Dagblaðið - 27.10.1976, Side 11

Dagblaðið - 27.10.1976, Side 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1976. 11 sem þar er. Geta blaðamenn- irnir séð sjálfa sig í anda, hang- andi daga og nætur í bænum Americus, þar sem alls ekkert er hægt að gera sér til afþrey- ingar. „Hið eina sem hægt er að gera í Plains,“ sagði einn kunn- ingi Buchwalds, höfundar þessarar greinar, sem verið hefur samferðamaður allra for- setanna síðan Kennedy heitinn var og hét, „er að leika„soft- 6all“ (ekki til 1 íslenzku máli) og eltast við eldflugur. Tilhugs- unin ein gæti orsakað hjarta- áfall á stundinni." „Kannski þeir reyni að kenna ykkur þjóðdansa," sagði þá Buchwald. „Þetta er ekkert fyndið," hélt hinn áfram. „Þegar Nixon var við völd var okkur óhætt að eyða upp undir 20 þús. krónum á dag án þess að nokkur segði orð. Nú er ritstjórinn minn búinn að fá lista yfir gistikostn- að á hótelum hér og þar, og fyrirbýður mér að eyða meiru en 5 þúsund kall á dag. Ef Carter nær kjöri förum við allir á hausinn." „Þið gætuð reynt að fá auka- vinnu við að tína hnetur hjá Carter, hann borgar víst anzi vel.“ „Þetta er alvarlegt vanda- mál,“ svaraði hinn, „og þú gerir bara grín að því. Það þótti mikill heiður hér áður fyrr að fá að fylgja forsetanum um allar jarðir, en ef Carter verður forseti munum við allir koma krjúpandi og biðja um að fá að fara í lögreglufréttirnar á ný.“ „Ertu nú ekki aðeins of dóm- harður?“ spurði þá Buchwald. „Það er ágætt að vera í Plains. Loftið er hreint, mikið sólskin og svo er fólkið sérlega vin- gjarnle6t.“ „Hvaða fólk?“ spurði þá vinurinn. „Ég hef heyrt að það sé alltaf stanzlaust stuð á bensinstöðinni hjá Billy Carter, kvölds og morgna." Nú var vinurinn orðinn gráti næst svo Buchwald spurði að lokum: „Svo þú ætlar þá ekki að kjósa Carter?" „Nei, ekki ég, en konan mín gerir það ábyggilega,“ svaraði sá sorgmæddi þá. „Eftir allar sögurnar sem hún hefur heyrt af ferðum blaðamanna til Hyannisport, Pa':m Beach, Austin, San Clemente o.s. frv., er hún sannfærð um að Plains sé fyrirmyndar sumar- leyfisdvalarstaður fyrir blaða- menn." lagsþróun í landinu. Hins vegar á þetta ekki við, miðað við 10% regluna, því að frá verðlags- árinu 1970/’71 hefur verðá- byrgðin aðeins einu sinni komið til greiðslu að fullu, þ.e. verðlagsárið 1973/74. Á verðlagsárinu 1974/75 er hún aðeins um 75% og frá því greiðslur útflutningsbóta voru upp teknar í núverandi mynd frá og með verðlagsárinu 1959/’60, hefur rikissjóður greitt um 80% af hámarks- ábyrgð. Menn eru ekki á eitt sáttir um, hvort þetta laga- ákvæði sé gott eða vont, en ég held það fari ekki milli mála, að án þessara ráðstafana væri nú skortur á ýmsum landbúnaðar- vörum, sem flytja yrði inn fyrir sjaldséðan gjaideyri. Svo enn sé vitnað í fjárlaga- frumvarpið fyrir 1977, segir á bls. 158: „Einn megintilgangur verðábyrgðarinnar er að tryggja.að landið sé sjálfu sér