skylt og sjálfsagt að hafa slíkt leyfi. Bílasala er ábyrgðarstarf." Allmörg ár eru nú síðan umræða var á Alþingi um að setja skilyrði fyrir bílasöluleyfi hliðstætt leyfi til fasteignasölu. Hversu sem þvi verður bezt háttað að tryggja hæfni og áreiðanleika þeirra sem við bílasölu fást, er fullkomin ástæða til eftirlits með þessum umfangsmiklu viðskiptum. —BS Lögreglumenn í þyrlu stöðvuðu ökufant Það er óalgengt að lögreglumenn i þyrlu hafi hendur í hári ökuþóra og sjái um að þeim sé komið til réttra yfirvalda. Þetta gerðist þó á mánudaginn i allri umferðinni til bæjarins. Þegar Oskar Ölason og menn hans voru i þyrlu Landhelgisgæzl- unnar og SVFÍ að fylgjast með untferðinni, sáu þeir mann á mótorhjóli á Suðurlandsvegi á um 100 km hraða. Flugmaður þeirra varð við beiðni þeirra um lendingu og þeir stöðvuðu ökuþórinn og sáu um að hann kæmist til réttra yfirvalda. Auk þess aö vera á ólöglegum hraða reyndist hjólið ekki upp- fylla skilyrði skoðunarmanna. Var það svipt númerum sínum. Hjólið var „gamall kunningi" lög- reglumanna, enda farkostur þeirra í eina tíð. — ASt. BISKUPAR Á N0RÐURLÖNDUM GREIÐA ATKVÆÐI 18. þing biskupa á Norðurlönd- um var sett í Hátíðarsal Háskól- ans í gærdag. Það var biskup íslands, hr. Sigurbjörn Einarsson, sem setti þingið, en auk hans taka þátt í því fyrir Islands. hönd, vígslubiskuparnir sr. Sigurður Pálsson, Selfossj og sr. Pétur Sigurgeirsson, Akureyri. Þing sem þetta er haldið þriðja hvert ár en þetta er í fyrsta skipti sem það er haldið hér á landi. Ennfremur mun þetta vera mesti fjöldi biskupa sem hefur verið samankominn á íslandi á sama tíma. Helztu umræðuefni biskupa- þingsins eru: Skírn, trú og upp- fræðsla; Kirkja og ríki; Helgisiðir á Norðurlöndum; Frelsi mannsins í samfélagi nútímans, auk þess sem einn biskup frá hverju landi mun ræða um vandamálin í eigin kirkju. Þá verða einnig ræddir •möguleikar á því að norrænir prestar geti fengið prestsstörf og önnur kirkjuleg störf innan Norðurlandanna og öðlist rétt til að starfa i þeim öllum. Biskuparnir munu heimsækja forseta íslands og ferðast til Þing- valla en þinginu verður slitið f Skálholti á föstudag. JB/DB-mynd Biarnleifur Leiddist biðin hjá Bif- reiðaeftirlitinu og f ór Mœldist á 120 km hraða á Kringlumýrarbraut Þeir komust upp í 120 km hraða á klukkustund i eltinga- leiknum við ökumann þessa „tryllitækis" af Mustang gerð, sem er á breiðum börðum og vel búið til spyrnu. Honum var fyrst gefið stöðvunarmerki á Langholtsvegi og hlýddi hann þvi. Var honum fylgt til Bif- reiðaeftirlitsins þar sem skoða átti farkost unga mannsins. Lögreglumennirnir yfirgáfu síðan staðinn. En þeir höfðu ekki farið ýkja langt er þeim var tilkynnt að ökumaðurinn ungi hefði ekki viljað una við hjá Bifreiðaeftirlitinu og ekið þaðan á brott á óskoðuðu trylli- tækinu. Hófst nú leitin. Hún bar árangur er Mustangbifreiðinni sást ekið eftir Litluhlíð í Hliða- hverfi. Er lögreglan var komin í leikinn jók ökumaðurinn hraðann og á Kringlumýrar- braut mældist hraðinn 120 km á klst. Var nú stefnt á Kópavog og sveigt út á Kársnesbraut. Þar slóst Mustang-bíllinn lauslega í kyrrstæðan bíl en olli ekki skemmdum. A Kársnes- brautinni lyktaði eltingáleikn- um með handtöku unga manns- ins. Var hann nú færður til yfir- heyrslu í lögreglustöðina og bíllinn færður til skoðunar. Þar var hann stýfður númers- plöttim, því ekki uppfyllti hann skilyrðin. Ekki eru því allar ferðirtil fiárbótt farnar séu. ASt w NYK0MIÐ! Teg. 404 Litur: L.jós brúnt leður. Stærðir: Nr 3—VA <í V4 nr.). VERÐ Kr. 4980, Teg. 327 Litur: Ljós- brúnt leður Stærðir: Nr. 3—7 'á (i '/í nr.). VERÐ Kr. 4980,- Póstsendum Skóverzlun Þórðar Peturssonar Kirkjustrœti 8 v/Austurvöll - Sími 14181

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.