Dagblaðið - 27.10.1976, Side 4

Dagblaðið - 27.10.1976, Side 4
4 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. OKT0BER 1976. í Heilsurœktinni HEBU opnar fimmtudaginn 28. október Hórgreiðslustofan HRUND Pantanir teknar í síma 44088. Verið velkomnar. Opið verður í Hebu í sauna og nuddi allæ föstudaga frá kl. 2 fram til jóia. SiMI 42360 Heilsurœktin HEBA Auðbrekku 53 sími 42360 Leiguíbúð óskast strax Innflutningsfyrirtæki í borginni óskar eftir góðri 2ja herbergja íbúð í Reykjavík fyrir starfsmann utan af landi. Uppl. um kjör leggist á afgr. Dag- blaðsins, Þverholti 2, merkt „Leiga — 555“. Guðrún Asmundsdóttir leikur eina kvenhlutverkið i leikriti Svövu Jakobsdóttur. Þarna er hún með Harald G. Haraldssyni sem leikur Karl. Glœsibœ — Sími. 83210 Stutt og síó undirpils, verð kr. 1.065.- og kr. 1.120.- Undirkjólar, nr. 40-50, verð kr. 1.550.- og 2.415.- Úrval af nóttkjólum Verzlunin MADAM, Glœsibœ Simi 83210 Húsavík Blaðburðarbörn óskast strax. Hafið samband við umboðsmann, simi 41644 WMBLAÐIB l Smurbrauðstofan Njólsgötu 49 — Simi 15105 Nýtt íslenzkt leikrit í Iðnó: Hvernig vegnar kon- unni í karlasamf élaginu Það er ekki i fyrsta sinn sem þær vinna saman Svava Jakobsdóttir og Bríet Héðinsdóttir og þeim fellur það vel. „Ég er í aðra röndina að reyna að lýsa konunni í hinu mikla og volduga karlasam- félagi sem við lifum í. Leikurinn gerist á heimili konu nú á tímum,“ sagði Svava Jakobsdóttir, alþingismaður og rithöfundur um efni leikrits sins Æskuvinir, sem frumsýnt verður i Iðnó annað kvöld. „Það er nú einu sinni svo,“ sagði Svava, „að ef maður skýr- ir frá efni góðrar leynilögreglu- sögu fyrirfram. þá verður ekkert gaman að henni á eftir. En ég get fullvissað ykkur um að í leikslok reyni ég að finna þann seka, ef hann er þá ein- hver.“ Og meira vildi Svava ekki segja um efnið. Svava ræddi við blaðamenn í gær ásamt Vigdísi Finnboga- dóttur leikhússtjóra og Bríeti Héðinsdóttur sem leikstýrir verkinu. Þetta er í fyrsta sinn sem Bríet leikstýrir i Iðnó, en hún er fastráðinn leikari við Þjóð- leikhúsið og er nú gestaleik- stjóri með „góðfúslegu leyfi Þjóðleikhússins." „Nei, — það hafa ekki orðið breytingar á verkinu eftir að farið var að æfa. Það mætti kannski heldur segja áð það hafi fengið ,,hreinskrift“,“ sagði Svava. „Big vil taka það skýrt frani að leikararnir eiga ekki orð af texta leikritsins," sagði Bríet. „Þær breytingar sem gerðar hafa verið á því eru allar að frumkvæði höfundarins. Það er mikill og útbreiddur misskiln- ingur sem komið hefur fram að leikarar eigi einhvern þátt í því þegar leikritum er breytt eitt- hvað þegar farið er að æfa þau." — Hvert var upphafið að því að þú skrifaðir þetta leikrit til sýningar i Iðnó, Svava?“ „Upphafið má eiginlega rekja til ársins 1973 þegar Vigdís hringdi til min, og reyndar fleiri höfunda. Jlún sagðist vilja minna mig á að árið 1974 væri Þjóðhátíðarár og þá vildi Iðnó gjarnan sýna íslenzk verk. Þetta varð eiginlega kveikj- an, þótt ég byrjaði ekki að skrifa leikritið fyrr en um haustið 1974. Svona upphringing er manni mjög mikils virði og ákaflega uppörfandi fyrir rithöfund," sagði Svava. „Það er ákaflega gaman að fá höfund verksins með þegar verið er að æfa. Það hlýtur að vera skapandi og lærdómsríkt fyrir bæði rithöfundinn og leik- endurna að fá tækifæri til þess að vinna saman," sagði Vigdís leikhússtjóri. „Það virðast vera örlög mín að vinna með Bríeti i leik- húsinu," sagði Svava og virtist kunna því vel. „Við höfum áður unnið saman, þvi Bríet lék aðal- hlutverkið i sjónvarpsleikritinu „Hvað er í blýhólknum" og leik- stýrði leikritinu „Friðsæl veröld," sem flutt var í sam- bandi við kvennaárið. Okkur semur mjög vel að vinna saman," sagði Svava. Leikendurnir í Æskuvinum eru fimm talsins, þar af er aðeins ein kona. Þeir eru Þor- steinn Gunnarsson, Guðrún Ásmunusdóttir, Sigurður Karlsson, Steindór Hjörleifsson og Harald G. Haralds. „Þetta er ekkert óvenjulegt hlutfall í leikhúsverkum í dag," sagði Bríet. „Þetta er yfirleitt alltaf svona, bara ein kona á móti fjórum körlum." Steindór Sigurósson gerði leikntyndina. Gunnar Reynir Sveinsson sér um leikhljóð og Daníel Willíamsson ber áb.vrgð á lýsingunni. —A.Bj.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.