Dagblaðið - 27.10.1976, Síða 8

Dagblaðið - 27.10.1976, Síða 8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1976. Prófkjör Alþýðuflokksins: V Ohugsandi að Geir kœmist í framboð fyrir okkur — formgallar ó framlðgðum reikningum „Við óttumst ekki svo mjög, að fólk úr öðrum flokkum taki þátt í prófkjörum okkar og ráði úrslitum. Við teljum kostina yfirgnæfandi og fólk yfirleitt það þroskað, að það geri ekki slíkt. Þá getur hver sem er ekki farið í framboð fyrir Alþýðu- flokkinn. Gert er ráð fyrir, að frambjóðendur séu flokks- bundnir, og meðmæli ákveðins fjölda flokksbundinna manna þarf til framboðs í prófkjöri. Við teljum sem sé óhugsandi, að Geir Hallgrímsson kæmist í framboð fyrir okkur.“ Þetta sagði Kjartan Jóhanns- son verkfræðingur, varafor- maður Alþýðuflokksins, í við- tali við Dagblaðið um hugsan- legar hættur við hið opna próf- kjör, sem nú er ákveðið í Alýðu- flokknum. Reikningar Alþýðuflokksins voru birtir á flokksþinginu um helgina, og töldu forvígismenn flokksins það marka tímamót. Þó eru margs konar gallar á reikningunum. Efnahagsreikn- ingur nær skammt. Sérstök skrá fylgdi yfir eignir og skuldir. Eign flokksins í Blaðaprenti er kölluð „fram- lag“. Hlutabréf í Alþýðubrauð- gerðinni eru í efnahagsreikn- ingi færð á 4.500 krónur en á 6.900 kr. í skránni. Eignir Alþýðuflokksins samkvæmt skránni eru um 6,3 milljónir en skuldirnar um 8,5 milljónir. Við spurðum Kjartan um þetta. Hann sagði, að skýringin væri sú, að skuldum og reyndar að verulegu leyti eignum vegna Alþýðublaðsins hefði til þessa verið haldið utan við reikninga flokksins. Nú væri í fyrsta skipti leitazt við að hafa þetta saman. Þó væri ekki stigið nema hálft skref í þá átt að færa þetta beinlínis inn á reikninga flokksins. Aðal- atriðið væri, að nú væri engu haldið leyndu en allt birt. Þar. væri stigið fullt skref. Kjartan viðurkenndi, að ekki væri geng- ið eins frá þessu og „bókhalds- menn“ mundu kjósa. Næst yrði' skrefið væntanlega stigið til fulls, einnig í hinu formlega tilliti. Talað væri um „framlag“ til Blaðaprents af þeirri ástæðu einni, að hlutabréf hefðu ekki verið gefin út í Blaðaprenti. Um villu mun vera að ræða, þar sem getið er upphæða hluta- bréfa í Alþýðubrauðgerðinni. Kjartan lagði áherzluna á, að skýrt væri frá öllu, og skipti þá minna máli, þótt fetta mætti fingur út í uppsetninguna. —HH B-vaktin sigraði í skotkeppni lögrelunnar: BETRA AÐ HAFA STYRKA HÖND — þegar skotið er af 15 m fœri „Það eru valdir fimmtán beztu skotmennirnir af hverri vakt til þess að taka þátt í skotkeppni lögreglumanna,“ sagði Magnús Magnússon aðalvarðstjóri, en hann er yfirmaður svokallaðrar B-vaktar, sem sigraði í skotkeppn- inni á dögunum. „Notaðar eru skammbyssur með hlaupvidd nr. 22. Skotið er á skotskífu af 15 metra færi. I ein- menningskeppni sigraði ungur lögreglumaður, Haukur Ölafsson, sem fékk 91 stig af 100 mögu- legum, Börkur Skúlason varð annar og fékk 89 stig en þriðji var Gisli Guðmundsson, rannsóknar- lögreglumaður, er hlaut 88 stig. 1 einmenningskeppni innan sveitarinnar sjálfrar sigraði Haukur með 96 stigum, Börkur Þrír efstu í einmenningskeppninni, Haukur Ólafsson, Börkur Skúla- son og Gísli Guðmundsson, rannsóknarlögreglumaður. DB-mynd: Sv. Þorm. Hin sigursæla skotsveit B-vaktarinnar. A myndinni eru talið frá vinstri. Fremsta röð: Magnús Sörensen, Þorsteinn Alfreðsson, Magnús Magnússon og Þórir Hersveinsson. Önnur röð: Björn Einarsson, Haukur Ólafsson, Jóhann Löve, Björgvin Björgvinsson, Jónatan Hall, Gísli Þorsteinsson óg Börkur Skúlason. Þriðja röð: Þórður Hilmarsson, Helgi Jónasson, Úlfar Hermannsson. Karl Bóason, Ingólfur Sveinsson og Arni Vigfússon. DB-mynd: Sveinn Þormóðsson. hlaut 90 stig og Þórir Hersveins- son hlaut 89.