Dagblaðið - 23.10.1976, Blaðsíða 24
Húsnœðismálastofnun:
1990 milljónir til 1889
íbúða þetta árið
— þeir sem áttu fokhelt 1. ágúst hafa fengið
vilyrði auk 734 sem keyptu gamlar íbúðir
Húsnæðismálastofnun
ríkisins hefur á þessu ári veitt
alls 1990,5 milljónir króna í lán
til þeirra sem á eigin spýtur
standa í byggingum, Eru lán
þessi veitt til 1155 nýrra íbúða
og til kaupa á 734 eldri íbúðum.
Auk þessarar upphæðar mun
stofnunin veita lán til mörg
hundruð íbúa í verkamanna-
bústöðum og til íbúðabygginga
sem eru í smíðum fyrir aldraða.
Sigurður E. Guðmundsson
framkvæmdastjóri Húsnæðis-
málastofnunarinnar sagði í
viðtali við DB að
lánveitingarnar á þessu ári
skiptust þannig að frumlán til
1155 íbúða næmu 836.9
milljónum króna. Viðbótarlán
næmu 911,5 milljónum króna
og hefði þeim verið úthlutað í
fimm lánveitingum á árinu. Til
kaupa á eldri íbúðum væri alls
búið að lána 242,1 milljón
króna og næðu þau lán sem fyrr
segir til 734 íbúða.
Tekjur Húsnæðismála-
stjórnar i ármunu nematæplega
fimm milljörðum króna. Er
reiknað með að stofnunin fái
frá ríkissjóði alls um 2.170
milljónir og er mestur hluti
þeirrar upphæðar launaskatt-
urinn. Gert er ráð fyrir að
lífeyrissjóðir kaupi skuldabréf
af stofnuninni fyrir 1000 til
1100 milljónir. Atvinnuleysis-
tryggingasjóður kaupir bréf
fyrir um 400 milljónir. Reiknað
er með að inn komi í afb'organir
eldri lána og önnur gjöld um
840 milljónir króna og frá
skyldusparnaði fái Húsnæðis-
málastofnun um 400 milljónir
króna.
Sigurður Guðmundsson sagði
að almennt séð væri ekki
ástæða til að kvarta um drátt á
greiðslum lána í ár. Búið væri
að taka ákvarðanir um
lánveitingar til allra þeirra sem
gátu skilað vottorði um fokhelt
hús fram til 1. ágúst. Frá
ákvörðuninni um lánveitingar
til þessra aðila væru ekki liðnar
nema lOvikur en biðin eftir út-
borgun lána hefði oft verið
meiri. Unnið væri að því nú að
kanna leiðir til að veita þeim
fyrirgreiðslu sem gerðu fokhelt
eftir 1. ágúst. Skuldabréfakaup
lífeyrissjóðanna eru mjög
mikilvægur þáttur í tekjuöflun
Húsnæðismálastofnunarinnar
en ekki væri enn ljóst í hve
ríkum mæli bréfakaup
sjóðanna yrðu.
-ASt.
Eyddum sem
svarar verði um
150 íbúða í
úfengi í sumar
Kveðja gott sumar
Krakkarnir á llallormsstað eru
ekki einir um það að bera lof á
sumarið sem nú er horfið. Þessi
mynd var tekin nýiega þar
eystra. Enda þótt haust væri
komið var sumarblíða engu að
síður ríkjandi, rétt eins og
verið hefur dag eftir dag, viku
eftir viku, á norður- og austur-
slóðum. Eflaust munu Sunn-
lendingar og aðrir ibúar regn-
svæðisins samfagna löndum
sínum í sólskinsbeltinu en
vonast jafnframt eftir réttlát-
ari skiptingu sólskinsins næsta
sumar. (DB-mynd JBP).
frfálst, úháð dagbláð
LAUG ARDÁGUR 23. OKTÖBER
Egilsstaðaf luqvöllur:
Flugvél
magalenti
— hjólin gófu eftir ó
miðri brautinni —
engan sakaði
Tveggja hreyfla flugvél af
gerðinni Beechcraft
Bonanza, magalenti á Egils-
staðaflugvelli laust fyrir kl.
4 i gær en hvorki flugmann-
inn né eina farþegann sak-
aði.
Allt virtist eðlilegt í að-
fluginu og sýndu ljós að
hjólin voru komin niður og
örugg þar. Lenti vélin eðli-
lega og rann nálægt 200
metra á hjólunum en þá fóru
þau að gefa eftir og fóru loks
alveg upp í vélina. Rann hún
þá á belgnum inn á aðkeyrsl-
una á flugstöðinni og stað-
næmdist þar.
Starfsmenn flugmála-
stjórnar og Flugfélags Is-
lands á vellinum brugðu
skjótt við með slökkvitæki
en svo vel vildi til að eldur
kom ekki upp.
