Dagblaðið - 23.10.1976, Blaðsíða 7
DACíBLAÐIÐ. LAUC5ARDACUR 23. OKTOBKR 1976.
Liege 19. október 1976.
Atlunda umferð 1. deild.
Antwerpen—Standard 0-0.
Þetta var mikilvægur leikur
fyrir bæði liðin, sem eru
ofarlega í 1. deildarkeppninni.
Síðastliðin ár hefur Standard
gengið vel í leikjum sínum við
Antwerpen og á.Durne og sl.
sunnudag átti Standard skilið
bæði stigin. Standard lék nú
skínandi góða knattspyrnu og
með smáheppni hefðu mörkin
hæglega getað orðið 4-5.
I byrjun fyrri hálfleiks átti
Tater gott skot af stuttu færi,
en Trappeniers, markmaður
Antwerpen, bjargaði naumlega
i horn.
Síðasta hálftímann sóttum
við látlaust. Trappeniers
bjargaði hvað eftir annað
snilldarlega, og svo fór
að leiknum lauk með jafntefli.
RWDM—Waregem 3-0
Af þeim fjórum belgísku
liðum (Anderlecht, Molenbeck,
FC Brugge og Lokeren), sem
leika í Evrópukeppnum nk.
miðvikudag náði RWDM beztu
úrslitum helgarinnar.
Waregem hafði lítið að gera í
hendurnar á RWDM, sem nú
var í miklum ham. Lék einn
sinn bezta leik á þessu
keppnistímabili.
Öll mörkin voru skoruð í
fyrri hálfleik og öll eftir slæm
varnarmistök.
Mörk RWDM skoruðu.
Lafont 1-0, Olsen 2-0 og Wellens
3-0.
CS Brugge—FC Brugge
KNATTSPYRNAN
I BELGIU
Ásgeir
Sigurvinsson
Brugge liðin, FC Brugge og
CS Brugge, léku innbyrðis á
laugardagskvöld og skildu jöfn
í fjörugum og vel ieiknum leik.
Fyrst i stað leit út fyrir
auðveldan sigur FC Brugge og í
hálfleik var staðan 2-0.
Lambert skoraði fyrsta
markið úr viti og Roger Davies
bætti öðru við á 43. mín.
Davies, sem lék áður með
Derby County.áttimú sinn bezta
leik frá því að hann kom til
félagsins. CC Brugge var ekki á
því að gefast upp fyrir „Stóra
bróður" og Nasdalla skoraði tví-
vegis með stuttu milbili.
FC Malines—Anderlecht 1-1
Sanngjorn úrslit ef undan er
skilið víti'ð, sem dómarinn,
M.Schaut, gaf Anderlecht á
fertugustu mínútu.
Rensenbrink skoraði 1-0.
Rensenbrink átti afleitan leik.
Sennilega sinn versta með
Anderlecht frá upphafi.
FC Malines jafnaði i byrjun
síðari hálfleiks og var þar
Spánverjinn Aguas að verki.
McKenzie, sem Anderlecht
keypti frá Leeds, er enn vara-
maður og virðist ganga illa að
komast inn i leikskipulag
Anderlecht.
Courtrai—Charleroi 0-0
Daniel Mathy, markmaður
Charleroi, bjargaði liðinu frá
tapi og átti stórleik. Leikurinn
var frekar slakur, en með
góðum köflum á milli.
Önnur deild:
Union gerði sér lítið fyrir og
sótti bæði stigin til Gent (La
Gantoise).
Leghait skoraði fljótlega í
fyrri hálfleik og eftir það lagði
Union aðaláherzlu á að verjast
og halda markinu. Þetta tókst
þó oft skylli hurð nærri hælum.
Marteinn Geirsson vareins og
klettur í vörninni og bjargaði í
ófá skipti.
Stefán lék einnig með og átti
ágætan leik.
Kveðja
Ásgeir Sigurvinsson.
Staðan
deild.
FC Brugge
Antwerpen
Anderlecht
Standard
Lierse
Molenbeek
Beerschot
Courtrai
CS Brugge
Lokeren
Charleroi
Beveren
Beringen
Waregem
FC Malines
Winterslag
FC Liege
Ostende
er nú þannig í 1.