nægt um þessar vörur og þoli árferðissveiflur”. Utflutningur á landbúnaðar- vörum hefur verið sveiflu- kenndur, stundum hefur aðal- Nýting úrgangs úr þorsk- fiski til mjölvinnslu í grein þessari verður fjallað um nýtingu úrgangs úr bolfiski til vinnslu í fiskmjölsverk- smiðjum, með tilliti til ársins 1970, en í þeim efnum mun enn sitja við nokkurn veginn sama ástand sem þá. Nýting úrgangs úr bolfiski 1970 var metin að þessum hætti: (1) Þorskaflinn var tek- inn upp úr yfirliti yfir hagnýt- ingu fiskaflans 1970 og 1969 í Ægi 1971, bls. 216—232. (2) Fiskmjöl úr úrgangi úr bolfiski var talið nema úr hverju tonni af fiski upp úr sjó, eftir verk- unaraðferðum, eins og hér segir: Freðfiskur..............110 kg Skreið.................. 52 kg Saltfiskur ............. 58 kg Niðursuða ..............110 kg Mjölvinnsla.............220 kg ísfiskur ................ 0 kg Innlend neysla .......... 0 kg Kjallarinn Haraldur Jóhannsson Tölur þessar eru teknar upp úr viðauka við nefndarálit dr. Sigurðar Péturssonar, Hjalta Einarssonar og Gísla Her- mannssonar, „urn aukna fjöl- breytni í framleiðslu sjávar- afurða og eflingu þeirra iðn- greina, sem vinna útflutnings- verðmæti úr sjávarafla,“ frá 1968 en það birtist í Timariti Verkfræðingafélags íslands 1969. Viðauka þennan samdi Óttar Hansson verkfræðingur. — Niðurstöðurnar eru sýndar á töflul. Að frádregnum ísfiski, 47.644 tonnum, og innlendum neyslufiski, 5.410 tonnum, nam fiskaflinn (þ.e. sá hluti hans, sem tekinn var til vinnslu), 422.271 tonni, en við það magn eitt er hámark framleiðslu fisk- mjöls miðað. (slóg úr fiski V togara er þannig ekki meðtal- ið ). Samkvæmt því mun hámark framleiðslu fiskmjöls úr afla báta árið 1970 nema 9,1% af þunga hans, en úr afla togara 5,8%. Framleiðsla fiskmjöls nam 31.863 tonnum árið 1970. Fryst voru 5.777 tonn af fiskúrgangi, en þau munu nokkurn veginn svara til 1.271 tonns af fisk- mjöli. Samkvæmt því svaraði nýting úrgangs úr bolfiskafl- anum til 33.134 tonna af fisk- mjöli. Hámark framleiðslu fisk- mjöls árið 1970 er talið 40.628 tonn. Samkvæmt því var nýting úrgangs úr bolfiskaflanum 1970 um 81,6% af hámarksnýt- ingu. Ófullnægjandi nýtingu úr- gangs úr bolfiski 1970 mun tvennt hafa valdið: (1) I öllum verstöðvum er ekki aðstaða til að nýta úrgang úr fiski. (2)K. í sumum verstöðvum hefur úr- gangur úr bolfiski frá verk- unarstöðvum ekki verið reglu- lega fluttur í fiskmjölsverk- smiðjur. t eftirtöldum verstöðvum voru ekki fiskmjölsverksmiðjur 1970. Á Suðurnesjum eru ekki fiskmjölsverksmiðjur i Höfnum, Garði, Njarðvíkum og Vogum. Fiskúrgangur úr þess- um verstöðvum mun fluttur til fiskmjölsverksmiðja í Grinda- vík, Sandgerði og Keflavík. Á Ströndum, Drangsnesi og Hólmavík er engin fiskmjöls- verksmiðja, en afli I þessum verstöðvum er ekki mikill, sam- tals 577 tonn 1970. A Hvammstanga, Skaga- strönn og Hofsósi var engin