Dagblaðið - 27.10.1976, Síða 6

Dagblaðið - 27.10.1976, Síða 6
DAGBLAÐIt). MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÖBER 1976. Allt vita aparnir — nú eiga þeir að segja til um jaröskjálfta í Kaliforníu Vísindamenn við Stanford- háskóla í Menlo Park í Kaliforníu fylgjast nú náið með nokkrum simpönsum og vona að þeir geti gefið til kynna um næstu meiri- háttar jarðskjálfta í Kaliforníu. Ástæðan fyrir því, að vísinda- menn telja að aparnir geti spáð fyrir um jarðskjálfta, er sú, að er tveir smáskjálftar komu í Kali- forníu í júní síðastliðnum tóku menn eftir því að aparnir urðu mjög ókyrrir skömmu fyrir skjálftann. Þá er einnig fylgzt með hestum, kjúklingum og fleiri húsdýrum í þeirri von, að þau sýni einhver merki um, að þau finni á sér yfirvofandi jarðskjálfla. Jarðskjálftafræðingar við tækniháskólann i Kaliforníu hafa spáð því, að mikill jarðskjálfti verði í Kaliforníu í apríl næst- komandi. — Vísindamenn við Stanford vona nú sem sagt, að aparnir slái jarðskjálftafræðing- um við og gefi vísbendingu um skjálftann á undan öllum öðrum. „Samband Japans og Sovétríkjanna er stórskaðað” Brezhnev — Sovétmenn telja að flugmaður MIG vélarinnar hafi neyðzt til að lenda í Japan ,,Ég vil taka það skýrt fram, að hegðun japanskra stjórn- valda vegna MIG 25 málsins hefur skaðað samband Japans og Sovétríkjanna mjög,“ sagði Leonid Brezhnev aðalritari sovézka kommúnistaflokksins í ræðu á undirbúningsfundi, sem haldinn var vegna flokks- þingsins, sem haldið verður á næstunni. Brezhnev var þarna að tala um mál sovézka flugmannsins, Viktors Belenkos liðsforingja, sem stakk af til Japans með hraðfleygustu flugvél í heimi, MIG 25, og baðst síðan hælis í Bandaríkjunum sem pólitískur flóttamaður. Japanir hafa, sem kunnugt er af fréttum, ákv.eðið að skila þotunni. Þeir eru nú búnir aö rannsaka hana ná- kvæmlega i samvinnu við bandaríska sérfræðinga. Viktor Belenko dvelst nú í Bandarikjunum af fúsum og frjálsum vilja eftir því sem sagt er á Vesturlöndum. Sovétmenn halda því hins vegar fram, að flúið frá Sovétríkjanum, heldur Belenko sé neyddur til að vera hafi hann neyðzt til að lenda i þar og að hann hafi alls ekki Japan vegna bensínskorts. Brezhnev er ekki trúaður á að sovézki flugmaðurinn hafi flúið land. Gloppa í brezkum kosningalögum: JAFNVELIDIAMIN HEFUR KOSNINGARÉTT í BRETLANDI Þingmaður brezka Verka- mannaflokksins hélt því fram í þingræðu Neðri málsstofunni í síðustu viku að Idi Amin Ugandaforsæti væri glöggt dæmi um hrikalegan galla í ál- mennum mannréttindalögum í Bretlandi. Ef Ugandaforseti væri staddur í Bretlandi á meðan á kosningum stæði, þá gæti hann kosið í þeim kosningum. Þingmaðurinn, George Cunningham hélt því jafnframt fram, að vegna þessarar ófullkomnu löggjafar gæti meira en fjórðungur alls mannkyns kosið í Bretlandi. Aðeins einn þingmaður svaraði athugasemd Cunning- hams Athugasemd þing- mannsins var stutt: „Arnin gæti ekki einungis kosið, hann myndi sennilega bjóða sig fram líka. Átti bam með 12 ára stjúpdóttur sinni — á 10 ára fangelsi yfir höfði sér Heimilisfaðir í bænum Hjörring í Danmörku hefur játað að vera faðir að barni, sem tólf ára stjúpdóttir hans eignaðist fyrir stuttu. Hann