8 19-6 14
8 12-9 12
8 20-7 12
8 10-7 11
8 13-11 11
8 11-5 10
8 16-14 9
8 10-9 9
8 12-14 9
8 10-9 8
8 7-9 7
8 9-12 6
8 7-13 5
8 11-15 5
8 8-14 5
8 7-10 4
8 5-13 4
8 10-20 3
„Byssur og skotfimi"
í annarri útgáfu
Bók sem œtti að vera skyldulestur
fyrir alla er fá byssuleyfi
„Byssur og skotfimi" heitir bók
Egils J. Stardals, sem Bókaútgáfa
Guðjóns 0. hefur sent á markað-
inn í annarri prentun. Bókin kom
fyrst út 1969 en var uppseld með
öllu. I bókinni er að finna marg-
víslegan fróðleik um byssur og
meðferð þeirra. Rakin er söguleg
þróun skotvopnanna, skotfimi
sem íþrótt. rætt um hirðingu og
meðferð skotvopna, varúðar-
reglur, veiðar og náttúruvernd.
Tel.ja má að bók þessi sé nauð-
synleg öllum þeim sem með skot-
vopn fara og hefur bætt og mun
bæta úr tilfinnanlegum þekk-
Grafarinn með fœðingartengurnar
— ný Ijóðabók eftir Hrafn Gunnlaugsson
Komin er út hjá Helgafelli
ljóðabók eftir Hrafn Gunnlaugs-
son. Þetta er önnur ljóðabók höf-
undar, hina fyiri nefndi hann
Astarljóð og hana gaf Helgafell út
1973. Grafarinn með fæðingar-
tengurnar, en svo nefnir höf-
undur bók sína, skiptist í þrjá
kafla. Þeir nefnast: Eftir öll þessi
ár, Kvæði i kross og Sláttur og
sút. 1 bókinni eru 24 ljóð og er
hún 74 síður. Víkingsprent
prentaði.
— KP
Á myndinni til vinstri er sýnt fyrirbrigði sem því miður er of algengt. Tveir
veiðimenn hittast og taka tal saman og byssurnar gætu líka sagt sína meiningu
all óhugnaniega ef þær fengju „málið". Á myndinni til hægri sést hverniggielnir
nicnn handleika byssur sínar. Það er kannski vissara að taka það fram að þess^r
senur voru .leiknar fyrir framan myndavélina af þessum gömlu veiðifélögum
og byssurnar voru örugglega öhludnar!!
ingarskorti byssuleyftshafa um
skotvopn. Auk þess sem bókin
veitir margvislegan fróðleik um
hinarýmsutegundir af byssum og
skot í þær, fræðir hún um ýmis
hjálpartæki s.s. sjónauka og sjón-
aukamið, undirstöðuatriði varð-
andi riffilskotfimi, hreinsun skot-
vopna og ýmsar varúðarreglur.
Fjallað er sérstaklega um
rjúpnaveiðar og gönguferðir að'
vetrarlagi, um áttavita og birt eru
lög um fuglaveiðar og fugla-
friðun.
Það er fengur að þessari bók
fyrir alla sem með byssur fara.
— ASt.
REGNBOGA-
PLAST H/F
Kársnesbraut 18
Sími 44190
Framleiöum
auglýsingaskilti meö
og án Ijósa. Sjáum um
viögerðir og viöhald.
önnumst einnig
nýsmíöi og viöhald á
ýmiss konar piasthlut-
um.
Kaupið tízku-
fatnaðinn SNIÐINN
Sendiö gegn póstkröfu
« Nr. Mlttl: Mj.V
□ □ 34 63 86
□ □ 36 65 90
□ □ 38 67 94
□ □ 40 70 98
□ □ 42 74 102
□ □ 44 78 106
□ □ 46 82 110
□ □ 48 89 114
Lltir: Terylen*
□ Flauel: □ Hvítt
□ Beige □ Rautt
□ Grátt □ Graent
□ Gráblátt □ Svart
□ Brúnt
BuKur =
& Pils-------------------------
Vesturgðtu 4 - Pósthóll »1 ,
Barátta hafín
Nýstofnuð landhelgissam-
tök halda aðalfund sinn
þriðjudaginn 26. okt. kl.
20.30 í Félagsheimili prent-
ara. Hverfisgötu 21. Dag-
skrá: 1) Venjuleg aðalfund-
arstörf — 2) Hvað er fram-
undan í landhelgismálinu?
Nýir félagar veikomnir. —
Stjórnin.
AF TILEFNIIÐNKYNNINGAR
EINANGRUNARGLER
: ■ - Við framleiðslu íspan-einangrunarglers eru notaðar nýjustu fáanlegar vélar og tæki og jafnan fylgzt meö nýjungum, sem fram koma erlendis viðvíkjandi gæðum og hagræðingu við framleiðsluna.
□ n 0 PANTIÐ TÍMANLEGA
Tvöfalt Þrefalt Höfum eigin bfl til glerf lutninga
A Þéttifistar
B Þéttikitti
C Loftræstíng
D Plastklossi
c
ISPAN HF.
EINANGRUNARGLER
FURUVÖLLUM 5 - AKUREYRI
SÍMI (96)21332