fiskmjölsverksmiðja, en að hluta mun fiskúrgangur vera fluttur frá þessum verstöðvum til Sauðárkróks. Á Arskógsströnd, Hjalteyri, Grenivík, í Grímsey og í Flatey var engin fiskmjölsverksmiðja, en afli á þessum stöðum var ekki mikill 1970. Á Húsavík og á Raufarhöfn var engin fiskmjölsverksmiðja. Á Húsavík hefði þó hámarks- framleiðsla fiskmjöls 1970 getað orðið um 551 tonn og á Raufarhöfn um 294 tonn. Á Bakkafirði og Borgarfirði eystra var engin fiskmjölsverk- smiðja, en afli á þessum stöðum var lítill 1970. Á Reyðarfirði var engin fisk- mjölsverksmiðja, þótt hámarks- framleiðsla fiskmjöls hefði þar getað orðið 255 tonn 1970. Nýting úrgangs úr bolfiskafl- anum 1970 eftir verstöðvum er sýnd á töflu II. Best var nýting úrgangs úr bolfiskaflanum 1970 i Hafnarfirði 104,6% (svo að úrgangur hlýtur að hafa verið fluttur þangað úr öðrum verslöðvum>); Suðurnesjum 98,3%, sunnanverðum Aust- fjörðum (Stöðvarfirði, Breið- dalsvik og Djúpavogi) 97,7%, Ölafsfirði 91,8%, Snæfellsnesi 90,7, Stokkseyri og Eyrrbakka 89,9%, Dalvík 89,1%, Þorláks- höfn 85,0% og Hrísey 83,9%. Athygli vekur, að í Reykjavík 1970 virðist nýting úrgangs úr bolfiski hafa verið 51,3% og í Vestmannaeyjum 68,5%, en nokkur úrgangur mun hafa verið frystur á báðum þeim stöðum. Á Siglufirði munu tölur yfir framleitt fiskmjöl hafa brengl- ast. Haraldur Jóhannsson hagfræðingur. Tafla 1 Nýting úrgangs úr bolfiskaflanum 1970 til mjölvinnslu (Tonn ). Frcðfiskur Bátafiskur Hámark A111 fiskmjöls 249.099 27.402 Togarafiskur Hámark A1,i fiskmjöls 35.851 3.943 Skreið 28.094 1.462 3.115 162 Saltfiskur 94.458 5.482 2.154 125 Niðursoð. fiskur 62 7 253 28 Mjölvinnsla 7.440 1.639 1.720 378 ísfiskur 11.644 0 36.025 0 Innl. neyslufiskur 4.934 0 476 0 Samtals 395.731 35.992 79.594 4.636 Tafla II Nýting úrgangs úr bolfiskaflanum 1970 eftir verstöðvum Raunverul. Hámarksframl. framl. fiskmjöls Tonn fiskmjöls Tonn Nýting % 1. Vestmannaeyjar 5.751 3.939 68,5 2. Stokkseyri og Eyrarbakki 623 560 89,9 3. Þorlákshöfn 1.175 999 85,0 4. Suðurnes 7.125 7.002 98,3 5. Hafnarfjörður 1.717 1.786 104,0 6. Reykjavík og Kópavogur 4.728 2.427 51,3 7. Akranes 1.441 1.094 75,9 (Borgarnes 12 — —) 8. Snæfellsnes 2.585 2.344 90,7 9. Vestfirðir 5.847 4.027 68,9 10. Strandasýsla 57 — — 11. Húnavatns- og Skagafj.sýsla 603 321 53,2 12. Siglufjörður 820 2.132 260,0 13. Ólafsfjörður 674 619 91,8 14. Dalvík 15. Akureyri, Arskógsstr., 468 417 89,1 Hjalteyri og Grenivík 1.741 1.253 72,0 16. Hrísey 286 240 83,9 17. Grímsey og Flatey 27 — — 18. Húsavík 551 — — 19. Raufarhöfn 294 — — 20. Þórshöfn 21. Bakkafjörður, Vopnafj. 178 140 78,7 og Borgarfj. 340 219 64,4 22. Seyðisfjörður 577 232 40,2 23. Neskaupstaður 675 455 67,4 24. Eskifjörður 344 218 63,4 25. Reyðarfjörður 255 — — 26. Fáskrúðsfjörður 353 255 72,2 27. Stöðvarfj., Breiðdalsvík, Djúpiv. 