á yfir höfði sér tíu ára fangelsis- dóm vegna þessa máls. Maðurinn, sem er 34 ára gamall, játaði faðerriið fyrir lögreglu og barnaverndar- nefndinni í Hjörring, skömmu eftir að stúlkan átti barnið, sem er drengur. Hún neitaði staðfastlega að skýra frá faðerninu. Maðurinn var þegar handtekinn og hefur setið í fangelsi síðan. Það er í höndum ríkissak- sóknarans í Álaborg, hvort maðurinn kemur fyrir kviðdóm. Saksóknarinn kannar þessa dagana, hvort hægt verði að dæma manninn eftir míldi- legri lögum i „aðeins" átta ára fangelsi fyrir afbrotið. Maðurinn sjálfur biður um, að tekið verði tillit til játningar hans. Ef það verður gert þarf hann ekki að mæta fyrir kviðdóm og nafn hans verður ekki gert opinbert. Stjúpdóttirin fæddi son sinn fjórtán dögum eftir að skólinn hófst hjá henni. Hún er nú tek- in að stunda skólann á ný. Eiginkona barnsföðursins hefur gætt kornabarnsins, síðan stúlkan var útskrifuð af sjúkrahúsinu. Bensínþjófur í Manchester missti bílinn sinn Lögreglan i Manchester í Bretlandi handtók fyrir nokkru sérlega hugvitssaman bensínþjóf, sem hafði stundað þá iðju í nokkurn tíma. Maðurinn hafði útbúið rafmagnsdælu í bíl sinn og hafði ávallt slöngu til taks til að tappa bensíninu af iiðrum bílum. Til þess að þjófnaður mannsins heppnaðist varð hann að stela af bílum, sem höfðu ólæst bensín- lok. Er hann hafði fundið slikan bíl, lagði hann við hliö bílsins, læddi slöngunni niður i tank hans og dældi síðan í rólegheitum hverjum dropa af bensíni yfir á sinn tank. Um síðir uppgötvaðist þessi hugvitsamlegi útbúnaður, Maðurinn var handtekinn og lögreglunni tókst að sanna á hann að hann hefði að minnsta kosti brisvar sinnum beitt þessari aðferð. Dómurinn hljóðaði upp á að bíllinn væri gerður upptækur eins og togari í landhelgi. Verðmæti bílsins var 600 pund, sem er rúmlega 180.000 íslenzkar krónur. Bjórþambar- inn var enginn asni — þó að hann væri asni Mesti bjórþambarinn í þorpinu Nulles á Norðaustur- Spáni er asni, sem heitir Paco. : Hann er í eigu bónda þar, Senor Jose Vilamova að nafni. Vilamova er mikill bjóraðdáandi og fyrir nokkrum mánuðum, þegar hann vantaði drykkjufélaga bauð hann asnanum sínum í glas með sér. Asninn þekktist boðið og kunni vel við bjórbragðið. Eftir þetta fór Paco að stunda þorpskrána einn og sníkja sér sopa og sopa frá viðskipta- vinunum. F.vrst í stað urðu þeir ákaflega undrandi, þegar asninn bað vingjarnlega um að fá einn sopa. en brátt urðu tnargir þreyttir á að hafa asna- höfuöið sífellt hangandi yfir höfði sér, þegar þeir supu á guðaveigunum. Barþjónarnir á kránni ákváðu því að plata asnann. Þeir buðu honum upp á ölkrús en fylltu hana af vatni í staðinn f.vrir bjór. En Paco sýndi að hann var enginn asni, þó að hann væri asni. Hann spýtti vatnsglundrinu þegar út úr sér illskulegur á svip. Nú hafa þorpsbúar í Nulles sætt sig við það, að Paco sé flestum frentri í að innbyrða bjór. Og barþjónarnir á kranni gefa honum nú bjórinn eins og hverjum öðrum blönkum viðskiptavini, en þo innan vissra takmarka. Þó kemur fyrir öðru hvoru að það hleypur á snærið hjá Paco, þegar honum er boðinn umgangur ásamt hinum bjórþömburun- um.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.