Vélin er eitthvað skemmd
að neðan en líklegast munu
báðir hreyflarnir ónýtir því
skrúfublöðin rákust niður í
jörðina og urðu af þvi mikil
högg.
Flugfélag Austurlands á
þessa flugvél og var hún að
koma frá Vopnafirði. — G.S.
Árolðngu
puði lokið
— H.í. brautskróir
kandidata í dag
Áralöngu puði nokkurra
stúdenta við Háskóla tslands
lýkur formlega í dag kl.
14.00. Þá fá þeir afhent próf-
skírteini sin í hátíðasal
skólans. Háskólarektor,
Guðlaugur Þorvaldsson
prófessor, flytur ávarp að
venju og síðan afhenda
deildaforsetar hinum nýbök-
uðu kandídötum skírteinisín
Háskólakórinn lætur og í
sér heyra við þetta tækifæri,
eins og svo oft áður. Stjórn-
andinn er frú Ruth Magnús-
son. Það verða eflaust marg-
ir léttstígir þegar þeir ganga
út úr Háskólanum í dag. DB
óskar nýútskrifuðum til
hamingju með áfangann- KP
Það virðist sýnt að ekki
ætlum við tslendingar að
hætta að blóta Bakkus. Sam-
kvæmt tölum sem Áfengis-
varnaráð hefur látið frá sér
fara virðist sem einhver
aukning hafi orðið á því magni
sem við innbyrtum af áfengi í
sumar, frá 1. júlí til 30.
september, ef miðað er við
sama tíma í fyrra. Þetta hefur
þó ekki verið mikil aukning
vegna þess að áfengi hefur
hækkað á þessu tímabili.
Reykvíkingar létu mest til sín
taka í áfengiskaupunum og
eyddu alls 1.190.788.326
krónum í útsölunum hér í
borg. Næ.sl kemur svo
Akureyri eri þar var keypt
fyrir 207.284.020 krónur. A
sama tima i fyrra var verzlað
fyrir 980.012.854 krónur i
áfengisverzlunum í Re.vkjavik
og fyrir 153.153.270 krónur á
Akureyri. Alls eyddum við
1.687.804.166 krónunt i áfengi
þessa mánuði í sumar eða sem
svarar verði ca. 150 góðra
íbúða. -KP.
Þrítugir tvíburar klœða
landið í grœna kópu
Trjáplönturnar í Heiðmörkinni
eru farnar að setja svip á lands-
lagið og hæstu plönturnar eru
orðnar 5 m háar. Arlega eru
gróðursettar þar um 100 þúsund
trjáplöntur i 25 ferkílómetra
svæði.
Aö þessari framkvæmd hafa
aðallega unnið unglingar í Vinnu-
skóla Reykjavíkur undir leiðsögn
kennara og starfsmanna Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur.
Félagið á þrjátíu ára afmæli á
morgun, 24. október, og á mánu-
daginn verður Skógræktarfélag
Hafnarfjarðar einnig þrjátiu ára.
Bæði félögin voru stofnuð þegar
Skógræktarfélag tslands var gert
að sambandi héraðsskógræktar-
félaga viðs vegar unt landið.
Skógræktarfélag Reykjavikur
hefur miðstöð í Skógræktarstöð-
inni i Fossvogi þar sem árl. eru
aldar upp hundruð þúsunda trjá-
plantna. En Heiðmörkin er lang-
vióáttumesta athafnasvæðið. Hún
var vígð vorió 1950.
Félagið hefur einnig at-
hafnasvæði i Öskjuhlíðinni þar
sem þegar má sjá góðan árangur
af gróðursetningunni, og við
Rauðavatn.
Gróðurinn þar hefur verið
kvrkingslegur undanfarin ár, en
hefur tekið stakkaskiptum. Þar
hefur nú verið plantað öðrum teg-
undum en áður var gert.
Félagsmenn i Skógræktarfélagi
Reykjavíkur eru nú 1300 talsins.
Stjörn félagsins skipa Björn
Ofeigsson stórkaupmaður. Guð-
mundur Marteinsson verkfræð-
ingur. Jón Birgir Jönsson verk-
Revkvíkingar hafa ótvirætt áhuga á trjárækt. í sumar var unnið að
gróöursetningu af miklu kappi þrátt fyrir óhagstætt veður. Hér voru
t.d. íbúar við Rauðalæk að snyrta til og fegra við götuna með
gróðursutningu trjáa (DB-m.vnd Arni Páll).
fræðingur. Lárus Blöndal Guð- Framkvæmdastjóri félagsins er
mundsson bóksali og Sveinbjörn Vilhjálmur Sigtryggsson.
Jónsson hæstaréttarlögmaður. —A.Bj.