521 509 97,7 28. Ilornafjörður Samtals 860 40.628 675 31.863 78,4 Kjallarinn Jón Ragnar Björnsson lega þurft að flytja út mjólkur- vörur, í annan tíma kjötvörur. Hefur þetta að miklu leyti stafað af árferðissveiflum. Ef þróunin s.l. fimm ár er skoðuð, hefur árlega innvegið mjólkur- magn i mjólkursamlögin aukist um rúm 10% en innvigtað dilkakjöt um 28% á sama tíma. Á verðlagsárinu 1970/1971 fóru um 57% útflutningsbótanna til greiðslu á mjólkurvörum, en á nýliðnu verðlagsári aðeins um 10%. Nú er svo ástatt, að ekki má mikið út af bregða, svo ekki verði mjólkurskortur, a.m.k. hér sunnanlands þá tíma ársins, sem framleiðslan er minnst. En til að tryggja næga nýmjólk allan ársins hring, er ekki hægt að komast hjá nokk- urri umframframleiðslu yfir sumarið, sem flytja verður út. Vegna þess, hve miklar sveiflur hafa verið í út- flutningnum, hefur reynst erfitt að vinna að uppbyggingu markaða erlendis, þannig að hægt væri að fullnægja eftir- spurn á hverjum tíma. Þó hafa unnist upp tiltölulega góðir markaðir fyrir óðalsost í Banda- ríkjunum og í Svíþjóð, en nú eru þeir í hættu vegna þess að hráefni hefur skort til þessarar framleiðslu. Nokkuð öðru máli gegnir um framleiðslu dilkakjöts. Fram- leiðslan hefur farið ár vaxandi eins og áður segir og að óbreytt- um aðstæðum má sennilega gera ráð fyrir 3-5000 tonna út- flutningi á ári. as.1. verðlagsári hefur fengist um helmingur verðs á útflutt dilkakjöt, en oft hefur betri árangur náðst. Utflutningur landbúnaðar- afurða hefur við sömu óðaverð- bólguna að glíma og annar út- flutningur. Hins vegar er rétt að gera sér grein fyrir því, að framleiddar eru verðmætar vörur úr ull og gærum til útflutnings, og þegar þær eru teknar með í dæmið, skila útfluttar sauðfjárafurðir um þrem fjórðu af innlenda verðinu í gjaldeyri. Við erum hins vegar í erfiðri aðstöðu vegna samkeppni af hálfu Ný-Sjálendinga, en þeir flytja út nálega fjörtíu sinnum meira magn en við framleiðum. þess eru dæmi, að þeir hafi boðið kjötið ókeypis, ef það væri sótt til Nýja-Sjálands. Ég held það sé vonlaust að standa í samkeppni við slíka risa, þá munar ekkert um að ýta okkur til hliðar með undirboðum. Við verðum að kynna kjötið okkar sé/staklega, ekki aðeins dilka- kjöt, heldur íslenskt dilkakjöt, villibráð, mjög sérstaka og sjaldgæfa vöru. Þetta er hægt, ef jafnan er tryggt ákveðið magn til út- flutnings. Það mun reynast erfitt að fá fullt verð fyrir land- búnaðarvörurnar okkar á meðan landbúnaðarframleiðsla. annarra þjóða er styrkt og toll- vernduð og verðlagning út- fluttra landbúnaðarvara er ekki í nokkrum tengslum við framleiðslukostnað. Frændur okkar Ðanir, ein mesta land- búnaðarþjóð Evrópu, fær greidda um 45 milljarða ísl. kr. úr landbúnaðarsjóði Efnahags- bandalagsins til útflutnings- bóta, svo hér er síður en svo um séríslenskt fyrirbæri að ræða. Jón Ragnar Björnsson, starfsmaður Framleiðsluráðs landbúnaðarins.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.