“ Lögreglumennirnir hljóta þjálfun í skotfimi í Lögreglu-, skólanum og er þá betra að hafa styrka hönd. Ekki er þó gert ráð fyrir að lögreglumennirnir not- færi sér skotfimina beinlínis við löggæzlustörf, heldur er þetta liður í almennri þjálfun lögreglu- manna. Við gátum ekki stillt okkur um að spyrja Magnús hvort hann horfði á lögregluþættina í sjón- varpinu, og hvort þeir minntu eitthvað á veruleikann. „Jú, það kemur fyrir að maður lítur á þessa þætti,“ sagði hann og brosti. „En það sem þar er sýnt er mjög ólíkt raunveruleikanum." Magnús Magnússon hefur verið í lögreglunni í hartnær þrjátíu ár og hefur hann verið mjög happa- sæll í starfi sínu. Nýtur hann mik- illa og sívaxandi vinsælda sam- starfsmanna sinna. —A.Bj. Ný leyniregla á íslandi: Deild Rósarkrossreglunnar stof nuð Atlantis Pronaos er nafn á nýrri deild innan hinnar alheims- legu Rósarkrossreglu, A.M.O.R.C., sem stofnuð var hér á landi sl. laugardag. Ekki virðist liggja alveg ljóst fyrir hvað Rósarkrossreglan er, hvilir mikil leynd yfir meðlimum hennar og samkomustað. 1 frétta- tilkynningu frá reglunni segir, að hún sé bræðralag karla og kvenna sem helgi sig námi, rannsóknum og hagnýtingu náttúrulegra og andlegra lögmála. Ekki sé hér um sértrúarflokk að ræða heldur sé tilgangurinn að auðvelda mönnum að lifa i samhljóm við hin skapandi og uppbyggjandi kosmisku öfl. Hægt er að fá send heim viku- lega bréf til að vinna úr, en ekki fylgir með tilkynningunni hvert eigi að snúa sér til að nálgast þau rit. Atlantis Pronaos heyrir undir Norrænu Stórregluna í Gauta- borg, en aðalstöðvar reglunnar eru í San Jose í Kaliforníu. Smygl í Brúarfossi: 134 flöskur af ófengi — og þrjú Tollverðir fundu í fyrradag smyglvarning í m/s Brúarfossi, er skipið lá í Reykjavíkurhöfn, að því er segir í fréttatilkynningu frá tollgæzlustjóra. Fundust 134 flöskur af áfengi, aðallega vodka og 600 sigarettur, eða þrjú „karton". Smyglvarning- urinn var falinn inni i landfestar- rúllum og undir þröskuldum í sígarettukarton íbúð skipverja. Eigendur góssins voru þrír hásetar og bátsmaður á skipinu, en Brúarfoss kom frá Bandaríkjunum um helgina. — ÓV. Petrosjan í HM-úrslit- in í skúkinni Tigran Petrosjan tryggði sér rétt í úrslit heimsmeistarakeppn- innar í skák, þegar hann gerði jafntefli i 10. skákinni i Varese á Italiu. Petrosjan tefldi við Tal og sömdu kapparnir jafntefli eftir aðeins 17 leiki. Þar með hefur Petrosjan hlotið fjóra vinninga úr sjö skákum. Portisch, Ungverjalandi, er með þrjá vinninga úr sex skákum og Mikhael Tal með þrjá vinninga úr sjö skákum. Ellefta skákin milli Tal og Portisch ræður úrslitum um það hvor kemst áfram ásamt Petrosjan. Ef Tal sigrar hefur hann tryggt sér réttinn. þó svo Portisch sigri Petrosjan i 12. og siðustu skákinni í keppni skák- mannanna þriggja um tvö lausu sætin á HM. Portisch var með lakasta stigahlutfall á svæðamót- inu i Biel í sumar, en þeipPetros- jan. Tal og Portisch urðu þar jafn- ir í 3.—5. sæti. I 10. skákinni í Varese hafði Petrosjan hvítt gegn Tal. í Dagblaðinu á laugardaginn var skýrt frá stöðunni eftir sex skák- ir. I sjöundu skákinni gerðu Tal og Petrosjan jafntefli eftir 20 leiki. I áttundu skákinni gerði Portisch (hvítt) jafntefli við Tal i 30 leikjum og i níundu skákinni sömdu Petrosjan (hvítt) og Portisch jafntefli eftir aðeins ell- efu leiki. — h sím.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.